Morgunblaðið - 21.10.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1979
53
í síðasta Vísnaleik var varpað
fram þessum fyrrihluta Mar-
grétar Ólafsdóttur:
Lifi vísnaleikurinn
látum fjúka stökur!
Og Sigurgeir Þorvaldsson í
Keflavík botnar:
Oft vill dofna andi minn
eftir strangar vökur.
Eða, — og ekki laust við að
manni bjóði í grun, að veizluhöld
góð séu í vændum með dýrum
veigum:
Ekki á morgun heidur hinn
hef ég innantökur.
Enn eru að berast botnar við
fyrrihluta Sigurgeirs um æsireið
vinstri stjórnarinnar:
Öllum getur yfirsézt,
Óla Jóh. víst líka.
Upp á settist úrvals hest
illskeytt vinstri klíka.
Hleyptu á skeiði hlaði frá
hláturgleiðir sveinar.
Og Jón Árnason, Syðri-Á, Ól-
afsfirði, bætir þessu við:
í tröðinni þó töfðu þá
talsvert margir steinar.
Rykkti og tætti i tauminn hver,
tik að magnast þykkja.
Sligað þrem nú essið er,
illgcng skaðabykkja.
öll var ferðin ömurleg,
augna — lítið — gaman.
Rataði enginn réttan veg,
rákust óspart saman.
Dróg um veginn dösuð fer,
dauða — kroppar — sinu.
Steinblind hún á öðru er,
ekkert sér með hinu.
Auðnuleysis eftir kák,
öllu firrtir ljósi,
beita sinum bleika fák
beint að feigðarósi.
Þegar bykkjan þróttlaus hnaut,
það ei togum skipti:
Bensi sér á bakið skaut,
bless, — og hendi lyfti.
Svo var þetta sjálfsagt gert
samvizkuna að þagga:
Hann ætlar að horfa undir stert
hjá ólafi og Ragga.
Síðan segir Jón: Miðrími hef
ég sleppt í fyrstu vísunni og
vona, að það fyrirgefist, þar eð
þessu er bara sullað saman til
gamans yfir kaffibolla og ekki
ætluð trappa ofarlega í bók-
menntastiganum. Og svo að lok-
um ein í svipuðum dúr:
Finn ég varla von til þess
að veslings Óli ráði við
tuddaiynt og taumskakkt ess
er töltir út á vinstri hlið.
Jón Sveinsson lögfræðingur
sendi þessa vísu af sama tilefni:
Fatast óðum flugið þar,
fátt um góða drætti.
Tómur sjóður Tómasar,
teymd er þjóð á slætti.
Axel hringdi vegna þeirra
ummæla Ólafs Jóhannessonar,
að ráðherraferill Vilmundar
Gylfasonar myndi einkennast af
þessari vísu séra Jóns Þorláks-
sonar á Bægisá:
Tunnan valt og úr ’enni allt
ofan i djúpa keldu.
Skulfu lönd og brustu bönd,
botngjarðirnar héldu.
Af þessu tilefni yrkir Axel:
óskhyggjan hans Óla Jóh.
eitri á Vilmund nokkurn spjó.
Vanstillt geð í kratakló
kraumar i grænum heiptarsjó.
Sennilega hefur rangeyskur
bóndi ort þessa dapurlegu en
myndríku stöku:
Næðir fjúk um beran búk,
byltist skafl að hreysi.
Tunglið yfir Hekluhnjúk,
hangir í reiðileysi.
Ekki verður meira kveðið að
sinni, og óvíst hvenær næst
verður brugðið á vísnaleik.
Halldór Blöndal.
Innflytjendur —
Framleiöendur
Sérverzlun á sviöi húsbúnaöar og byggingar-
vöru, getur bætt viö sig auðseljanlegri vöru.
Þeir sem vildu sinna þessu leggi nafn sitt inn á
augld. Mbl. ásamt nánari upplýsingum fyrir
mánudagskvöld, merkt: „Viöskipti — 4512“.
þakjárn • þaksaumur
plastbáruplötur • þakpappi
Byggingavörudeild
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 simi 10 600
MEKKA
Stórglæsileg skápasamstæða
með höfðingjasvip
Mekka skápasamstæðan frá Húsgagnaverksmiðju Kristjáns Siggeirssonar hefur
vakið sérstaka athygli fyrir smekklega hönnun, fallega smíði og glæsilegt útlit.
Þér getið valið um einingar, sem hæfa yður sérstaklega, hvort sem þér óskið eftir
plötuhillum, vín- og glasaskáp, bókaskáp, hillum fyrir sjónvarp og hljómburðar-
tæki, o.s.frv. 1 Mekka samstæðunni má velja fallegan hornskáp, sem gerir yður
mögulegt að nýta plássið til hins ýtrasta. Mekka er einnig með sérstaka hillulýs-
ingu í kappa.
Mekka samstæðan er framle'idd úr fallegri eik. Hún fæst ólituð, í brúnum lit eða í
wengelit. Mekka er dýr smíði, sem fæst fyrir hagkvæmt verð. Mekka gefur stofunni
höfðinglegan blæ.
Skoðið Mekka samstæðuna hjá:
UTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík: Kristján Siggeirsson
Híbýlaprýði
JL-húsið
Akureyri: Augsýn h.f.
Akranes: Verzl. Bjarg h.f.
Blönduós: Trésmiðjan Fróði h.f.
Borgarnes: Verzl. Stjarnan
Bolungarvík: Verzl. Virkinn
Húsavík: Hlynur s.f.
Hafnarfjörður: Nýform
Keflavík: Duus
Kópavogur: Skeifan
Neskaupstaður: Húsgagnaverzl.
Höskuldar Stefánssonar
hf. Ólafsvík:
Ólafsfjörður:
Sauðárkrókur:
Selfoss:
Siglufjörður:
Stykkishólmur:
Verzl. Kassinn
Verzl. Valberg h.f.
Húsgagnaverzl. Sauðárkróks s.f.
Kjörhúsgögn
Bólsturgerðin
JL Húsið, útibú
Vestmannaeyjar: Húsgagnaverzl. Marinós
Guðmundssonar
FRAMLEIÐANDI:
KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF.
HÚSGAGNAVERKSMIÐJA.
argus