Morgunblaðið - 07.06.1979, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ1979
3
• Garðar Þórhallsson, stjórnarmaður SVFR, situr og dorgar á neðra Skerinu 1. júní síðastliðinn. Lítið hefur veiðst í Norðurá til þessa.
Ljósm. -gg.
Norðurá
„skítug“
„ÞAÐ eru aðeins 4 laxar komn-
ir á land. enda áin búin að vera
skítug og köld, hún er þó aðeins
að skána,“ sagði Rannveig í
veiðihúsinu við Norðurá í gær.
„Það kom einn í morgun og
einn í gær, þetta eru sæmilegir
fiskar, 8—10 punda og a.m.k.
þrír þeirra veiddir á maðk.
Karlarnir eru þó eftir atvikum
ánægðir, það er ekki hægt að
segja annað,“ sagði Rannveig að
loffam. Þetta er lakasta byrjun í
Norðurá í háa herrans tíð,
venjulega er uppgripaveiði
fyrstu veiðidagana, enda óvenju-
lega snemmgenginn stofn í ánni.
Það er þó tekið að hlýna og ætti
allt því að stefna upp á við á
næstunni.
Veiddu bara
koplaxa
„Veiðin hófst hér 2. júní og
þeir sem veiddu fyrstu dagana
fengu ekki annað en 3—4 niður-
göngulaxa. Ég hef ekki frétt af
þeim sem nú eru við ána,“ sagði
Haukur Pálsson á Röðli í stuttu
spjalli um veiði og horfur í Laxá
á Ásum.
„Áin virðist ekki vera köld
þrátt fyrir vorkuldana," hélt
Haukur áfram, „ég sá gufu
leggja- upp af henni í frosti um
daginn. Annars er áin búin að
vera tær og hrein alla veiði-
dagana, á sama tíma og árnar í
nágrenninu hafa veriö skolaðar
og vatnsmiklar, Blanda er t.d.
alveg ógurleg um þessar mundir,
kolmórauð og þykk eins og
grautur. Snjór hefur allur horfið
af láglendi síðustu dagana, þó er
enn einn skafl við fjósvegginn
hjá mér,“ sagði Haukur að
lokum. — gg.
Flugmála-
stjóra veitt
„Edward
Warner
orðan ”
Fastaráð Alþjóðaflugmála-
stofnunarinnar ákvað á fundi
sínum 4. júní s.l. að veita
flugmálastjóra, Agnari
Kofoed-IIansen, Edward Warner
orðuna, sem er æðsta viður-
kenning til cinstaklings í flug-
málum. 13 aðilar hafa verið
sæmdir orðunni frá árinu 1959,
þar af 10 einstaklingar. Meðal
þcirra er flugkappinn Charles A.
Lindbergh.
Edward Warner orðan var
stofnuð 1958 í minningu dr.
Edward Warner, fyrsta forseta
Alþjóðaflugmálastofnunarinnar.
Orðan er æðsti heiður sem veittur
er einstaklingi eða stofnun fyrir
framlag til borgaralegs flugs.
Sérstök nefnd tekur á móti
tilnefningum hinna 142 þjóða, sem
aðild eiga að alþjóðaflugmála-
stofnuninni. Nefndin gerir síðan
tillögur til fastaráðsins.
Flugmálastjórn efndi til
blaðamannafundar í gær þar sem
tilnefning þessi var kynnt. Sagði
Pétur Einarsson fulltrúi flug-
málastjóra, að Agnari væri veitt
Agnar Kofoed-Hansen flugmála-
stjóri.
orðan fyrir framlag hans til
alþjóðlegra og innlendra flugmála
og væri orðuveitingin mikill
heiður og virðing fyrir íslenzku
þjóðina, sem vakið hefur athygli
meðal allra flugþjóða heims.
Oröuveitingin fer að sögn Péturs
fram 15. júlí n.k. Ekki er ákveðið
hvar, en þrír staðir koma til
greina: Montreal, Helsinki í
Finnlandi eða hérlendis. Agnar
dvelst nú erlendis í erindum flug-
málastjórnar.
Kristinn til Iscargo
KRISTINN Finnbogason tók við
starfi framkvæmdastjóra Iscargo
um síðastliðin mánaðarmót, en
undanfarin ár hefur Kristinn
verið framkvæmdastjóri á
Ti'manum.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Kristinn, að uppbyggingu
fyrirtækisins yrði haldið áfram af
krafti og starfsemin aukin eins og
hægt yrði. Hann sagði að stjórn-
endur fyrirtækisins væru þessa
dagana að samræma hugnmyndir
sínar, og að ljóst væri að vöru-
flutningur í lofti ættu eftir að
stóraukast á næstu árum. Hann
gat þess að íscargo hefði leyfi til
vöruflutninga á milli íslands og
Bandaríkjanna og á næstunni yrði
kannaö hvernig mögulegt væri að
nýta það á sem heppilegastan
hátt.
Deiluaðilar hafna
tillögunum á víxl
SÁTTANEFND ríkisins viðraði í gær við dciluaðila í mjólkur-
fræðingadcilunni gerðardómshugmynd, sem vinnuveitendur
samþykktu en mjólkurfræðingar höfnuðu. í fyrrinótt hafði sátta-
nefndin viðrað hugmynd um miðlunartillögu. sem mjólkurfræðingar
samþykktu, en vinnuveitendur höfnuðu.
Innanhústillaga sáttanefndar
frá því í fyrrinótt, sem mjólkur-
búin höfnuðu, var um 3% grunn-
kaupshækkun strax, 11% hækkun
um áramót til þeirra, sem hafa að
baki 10 mánaða viðbótarnám.
Siðan átti enn að koma til 15%
hækkun vegna viðbótarnáms um
mitt árið 1980, eða samtals 31,5%
fram á mitt ár 1980. Allir
mjólkurfræðingar eða þar um bil
hafa að baki þetta 10 mánaða
viðbótarnám, þannig að þessar
grunnkaupshækkanir hefðu komið
á allan hópinn.
Mjólkurfræðingar samþykktu
þessa innanhústillögu, en vinnu-
veitendur höfnuðu henni á þeim
grundvelli, að þessar hækkanir
yrðu fordæmi á öllum vinnu-
markaðnum, sem þyldi engar slík-
ar hækkanir.
Munu vinnuveit-
endur hafa látið að því liggja á
fundinum að þeir myndu íhuga
mjög gaumgæfilega hugmynd um
gerðardóm. Þegar sáttanefndin
bar síðan fram slíka hugmynd,
samþykktu vinnuveitendur, en
mjólkurfræðingar höfnuðu henni.
„Sumarið er kom-
ið af Guði sent”
Bæ, IIöfðaNtrtfnd 6. júní.
SUMARIÐ er komið af Guði sent.
Hver dagur er nú öðrum betri svo
óðum grænkar. Skafla tekur af
túnum, lækjum og skurðum.
Á Höfðavatni er ís einnig að
leysa. Fuglasöngur í lofti allan
daginn og kríur sem aðrir fuglar
eru farnir að verpa. Yfirleitt er
allt gróandi og fólkið í hátíðar-
skapi. Þó nokkur bið verður á að
kýr verði látnar út. Grunnt er á
klaka ennþá en eitthvað mun
byrjað að bera á tún sem ekki eru
þeim mun blautari. Silungur er
farinn að ganga í sjó.
Togarar afla
vel og eitthvað verður vart við
færafisk á Skagafirði.
— Björn.
Dregið eftir 2 daga
Dregið verður í afmælis- gera þau í dag. Skrifstofan í
happdrætti Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðishúsinu, Háaleitis-
á laugardaginn. Þeir, sem enn braut 1, verður opin til klukkan
eiga ógerð skil vegna heim- 22 í kvöld og síminn er 82900.
sendra miða, eru hvattir til að
Jafnvel
kœfukjötið
rokseldist
GEYSILEG 'sala hefur verið á
landbúnaðarvörum undanfarna
daga eða allt frá því að fréttist um
hina miklu hækkun, sem taka
mun gildi í dag.
Að sögn Agnars Guðnasonar
blaðafulltrúa bænda hafðist vart
undan að afgreiða dilkakjöt og
sömuleiðis var feiknaleg sala á
smjöri, ostum og kartöflum. „Það
var jafnvel roksala í kæfukjöti,
sem hefur selzt sáralítið undan-
farnar vikur eða allt frá því fyrir
síðustu hækkun. Þá tók salan
einnig kipp eins og núna,“ sagði
Agnar.
Hverfisgötumálið:
Gœzluvarð-
hald
framlengt
GÆSLUVARÐIIALD Þráins
Kristjánssonar. sem varð Svavari
Sigurðssyni að bana í húsi við
Ilverfisgötu 1. apríl s.l. rann út 1.
júní.
Gæsluvarðhaldið var framlengt
til 3. september n.k. að kröfu
Rannsóknarlögreglu ríkisins. Rann-
sókn málsins hefur gengið vel og er
nú aðeins beðið eftir niðurstöðum
geðrannsóknar. Þegar þær liggja
fyrir verður málið tekið fyrir til
ákvörðunar um framhaldsmeðferð.
Grunur um
misferlií
38 tilvikum
RANNSÓKNARLÖGREGLA
ríkisins sendi nýlega bflasölu-
málin svonefndu til ríkissak-
sóknara til framhaldsmeðfcrð
ar.
Að sögn Þóris Oddssonar
vararannsóknarlögreglustjóra er
hér um að ræða ætlað misferli í
bílaviðskiptum hjá þremur bíla-
sölum í Reykjavík. Eru forstöðu-
menn þeirra og í sumum tilvik-
um starfsmenn grunaðir um
skjalafais, fjársvik og brot á
reglum um umskráningu. Alls
mun hér vera um að ræða 38
tilvik, þar sem grunur leikur á
misferli hafi átt sér stað í við-
skiptum með bíla.
Rán seldi
TOGARINN Rán frá
Hafnarfirði seldi afla sinn í
Bremerhaven í gærmor^un.
Tojíarinn var með 119 tonn,
mestmegnis ufsa og karfa
og fenffust 28 milljónir
króna fyrir aflann, meðal-
verð 243 krónur fyrir kílóið.
Heita vatnið
komið í Garðinn
Garði 6. júní.
UM mánaðarmótin var hinu lang-
þráða heita vatni hleypt á þorpið
frá hitaveitunni í Svartsengi.
Að sögn Björns Stefánssonar
hefir ekki ennþá verið hleypt á
hús og kemur væntanlega margt
til. Eitt að efnisskortur er í
landinu vegna farmannaverkfalls-
ins. Þá er nokkuð mikill stofn-
kostnaður við að taka inn hita-
veitu enda þótt aðeins þurfi að
greiða ‘/3 af inntökugjaldinu, sem
er um 400 þúsund krónur á
einbýlishús af skaplegri stærð. —
Fréttaritari.