Morgunblaðið - 07.06.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ1979
5
HVAÐ KOSTAR AÐ KYNDA ÍBÚÐ ARHÚSNÆÐIMEÐ OLÍU?
Ársútgjöld þriggja manna
fjölskyldu um hálfmilljón kr.
EIGANDI einbýlishúss, að stærð 450 rúmmetrar — um 115
fermetrar nettó, sem þarf að kynda hús sitt með gasólíu, greiðir
602.842.00 kr. á ári skv. verðlagi dagsins í dag til húshitunar, eða
að meðaltali kr. 50.237.00 á mánuði. Olíustyrkurinn á ári er nú kr.
30.500 á hvern einstakling. Þriggja manna fjölskylda, sem býr í
einbýlishúsi af þessari stærð, mun því þurfa að greiða hálfa milljón
og rúmlega ellefu þús. kr. betur fyrir húshitun á árinu.
Skv. upplýsingum Jóns Ingi-
marssonar hjá Orkustofnun er
reiknað með, að u.þ.b. 13 lítra
olíu þurfi til hitunar hvers rúm-
metra íbúðarhúsnæðis á ári.
Samkvæmt því eru ofangreindar
tölur fengnar. Sagði Jón, að
eyðslan væri mjög misjöfn og
væri bæði háð staðháttum, aldri
húsa, frágangi o.fl. Lægstu tölur
hafa verið nefndar 10 lítrar á
Akranesi og farið allt upp í 28
lítra á Breiðdalsvík. Skv. út-
reikningum Orkustofnunar var
29,4% húsnæðis í landinu árið
1977 kynt með olíu og mun um
67% þess vera íbúðarhúsnæði,
eðá um 12—14 þús. heimili.
Ingvi Ólafsson í viðskipta-
ráðuneytinu tjáði Mbl. að rúm-
lega 50 þús. manns hefðu notið
olíustyrks á þessu ári. Styrkur-
inn var kr. 5 þús. á hvern
einstakling fyrir tímabilið
jan.—marz, en fyrirhugað er að
hækka hann í kr. 8.500 á árs-
fjórðungi út árið, þannig að
hann verður alls 30.500 kr. á
einstakling fyrir árið. Elli- og
örorkulífeyrisþegar geta við
vissar aðstæður fengið einn og
hálfan styrk.
Lítri af gasolíu, sem svo til
alfarið er notuð til hitunar
íbúðarhúsnæðis, kostar í dag kr.
103.05 kr. Söluskattur er ekki
tekinn af olíu til hushitunar, en
hið opinbera tekur í innflutn-
ingsgjöld kr. 35 aura af hverjum
100 kílóum.
Þeir landshlutar, sem mest
þurfa á olíu til húshitunar að
halda, eru Vestfirðir, Austur-
land og Snæfellsnes. Einnig eru
nokkrir staðir á landinu, og þá
sérstaklega á Suðurlandi, háðir
olíuhitun.
Hiísavík:
Óánœgja með
netaveiðar á
handfœraslóð
Húsavík. 6. júní.
ÞORSKVEIÐAR í Skjálfanda nú
undanfarið hafa vakið hér mikið
umtal og finnst mörgum þar ekki
veitt með fiskverndarsjónarmið í
huga.
Húsvískir netabátar hafa verið
með net í flóanum í vor og lítið
fengið. En svo brá við, að Eyfirð-
ingar, sem voru farnir að leggja
net sín þar öfluðu miklu betur.
Skýringin á aflamismuninum kom
svo í ljós þegar upplýstist að
eyfirzku bátarnir voru með 6
tommu möskva en þeir húsvísku
með 7 tommu möskva.
Þetta mun vera leyfilegt en
húsvísku bátarnia hafa ekki notað
þessi net, en eru nú að koma sér
upp trossum með 6 tommu
möskva.
Mörgum sjómanninum þykir
verndunin vera lítil með tilliti til
þess m.a. að umrædd mið hafa
verið handfæramið opnu bátanna
frá Húsavík og hráefnið sem þeir
koma með á landi hefur verið mun
betra en fiskurinn, sem veiðist í
netin.
— Fréttaritari.
INNLENT
Vilhelm G.
Kristinsson
framkvœmda
stjóri SÍB
VILHELM G
Kristinsson
fréttamaður útvarpsins
hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Sambands íá-
lenzkra bankamanna og
tekur hann við því starfi 1.
september n.k.
Vilhelm hóf störf á frétta-
stofu útvarpsins 1970 og
hafði þá unnið í þrjú ár við
blaðamennsku á Álþýðublað-
inu.
Vilhelm G. Kristinsson
Grunnskóla- og framhalds
skólakennarar í eitt félag?
Aðalmál þingsins er sameining
kennara í Landssambandi fram-
haldsskólakennara og þeirra, sem
(eru aðilar að Sambandi grunn-
ákólakennara. Stjórnir beggja
félaganna hafa samþykkt að
hraða sameiningu þeirra eins og
kostur er og samin hafa verið drög
að lögum fyrir hið nýja félag og
hafa stjórnirnar samþykkt þessi
drög í meginatriðum. Ef
sameiningin næði fram að ganga
mundi hið nýja félag hafa innan
sinna vébanda alla kennara í
grunnskólum landsins og allflesta
kennara við framhaldsskóla, að
frátöldum þeim sem hafa háskóla-
menntun. Mundi þetta þýða að
félagatala hins nýja sambands
yrði tæplega 3000.
Þingforseti fulltrúaþingsins var
kjörinn Magnús Jónsson skóla-
stjóri og aðalritari var Snorri
Jónsson yfirkennari.
16. fulltrúaþing Landssam-
bands framhaldsskólakennara
hófst þriðjudaginn 5. júní í húsi
BSRB við Grettisgötu. Þar voru
samankomnir um 80 þingfull-
trúar víðsvegar af landinu, en
félagsskap framhaldsskólakenn-
ara er skipt í deildir eftir kjör-
dæmaskipan og að nokkru eftir
sérstörfum kennara.
ÞingNorður-
landaráðs í
Reykjavík
FORSÆTISNEFND Norðurlanda-
ráðs hefur ákveðið að 28. þing
Norðurlandaráðs skuli haldið í
Reykjavík dagana 3. til 7. mars
1980.
Verð kr. 51.890
SENDUM
BÆKLINGA
BRAUT 8, SIMI 84670