Morgunblaðið - 07.06.1979, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ1979
17
Þetta gerðist
7. júní
1975 — Síðasta bandaríska her-
flugvélin flutt frá Taiwan.
1969 — Samsæri fyrrverandi
herforingja í Grikklandi mis-
tekst.
1968 — Sirhan B. Sirhan
ákærður fyrir morðið á Robert
Kennedy.
1967 — ísraelsmenn sækja að
Súez-skurði.
1942 — Orrustunni um Midway
lýkur með sigri Bandaríkja-
mannaá Japönum.
1940 — Skipulagðri mótstöðu
gegn Þjóðverjum lýkur í Noregi.
1935 — Stanley Baldwin
skipaður forsætisráðherra Bret-
lands.
1917 — Orrustan um Messines.
1906 — „Lusitaniu‘< hleypt af
stokkunum.
1905 — Stórþingið lýsir yfir
aðskilnaði Noregs og Svíþjóðar.
1866 — Prússneskur her sækir
inn í Holstein.
1862 — Bandaríkin og Bretland
gera samning um bann við
þrælasölu.
1672 — Hollendingar sigra flota
Breta og Frakka í Soutwold-flóa.
1654 — Krýning Loðvíks XIV í
Rheims.
1557 — Englendingar segja
Frökkum stríð á hendur og
Skotar gera innrás í England.
1546 — Stríði Englendinga við
Frakka og Skota lýkur með
Ardresfriðnum.
1494 — Tordesillas-sáttmáli
Spánverja og Portúgala um
skiptingu Nýja heimsins undir-
ritaður.
Aímæli. John Rennie, skozkur
verkfræðingur (1761 — 1821) =
Paul Gauguin, franskur list-
málari (1848-1903) = Knud
Rasmussen, danskur land-
könnuður (1879—1933).
Andlát. Robert Bruce Skota-
konungur 1329 = Friðrik Vil-
hjálmur III af Prússlandi.
Innlent. íslandsbanki tekur til
starfa 1904 = f. Thomas
Sæmundsson 1807 = Skipun
konungs um flutning latínuskóla
til Reykjavíkur 1841 = d. Grímur
Jónsson amtmaður 1849 = Þor-
lákur Guðmundsson alþm. 1906 =
Galdraákæra síra Páls í Selár-
dölum gegn tveimur mönnum
fyrir að kvelja konu hans 1669 =
Sjö skip farast frá Önundarfirði
og 54 drukkna 1812 = íslenzkir
landnemar koma til
Norður-Dakota 1878 = f. Ari
Arnalds 1872 = Halldór Friðjóns-
son 1882 = d. Alexander
Jóhannesson 1965.
Orð dagsins. Ómögulegt er orð
sem finnst aðeins í orðabókum
— Napoleon Bonaparte
(1769-1821).
Kínverjar selja
Egyptum vopn
Ismailia 5. júní Reuter.
SADAT Egyptalandsforseti
kunngerði í dag að gengið hefði
verið frá samningi um að Kín-
verjar seldu Egyptum vopn, og að
alveg á næstunni myndi verða
óskað eftir leyfi frá bandaríkja-
mönnum til að smíða mjög full-
komin vopn.
Veður
víða um heim
Akureyri 13 skýjaö
Amsterdam 12 skýjaö
Apena 20 lóttskýjaö
Barcelona 22 lóttskýjað
Berlín 15 sóslkin
BrUssel 8 lóttskýjaö
Chícago 15 skýjaö
Frankfurt 15 bjart
Genf 17 skýjaö
Helsinki 10 sóslkin
Jerúsalem 16 sóslkin
Jóhannesarborg 6 sóslkin
Kaupmannahöfn 12 sólskin
Lissabon 15 sólskin
London 10 sólskin
Los Angeles 17 léttskýjaö
Madríd 17 léttskýjaö
Malaga 23 lóttskýjaö
Mallorca 26 skýjaö
Miami 25 skýjað
Moskva 6 sólskin
New York 20 lóttskýjaö
Osló 12 sólskin
París 12 sólskin
Roykjavík 9 skýjaö
Rio De Janeíro 12 skýjaö
Rómaborg 16 lóttskýjað
Stokkhólmur 13 sólskin
Tel Aviv 19 sólskin
Tókýó 18 skýjaö
Vancouver 11 sólskin
Vínarborg 17 sólskin
Sadat sagði að það væri honum
mikil ánægja að skýra frá þessu
en hann tilgreindi ekki nánar
hvað Egyptar fengju frá Kína, en
vestrænar diplómatiskar
heimildir segja að samningurinn
feli meðal annars í sér að Egyptar
fái að minnsta kosti 60 MIG-19
vélar sennilega eldri gerðir,
sihíðaðar í Kína. Um afhendingar-
dag vopnanna var ekkert sagt.
Búizt er við að vélar þessar geti
komið að verulegu gagni, einkum
við þjálfun flugmanna.
Tilkynningin kom flatt upp á
menn þar sem ekki er vitað til að
viðræður æðstu manna ríkjanna
hafi farið fram.
Leidtoginn
nýi lof ar
kosningum
I>ondon. 6. júní, AP.
HINN nýi leiðtogi Ghana, Jerry
Rawlings, flugliðsforingi, hefur
heitið því að ieiða heilindi og
manngildi til vcgs í landi sínu.
Tilkynnti hann í fyrsta útvarps-
ávarpi sínu að byltingarráðið yrði
leyst upp og efnt til lýðræðislegra
kosninga átjánda júní nk. Óstað-
festar heimildir herma að fyrir-
rennari Rawlings, Fred Akuffo
hershöfðingi, hafi verið særöur
hnífsstungum, og yfirmaður her-
aflans, Neville Odartey-Wellingt-
on, drepinn í valdatökunni á
mánudag. Leiðtoginn nýi er þrjá-
tíu og tveggja ára gamall og
sagður af skozku faðerni. Hann
slapp úr fangelsi sama daginn og
hann hrifsaði völd í Ghana.
Metverð
águlli
Lundúnum, 6. júní. AP.
VERÐ á gulli náði hámarki í gær
þegar verð á únsu fór upp yfir
280 doilara á gullmörkuðum.
Eftirspurn eftir gulli var gífurleg
vegna olíuhækkana undanfarið og
aukinnar verðbólgu víða um heim.
Aðstandendur undirskriftasöfnunarinnar
næg og góð dagvistarheimili fyrir öll börn. Ljósm. Kristinn
Afhenda borgarstjórn
um 10.000undirskriftir
Nýlega er lokið í Reykja-
vík undirskriftasöfnun um
dagvistunarmál. Að söfn-
uninni stóðu tólf félög og
mynduðu þau með sér sam-
starfshóp til að stýra
sameiginlegum aðgerðum,
sem beinast áttu að því að
knýja á um úrbætur á
þessu hagsmunamáli.
Samstarfshópurinn stóð fyrir
tvennskonar aðgerðum i þessu
skyni. I fyrsta lagi stóð hópurinn
fyrir kröfugöngu og útifundi á
Lækjartorgi og tókust þær
aðgerðir vel, að sögn þeirra sem að
mótmælum þessum stóðu. I öðru
lagi stóð hópurinn fyrir undir-
skriftasöfnuninni „Næg og góð
dagvistarheimili fyrir öll börn“.
Söfnunin hófst þann 8. mars og
lauk nú fyrir skömmu, hefur
söfnunin því staðað í þrjá mánuði.
Um 10.000 undirskriftir söfnuðust,
en það er nokkru minna en hópur-
inn hafði reiknað með. Eigi að
síður telja aðstandendur söfn-
unarinnar árangurinn góðan því
illa tókst að virkja félaga hreyf-
ingarinnar til undirskriftasöfnun-
ar. Hópurinn var ánægður með
þær viðtökur sem söfnunin fékk
og taldi að unnt heföi verið að
safna fleiri undirskriftum hefði
meiri mannafli verið tiltækur.
Hinar tíu þúsund undirskriftir
verða afhentar borgarstjórn á
fundi hennar á fimmtudaginn,
þann 7. júní kl. 16.30 og Skúlatúni
2 og hvetur hópurinn sem flesta til
að vera viðstaddir afhendinguna
og styðja hana með því móti.
Flugleiðir:
Nýbreytni í innanlandsflugi
FLUGLEIÐIR tóku upp
þá nýbreytni í mars s.l. að
farþegar sem flugu frá
Reykjavík til Akureyrar,
en ætluðu að koma suður
samdægurs, gátu innritað
sig til beggja flugferðanna
í einu, þ.e. frá Reykjavík
til Akureyrar og sömu-
leiðis frá Akureyri til
Reykjavíkur. Hinn 21. maí
s.l. tók félagið upp sömu
tilhögun á ferðum til Vest-
mannaeyja, ísafjarðar og
Egilsstaða.
Frá og með 1. júní var tekin upp
framhaldsinnritun og merking
farangurs þeirra farþega sem
fljúga með Flugleiðum frá
Reykjavík til Akureyrar eða
Egilsstaða og áfram með Flug-
félagi Norðurlands eða Flugfélagi
Austurlands til annarra enda-
stöðva. Farþegar þurfa því ekki að
skipta sér af farangri sínum fyrr
en á endastöð er komið.
V i kí ^ ' V
Verslunin Kjalfell. Gnoðarvogi 78, var opnuð á ný 22. maí s.l. eftir að breytingar höfðu verið gerðar á
húsnæði hennar. Nýjum mjólkur- og ávaxtakæli var komið fyrir í versluninni auk nýrra innréttinga. Þá
var einnig settur upp djúpfrystir fyrir kjötvörur.
Kvöidsala er starfrækt í sambandi við verslunina og er hún opin til kl. 23.30 alla daga. Á meðfylgjandi
mynd er eigandi Kjalfells. Hólmfríður Einarsdóttir ásamt starfsstúlkum í versluninni. Talið frá vinstri
Kristjana Jónsdóttir, Hólmfríður Einarsdóttir, Valdís Oddgeirsdóttir og Erla Kristinsdóttir.