Morgunblaðið - 07.06.1979, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.06.1979, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JUNl 1979 Frægð er einkennilegt fyrir- bæri. Allir kunna að nefna hana en fáir þekkja hana í raun og veru. Það er eins og eitt nafn sé með einhverjum hætti skýrara og merkingarfyllra en annað, leiki mönnum léttar á tungu, eða hafi öðlast gildi fyrir þá alvöru og virðingu, sem þeir menn leggja í nafnið, er ætla má að þekki fyrirbærið. Löngu áður en fólk hefur hlustað á „Níundu sinfóní- una“ eftir Beethoven, hefur þaö öðlast vitneskju um mikil- leik verksins, heyrt sögur um heyrnardaufa tónskáldið og ef til vill heyrt eða lært að syngja lagstúf úr verkinu. Smám saman líður að því, að upplifun verksins í heild verður ekki umflúin og hver verður þá niðurstaðan? Ekki voru allir samtímanmenn Beethovens sammála um verkið og að það yrði eins konar tákn um mikilleik mannlegrar sköpunar hefði mörgum mætum mannin- um þótt hljóma sem öfugmæli. I dagbók ritaðri af Joseph Carl „Beethoven stjórnaði sjálfur, þ.e. stóð fyrir framan púlt stjórnandans og réri fram og aftur eins og kona. Ymist reisti hann sig til fulls, hnipraði sig saman, fálmaði með höndum og fótum, rétt eins og hann ætlaði sér að leika á öll hljóðfærin og syngja allar kórraddirnar". Þannig virðast tónleikarnir, er níunda sinfónían var upp- færð, hafa verið vægast sagt nokkuð vandræðaiegir í fram- kvæmd og þrátt fyrir mikil fagnaðarlæti, sem sögð eru að hafi byrjað í öðrum þætti eftir pákueinleikinn, þótti mörgum verkið vera misheppnað. Það er haft eftir Carl Czerny, sem var nemandi Beethovens, að tónskáld- ið hafi í kunningjahóp sagt að síðasti kaflinn væri misheppn- aður og glappaskot að hafa kór sem lokakafla, hann hefði í hyggju að fella kórkaflann úr verkinu og semja nýjan hljómsveitarþátt. Eitt atriði, sem ekki hefur mikið verið talað um, er fjármálahliðin, Á sinfóníutón- leikunum í kvöld verður ekki flutt annað verk en ní- unda sinfónían, en stjórnandi þar verður Jean— Pierre Jaquillat. Myndin er tekin á æfingu Söng- s vei tarinnar Fíl- harmóníu og Sinfóníuhljóm- Sinfóní Islands á níundu sinfóníu Beethovens. ’ Venjulega eru um 100 manns íFíl- harmoníu, en vegna flutnings þessa verks hefur verið fjölgað verulega í söng- sveitinni, þannig að 150 söngvarar verða á tónleik- unum íHáskóla- bíóiíkvöld. Stjórnandi Fíl- harmoníu er Marteinn H. Friðriksson, en formaður er Guð- mundur Örn Ragnarsson. Schuppanzigh og mig, fyrir okk- ar þátt í tónleikunum. Nokkrum dögum eftir seinni tónleikana bauð hann okkur í mat.... Hann kom í fylgd með frænda sínum, þungbrýnn, kuldalegur í framkomu og hafði allt á horn- um sér. Við höfðum rétt sezt við borðið er hann beindi um- ræðunum inn á þá braut að þeir sem sáu um framkvæmd tónleik- anna hefðu hlunnfarið sig og lýsti Doport og mig ábyrga." Beethoven átti í margvísleg- um útistöðum við samstarfs- menn sína og var ákaflega óþjáll í viðskiptum og viðkvæmur fyrir athugasemdum og nær óhugs- andi að tala hann til. Þrátt fyrir það að hann átti marga vini, er dáðu hann sem tónskáld, forðuð- ust flestir mikil samskipti við hann geti samið án þess að upplifa tónverk sín í heyranlegu formi. Það er sagt að Beethoven hafi ávallt gengið á móti vindi á gönguferðum sínum og sem skap- andi listamaður hafði hann, ávallt storminn í fangið. Það lýsir Beethoven vel, að í ein- manaleik og þunglyndi grætur hann aldrei. Tilfinningar hans sveiflast á milli örvæntingar og hömlulausrar gleði, vonleysis og baráttuhugs. Þess vegna er Óðurinn til gleðinnar ekki söng- ur hins hamingjusama, heldur andsvar og mótmæli hins óham- ingjusama, sem vill trúa á gleðina ofna saman við það góða og fagra. Beethoven upplifir einhverja mestu hugarfars- byltingu, sem gengið hefur yfir mannkynið, rómantíkina. Mann- Roenbaum, má lesa eftirfar- andi: „Föstudagurinn 7. (maí, 1824) Heitt. ... Á Beethoven tónleikum með Sontag, Unger, Heitzinger og Seipelt í einsöngs- hlutverkum, Umlauf stjórnaði, finnur til með Beethoven. For- leikur og þrír hymnar með Kyrie og Óðnum til gleðinnar; indælt en leiðinlegt — ekki fullt hús. ... Margar stúkur tómar, enginn frá hirðinni. Lítill árangur fyrir svo mikið erfiði. Aðdáendur Beethovens æptu, meiri hluti áheyrenda var þögull, margir voru ekki út alla tónleikana". Þannig segir samtímamaður frá og víst má lesa á milli línanna ótuktarlega afstöðu gagnvart Beethoven og aðdáendum hans. Þrátt fyrir heyrnarleysi sitt vildi Beethoven stjórna verk- um sínum og olli þetta ýmsum erfiðleikum, sérstaklega er varð- aði uppfærslur stærri verka hans. Fiðluleikarinn Joseph Böhm ritaði eftirfarandi: en Beethoven vænti mikils af þessum tónleikum. Það voru honum mikil vonbrigði hversu ágóðinn var lítill og hann ásakaði vini sína um að hafa snuðað sig. Þegar Joseph Húttenbrenner sýndi Beethoven uppgjörið á tónleikunum, sem sýndi að ágóð- inn hafði aðeins verið 420 gyllini, leið yfir tónskáldið. Eftir að hafa verið hjálpað á fætur og lagður á legubekk, lá hann þar og mælti ekki orð. Seint um nótt- ina, er Beethoven var sofnaður, fóru vinir hans og um morgun- inn kom þjónninn að tónskáldinu þar sem það lá sofandi í fötun- um, klæddur eins og hann hafði verið á tónleikunum kvöld- ið áður. Anton Schindler ritaði hjá sér lýsingu á fundi er hann átti með Beethoven eftir seinni tónleikana, varðandi fjárhags- stöðuna eftir þá fyrstu. „Beethov- en trúði því að hann stæði í þakkarskuld við Umlauf, hann og í besta falli leiddu þá sérvisku hans hjá sér. Saga Beet- hovens, sem tónskálds og manns er einstök og stórkostlegt dæmi um volduga skapgerð, viljastyrk og einstæða sköpun- argleði. Þrítugur að aldri, orðinn einn besti píanóleikari samtíð- ar sinnar, er hann útilokaður frá tónleikahaldi vegna vaxandi heyrnardeyfðar. Hann snýst gegn þessum ótíðindum með því að þjálfa svo rittækni sína að gildið fær þá nýtt inntak, Guð er endurskapaður sem góður og elskulegur faðir, fegurðin og réttlætið verður algilt og bræðra- lag manna innsiglað með friðar- hugsjóninni án tillits til stöðu eða þjóðernis. Á þetta trúði Beethoven og án trúar sinnar hefði hann ekki megnað að standa af sér stormsveipa þá er stóðu í fang honum. Sú níunda er ekki aðeins tónverk gert af manni er kann vel til verka heldur bergmál og þórdunur tilfinninga er hljómguðust í huga manns er hafði óvenju mikla þörf fyrir að tjá sig, án þess að geta þó notið þess sjálfur. Það er þessi galdur, sem hlustandinn skynjar án þess að gera sér grein fyrir því og það er þess vegna, sem samtíðarmenn Beethovens létu sér fátt um finnast, því þeir voru ekki tilbúnir til að meðtaka þar.n boöskap sem sú níunda hefur fram að færa, frið og bræðralag. Jón Ásg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.