Morgunblaðið - 07.06.1979, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 1979
19
— Liggur mikil vinna að baki
þessari sýningu?
„Já, ég byrjaði að yinna að henni
fyrir tveimur árum. Ég sýndi síðast
1973. Það tekur mig tíma að komast í
gang, en þegar því er náð, kemst ég í
virkilega keyrslu. Það hefur allt
gengið út á sýninguna — öllu öðru
vikið frá, ekkert einkalíf — vinnan
verður manns líf.“
— Ilvernig vinnur þú að verkum
þínum?
„Ég sé, leita að því skáldlega,
ijóðræna. Ég fer út og finn verkefn-
in, geri aldrei skissur eða tek ljós-
myndir. Ég geymi myndina í huga
mér og mála hana síðan. Maður
verður að hafa þetta inni í sér.
Á sýningunni er ég með nokkuð
nýjan stíl. Það má segja, að
myndirnar séu nýtt andlit á gömlu
myndefni. Ég mála sóiina, sumarið,
stíllinn er ljóðrænn", og Kári bendir
á eina m.vndina og spyr, án þéss að
æskja svars: „Sérðu ekki þetta ljóð-
ræna ívaf?
— Síðan sveigi ég stílinn yfir á
víkur, voga, bæi — gömlu útræðin.
Ég er einnig með nokkrar myndir
sem eru meira abstrakt — seríu, ég
kalla hana skaflaseríu — ég fékk
hugdettu — dellu, og þetta er útkom-
an, þar er snjórinn, skaflarnir,
veðrið.“
— Ertu búinn að finna þig í
þessum stfl?
„Þetta er aðeins áfangi — ihugun-
in tekur síðan við og hvað síðar
verður er ómögulegt að segja — það
er óráðin gáta, er það alltaf."
— Hvað með liti?
„Á litum hef ég aldrei haft áhuga
— þeir koma af sjálfu sér. Ég mála
persónuleg mótíf og ljóðræna hluti
— þeir þola ekki marga liti. En það
má nokkuð marka hvað árstíma ég
mála á af litavalinu. Ég er nokkuð
árstíðabundinn, t.d. eru grænu
litirnir mest á sumarmyndunum,
þær dökkbrúnu frá október og
nóvember — haustlitirnir koma
fram á haustin o.s.frv."
— Ertu ánægður með undir-
tcktirnar á sýningunni?
„Já, ég er mjög ánægður. Ég hef
persónulega þörf á að koma þessu
frá mér og fólk er ánægt með
útkomuna, og þá er ég ánægöur."
— bví hefur vcrið haldið íram,
að verk þín séu nokkuð dýr. Ilvað
viltu segja um það?
„Myndirnar eru verðlagðar að
meðaltali frá kr. 350 þús. til 750 þús.,
en þær eru ekkert dýrari en á
sýningunni 1973. Við erum bara með
allt aðrar tölur i höndunum nú.
Mikill.hluti myndanna er þegar
seldur, þannig að fólk virðist ekki
telja eftir sér að borga vel fyrir
þær.“
Kári sagði að lokum: „Ég hefi þá
skoðun, að til að halda sýningu sem
þessa þurfi maöur að vera meira en
góður. Maður þarf að vera eitthvað
annað. — Hvað? Það vitum við
ekki.“
Gjaldahlið verðlagsgrundvallar-
ins hækkar um 13,33%. Launin
hækka um 11,4%. Áburður
hækkar um 51,59%, olía um
49,5%, kjarnfóður hækkar um
5,76%. Ýmsir aðrir liðir hækka
einnig eins og t.d. sími og
rafmagn. Heildarútgjöld verðlags-
grundvallarbúsins eru metin á
tæplega 12,9 milljónir kr.
Útgjöldunum er skipt nokkurn
veginn jafnt á afurðir búsins,
nema á gærur og ull, sem hækka
ekki í verði til bænda, því kemur
öll hækkun sauðfjárafurða á kjöt
og slátur.
Hækkun hefur einnig orðið á
vinnslu og heildsölukostnaði
mjólkur, það er vegna hækkaðra
launa í mjólkurbúunum og
verulegrar hækkunar á orku og
ýmsum öðrum kostnaðarliðum.
Óniðurgreitt heildsöluverð á
nýmjólk hækkar um 13,6%, en
verð á niðurgreiddri mjólk
hækkar um 26,4%. Óniðurgreitt
verð á 1. fl. dilkakjöti hækkar í
heildsölu um 12,4% en niðurgreitt
heildsöluverð á því hækkar um
24,5%.
Krónutala smásöluálagningar
hækkar um 11%.
GUÐRÚNARÆÐI. Guðrún Á.
Símonar söngvari hélt tónleika í
Háskólabíói í gærkvöldi fyrir
troðfullu húsi og var blússandi
stemmning á tónleikunum. Fram
komu fjölmargir aðrir listamenn með
Guðrúnu. Miðasalan á tónleikana sló
Miðarnir
seldust upp
á 45 mín
öll met í Háskólabíói og eru þeir þó
ýmsu vanir í sambandi við kvik-
myndir að undanförnu. Miðarnir á
tónleika Guðrúnar seldust upp á 45
mínútum. Guðrún Á. heldur aðra
kvöldskemmtun með kompany í létt-
um dúr og moll í Háskólabíói kl. 7.15
annað kvöld. föstudagskvöld og hefst
miðasalan kl. 4 í dag í Iláskólabíói
Myndina tók Kristján af hinni gífui
legu röð sem beið eftir miðum
fyrstu tónleikana, biðröðin náði ú
á Dunhaga.
LANDSSAMBAND ísl. útvegsmanna hélt í gær íélagsfund og sátu hann nærri 100 útgerðarmenn víðs vegar af landinu. Kristján Ragnarsson
formaður LÍÚ gerði þar grein fyrir ástandi og horfum í málefnum útgerðarinnar og kom m.a. fram í máli hans að olíuverð umfram 103 kr. eins og nú
er geti ekki komið inn í fiskverðsgrundvöll, heldur verði að leysa þá hækkun með öðrum hætti. Á fundinum var samþykkt tillaga þess efnis að öll
fiskiskip í eigu félagsmanna LÍÚ hætti fiskveiðum eigi síðar en mánudaginn 11. júní kl. 24 og láti ekki úr höfn fyrr en „fiskverð hefur verið ákveðið og
úrlausn hefur fengist á þeim vandamálum, sem stórhækkað olíuverð hefur valdið útgerðinni og ákveðið hefur verið með hvaða hætti brugðist verður
við cnn frekari olíuhækkun," segir í samþykkt fundarins, en 82 greiddu henni atkva^ði með og 2 á móti.
Kristján Ragnarsson formaður
LÍÚ sagði í samtali við Mbl. að
þau rök, sem sýndu að ekki væri
hægt að mæta auknum olíukostn-
aði án þess að gripið yrði til
einhverra aðgerða, væru m.a. að í
júní í fyrra var olíukostnaður 21%
af aflaverðmæti útgerðarinnar,
þ.e. eftir að sjómenn hafa fengið
sinn hlut, nú er olíukostnaðurinn
45% aflaverðmætis, en verður
61% ef hækkunarbeiðni olíufélag-
anna nær fram að ganga, en hún
er 138,55 kr. fyrir lítrann. — Við
höfum beðið aðgerða í margar
vikur, því ljóst var strax snemma í
maí að við svo búið getur ekki
gengið og biðlund okkar er brostin-
þar sem engar aðgerðir hafa enn
séð dagsins ljós, sagði Kristján
Rajgnarsson ennfremur.
I rekstraryfirliti um fiskveiðar,
sem LÍÚ hefur tekið saman, kem-
ur fram að tap á fiskveiðum
nemur frá 1,7 upp í 7,9 milljarða
en loðnuskipin eru ekki meðtalin.
Tapið á bátaflotanum nemur 7,9
milljörðum, á minni togurunum
4,7 milljörðum og stærri togurun-
um 1,7 milljörðum, á minni
togurunum 4,7 milljörðum og
stærri togurunum 1,7 milljörðum
en samanlagt er þetta tap 14,4
milljarðar króna eða 23% af tekj-
um.
„Staða bátaflotans er lökust, en
sú útgerðargrein á ekkert afgangs
upp í fastan kostnað, þ.e. viðhald,
vexti og afskriftir. Hagur togara-
flotans er nokkuð betri, þó afleitur
sé. Togaraflotinn hefur að nokkru
getað mætt hinni gífurlegu olíu-
verðshækkun með brennslu svart-
olíu, þannig hefur nú þegar eða
verður á næstunni 23 togurum af
minni gerð breytt til svartolíu-
brennslu og 6 stórum,“ segir m.a. i
greinargerð LÍÚ. Síðan er fjallað
um hversu mikið fiskverð muni
þurfa að hækka og segir m.a. um
það:
Sé litið fram hjá þessu og
dæmið skoðað í heild, ásamt því
að gert er ráð fyrir 8% viðbótar-
oh'ugjaidi til þess að mæta út-
gjaldaauka vegna síðustu olíu-
hækkunar má ætla, að hækkunar-
þörí á íiskverði til skipta sé um
30%. Þetta samsvarar því að
hráefniskostnaður vinnslunnar
yrði að hækka um 38% eða laus-
lega áætlað um ríflega 20 millj-
arða króna. Öllum er ljóst, að
slíkri hækkun yrði eingöngu mætt
með gengisfellingu, sem ylli enn
frekari hækkun á gjaldahlið út-
gerðarinnar og heföi eingöngu
takmarkað gildi vegna aukinna
gengis- og verðtrygginga.
í ræðu sinni á fundi LÍÚ ræddi
Kristján Ragnarsson einnig
nokkuð um nýjar hugmyndir um
lánskjör Fiskveiðasjóös. Sagði
hann að til umræðu væru hug-
myndir um að vísitölubinda 80%
lánanna í stað 27% eins o nú væri
að lækka gengistryggingu þeirra
úr 73% í 20%, að vextir verði
hækkaðir úr 11% í 12% og
dráttarvextir úr 3 í 4%. Sagði
Kristján að miklar líkur væru á
því að tillögur þessar yrðu sam-
þykktar, en þó hefði fengist
frestur á að svo yrði meðan
útgerðin fengi að athuga málin.
Að lokinni ræðu Kristjáns urðu
allmiklar umræður og tóku til
máls útgerðarmenn víða að af
landinu. Flestir lýstu fylgi sínu
við hugmyndina um stöðvun flot-
ans sem næði til tæplega 4.000
sjómanna, nokkrum fannst frest-
ur of stuttur og nokkrir kváðu sig
ekki hafa umboð samstarfsaðila
sinna til að samþykkja aðgerðir
eða andmæla og sátu því hjá við
atkvæðagreiðsluna og fulltrúi Út-
gerðarfélags Akureyringa gerði
grein fyrir atkvæði sínu ög kvað
félagið andvigt stöðvun.
Ljósm. Emflía.
Frá félagsfundi Landssambands ísi. útvegsmanna á Hótel Loftleiðum í gær.
Fjögur þúsund sjómenn
hættaveiðum á mánudag