Morgunblaðið - 07.06.1979, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 1979
27
norskri konu, Ingrid Mikkelsen. 3)
Jón Baldvin, f. 1917, húsgagna-
smiður í Reykjavík, kvæntur Gyðu
Bjarnadóttur. 4) Anna, f. 1919,
ógift á Akureyri. Öll hafa þau
systkin erft gáfur ýmiss konar og
margv’íslega mannkosti foreldra
sinna og áa enda hlotið hið besta
uppeldi í foreldrahúsum. Hjá
Birni og Guðrúnu ólust að miklu
leyti upp Ari Kristinsson, sjómað-
ur á Dalvík, nú látinn, og Baldur
Ingimarsson lyfjafræðingur á
Akureyri.
Björn í Tjarnargarðshorni
skorti ár til að verða tíræður og
var lengstaf furðu hraustur. Hann
sofnaði úr heimi hægt og rólega,
og þegar hann mátti ekki lengur
mæla, tjáði bros og augnaráð
hjartnæmar tilfinningar hans til
barna og annarra afkomenda sem
yfir honum vöktu til hinstu stund-
ar. Hljóti hann nú þann frið sem
hann vildi öðrum veita. Frændur
hans, sveitungar og vinir þakka
honum ræktarsemina og dyggð-
irnar allar, og þjóðin á nú á bak að
sjá einum hinna réttnefndu alda-
mótamanna sem í blóma lífs síns
helguðu íslandi krafta sína
óskipta og af hugsjón, þegar
óvenjulega bjart var yfir íslensku
þjóðlífi.
6.6. '79
Gfsli Jónsson
bað var fyrir óralöngu að lítil
stúlka stóð í fyrsta sinn á bað-
stofugólfi í gömlum torfbæ í
Svarfaðardal og Björn bóndi og
Guðrún húsfreyja buðu hana vel-
komna. Minningin um sólskinið,
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM jm
Eg held. að eitthvað hljóti að vcra að kristindómnum hjá
okkur. Svo virðist sem okkur skili æ lengra í burtu frá
sannri trú. Ilver er yðar skoðun?
í fyrsta lagi hygg eg, aö um marga okkar megi
segja, aö trú okkar eða kristindómur sé aðeins á
yfirboröinu. Hún hefur ekki í raun og veru breytt
persónu okkar. Við lendum í flokki farísea, en Jesús
sagði við þá: „Þér hreinsið bikarinn og diskinn að
utan, en að innan eru þeir fullir ráns og óhófs“ (Matt.
23,25). Við höfum ekki tekiö neinum stakkaskiptum.
Við erum flysjungar í trúnni.
En þeirri skoðun vex fylgi í mörgum kirkjudeildum,
að kristin trú okkar þurfi að vera sannari og heilli, ef
við eigum að hafa einhver áhrif á heiminn. Litlir
hópar einlægra, trúaðra manna eru farnir að koma
saman til þess að rannsaka líf sitt, biðja, lesa
Biblíuna saman og breyta anda og hugsjónum hins
sanna kristindóms í athöfn.
Kirkjuhús okkar eru dýr og vegleg. Þau eru aðeins
skurn, sýnilegur hjúpur andlegs lífs. Þau verða ekki
annað en grafhýsi, ef þeir, sem tilbiðja inni í þeim,
eru dauðir í hjarta sér.
Nú á dögum biðja þúsundir manna fyrir andlegri
vakningu og vinna að komu hennar. Eg hvet yður og
aðra til þess að láta Krist sitja í fyrirrúmi í lífi yðar
og leyfa honum að nota yður til að breyta heiminum.
sem streymdi inn um litla glugga
á hvítskúrað gólf, fallega búnar
rekkjur og þessi góðlegu hjón, er
enn í dag svo skýr, að það er iíkast
því sem tíminn hafi staðið kvrr og
þetta hafi í raun gerst í gær. Þetta
eilífa sólskin og birtan, sem staf-
aði frá þessum hjónum, áttu eftir
að lýsa barninu mörg sumur og
gefa því ómetanlegan fjársjóð af
dýrmætum minningum, sem
aldrei fellur á.
Stúlkan situr á sólbrúnu hlað-
inu og horfir á Björn bónda tálga
brúnspón í hrífutinda. Svarti
hundurinn sefur værðarlega og
hvítar hænurnar spígspora sett-
lega fram og aftur. Bæjarlækur-
inn sönglar letilega, og ilmur af
nýbökuðu pottbrauði fyllir vitin.
Björn bóndi segir: „Komdu hérna,
góan mín, og finndu, hvað hrífan
þín er lauflétt og fín.“
Víst er, að önnur eins hrífa
hefir aldrei verið til, enda gerð af
slíkri alúð og vandvirkni sem var
aðalsmerki þessa manns allt hans
líf. Þarf ekki annað en rithönd
hans til að sjá, að þar fór lista-
maður af guðs náð. Eða hross-
hársreipin, sem voru fléttuð í
mörgum litum, svo listilega gerð,
að þau ættu heima á söfnum, væru
þau ennþá til.
En það var ekki aðeins hrífan
fallega, sem gladdi stúlkubarnið
þessi sumur, heldur sá ómetanlegi
lærdómur, sú aldagamla menning,
sem miðlað var á þessu heimili, til
þroska og skilnings ungu barni. —
Það verður seint fullmetið og
aldrei nógsamlega þakkað.
Inni í eldhúsinu hennar Guð-
rúnar var sú kyrra hlýja, sem
hafði mikið aðdráttarafl fyrir
telpukornið. Æfinlega var þessi
kona jafnróleg, hversu mikið sem
gera þurfti. A meðan hún bakaði
stóru, dökku pottbrauðin sín í
sívölum dunkum, eða flatbrauð á
fornri kolaeldavél, fékk sú litla að
mala kaffibaunirnar í kvörninni
gömlu og hlaut þá marga góða
söguna að heyra. Að fá svo þykka
sneið af pottbrauðinu með ný-
strokkuðu, sólgulu smjöri, það var
hápunktur sælunnar. Víst er að
aldrei verður bakað þvílíkt brauð.
Margan vettlinginn og leistann
[Yaranleg álklœðning
á allt húsið
Samkvæmt rannsóknum sem Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins hefur gert á
steypuskemmdum og sprungumyndunum á húsum, hefur komið í Ijós að eina varanlega lausnin,
til að koma í veg fyrir leka og áframhaldandi skemmdir, er að klæða þau alveg til dæmis
með álklæðningu.
A/klæðning er seltuvarin, hrindir frá sér óhreinindum, og þolir vel islenska veðráttu.
A/klæðning er fáanleg i mörgum litum sem eru innbrenndir og þarf aldrei aö mála.
Leitið nánari upplýsinga og kynnist möguleikum A/klæðningar.
Sendið teikningar og við munum reikna út efnisþörf og gera verðtilboð
yður að kostnaðarlausu.
FULLKOMIÐ KERFI TIL SÍÐASTA NAGLA '
INNKAUP HE
ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SÍMI 22000 - PÓSTHÓLF 1012.
TELEX 2025 - SÖLUSTJÓRI: HEIMASÍMI 71400.
prjónaði þessi elskuríka kona á
telpukornið, svo að ekki setti að
því, þegar vetur gengi í garð og
kaupstaðarskólaganga hæfist. Og
æfinlega var allt svo hreint og
fágað hjá henni Guðrúnu, að þar
skortir allan samjöfnuð.
Þessi yndislegu, sólríku sumur
liðu við störf og leik. Stúlkan lærði
að binda bagga með Balla, raka
stör í volgu votengi, snúa ilmandi
flekk, fara í fjósið með Önnu, með
skjannahvítu skupluna sína, og þá
er ekki síst aö minnast lognkyrru
kvöldanna, þegar Anna tók gítar-
inn sinn og spilaði og söng gömlu
hugljúfu lögin, sem gengu beint
inn í hjarta þeirrar litlu, sem
sofnaði örugg og sæl í faðmi
þessarar góðu fjölskyldu.
Að vakna á morgnana var æfin-
týri. Það fyrsta, sem blasti við
sjónum telpunnar úr rúminu, var
Gljúfrárjökullinn og Stóllinn, þar
sem stóra skessan að austan hafði
tyllt sér niður á hraðri leið sinni
vestur á land og skilið eftir sig svo
stóra hvilft í þessu rismikla fjalli,
að allar skessur seinni tíma hafa
verið dvergar samanborið við
þessa einu sönnu skessu. Stundum
lá telpa lengi og hugsaði með sér,
hve gott það væri, að þessi skessa
hefði ekki sest á Tjarnargarðs-
horn. Og líka hve ólíkt og ljótara
allt hefði verið, ef Stóllinn hefði
ekki verið svona eins og hann var.
Og svo var Nykurtjörnin langt,
langt uppi í fjalli, þar sem nykur-
inn bylti sér á vorinn svo harka-
lega, að vatnavextir og skriðu-
hlaup urðu stundum ógurleg og
eyðilögðu tún og mannvirki. Nyk-
urinn fékk stúlkan aldrei að sjá,
en fór með Balla að tjörninni
kornung. Fegurra vatn og um-
hverfi hafði hún aldrei séð, né
heidur síðan, — og eignaði sér það
allt á stundinni.
Allt þetta og ótalmargt fleira
kenndi stúlkunni að virða og meta
fagurt mannlíf og dýrð náttúrunn-
ar.
Eitt sinn kom skyggn maður í
Tjarnargarðshorn og sagði, þegar
hann sá hjónin, Björn og Guð-
rúnu: „Þau ganga með ljós í
höndum sinum." Eg fann ylinn af
þessu ljósi öll sumrin mín hjá
þeim og veit, að nú lýsir það enn
skærar, þegar þau eru saman á ný.
Bryndís Jakobsdóttir
Viðskiptavinir
athugið:
SÍMANÚMER
okkar eru:
á
aðalskrifstofunni
Suðurlandsbraut 4
38100
í
olíustöðinni
Skerjafirði
11425
i
smávörudeildinni
Laugavegi 180
81722
Olíufélagið
Skeljungur h.f.
Lögtaksúrskuröur
Að kröfu innheimtu ríkissjóðs í Hafnarfirði, Garða-
kaupstað og Kjósarsýslu úrskuröast hér með, að
lögtök geti farið fram fyrir ógoldnum fyrirfram-
greiðslum þinggjalda sem féllu í gjalddaga 1. febrúar;
1. mars, 1. apríl, 1. maí og 1. júní 1979 og nýálögðum
hækkunum þinggjalda ársins 1978 og fyrri ára svo og
fyrir söluskatti, sem í eindaga er fallinn, og viöbótar-
og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila.
Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum ásamt
dráttarvöxtum og kostnaði geta farið fram aö liönum
átta dögum frá birtingu úrskurðar þessa.
Bæjarfógetinn í Hafnarfírði
og Garðakaupstaö.
Sýsiumaðurinn í Kjósarsýslu
5. júní 1979.
ANAT0MIC
dömubindi
Nýja dömubindið, sem tekur meiri raka til sín.
Bindið sem þú finnur minna fyrir.
Bindið sem sést minna.
Bindið sem er algjörlega lagað eftir líkamanum.
Anatomic dömubindið er þykkast, þar sem þörfin er
mest.