Morgunblaðið - 07.06.1979, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JUNI1979
11
Þorsteins getur hæglega leitt til
eftirfarandi niðurstöðu: Jón
Jónsson fullnægir því skilyrði
Þorsteins, að honum sé fyrir beztu
að deyja, og er sviptur lífi fyrir
tilverknað Bjarna Bjarnasonar, án
vitundar hans um ástand Jóns og
jafnvel af hvötum eins og hefnd-
arþorsta eða fégræðgi, t.d. í von
um arf. í lögfræðilegum skilningi
er þetta venjulegt manndráp, er
gæti varðað fullri refsingu. Stenzt
skilgreiningin siðfræðilega, þegar
svona stendur á?
Af ofangreindu leiðir, að ég tel
ekki óyggjandi, að skilgreining
Þorsteins útiloki með öllu sjúkra-
dráp nazista. Mér reynist þó erfitt
að átta mig á líkunum, þar sem
mælikvarðinn er jafnóljós og raun
ber vitni.
Athöfn „ (athafna-
leysi) — Ábyrgð
— Viðurlög
Þorsteinn setur það á oddinn í
svari sínu 19. maí, að hann hafi
ekki verið að fjalla um ábyrgð
líknardrápara, heldur um gerðina
sjálfa. Hann segist ekki geta
annað séð en að áður en spurning-
ar um ábyrgð og bótaskyldu vakni,
þurfi að hafa sæmilega skýra
hugmynd um, hverjar athafnirnar
eru, sem ábyrgð er borin á eða
ekki borin á. Hann viðurkennir að
vísu í framhaldinu, að hér sé hann
að einfalda flókið mál, kannski
óhæfilega, og að um þetta sé
nokkur ágreiningur meðal rétt-
arheimspekinga. Reyndar er það
svo, að svari Þorsteins virðist hér
fremur beint til annarra heim-
spekinga en til mín. Ég tók skýrt
fram í svari mínu 16. maí, aö ég
fjallaði um málið frá lögfræðilegu
sjónarmiði. í refsirétti eru órjúf-
andi tengsl milli athafnar (at-
hafnaleysis) og ábyrgðar, og á
þeim grundvelli er fjallað um
málið í ritgerð minni í Úlfljóti og
svari mínu í Mbl. 16. maí. Þor-
steinn getur þrátt fyrir það haft
rétt fyrir sér frá heimspekilegu
sjónarmiði, en um það ræði ég
ekki frekar. Að sjálfsögðu er það
grundvallaratriði að kanna vel þá
athöfn eða athafnaleysi, sem refsi-
næm kann að vera (sem maður
getur orðið refsiábyrgur fyrir).
Það er síðan einnig nauðsynlegt að
fjalla um hina refsinæmu hátt-
semi óháð því, hvort hún sætir
viðurlögum eða ekki. Maður kann
að vera sýkn saka vegna svokall-
aðra refsileysisástæðna, t.d. neyð-
arvarnar eða andlegrar vanheilsu,
enda þótt verkið hefði leitt til
refsiábyrgðar undir venjulegum
kringumstæðum.
Ég vil svo að síðustu þakka
Þorsteini Gylfasyni fyrir þátttöku
í ánægjulegum og að ég vona
gagnlegum orðræðum okkar hér í
Morgunblaðinu.
Rannsóknar-
nefnd útflutn-
ingsfyrirtækja
í sjávarútvegi
tekin til starf a
Svo sem kunnugt er aí fréttum
hefur verið skipuð nefnd til athug-
unar á útflutningsverzlun með
sjávarafurðir og hefur nefndin nú
haldið einn fund og annar er
ráðgerður á næstunni. Mbl. sneri
sér til Kjartans Olafssonar for-
manns nefndarinnar og innti
hann eftir starfsemi hennar:
— Við höfum haldið einn fund og
annar er ráðgerður eftir nokkra
daga, þannig að lítið er af okkar
starfi að frétta ennþá. Ég hefi sem
formaður nefndarinnar rætt við þá
aðila er málið snertir, en við
hyggjumst ræða við þá aðila sem
veigamestir eru á þessu sviði,
munum safna upplýsingum bæði
skriflega og í viðræðum við menn.
Fríkirkjukon-
ur með markað
á Lækjartorgi
FÖSTUDAGINN 8. júní mun
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins
í Reykjavík hafa torgsölu á úti-
markaðnum á Lækjartorgi.
Verður þar ýmislegt á boðstólum
svo sem fatnaður margskonar,
blóm og kökur.
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins
er nú komið á áttunda áratuginn,
og allt frá stofnun hefur starf
félagsins einkennst af dugnaði,
myndarskap og fórnarlund. Hefur
það ávallt gengt mikilvægu hlut-
verki í félagslífi kvenna hér í
borginni, unnið að líknarmálum
og stuðlað að menningu og fram-
taki. Meginverkefni félagsins hef-
ur þó alltaf verið að standa að
fegrun og viðhaldi á kirkju
safnaðarins, sem í meir en þrjá
aldarfjórðunga hefur sett svip
sinn á borgina, enda hið fegursta
hús á einum unaðslegasta stað
Reykjavíkur.
Um þetta musteri og öll önnur
áhugamál sín hafa Fríkirkjukonur
ávallt staðið dyggan vörð. Þær
verðskulda því sannarlega stuðn-
ing sambogara sinna í öllu góðu,
sem þær taka sér fyrir hendur.
Þakkir safnaðarins hafa þær
alltaf átt, og mínar persónulegu
þakkir vil ég flytja þeim við þetta
tækifæri. Megi Guð blessa framtíð
félagsins og fórnfúst starf þess.
Kristján Róbertsson.
salnaðarprestur.
Sextán milljón króna halli hjá Kaupfélagi Suðurnesja
Ilcildarvörusala Kaupfélags
Suðurnesja á árinu 1978 var kr.
2.187.262.000 og er það 42% aukn-
ing frá síðasta ári. Sextán millj.
króna halli varð á árinu, eftir að
fullar afskriftir höfðu verið
færðar. Félagið starfrækir slátur-
hús í Grindavík og var þar slátrað
nær 10.500 fjár. betta kom fram
m.a. á aðalfundi kaupfélagsins
sem haldinn var fyrir skemmstu.
I upphafi fundar var minnst
tveggja látinna stjórnarmanna,
Sæmundar G. Sveinssonar og
Hallgríms Th. Björnssonar, sem
var stjórnarformaður Kaupfélags-
ins í nær 20 ár. Sigfús Kristjánsson
flutti skýrslu stjórnar, en Gunnar
Sveinsson kaupfélagsstjóri rakti og
skýrði reikningana.
Reikningar Hraðfrystihússi
Keflavíkur sem er eign Kaupfélags
Suðurnesja lágu frammi á fundin-
um og gerði Benedikt Jónsson
framkv.stjóri grein fyrir þeim.
Heildarvelta frystihússins varð kr.
1.200.- millj. Tap var mikið hjá
frystihúsunum eða um 123 millj.
eftir að fullar afskriftir höfðu verið
færðar sem námu 66 millj. Var
tapið mest á útgerðinni. Hrað-
frystihús Keflavíkur hættir nú að
mestu við bátaútgerð, en hefur
keypt skuttogarann Júlíus Geir-
mundsson í stað bátanna og mun
hann hljóta nafnið Bergvik.
Félagið á annan togara fyrir, þ.e.
Aðalvík K.E. 95. Launagreiðslur
hjá Kaupfélaginu og hraðfrysti-
húsinu urðu 592 millj. á árinu, og
opinber gjöld beggja fyrirtækjanna
voru 48 millj. á árinu.
. •: í:
,:•:■■ ■•:■■:•■
■ • ■"•■■■ ■ý,:-v.;. H
illlftii
ý
\
\
HLJÓMDEILD
Lauflívefli 6«, i. 28155. Glmiba. I. 81915. Auilunliali 22. I. 28155.
•■." b:f •'fpp neiaur en upp~ wyi { 1 1
ll'Wf 1 im sem bundnar 'e&Í-m' ! (
g 1 j ‘g jjvð -! i i