Morgunblaðið - 07.06.1979, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 1979
33
/S
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
á góðan rekspöl, fært þjóðarbúinu
stórar fjárhæðir, já marga millj-
arða tugi landi og lýð til eflingar
og farsældar á komandi árum og
áratugum. Kísilgúrinn við Mývatn
og Járnblendiverksmiðjan á
Grundartanga en sú bygging hef-
ur gengið óvenju vel og er langt
undir kostnaðarverði og er það
alger undantekning og nýjung á
okkar miklu verðbólgutímum,
munu áreiðanlega renna sterkum
stoðum undir íslenskt efnahagslíf
í framtíðinni. En kommúnistar sjá
rautt og svart þegar á þessi mál er
minnst og vilja drepa niður allt
slíkt tal.
Óheillaþróun íslenskra
stjórnmála hófst eftir Alþingis-
kosningarnar 1971. Þegar þáver-
andi stjórnarflokkar, Sjálfstæðis-
og Alþýðuflokkur, misstu meiri-
hluta sinn á Alþingi eingöngu
vegna sprengiframboðs flokks er
kallaði sig Samtök frjalslyndra og
vinstri manna. Flokksnefna þessi
var mesti óheillafugl, en tókst þó
að skrapa upp 5 þingsæti í kosn-
ingunum ’71. En þar með var
draumurinn búinn. Stuttu eftir
kosningarnar koðnaði hann allur
og dagaði uppi, og öll hans verk
runnu út í sandinn. Eitt tókst
honum þó að gera, að slíta farsælu
stjórnarsamstarfi er hafði staðið
samfellt í ein 12 ár. Síðan þá hafa
íslensk stjórnmál verið á niður-
leið. Og nú á þessu ári verður
verðbólgan yfir hundrað prósent
en var 10% þegar viðreisnar-
stjórnin fór frá. Viðreisnar-
stjórnin hafði sumsé skilið við
allar fjárreiður ríkisins í allra
besta lagi. En það stóð ekki lengi.
Eftir eitt ár hafði þeirri vinstri
tekist að koma verðbólgunni upp í
52 stig. Ég held að menn verði að
álíta það að Alþýðubandalagið eða
kommúnistar séu alls ekki hæfir
þátttakendur í ríkisstjórn lands-
ins, verk þeirra sanna það, þar fer
ekkert á milli mála, þar er ekki
um neitt að villast. Þeir vilja engu
breyta eð bera nokkrar byrgðar ef
það kemur nálægt þeim sjálfum.
Nei, þeir vilja láta allt hjakka í
sama farinu og reka á reiðanum.
Alveg ærast þeir og reka upp
spangól mikið er minnst er á að
lagfæra vísitöluna eða breyta
vinnulöggjöfinni til hagræðis fyrir
allan landslýð. En einmitt þetta
tvennt gæti stórlega lækka verð-
bólguna. Efnahagsfrumvarp Ólafs
Jóhannessonar sem lagt var fyrir
Alþingi seint og um síðir, fékk
heldur auman endi. Þetta frum-
varp studdi Alþýðuflokkurinn
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á Ólympíuskákmótinu í Buenos
Aires í haust kom þessi staða upp
í skák stórmeistaranna Amadors
Rodriguez, Kúbu, sem hafði hvítt
og átti leik, og Klaus Darga,
V-Þýzkalandi.
eindregið, er það kom fram í sinni
fyrstu gerð. En kommarnir voru
nú ekki aldeilis á sama máli, urðu
hreinlega vitlausir og tættu það
allt í sundur á svipstundu svo
hæpið var að beinagrindin fengi
að halda sér. Og Alþýðuflokkurinn
varð alveg hlessa og hefur læðu-
pokast með veggjum síðan. En
frumvarpið varð algjörlega ónýtt
og gagnslaust, útkoman núll og
nix. Og efnahagsmálin eru jafnó-
leyst og í þingbyrjun. Auðvitað á
þessi dáðlausa ríkisstjórnar-
ómynd að segja af sér strax í dag,
en hún þorir það bara ekki af ótta
við dóm kjósenda í landinu.
Eftirfarandi setning var höfð
eftir Guðmundi jaka í nýlegu
blaðaviðtali: „Svona ríkisstjórn
hefur aldrei setið á íslandi áður.
Hún lifir bara af því að hún þorir
ekki að deyja". Auðvitað er hér átt
við hinn pólitíska dauðdaga.
Þorkell Hjaltason.
• Ófögur markaðs-
saga
Maður nokkur sem kom við
hjá Velvakanda hafði eftirfarandi
sögu að segja:
„Kona kom á markaðinn í
Lækjargötu kom á markaðinn í
Lækjargötu s.l. föstudag þar sem
10 ára telpa var að afgreiða á
meðan afgreiðslumaðurinn vék sér
frá í nokkrar mínútur.
Konan skoðaði enskan silfur-
stjaka sem telpan sagði að kostaði
13.500 krónur, enda var verðmiði á
stjakanum sem sýndi verðið.
Konan bað um að fá tvo stjaka
sem telpan rétti henni. Konan tók
við stjökunum og lagði tvö þúsund
og sjö hundruð krónur á borðið í
staðinn fyrir tuttugu og sjö þús-
und og gekk í burtu án þess að
telpan næði í hana til þess að
leiðrétta þetta.“
HÖGNI HREKKVtSI
© 1979
McNaught Synd- Inc.
M£) (sAMW HJA PE/M!"
MANNI OG KONNA
Húsnæði
v/Smiðjuveg í Kópavogi
Skrifstofuhúsnæði ca. 200 m2 alls,
sem hér er sýnt er til leigu. Húsnæð-
ið er í nýju húsi, teppalagt, sér
snyrting og kaffistofa.
Gangur
Kafffstofa 18.01 m' Gangur Skrifstofa 11.80 m' Skrifstofa 28.76 m' Skrifstofa 40.50 m’ Skrifstofa 49.12 m'
I
1
W.C. 14.23 m’ j | 3.95 m’
Nánari upplýsingar eru gefnar í
símum 19296 og 26660 á verslunar-
tíma.
BK BYGGINGAVÖRUR HE
Suðurlandsbrau t 4. Simi 33331. (H. Ben. húsið)
ARCITECTURAL
SOLIGNUM
er besta fáanlega
fúavarnamálningin
á markaðnum í dag.
cFNI SEM
HLEYPIR
RAKA í
GEGNUM SIG
OG VER
VIÐINN FÚA.
FJÖLBREYTT LITAVAL.
B BR BYGGINGAVÖRUR HE|
Suðurlandsbrau t 4. Simi 33331. (H. Ben. húsið)
HAGTRYGGING HF 4(J.
33. c5 (Einfaldast var 33. Hxf7!)
bxc5 (Ef 33... b5 þá 34. Hxf7!) 34.
Bc4 — Be6, 35. Hxg6+! og svartur
gafst upp.
s \/S/°
4^79- *
A EFTIR BOLTA KEMUR BARN...