Morgunblaðið - 18.07.1979, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1979
WIKA
Þrýstimælar
Allar stæörir og gerðir.
tk CSco)
Vesturgötu 1 6,
sími 1 3280.
■ r
Utvarp
kl. 9.05:
Ármann Kr. Einarsson rit-
höfundur mun í dag halda
áfram lestri sínum á ævntýrinu
„Gullroðin ský“ og er þetta
þriðji og síðasti lestur. Á morg-
un mun hann síðan hefja lestur
á ævintýrinu „Niðri á marar-
botni.“
Mbl. hafði samband við Ár-
mann og innti hann eftir efni
þessara ævintýra.
„Ævintýrið „Gullroðin ský“ er
gamalt, ég samdi það þegar ég
var tvítugur. Þá var það gefið út
Ármann Kr. Einarsson
rithöfundur
Morgunstund
barnanna
en hefur ekki verið á markaðn-
um nú um langa hríð,“ sagði
Ármann. „Þetta ævintýri mun
þó koma út bráðlega á ný, ásamt
öðrum sögum sem ég hef skrifað.
Þetta er ævintýri í þjóðlegum
stíl, sagan fjallar um sveitapilt
sem fer út í veröldina að leita
fjár og frama. Þó að honum
bjóðist gull og grænir skógar þá
kýs hann heldur að snúa aftur til
síns heima og byggja upp gamla
bæinn sinn,“ sagði Ármann.
„Sagan sem ég byrja að lesa á
morgun heitir „Á mararbotni",
og gerist hún, eins og nafnið
gefur til kynna, á sjávarbotni.
Ungur drengur fer í heimsókn
þangað og kynnist lífinu þar.
Hann kemst klakklaust heim
aftur, en lífið og tilveran þar
niðri verður honum umhugsun-
arefni," sagði Ármann Kr. Ein-
arsson.
Ármann hefur lesið fjögur
ævintýri í sumar í útvarpið og er
nú verið að flytja þau síðustu.
Von er á nýrri bók í haust eftir
Ármann og er þar fjallað um
algerlega nýtt efni. Sagan heitir
„Goggur vinur minn,“ og gerist í
þorskastríðinu síðasta. Þetta
nafn er viðurnefni á þeim manni
sem sér um að klippa á togvíra
þeirra skipa sem að veiðum eru í
íslensku landhelginni. Sagan
gerist, eins og áður sagði, í
síðasta þorskastríði, nánar til-
tekið á vordögum á árinu 1976.
I næsta mánuði kemur út bók
á dönsku eftir Ármann og heitir
hún „Landgang pá vulkanoen"
og er hún þýðing bókarinnar
„Víkingaferð til Surtseyjar".
Þegar hafa verið þýddar 14
bækur á erlend tungumál eftir
Ármann og er þessi bók sú
fimmtánda.
Útvarp kl. 21.45:
Iþróttir
íþróttaþátturinn er að venju
á dagskrá í kvöld og hefst kl.
21.45. Mbl. hafði samband við
Hermann Gunnarsson íþrótta-
fréttaritara útvarpsins og innti
hann eftir efni þessá þáttar.
„Þátturinn verður stór-
skemmtilegur að vanda. Það
helsta sem verður í honum er
kynning á Bláskógaskokkinu en
það er fjölmennasta trimm sem
haldið hefur verið á landinu, ef
Landshlaupið er undanskilið.
Allir ættu að geta hlaupið þessa
vegalengd, frá Þingvöllum til
Laugarvatns, fjölmenni verður
viðstatt hlaupið og læknar verða
til taks ef eitthvað ber út af,“
sagði Hermann.
„Síðan mun ég segja nokkuð
frá útihátíð sem verður að Kol-
viðarhóli um helgina en fyrir
þeirri hátíð stendur Knatt-
spyrnufélagið Víkingur. Þarna
verður margt til gamans gert,
fyrir utan poppið sem er ómiss-
andi á svona hátíðum. Þarna
verða ýmsir íþróttaflokkar sem
keppa og einnig geta áhorfendur
sem, að því er virðist, vita allt
best í sambandi við íþróttir,
spreytt sig á þyí að reyna að
skora hjá þeim Ólafi Benedikts-
syni og Bogdan Kowalezyk þjálf-
ari Víkinga og fyrrum markverði
í Póllandi, en þeir munu reyna
að verja markið af stakri snilld,"
sagði Hermann.
„Þessu næst mun ég ræða við
Stefán Jónsson um æfingar
frjálsíþróttafólks. Einnig mun-
um við spjalla nokkuð um Kal-
ott-keppnina í frjálsum íþrótt-
um, en hún verður í Bodö í
Noregi um helgina. Nú stendur
til að íslendingar vinni þessa
keppni, við höfum verið í öðru
sæti undanfarin ár og nú á að
bæta um betur," sagði Hermann.
Hermann Gunnarsson íþrótta-
fréttaritari útvarpsins.
„Að síðustu mun ég svo ræða
við KR-ing um íslandsmótið í
knattspyrnu, en þeir eru sem
kunnugt er í efsta sæti um
þessar mundir. Að lokum mun
stúlka ræða nokkuð um kvenna-
knattspyrnuna ef tími vinnst til,
en kvenfólk ku vera mjög óvægið
við andstæðinga sína á leikvell-
inurn," sagði Hermann Gunn-
arsson að lokum.
Ötvarp Reykjavík
yMIÐMIKUDKGUR
_________18. JÚLÍ_________
MORGUNNINIM
7.00 Veðurfregnir, Fréttir.
Tónleikar.
7.20 Bæn. 7.25 Tónleikar.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tón-
leikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Ármann Kr. Einarsson
heldur áfram að lesa ævin-
týri sitt „Gullroðin ský“ (3).
9.20 Tónleikar. 9.30
Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. 10.25 Tónleikar.
11.00 Víðsjá
Ögmundur Jónasson sér um
þáttinn.
11.15 Frá norræna kirkjutón-
listarmótinu í Helsinki s.l.
sumar.
Jón Stefánsson kynnir (1).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregn-
ir. Tilkynningar.
Við vinnuna: Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ
14.30 Miðdegissaerí-n: „Korriró“
eftir Ása í Uu
Höfundur les 13).
15.00 Miðdegistónleikar:
Pierre Thibaud og Enska
kammersveitin leika
Trompetkonsert í Es-dúr
Joh !.nn Nepomuk
ilummel; Marius Constant
stj./ John Wiibrahm og
Ph’lip Jores leika ásamt St.
Martin-in-the-Fields-hljóm-
sveitinni tónverk fyrir tvo
trompeta og hljómsveit eftir
Giovanni Gabrieli, Antonio
Vivaldi og Pavel Joseph
Vejvanovsky; Neville
Marriner stj./ Enska
kammersveitin leikur
Konsert nr. 2 í F-dúr fyrir
tvo hljóðfæraflokka eftir
Georg Friedrich HSndes;
Raymond Leppard stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir)
16.20 Popphorn:
Halldór Gunnarsson kynnir.
17.20 Litii barnatíminn. Áfram
gakk, hlaup og hjól
Umsjónarmaður: Steinunn
Jóhannesdóttir M.a. lesið úr
Línu langsokk eftir Astrid
Lindgren f þýðingu Jakobs
ó. Péturssonar og talað við%
Þór Vigfússon.
17.40 Tónleikar.
18.00 Víðsjá
Endurtekinn þáttur frá
morgninum.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÓLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar
19.35 Samleikur í útvarpssal:
Erling Blöndal Bengtsson og
Árni Kristjánsson leika.
Sónötu arpeggione í a-moll
eftir Franz Schubert.
20.00 Töfrandi tónar.
Jón Gröndal kynnir þriðja
þátt sinn um tímabil stóru
hljómsveitanna 1936—46.
20.30 (Jtvarpssagan: „Trúður-
inn“ eftir Heinrich Böll.
Franz A. Gíslason les
þýðingu sína (5).
21.00 Leikið á tvö píanó:
Gfsli Magnússon og Halldór
Ilaraldsson leika „Vorblótið“
eftir Stravinski.
21.40 „Veturinn sem var hér í
fyrra...“
Kristján K. Linnet les
frumort ljóð.
21.45 íþróttir
Hermann Gunnarsson segir
frá.
22.05 Að austan
Birgir Stefánsson kennari á
Fáskrúðsfirði segir frá.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Svört tónlist.
Umsjón: Gerard Chinotti.
Kynnir: Jórunn Tómasdóttir.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
FIM41TUDKGUR
19. JÚLÍ
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.20 Bæn. 7.25 Tónleikar.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tón-
leikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Ármann Kr. Einarsson lýkur
við að lesa ævintýri sitt
„Gullroðin ský“ og les einnig
fyrri hluta ævintýris síns
„Niðri á Mararbotni“.
9.20 Tónleikar. 9.30
Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. 10.25 Tónleikar.
11.00 Verzlun og viðskipti.
Umsjónarmaður: Ingvi
Hrafn Jónsson. Rætt við
Eirík Guðnason viðskipta-
fræðing hjá Seðlabankanum.
11.15 Morguntónleikar:
Sigurd Rascher og Fíl-
harmonfusveitin í Miinchen
leika Saxófónkonsert eftir
Erland von Koch; stig
Westerbert stj./ Francois
Daneels og Belgfska rfkis-
hljómsveitin leika Fantasfu
eftir Franz Constant; Jean
Baillu stj./ Francois Daneels
og Patrice Merchs leika
Dúett fyrir saxófón og pfanó
eftir Jacqueline Fontyn.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Við vinnuna: Tónleikar.
SIÐDEGIÐ
14.30 Miðdegissagan: „Korriró“
eftir Ása í Bæ
Höfundur les. (4).
15.00 Miðdegistónleikar:
Hljómsveit rfkisóperunnar í
Monte Carló leikur „Dans
fuglanna“ úr Snædrottning-
unni, óperu eftir
Rimsky-Korsakoff og
„Polovetska dansa“ úr Prins
Igcr, óperu eftir Alexander
Borodín; Lois Fremaux stj./
Suisse Romandehljómsveitin
leikur „Romeó og Júlfu“,
hljómsveitarsvítu eftir
Sergej Prokofjeff; Ernest
Ansermet stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar
17.20 Lagið mitt.
Helga Þ. stephensen kynnir
óskalög barna.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ___________________
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál.
Árni Böðvarsson flytur
þáttinn.
19.40 íslenzkir einsöngvarar og
kórar syngja.
20.10 Leilúrit:
„Einkahagur herra
Mörkarts“ eftir Karlheinz
Knuth, áður útv. 1962.
Þýðandi: Bjarni Benedikts-
son.
Leikstjóri: Helgi Skúlason.
Persónur og leikendur:
Herra Mörkart/Þorsteinn Ö.
Stephensen. Herra
Liebermann/ Lárus Pálsson.
20.45 Píanóleikur: Rudolf
Frikusny leíkur
„Silhouettes" op. 8 eftir
Antonín Dvorák.
21.05 „Nú er ég búinn að brjóta
og týna...
Þáttur í umsjá Everts
Ingólfssonar.
21.25 Tónleikar:
Frá tónleikum Tónlistar-
skólans í Reykjavík og
sinfóníuhljómsveitar íslands
f Háskólabfói 3. febrúar s.l.
Stjórnandi: Páll P. Pálsson.
Einleikari: Þórhallur Birgis-
son.
a. „La Clemenza di Tito“,
forleikur eftir Mozart.
b. Fiðlukonsert í e-moll op.
64 eftir Mendelssohn.
22.00 Á ferð um landið.
Þriðji þáttur: Hornbjarg.
Umsjón: Tómas Einarsson.
Rætt við Hauk Jóhannesson
jarðfræðing og Harald Stígs-
son frá Horni. Flutt blandað
efni úr bókmenntum. Lesari
auk umsjónarmanna:
Klemenz Jónsson.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Áfangar
Umsjónarmenn: Ásmundur
Jónsson og Guðni Rúnar
Agnarsson.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.