Morgunblaðið - 07.06.1979, Page 12

Morgunblaðið - 07.06.1979, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ1979 r Róbert T. Arnason: Ennum öryggis- og yamarmál Hinn 1/6 þ.m. skrifar Kristján Pétursson deildarstjóri grein í Dagblaðið, sem hann nefnir „Endurskoðun varnarsamnings- ins“. Þessi grein Kristjáns er skrifuð í mjög hefðbundnum stíl. Allt frá 1940 hafa umræður og skrif um öryggis- og varnarmál íslands einkum einkennst af tvennu; annars vegar af deilum um framkvæmd og lagagildi þeirra samninga, sem Island hefur gert við erlend ríki um öryggis- og varnarmálin og hins vegar af órökstuddum fullyrðingum um eitt og annað er snertir þessi mál. Hin íslenska lagahyggja I grein þeirri sem að ofan er nefnd er rætt mikið um lögmæti varnarsamningsins frá 1951 og framkvæmd hans, einkum þó þrjú atriði: 1) — að samningurinn sé brot á fullveldi íslands, 2) — að samningurinn brjóti í bága við tiltekin ákvæði stjórnarskrárinn- ar og 3) — að samningurinn sé svo óskýr að varnarliðsmenn brjóti ákvæði innfluttningslaga og tolla- laga í skjóli hans. Fullveldis- hugtakið Um það að varnarsamningurinn frá 1951 sé brot á fullveldi Islands er þetta að segja. Lagahyggja Kristjáns Péturssonar er, ef dæma má af greininni mikil og hann er án efa vel að sér í lögfræði. Því ætti hann að vita það, að merking hugtaksins full- veldi hefur tekið allmiklum breyt- ingum frá 1945 einkum vegna tilkomu alþjóðastofnana á borð við Sameinuðu þjóðirnar og stofn- anir tengdar þeim og svo ýmissa viðskipta- og efnahagsbandalaga og milliríkjasamninga um að- skiljanlegustu mál. Þátttaka ríkja í bandalögum og milliríkjasamn- ingum hefur breytt hugmyndum manna um skilgreiningu hugtaks- ins fullveldi. í heimi nútímans er því eina leiðin fyrir ríki, sem vill vernda fullveldi sitt til hins ýtr- asta að taka sem minnstan þátt í alþjóðasamskiptum, þ.e. að ein- angra sig. Um varnarsamninginn frá 1951 og fullveldi Islands er þetta að segja. I. í samningnum eru ákvæði sem tryggja fullveldi íslands, s.s. 5. grein og svo fylgiskjal hans um „— réttarstöðu liðs Bandaríkj- anna og eignir þeirra." 2. Samn- ingurinn var samþykktur af yfir- gnæfandi meirihluta þingmanna á Alþingi árið 1951. Þingmennirnir hefðu ekki samþykkt þennan samning ef hann hefði brotð full- veldi Islands og ákvæði stjórnar- skrárinnar. 3. Ef nú svo væri að þingmeirihlutinn bak við samn- inginn 1951 hefði ekki áttað sig á því að samningurinn braut í bága við fullveldi og stjórnarskrá, þá hafa gefist fjölmörg tækifæri síðan 1951 til þess að leiðrétta þessa yfirsjón þeirra og bæta samninginn eða segja honum upp. Það hefur ekki verið gert. Með því að segja samningnum ekki upp, hafa allar ríkisstjórnir, sem setið hafa frá því 1951 staðfest að hann brjóti í engu í bága við fullveldi Islands og stjórnarskrá. Fullyrð- ingar um lögleysu samningsins eru því fullyrðingar um það, að ráðherrar, þingmenn og embættis- menn hafi áratugum saman brugðist skyldum sínum. Ég tel hæpið að Kristján Pétursson eða aðrir séu reiðubúnir að fullyrða að svo sé. Tollar og inn- fluttningur í áðurnefndri grein er farið nokkrum orðum um það, að ákvæði samningsins séu óskýr hvað varðar heimild varnarliðs- manna til tollfrjáls innflutnings. Um það er þetta að segja. Varnar- liðsmenn dvelja hér aðeins skamma stund og þegar þeir hverfa af landinu hafa þeir alla sína búslóð með sér eða þeir selja hluta hennar öðrum varnarliðs- mönnum eða þá að þeir selja það Sölunefnd varnarliðseigna. Við þessi atriði er ekkert að athuga. Það sem varnarliðsmenn flytja inn í landið flytja þeir aftur burt með sér eða losa sig við það á löglegan hátt. Þessir menn eru útlendingar sem búa á afgirtu svæði þar sem haldið er uppi öflugri löggæslu og tollgæslu, sem nægja á til þess að tryggja að tollfrjáls varningur fari ekki út af svæðinu. Ég tel að íslenskir embættis- menn á Keflavíkurflugvelli hafi staðið sig með mikilli prýði í sínu starfi. Ég tel því þarflaust að gera tollfrjálsan innfluttning varnar- liðsmanna að sérstöku umtalsefni. Um lögmætishlið varnar- og öryggismálaráðstafan þeirra, sem íslensk stjórnvöld hafa gert í tímans rás er þetta að segja. Deilur þessar eru um keisarans skegg. Tímabært er að víkja til hliðar lögfræðilegum vangavelt- um í öryggis- og varnarmálum. Lögfræði er merkileg fræðigrein en það þras og þær hártoganir, sem hún hefur viðhaldið hér á landi í umræðum og skrifum um öryggis- og varnarmál eru orðnar Róbert T. Árnason uppþornaðar og leiðigjarnar. Tími er kominn til þess að önnur sjónarmið en þau lögfræðilegu fái að koma fram og hafa áhrif á þessi mál, a.m.k. um stundarsakir. Órökstuddar fullyrðingar í upphafi máls míns gat ég þess að umræður um öryggis- og varn- armál einkennist af tvennu, ann- ars vegar lagahyggju og hins vegar órökstuddum fullyrðingum. Mun ég nú ræða nokkrar fullyrð- ingar sem eru í grein Kristjáns Péturssonar. Öryggi og vernd Það er rangt aö engar ráðstaf- anir hafi verið gerðar til verndar og öryggis íslenskum þegnum. Menn verða hins vegar að átta sig á því að við lifum á öld hraða og tækni og að varnaraðgerðir eru allt annars eðlis í dag en t.d. 1940—45 en á þeim árum kynntust íslendingar hervörnum eins og þær þá tíðkuðust. Nú er öldin önnur. Hervarnir byggjast ekki á strandvirkjum, loftvarnarbyssum, o.s.frv. nema að litlu leyti. Styrj- aldir eiga sér nokkurn aðdraganda og ef svo ófriðlega horfði að líkur væru á styrjöld á Norður Atlants- hafi myndi á skömmum tíma vera fluttir til landsins menn og vopn til að tryggja enn betur en nú er, öryggi íslands. Þeir sem skrifa um varnarmál eiga að kynna sér hinar ýmsu hliðar landvarna en byggja ekki málfluttning sinn eingöngu á því sem þeir hafa fyrir augunum í kringum sig, t.d. á Keflavíkurflug- velli. Um trúnaðarmál og þagnarskyldu Þeir embættismenn, sem hafa með öryggis- og varnarmál að gera fyrir Islands hönd fylgjast náið með því hvað, gerist á Kefla- víkurflugvelli t.d. hvað snertir vopnabúnað varnarliðsins. Þeim er veittur aðgangur að ýmsum trúnaðarmálum og til þeirra er miðla upplýsingum frá Bandaríkj- unum og öðrum NATO ríkjum og einnig frá ríkjum, sem telja sig hlutlaus. Þar sem þetta eru trúnaðarmál og þessir embættis- menn eru bundnir þagnarheiti og trúnaði við íslensk yfirvöld, hlaupa þeir ekki með vitneskju sína í blöðin eða aðra fjölmiðla um leið og þeim berst einhver vitn- eskja. Slíkt væri gróft trúnaðar- brot og myndi leiða til þess að íslenskum stjórnvöldum og embættismönnum væri aldrei trú- að fyrir neinum mikilvægum upplýsingum af neinu tagi, sem snertu öryggis- og varnarmál Is- lands. Þetta á Kristján Pétursson, sem embættismaður að vita. Dylgjur og skætingur íslenskra sósíalista og herstöðvaandstæð- inga um að kjarnorkuvopn séu geymd á Keflavíkurflugvelli á að láta sem vind um eyrun þjóta. Búið er að ganga úr skugga um það svo ekki verður um villst, en dylgjurnar og skætingurinn halda áfram. Slíkt er hinn leiði fylgifisk- ur stjórnmálanna. Þjóðerni, tunga og menning Kristján Pétursson fullyrðir að ein afleiðing varnarsamningsins sé sú, að þjóðin hafi borið stór- skaða af, hvað varðar sjálfstæði hennar, siðferði og fjárhag. Ég vil biðja Kristján að rökstyðja mál sitt með dæmum. Vera má að einhverjir þeirra íslendinga, sem vegna starfa sinna þurfa að hafa náin samskipti við varnarliðið hafi haft miður gott af því, en að fullyrða að öll þjóðin sé í voða er vægast sagt barnaleg fullyrðing, sem á sér enga stoð í veruleikan- um. Það er með menningu og þjóðerni eins og fullveldi, að alger einangrun verndar þessa þætti best. Vilja íslendingar draga sig algerlega út úr öllum samskiptum við erlendar þjóðir? Efnahagslegt sjálfstæði Þessu næst fylgir fullyrðing um að ísland sé orðið það háð Banda- ríkjunum á viðskiptasviðinu, að þau hafi afgerandi áhrif á utan- ríkis- og efnahagsmál okkar. Ég bið Kristján að rökstyðja þetta nánar. Satt best að segja hélt ég, að jafn skarpur maður og Kristján Pétursson væri yfir það hafinn að setja fram þessa gömlu tuggu um samsæri bandaríkjaauðvaldsins gegn íslandi. Tímaritið Réttur og Þjóðviljinn sjá um það. Kristján segir að hagstæð við- skiptakjör okkar við Bandaríkin geti auðveldlega stefnt sjálfstæði okkar í hættu. Ég spyr; Hvernig? íslenska þjóðin Undir lok greinar sinnar full- yrðir Kristján að mikill meirihluti þjóðarinnar sé sammála því, að við eigum að losna við varnarliðið í áföngum. Ég spyr; Hvenær var gengið svona rækilega úr skugga um vilja þjóðarinnar í varnar- og öryggismálum og hvenær kom það fram að „þjóðin væntir þess að núverandi utanríkisráðherra Benedikt Gröndal hafi kjark og dug til þess að koma þessum málum á það stig að íslendingar geti litið stoltir til framtíðarinn- ar?“ Hvenær fór þessi könnun á vilja íslensku þjóðarinnar fram? Staðhæfingar á borð við þessar, að vilji þjóðarinnar sé þessi eða hinn eða að þjóðin krefjist þessa eða hins eru villandi og heimsku- legar. íslenska þjóðin lætur vilja sinn í ljós í kosningum og þar við situr. Hins vegar hafa lengi verið til þeir menn á íslandi, sem telja sig hafa á hraðbergi upplýsingar um það hver sé vilji þjóðarinnar í hinum ýmsu málum. Þeir alhæfa út frá sjálfum sér og þröngum kunningjahópi. Þeir komast að þeirri niðurstöðu að þeir endur- spegli vilja þjóðarinnar, og telja sig þar með koma í yfirskilvitlegt samband við vitund og vilja þess ósamstæða hóps, sem íslenska þjóðin er. Að breyta eða felía úr gildi Kristján Pétursson setur fram tillögur um breytingar á varnar- samningnum og athugasemdir sem lúta að þessum samningi. Þar togast á tvennskonar sjónarmið hjá honum og eru þessi sjónarmið andstæð. Annars vegar telur Kristján upp þær breytingar sem hann vill láta gera á samningnum en hins vegar talar hann um að segja eigi samningnum upp og að varnarliðið eigi að fara. Ég sé enga ástæðu til að breyta þessum samningi ef segja á honum upp. Kristján hlýtur að vera mér sam- mála þar. Samningi sem ætti að segja upp þarf ekkert að breyta, honum væri einfaldlega sagt upp. Eða hvað? Heimsendar tilbún- ar máltíðir fyrir aldraða og öryrkja Stjórn Reykjavíkurdeild R.K.Í. hefur ákveðið að hefja aftur heimsendingu tilbúinna máltíða til aldraðra og öryrkja í Reykjavík. Tilhögun verður nú önnur en áður var, þar eð maturinn er frystur. Maturinn verður sendur út einu sinni í viku og verða minnst þrjár máltíðir sendar heim. Maturinn verður seldur á kostnaðarverði frá framleið- enda, en heimsendingarkostnað- ur og önnur umfjöllun varðandi matarsendingarnar er framlag deildarinnar vegna þessarar þjónustu. Stjórn Reykjavíkur- deildar hóf þessa þjónustu viö aldrað fólk og öryrkja fyrir nokkrum árum, og mæltist hún vel fyrir. Þetta var þá algert nýmæli, sem ekki hafði þekkst áður hér á landi. Þeir sem óska að njóta þessar- ar þjónustu geta fengið allar nánari upplýsingar á skrifstofu Reykjavíkurdeildar R.K.Í., Óldu- götu 4, sími 28222 og er þar veitt móttaka á pöntun á matnum. (Frí Htjórn Roykjavíkurdclldar R.K.Í.) Tekið á móti máltiðunum tilbúnum, sem Reykjavíkurdeild Rauða krossins sér um að senda heim til aldraðra og öryrkja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.