Morgunblaðið - 27.10.1979, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 27.10.1979, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979 7 r Homin og skælbrosiö „Ég átti nú sjálfur dálít- inn þátt í því að hann (Ólafur Jóhannesson) ákvað að fara í framboð," sagði Steingrímur flokks- formaður í viðtali við Morgunblaöið. Meir en dálítinn, segir almanna- rómur. Vonleysi flokks- manna meö formennsku Steingríms ku hafa knúið „þann ókrýnda" til að haatta við aö hætta. Og tiltekinn framboðs- kandídat, sem verkar eins og Steingrímur, kann að hafa ráðið því að „sá gamli" kaus að beita persónutöfrum sínum í höfuðborginni. Maður áratugar verð- bólgunnar, sem kleif veröbólgutindans tvo: 1974 og 1979, horfir enn til hæða. Manninn, sem á að baki tvær vinstri stjórnir, sem hann sigldi á sker, fýsir enn í skerja- garöinn. Hingað til hefur Olafur að vísu rekið horn- in ein í Reykvíkinga og allt sem reykvískt er, en nú snýr hann óvænt skælbrosinu í malarlýð- inn. Um Carter og Olaf segir Svarthöfði Visis af þessu tilefni: „Ef hann (Carter) kæmist með tærnar þar sem vin- sældakóngur islands hef- ur hælana, yrði kátt í Hvíta húsinu. Hann gæti kannski reynt það ráð að hætta í plati um stund og ákveðið svo að bjóða sig fram meðal þeirra, sem hann hefur ofsótt mest á ferli sínum. Slík aðferð er mjög líkleg til vinsældat“ Líkur eru aö því leiddar að Steingrímur flokksfor- maður rói að því nú að sá „ókrýndi" verði í öðru sæti framboðsins i Reykjavík, en annar leiði- tamari á oddinum. Þann- ig muni Ólafur „styrkja" framboðið, án þess að fara inn á þing aftur. Verandi í þingflokknum eftir kosningar muni Ólafur ráða ferð en for- maðurinn áfram í hlut- verki messadrengs. Eitt er víst. Ekki mun Ólafur á næstu vikum flytja sínar gömlu ræður um „Reykjavíkurvaldið" eða tíunda áratuga andóf sitt gegn öllu því, sem Reykvíkingum hefur ver- ið hjarta næst á gengnum árum. Pólitískar sjón- hverfingar Alþýöuflokks Áróöursbrögð Alþýðu- flokksins í síöustu þing- kosningum voru vissu- lega nýstárleg. Hávaði, sýndarmennska og pennastrikslausnir ein- kenndu vel skipulagða herferð, sem gjörnýtti hvers konar áróðurs- tækni. Þó voru það örfá meginatriði í loforða- mergð kratanna sem einkum náöu eyrum fólks: 1) Samvirkar aö- gerðir til aö ná niöur verðbólgu, 2) Kjarasátt- máli aðila vinnumarkaðar og ríkisvalds til að tryggja kaupmátt launa og koma á jafnvægi í efnahagsmálum og 3) Af- nám tekjuskatts á launa- tekjur, en tekjuskatturinn var gjarnan kallaður launamannaskattur. Alþýðuflokkurinn ber, ekki síður en Alþýðu- bandalag og Framsókn- arflokkur, stjórnskipu- lega ábyrgð á stjórnar- stefnu fráfarinnar vinstri stjórnar og afleiðingum hennar. Og afleiðingarnar stangast gjörsamlega á við fyrirheitin: 1) Verð- bólgan hefur farið fram úr öllum sínum fyrri met- um, 2) „Kjarasáttmálinn" birtist í bráðabirgðalög- um um skerðingu samn- ingsbundinna kjaraatriða og verkfallsbanni (á sjómenn); og efnahags- jafnvægiö og kaupmátt- arverndun urðu öfug- mæli, 3) Afnám tekju- skatts á launatekjur kom fram í afturvirkum tekju- skattsauka (1978), nýjum tekjuskattsþrepum (1979) og hærri heildar- skattheimtu ríkisins í hiutfalli af þjóðartekjum en nokkru sinni fyrr. Al- þýðuflokkurinn getur ekki bent á eitt einasta atriði, sem máli skiptir, er hann stóð við og kom fram í rúmlega 13 mán- aða stjórnarsetu. Brotthlaupið úr ríkis- stjórninni minnir óneitan- lega á þá áróðurstilburði Alþýðuflokksins, sem hann viðhafði fyrir rúmu ári og leiddu hann í vinstri stjórn. En það er hins vegar erfitt að blekkja sama manninn tvisvar, hvað þá fjölda fólks. Hætt er því við að Alþýðuflokkurinn verði að sitja á sama bekk og aðrir stjórnarflokkar, fyrrverandi, þegar dómur yfir vinstri stjórninni verður kveöinn upp f komandi kosningum. SIGURGEIR SIGURÐSSON Á ÞING Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri, Seltjarnarnesi Kópavogur, Grindavík, Hafnarfjöröur, Mosfellssveit, Garöabær, Gullbringusýsla, Seltjarnarnes, Kjósarsýsla. Stuöningsmenn AUGLYSING REYKJANESKJÖRDÆMI 27. —28. október Auglýsing Ernu Ragn Irsdóttur sími 19897 ið bjóðum kstur kiorstað. tmerin 5as£ bazarinn“ í dag Kvenfélagiö Hringurinn heldur si árlega bazar að Hallveigarstöðum í dag kl. 2. Á bazarnum verða m.a. handavinna, jóladúkar, jólatrésteppi, rúmteppi, púðar, svuntur, dúkar, veggplattar Hringsins og leikföng til- valin til jólagjafa. . Þá verður einnig kökubazar. Allur ágóði rennur til líknarmála ^arna' Bazarnefndin. Framboðsfrestur til alþingiskosninga í Reykjavík 2. og 3. desember 1979 rennur út miövikudaginn 7. nóvember n.k. Yfirkjörstjórn tekur á móti framboöum aö Austur- stræti 16, 5. hæð (inngangur frá Pósthússtræti), þriðjudaginn 6. nóvember kl. 17.00—18.00 og miðvikudaginn 7. nóvember kl. 17.00—18.00 og kl. 23.00—24.00. Fylgja skal tilkynning um, hverjir séu umboösmenn lista. 25. október 1979. Yfirkjörstjórn Reykjavíkur. Jón G. Tómasson Sigurður Baldursson Hrafn Bragason Hjörtur Torfason Jón A. Ólafsson. Uppreisn frjálshyggjunnar ÞJÓÐMENNINGIN Frjáls- hyggjan og skólamálin Bessí Jóhannsdóttir Menning og sjálf- stæðisbar- átta Ema Ragnarsdótlir FRJÁLS- HYGGJAN Frjáls- hyggjan og lögin Jón St. Gunnlaugsson Hugmynda- baráttan á Vestur- löndum Hannes H. Gissurarson VINNUMARK AÐURINN Viðreisn á vinnumark- áðnum Baldur Guðlaugsson Af sjónar- hóli laun- þega Halldór Blondal ATVINNULlFIÐ Vandi atvinnu- veganna Jón Ásbercsson Hagkerfi frjáls- hyggju og sósíalisma PéturJ. Eiríksson „Ekkert land er sjálfu sér ein- hlítt. . .“ Geir H. Maarde UTANRlKIS- STEFNAN Raunsæi og þjóð- ernis- hyggja Þór VVhitehead SJÁLFSTÆÐIS- FLOKKURINN Starf Sjálf- stæðis- flokksins Friðrik Sophusson Sjálf- stæðis- flokkurinn og tregðu- lögmálið Davíð Oddsson Hagkerfið og verð- bólgan Þráinn Eggertsson I öryggis- málum er enginn annar kostur Bjöm Bjamason Hvað vildum við? Hvað gerðum við? Þorsteinn Pálsson Bókin UPPREISN FRJÁLSHYGGJUNNAR er samin fyrir hugmvndabaráttu sam- timans, baráttuna milli stjórnlyndis og sósialisma annars vegar og sjálfstæðis og frjáls- hvggju hins vegar. Höfundar bókarinnar eru allir Sjálfstæðisnienn. en þeir eru óhræddir vid að gagnrýna flokkinn hrcinskilnislega. Allar tillögur þeirra miða að þvi að gera Sjálfstæðisflokkinn, sem er fimmlíu ára 25. mai 1979. að voldugri fjöldahreyfingu fólksms i landinu. sem bersl gegn Bákninu. fslenzkir frjálshyggjumenn hafa of lengi setið °g þagað við sósíalismanum. Nú rísa þeir upp og taka til máls. Fæst í flestum bókaverzlunum. Dreifing: Félag frjálshyggjumanna Pósthólf 1334 121 Reykjavík Sími: 85298

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.