Morgunblaðið - 21.10.1979, Blaðsíða 17
BÆÐA BÚKOVSKÍS____________________________________________________
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1979 49
Um þaö bil fjörutíu manns komu
saman í Moskvu og lýstu yfir stofnun
félagsins. Hér er ekki um aö ræöa
verkalýösfélag í venjulegum skilningi, því
aö þetta er fólk úr ýmsum stéttum, úr
mörgum landshlutum. Flest hefur þaö
fengiö aö kenna á óréttlætinu og hefur
um margra ára skeið reynt aö finna leið til
aö koma kvörtunum sínum á framfæri. í
mörgum tilvikum hefur þetta fólk kynnzt í
móttökusölum og biöstofum miðstjórnar
kommúnistaflokksins, í húsakynnum
ríkissaksóknarans eöa í öörum oþinber-
um stofnunum. Bitur reynsla var því
sameiginleg, ásamt skilningi á því aö án
oþinberrar samstööu væri engin leiörétt-
ing fáanleg. Því var safnazt saman heima
hjá einum úr hóþnum fyrir tveimur árum
og þangað var stefnt erlendum blaða-
mönnum. Hóþurinn lagöi fram skjöl til
sönnunar máli sínu og birti yfirlýsingu um
tildrögin aö stofnun verkalýösfélags.
Tíöindin spuröust út og höfðu senn þau
áhrif aö um tvö hundruö verkamenn
bættust í hópinn. Yfirvöld geröu sér grein
fyrir hættunni. Umsvifalaust voru ellefu
manns handteknir og settir á geöveikra-
hæli, þar sem sumir eru enn, og aðrir
voru sendir burt frá Moskvu eöa í fangelsi
um stundarsakir. Leiðtogi samtakanna,
kolaverkamaður aö nafni Klebanoff, er
enn í geðveikrahæli í Dnjepropetrovsk.
Klebanoff
Verkamennirnir létu þetta ekki aftra
sér. Aö nokkrum mánuðum liönum höföu
nýir hóþar myndazt og um þessar mundir
starfa um 200 manns viö uþþlýsingamiðl-
un á vegum samtakanna. Þeir safna
uþplýsingum, gangast fyrir blaöamanna-
fundum og leggja þar fram gögn og skjöl.
Ég tel aö starfsemi þessara samtaka
sé þaö merkasta sem gerzt hefur á síðari
árum og þaö, sem sovézkum yfirvöldum
stafar mest hætta af. Aöalástæðan til
þess aö þeim hefur ekki orðiö meira
ágengt en raun ber vitni er sú, aö þeir
hafa ekki fengiö stuöning verkalýössam-
taka utan Sovétríkjanna. Einu verkaiýös-
samtökin sem lýst hafa yfir samstööu
með þeim eru bandarísku samtökin
AFLICAO. Önnur verkalýðssamtök hafa
þagaö þunnu hljóöi eöa jafnvel þaö, sem
verra er.
Viö höfum leitað eftir stuðningi hins
öfluga Sambands brezkra kolanáma-
manna viö Klebanoff, sem sjálfur er
kolanámamaöur. Samband brezkra kola-
námamanna sneri sér síðan til sovézka
sendiráðsins meö fyrirsþurn og fékk þaö
svar aö maöur þessi, þaö er aö segja
Klebanoff, heföi oröið fyrir slysi í nám-
unni, heföi fengið höfuöhögg, og síðan
væri hann ekki meö öllum mjalla. Heföi
þaö meðal annars komið fram í óeöli-
legum áhuga á verkalýösmálum. Þótt
undarlegt megi viröast féllst Samband
brezkra kolanámamanna á þessa skýr-
ingu opinberlega og birti yfirlýsingu þar
um. Þegar slík afstaða kemur fram fer
ekki hjá því aö verkamenn í Sovétríkjun-
um geri sér grein fyrir því aö þeir eru
varnarlausir.
Ekki get ég rætt svo um aöstoö og
stuöning viö hinar ýmsu hreyfingar í
Sovétríkjunum aö ég minnist ekki á
sambúð austurs og vesturs. Vissulega er
þaö ekki aöeins stuðningur einstaklinga
viö einstaka fanga í Sovétríkjunum, sem
máli skiptir. Þaö er mikilvægt fyrir
trúfélög aö þau fái stuöning trúfélaga
erlendis, því aö þrýstingur af þeirra hálfu
mun knýja Sovétstjórnina til aö veita
þeim starfsfriö. Því miöur hafa Hvíta-
sunnumenn, svo dæmi sé tekiö, ekki
reynzt ýkja hjálþlegir. Ég kem beint frá
Vancouver og þar voru þeir að halda
tólfta alþjóðamót sitt. Þar voru um tíu
þúsund manns samankomnir. Sumir
höföu komið til Sovétríkjanna, en þarna
heyröist ekki eitt orö til varnar trúbræör-
unum þar. Þeir vilja reyna aö beita hinni
hljóölátu aðferö í milliríkjasamskiptum og
halda því fram aö hægt sé að fá meiru
áorkað meö því aö fara varlega í
sakirnar. Ég held aö meö slíkum mál-
flutningi sé aöeins veriö aö reyna aö
dubba aögeröarleysi upp í þokkalegan
búning.
Þrýstingur —
slökun
Þegar rætt er um stuöning og aðstoö
Vesturlandabúa er stööugt sþurt aö því
hvort opinská afstaöa og afdráttarlaus
andmæli geti ekki haft skaöleg áhrif, og
hvort til lengdar reynist ekki betur aö
beita hinni hljóölátu aðferð í milliríkja-
samskiptum. Eg held aö framvinda mála
á síðari árum hafi sýnt svo ekki veröi um
villzt, aö opinská afstaöa og afdráttarlaus
andmæli hafi aldrei haft skaöleg áhrif.
Heföi þaö ekki verið fyrir stuðning og
opinbera herferö þá hefði ég aldrei veriö
látinn laus. Heldur ekki ýmsir aörir.
Samningaumleitanir og milliríkjasam-
skipti komu ekki aö gagni í mínu tilfelli
fyrr en búiö var aö undirbúa jaröveginn
meö þrýstingi á opinberum vettvangi og
herferö, þannig að máliö haföi vakiö
athygli og þrýstingurinn á Sovétstjórnina
var oröinn svo mikill aö hún sá sér ekki
annaö fært en aö setjast aö samninga-
boröinu. Auðvitaö ættu menntamenn aö
geta aö jafnaöi vænzt stuönings frá
menntamönnum og samtökum þeirra um
víöa veröld, en ekki bara þegar einhver er
handtekinn. Þaö hefur komiö fyrir aö
slíkur stuöningur hefur veriö látinn í té og
komiö aö góöu gagni, eins og þegar dr.
Orlov haföi veriö handtekinn og um tvö
þúsund bandarískir vísindamenn lýstu
því yfir opinberlega aö þeir heföu sett
Sovétríkin í vísindabann. Enda þótt þessi
maöur hafi enn ekki veriö látinn laus
hefur þessi stuöningur stuðlað aö því aö
hann er þó enn á lífi. Væri þrýstingurinn
aukinn mundi meöferö yfirvalda á honum
enn skána og eftir því meira sem meiri
þrýstingi væri beitt.
Þetta tengist mjög „détente", sem
hefur verið opinber stefna Vesturlanda
gagnvart Sovétríkjunum undangengin
7—8 ár. Mikið hefur veriö rætt og ritað
um þessa stefnu og mikill misskilningur
hefur af henni risið. Sá misskilningur á
rætur sínar í oröinu sjálfu. Hver þjóö
leggur sinn skilning í þetta orö. í
Sovétríkjunum merkir „détente" þetta:
Möguleiki á því aö gleypa hvert landiö á
fætur ööru eða stækkun áhrifasvæðisins
án andstööu af hálfu vestrænna ríkja.
Sovétmönnum dettur ekki í hug aö leggja
sama skilning í oröiö og Vesturlönd, sem
telja að þaö feli í sér menningarleg
samskipti og feröafrelsi. Þessi misskiln-
ingur gerir þaö aö verkum aö umræöur
um „détente" snúast aö verulegu leytí
fremur um oröalag en máliö sjálft. í
umræöum um „détente“, eöa samskiþti
austurs og vesturs yfirleitt, er óhjá-
kvæmiiegt aö taka tillit til þess reginmun-
ar, sem er á menningu þessara land-
svæöa og hugsunarhætti fólksins, sem á
þeim býr.
Andstætt
hugarfar
Vesturlandabúar eru aldir upp í þeirri
trú aö málamiölun sé af hinu góða og
óhjákvæmileg, eigi lýöræöið aö geta
staðizt. En í Sovétríkjunum eru menn
aldir upp í þeirri trú aö málamiölun sé
illur kostur og raunar ekki annaö en
veikleikamerki. Þegar fulltrúar austurs og
vesturs koma saman til aö semja meö
svo ólíku hugarfari og í Ijós kemur aö
Vesturlandabúar eru jafnan sveigjanlegir,
líta Sovétmenn á frammistöðu þeirra sem
veikleika og tækifæri til aö ganga á lagiö.
Því eftirgefanlegri sem Vesturlandamenn
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Gódar fréttir fyrir karlmenn á öllum aldri sem láta sér
annt um útlit sitt:
Herrahúsið hefur tekið við einkaumboði Van Gils á íslandi.
Mun þessi bráðfallegi fatnaður því íást í verslunum
Herrahússins og í Adam Laugavegi 47.
Nú standa til boða m. a. ,,peysufötin“ vinsælu,
Combi fatnaðurinn, Tweed blússur, stakir jakkar,
föt og frakkar.
KOMEtU OG SKOÐAÐU NÝJU
LÍNUNA FRÁ VAN GILS
HÚN ER 1. KLASSI.
AUGLVSINGASTOfA KRISTINAR
7.95
ATÍGILS
ÁÍSLATÍDI
lierrahúsið
BANKASTRÆTI 7. SÍMI 29122. AÐALSTRÆTI 4.SÍMI 15005.