Morgunblaðið - 27.10.1979, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979
Stada Olíumalar:
G j aldþr otay firlýsing
ekki komið til tals
— segir stjórnarformadur félagsins
„STJÓRN Framkvæmdastofnun-
ar hefur ekki fjallað um málið á
nýjan leik, eftir að starfshópur,
sem þrír ráðherrar skipuðu,
hafði forgönííu um að ný úttekt
var gerð á fyrirtækinu Olíumöl.
Það hafa engar nýjar ákvarðanir
verið teknar í Framkvæmda-
stofnun rikisins, hvorki um að
draga fyrri lánsloforð til baka né
heidur auka við þau,“ sagði
Sverrir Hermannsson forstjóri
Framkvæmdastofnunar ríkisins,
er Mbl. leitaði upplýsinga hjá
honum um frétt þess efnis, að
Framkvæmdastofnun hefði dreg-
ið til baka loforð um lánveitingar
til Oliumalar og yfirvofandi væri
Kjaldþrot fyrirtækisins.
„Ég hef svo litlu við þetta að
bæta öðru en því, að ég hefði leyft
mér að vona, að menn vildu taka
höndum saman um að bjarga þessu
fyrirtæki, sem ég álít einn mikil-
vægasta hlekkinn í því að menn
geti nú farið að vinna að varanlegri
vegagerð í landinu, sem er eitt
brýnasta framfaramálið, sem okk-
ar bíður á næstunni,“ sagði Sverrir
að lokum.
Það hefur einnig komið fram í
fréttum, að Útvegsbanki íslands
stæði frammi fyrir stórtapi vegna
yfirvofandi gjaldþrots. Bjarni Guð-
björnsson bankastjóri sagði í við-
tali við Mbl. í gær að hér væri ekki
alveg rétt farið með. „Utvegsbank-
inn stendur ekki frammi fyrir
neinu tapi á stórfé vegna Olíumal-
ar h/f,“ sagði hann. „Við höfum
gengið í ábyrgðir vegna erlendra
lána fyrirtækisins en fengið trygg-
ingar fyrir þeim, m.a. í Olíustöð-
inni í Hafnarfirði og öðrum eignum
þess.“
I athugasemd, er borist hefur
blaðinu frá Tómasi H. Sveinssyni
PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins
í Austurlandskjördæmi vegna
komandi alþingiskosninga fer
fram dagana 2.-3. nóvember
n.k. Ellefu frambjóðendur buðu
sig fram og eru það: Sverrir
Hermannsson, Tryggvi Gunn-
arsson, Július Þórðarson, Sig-
ríður Kristinsdóttir, Herdis
Hermóðsdóttir, Þráinn Jónsson,
Jóhann D. Jónsson, Stefán Aðal-
steinsson, Albert Kemp, Egill
Jónas Jónsson og Pétur Blöndal.
Kosið verður á eftirfarandi
stöðum: í Ketilstaðahreppi hjá
Sigmari Torfasyni Torfastöðum, á
Vopnafirði hjá Hilmari Jósepssyni,
í Borgarfirði hjá Jóni Sigurðssyni,
formanni stjórnar Olíumalar h/f
kemur fram, að ekki hafi komið til
tals í stjórn þess að lýsa það
gjaldþrota og segir hann marg-
ítrekaðar yfirlýsingar ráðherra og
annarra stjórnvalda liggja fyrir
um aðstoð við að rétta hag félags-
ins. Athugasemdin er birt í heild
sinni á bls. 5.
Sjá einnig grein Ólafs G.
Einarssonar á bls. 22.
á Seyðisfirði hjá Ólafi M. Sigurðs-
syni, Neskaupstað hjá Hjörvari
Sigurjónssyni, Eskifirði hjá Ragn-
ari Hall, Reyðarfirði hjá Hilmari
Sigurjónssyni Fáskrúðsfirði hjá
Sigurði Þorgeirssyni, Stöðvarfirði
og Breiðdalsvík hjá Bjarna Gísla-
syni, Djúpavogi hjá Unni Jónsdótt-
ur og í Vestur-Skaftafellssýslu hjá
Albert Eymundssyni og að síðustu
á Fljótsdalshéraði hjá Gunnari
Vignissyni. Ennfremur geta kjós-
endur kosið í utankjörstaðarat-
kvæðagreiðslu hjá framangreindu
fólki alla daga fram að prófkjöri.
Annars veitir Magnús Þórðarson
á Egilsstöðum í sima 1452 allar
nánari upplýsingar um prófkjörið.
Sjálfstæðismenn á Austurlandi:
Ellefu bjóða sig
fram í prófkjörið
— sem fram fer dagana 2.-3. nóv. n.k.
Benedikt Gröndal formaður Alþýðuflokksins:
Engar fyrirframgerðar
hugmgndir um ríkisstjórn
„Alþýðuflokksmenn ganga
til kosninga án fyrirfram-
gerðra hugmynda um stjórn-
armyndun að þeim loknum. Við
munum láta málefnastöðuna
ráða í ljósi úrslita kosn-
inganna,“ sagði Benedikt
Gröndal formaður Alþýðu-
flokksins, er Mbl. leitaði til
hans í gær i framhaldi af þeim
ummælum Steingríms Her-
mannssonar formanns Fram-
sóknarflokksins, að hans hugur
stæði frekar til nýrrar vinstri
stjórnar að kosningum loknum
en annarra stjórnarmyndun-
armöguleika.“
„Alþýðuflokkurinn er nú ný-
lega búinn að verða fyrir þeim
vonbrigðum í vinstri stjórn að fá
ekki starf né stuðning við sín
meginsjónarmið," sagði Bene-
dikt. „Reynslan sýnir okkur, að
oft þegar einhver stjórnarmögu-
leikinn hefur verið reyndur til
þrautar hér á landi, þá líður
dálítill tími þar til hann er
reyndur á ný.
Alþýðuflokkurinn hefur átt
samstarf við alla hina flokkana
og við göngum til kosninga nú
með opinn huga. Okkar kapps-
mál er að styrkja Alþýðuflokk-
inn sem mest en að öðru leyti er
ómögulegt að vera með vanga-
veltur um myndun nýrrar ríkis-
stjórnar á grundvelli dóms kjós-
enda, sem við ekki þekkjum."
Lúðvík Jósepsson formaður Alþýðubandalagsins:
Höfum mestan áhuga á raim-
verulegri vinstri stjórn
„VIÐ höfum að sjálfsögðu mest-
an áhuga á raunverulegri
vinstri stjórn, en þá er lika
orðið raunverulegri undirstrik-
að,“ sagði Lúðvik Jósepsson
formaður Alþýðubandalagsins,
er Mbl. Ieitaði til hans i gær i
framhaldi af þeim ummælum
Steingrims Hermannssonar
formanns Framsóknarflokks-
ins, að hugur hans standi frek-
ar til vinstri stjórnar að lokn-
um kosningum en annarra
stiórnarmyndunarmöguleika.
„Eg hugsa til dæmis að raun-
veruleg vinstri stjórn verði erf-
ið með þeirri tegund Alþýðu-
flokksmanna. sem við höfum
kynnzt, og reyndar má nú
formaður Framsóknarflokks-
ins líka taka sig á til að hann
geti kallazt á þeirri réttu
vinstri línu. En það fer ekkert á
milli mála, að alþýðubandalags-
menn reka vinstri pólitik og
vilja vinstri stefnu.“
„Þetta er nú betra," sagði
Lúðvík er hann heyrði, að
Steingrímur segðist þó ekki úti-
loka neitt samstarf, ef sam-
komulag næðist á málefnaiegum
grundvelli. „Sannleikurinn er
nefnilega sá, að ef Sjálfstæðis-
flokkurinn vinnur á eitthvað í
líkingu við það, sem spár segja,
þá tel ég víst að hann geti valið
um það að kosningum loknum,
hvort hann vill þá krata, sem
eftir verða, eða framsóknar-
menn í stjórn með sér. Báðir eru
reiðubúnir."
Mbl. spurði Lúðvík, hvort
hann útilokaði Alþýðubandalag-
ið og þá hvers vegna. „Ég hef
enga trú á því, að Sjalfstæðis-
flokkurinn leiti eftir stjórnar-
samstarfi við okkur og enga trú
á því, að við vildum slíkt sam-
starf, þótt möguleiki byðist. Til
þess ber of mikið á milli Alþýðu-
bandalagsins og Sjálfstæðis-
flokksins," svaraði Lúðvík Jós-
epsson.
Mótmœla lóðaúthlut■
unum í Laugardal
TVEIR ungir piltar, Karl
Þorsteins og Þór Sandholt, litu
inn á ritstjórnarskrifstofu Mbl.
i gær og höfðu meðferðis eftir-
farandi ályktun:
Við undirrituð: íþróttanefnd
Langholtsskóla í Reykjavík,
mótmælum hér með harðlega
lóðaúthlutunum á útivistarsvæð-
um í Laugardalnum nema undir
íþróttamannvirki. Að gefnu til-
efni viljum við minna á að við
erfum landið.
Margrét Hallgrímsdóttir,
Birna Einarsdóttir,
Þór Sandholt,
Karl Þorsteins,
Karl Guðlaugsson,
Þröstur Sigsteinsson,
Adolf Olsen,
Gunnar Gunnarsson.
Þeir félagar Karl og Þór sögðu
að skoðanakönnun hefði farið
fram um þetta mál meðal nem-
enda á gagnfræðastigi, sem eru á
fjórða hundrað talsins og hefðu
allir sem einn verið mótfallnir
byggingarframkvæmdum í
Laugardalnum.
V erkamannabústaðir:
Tilboð opnuð í máln-
ingarvinnu og hrein-
lætistæki 216 íbúða
STJÓRN Verkamannabústaða i
Reykjavik heíur nýlega opnað til-
boð í framkvæmdir við fjölbýlishús
í Hólahverfi. Er þar um að ræða
málningarvinnu, hrcinlætistæki og
járnsmiði.
Að sögn Eyjólfs K. Sigurjónssonar
formanns stjórnar Verkamannabú-
staða ákvað stjórnin að hún skyldi
sjá um útvegun málningar á steininn
og voru tilboðin umreiknuð með það
fyrir augum. Átti Fagmálning lægst
tilboð í verkið 83,3 milljónir króna,
Gísli Sveinbjörnsson 85,3 m.kr. Jón
Vilhjálmsson 88,7 m.kr. og Guð-
mundur Antonsson 91,3 m.kr. Sagði
Eyjólfur að framkvæmdastjóra og
tæknimanni Verkamannabústaða
hefði verið falið að ræða við Fag-
málningu um tilboð sitt, en ekkert
væri enn ákveðið. Varðandi tilboð í
hreinlætistæki sagði Eyjólfur að
ekki væri enn búið að meta öll
tilboðin, en sennilega kæmi helst til
greina að taka tilboði frá J. Þor-
láksson og Norðmann.
Fjölbýlishúsin sem hér um ræðir
eru í Hólahverfi í Breiðholti og
kvaðst Eyjólfur gera ráð fyrir að
fyrstu 12 íbúðirnar yrðu afhentar
um áramót og síðan yrði afhent eitt
fjölbýlishús með 12 íbúðum á þriggja
vikna fresti, en þær eru alls 216, 36
eihs herbergja íbúðir, 72 tveggja
herbergja og 108 þriggja herbergja.
Þá eru hafnar framkvæmdir á veg-
um Verkamannabústaðanna á bygg-
ingu 60 raðhúsa og sagði Eyjólfur K.
Sigurjónsson að fyrstu íbúar ættu að
geta flutt í þau fyrir jólin 1980.
Ræða rannsóknir íslendinga og
Norðmanna á loðnustofninum
FUNDUR íslenskra og norskra
fiskifræðinga þar sem ræða á um
loðnustofninn verður haldinn í
Reykjavik næstkomandi mánu-
dag. Að sögn Jakobs Jakobssonar
fiskifræðings er ekki enn fullráð-
ið hverjir sitja fundinn af hálfu
íslands, en kvaðst hann búast við
að Hjálmar Vilhjálmsson ásamt
sér og einum til viðbótar myndu
sitja fundinn.
Sagði Jakob að ræða ætti um
leiðangur þann sem Hjálmar Vil-
hjálmsson væri að koma úr nú um
helgina svo og leiðangur Norð-
manna sem var í lok september og
fram í október, en Ingolf Ratting-
en var leiðangursstjóri og mun
hann verða í hópi norsku fiski-
fræðinganna. Yrði fjallað um
rannsóknir þessar og síðan gefin
út sameiginleg skýrsla um loðnu-
stofninn og e.t.v. ráðleggingar um
nýtingu hans, en það væri mesti
misskilningur að fundurinn ætti
að ákveða nokkuð um loðnuveiðar
í íslenskri lögsögu.