Morgunblaðið - 21.10.1979, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1979
41
Hér má sjá hvernig fjallgöngumaður getur bjargað félaga sínum úr jökulsprungu, þótt hann sé
bara einn um það.
sjö flokka, A, B, C, D, E, F, og
bílaflokk. Á fundi sínum leggja
flokksstjórarnir niður fyrir sér
starfið fram að áramótum og
leggja síðan tillögur sínar fyrir
stjórn sveitarinnar, sem yfirleitt
samþykkir þær með litlum eða
engum breytingum. Þetta starf
sem hér um ræðir er það starf sem
allir félagar taka þátt í sameigin-
lega, en auk þess starfa flokkarnir
sér og má geta þess að flokksstarf-
ið er í raun uppistaðan í starfinu,"
sagði Ingvar.
Aðspurður hver væru helztu
atriðin í starfi sveitarinnar sagði
Ingvar að reynt væri að fara yfir
sem flesta þá þætti sem nauðsyn-
legt er fyrir björgunarsveitar-
mann að kunna, svo sem skyndi-
hjálp, sjúkraflutninga, rötun,
fjallamennsku, hvernig bezt er að
búa sig, meðferð radíótækja og
leitartækni svo eitthvað sé nefnt.
Hann sagði að fyrri hluta vetrar
færi starfið meira fram innan
húss, það er að segja þau atriði
sem hægt væri að fara yfir þar, en
auðvitað væru og æfingar um
helgar, svo sem fjallaferðir og
slysaæfingar. Eftir áramótin þeg-
ar daginn fer að lengja væru svo
farnar mun fleiri ferðir og æf-
ingar utanhúss. Þá væru farnar
allt frá eins dags ferðum upp í tíu
daga ferðir upp á jökla og þvers og
Fararstjórinn fær sér í gogginn.
Markmið sveit-
arinnar er að
geta sent félag-
ana hvert á land
sem er, hvenær
sem er, segir
formaður henn-
ar, Ingvar F.
Valdimarsson
Grein og myndir:
Sighvatur Blöndahl
Svenni, aldursfursetinn í
ferðinni, lætur sitt ekki eftir
lÍKgja.
Sjúklingurinn á leið upp.
og svo væri gjarnan haldið þorra-
blót í febrúar—marz. Ingvar gat
þess og að félagar sveitarinnar
færu gjarna í kynnisferðir til
hinna ýmsu aðila sem á einhvern
hátt tengjast starfi hennar, t.d. til
Almannavarna ríkisins, Slökkvi-
liðs, Flugleiða, Landhelgisgæsl-
unnar og Varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli svo eitthvað sé
nefnt.
Hvernig er þá hægt að fjár-
magna alla þessa starfsemi?
„Okkar fjáröflun er einskorðuð
við okkar fjáröflunardag sem er
ár hvert í byrjun nóvember, að
þessu sinni verðum við á ferðinni
10.—11. nóvember með skutlusöl-
una okkar, eins og á síðasta ári.
Annars má segja að þessir fjáröfl-
kruss um landið, það væri t.d.
venja í sveitinni að fara a.m.k.
eina langa skíðagönguferð á ári,
t.d. þvert yfir landið eins og á
síðasta ári, þegar tveir hópar fóru
að norðan suður Kjöl.
Þá eru menn sendir í nám
erlendis í hinum ýmsu þáttum
starfsins, t.d. leitarstjórnun,
snjóflóðaleitum og fjallamennsku
og fjallabjörgunarfræðum. Árlega
fara menn frá sveitinni til norska
Rauða krossins á námskeið í
leitarstjórnun og leita í snjóflóð-
um. Á móti koma gestir frá Noregi
árlega til þátttöku í hvítasunnu-
æfingu sveitarinnar, en hún er
yfirleitt lokapunkturinn yfir i-ið
hjá sveitinni á vorin, ef
fjölskylduferðin er undanskilin en
hún er farin í júní eða júlí. Um
félagslíf annars sagði Ingvar, að
sveitin héldi á ári hverju þrjá
dansleiki, einn haustdansleik í
nóvember, jólatrésdansleik fyrir
„yngstu félagana" í lok desember
Hér má sjá hvernig hægt er að klífa þverhnípt ísstálið ef
réttur búnaður er við höndina, þ.e. mannbroddar og tvær axir.
unardagar verði okkur mikilvæg-
ari en oft áður því að við vorum að
skipta um björgunarbíla, fengum
tvo nýja Ford Ekonoline-sendi-
bíla, sem sett verður framdrif
undir, en seldum tvo eldri bíla
sveitarinnar. Söluverð gömlu
bílanna hrekkur auðvitað ekki
fyrir þeim nýju svo við verðum að
heita á fólk að styðja við bakið á
okkur með því að kaupa skutlur.
Þá má auðvitað ekki gleyma þætti
kvennadeildarinnar okkar, sem
jafnan styður vel við bakið á
okkur á ýmsan hátt, m.a. með
fjárstyrkjum. Þær eru einmitt
með sína árlegu kaffisölu nú um
helgina á Hótel Loftleiðum, þ.e. á
sunnudag. Þá má og ekki gleyma
vinum okkar hjá Lionsklúbbnum
Nirði sem hafa stutt okkur dyggi-
lega gegnum árin, meðal annars í
sambandi við bílakaup og annað
þess háttar," sagði Ingvar.
Að síðustu spurði ég Ingvar
hvernig háttað væri inntöku nýrra
félaga í sveitina og hvernig þeir
væru svo þjálfaðir. „Hinn hefð-
bundni háttur á því er sá, að menn
hefja starf að hausti. Allan næsta
vetur eru þeir í þjálfun í hinum
einstöku atriðum sem nauðsynleg
eru til þess að þeir geti talist
frambærilegir björgunarsveit-
armenn. Síðan er þjálfun þeirra
haldið áfram fyrri hluta næsta
vetrar og ef þeir fá meðmæli sinna
flokksstjóra eru þeir teknir inn í
sveitina sem fullgildir félagar á
aðalfundi þann vetur, þ.e. í janúar
eða febrúar. Við gerum miklar
kröfur til nýrra félaga um að þeir
hafi mikinn áhuga og tileinki sér
þau vinnubrögð sem krafa er gerð
um, enda eru mikil afföll af þeim
sem hefja starf hjá okkur. í
sambandi við tímann vil ég sér-
staklega taka fram að inntaka
einskorðast ekki við haust, þó svo
það sé æskilegra, menn geta byrj-
að hvenær ársins sem er. Ef það
eru einhverjir sem þetta lesa sem
hafa áhuga ættu þeir að snúa sér
til flokksstjóra Nýliðaflokksins,
sem er Arngrímur Hermannsson,
í síma 31678. — Okkar markmið er
að geta sent félagana hvert á land
sem er hvenær sem er, sagði
Ingvar F. Valdimarsson, formaður
Flugbjörgunarsveitarinnar í
Reykjavík, að síðustu.
— sb.