Morgunblaðið - 23.09.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1979
29
fcLesSUð Sótin, dsKAR QuT,
Elfur Erna, 7 ára, Vogum.
Felumynd
Maðurinn er niðursokkinn í
að lesa fréttirnar í dagblað-
inu sínu og kötturinn kúrir
í körfunni sinni. En hann
er að velta því fyrir sér,
hvar tveir af kettlingunum
hans eru. Þeir áttu að vera
þrír! Geturðu hjálpað hon-
um að finna kettlingana?
Hvernig
á
Barna-
og fjölskgldusíðan
n/í
vera
t
Eiga börn og fullorðnir ekki að taka meiri þátt í vali á efni? Flest
börn hafa ótrúlega gaman af sögum fullorðinna frá því að þeir voru
börn! Hvað manstu frá því að þú varst barn? Mörg börn þurfa
uppörvun og hvatningu til að teikna, skrifa, semja ljóð, segja frá
o.s.frv. Foreldrarnir og fjölskyldan í heild getur verið veigamikil stoð
á því sviði.
Okkur langar til að gera örlitla könnun um efnisval á Barna- og
fjölskyldusíðuna og hvetjum bæði börn og fullorðna til að taka þátt í
henni og senda okkur svörin:
Barna- og fjölskyldusíða Morgunblaðsins
Morgunblaðið,
Aðalstræti 6,
Reykjavík.
Könnun
1. Hvað ertu gömul ______ ára
gamall -------- ára
2. Finnst þér, að efni frá börnum, teikningar, sögur,
ljóð o.fl. sé:
of lítið □ mátulegt □ of mikið □
3. Finnst þér, að sögur af ýmsu tagi séu:
mátulega
of fáar □ margar □ of margar □
4. Finnst þér, að fræðandi efni sé:
of lítið □ mátulegt □ of mikið □
5. Finnst þér, að fullorðnir ættu að senda efni:
stundum □ oft □ aldrei □
6. Finnst þér, að það ættu að vera viðtöl við börn og
unglinga.
stundum □ oft □ aldrei □
7. Finnst þér skemmtiefni, gátur, leikir, þrautir
o.fl. vera:
of lítið □ mátulegt □ of mikið □
8. Finnst þér, að það ættu að vera framhaldssögur á
opnunni:
já □ stundum □ nei □
9. Hvernig finnst þér að framhaldssögur ættu að
vera (ef þú svaraðir hinni spurningunni játandi):
skemmti- og
spennandi fræðandi
myndasögur □ sögur □ sögur □
10. Finnst þér stærð Barna- og fjölskyldusíðunnar
vera:
of lítil □ mátuleg □ of mikil □
11. Klippirðu opnuna út úr blaðinu:
alltaf □ stundum □ aldrei □