Morgunblaðið - 27.10.1979, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979
, HLAÐVARPINN ,
Á FLUGI í RÚM 40 ÁR
„Svifflug
er allra
meina bót”
Njörður Snwhólm á svifflugnámskeiöi á öra viö Fredrikstad í Noregi í
maímánuöi þaö herrans ár 1938.
ÞEGAR erli hversdagsins sleppir
er hverjum manni nauösyn aö geta
snúiö sér aö áhugamálum sínum
hver sem þau kunna aö vera. í
Rannsóknarlögreglu ríkisins getur
vinnudagurinn oröiö langur og þar
er viö ólfkustu verkefni aö glíma.
Mikiö mæöir á Nirði Snæhólm
yfirlögregluþjóni og það er því fyrir
hann eins og aö komast í annan
heim aö komast upp á Sandskeiö
og bregöa sér á loft í einhverri
flugunni.
— Ég er búinn aö vera viöloö-
andi svifflugiö síöan 1937 og
reyndar byrjuöum við aö undirbúa
okkur áriö áöur, segir Njöröur
Snæhólm í samtali viö Hlaðvarp-
ann. — Þá var veriö aö byggja
Þjóöleikhúsiö og viö fengum þar
heilan sal til afnota um veturinn.
Ætli við höfum ekki verið 15 saman
í þessu og ég og Sigurður H.
Ólafsson erum enn tíöir gestir uppi
á Sandskeiði. Agnar Kofoed-
Hansen, núverandi flugmálastjóri,
starfaöi mikiö í þessu í mörg ár, en
hann sést ekki mikiö á Sandskeiöi
nú orðið.
Viö spyrjum Njörð um þessi
fyrstu ár svifflugsins hér á landi, en
5 svifflugmenn tóku a-próf á
Sandskeiöi sumariö 1937.
— Við fluttum okkur fljótlega
upp á Sandskeiö, en byrjuöum þó
reyndar í Vatnsmýrinni austan
Njaröargötu, þar sem flugvöllurinn
er núna. Einnig vorum viö smáveg-
is í Mosfellssveit. Aöstaöan var allt
önnur, blessaöur vertu, heldur en
þekkist í dag. Til aö komast á loft
Njöröur Snnhólm yfirlögreglu-
þjónn.
voru notaöar teygjur og svo var
kannski flogiö í V4 mínútu, en
hestar síöan látnir draga vélina til
baka. Fljótlega eftir aö viö komum
á Sandskeiðið var byrjaö aö nota
spil til aö komast á loft og tæknin
viö þetta hefur síöan aukizt meö
hverju árinu, segir Njöröur.
Haraldur Snæhólm flugstjóri hjá
Flugleiöum byrjaöi aö fljúga á
svifflugu meö fööur sínum og
Njöröur segir okkur, aö svifflug-
mennirnir séu allt niður í 14 ára
gamlir en til aö fá að fljúga svo
ungur þurfa menn að fá uppáskrift
forráðamanna. Aö sögn Njarðar er
algengt, aö menn byrji ungir aö
fljúga svifflugu, hætti síöan um
tíma, en byrji að nýju þegar þeir
eru búnir aö koma sér fyrir. En er
þetta della, sem ekki er hægt aö
lækna?
— Þetta er meira en della,
þetta er meðal viö næstum því
öllu, aö ég held. f sviffluginu fær
maöur flest þaö, sem önnur
áhugamál geta gefiö og er þá
ekkert undanskilið að mínum
dómi. Ef ég er leiöur og þreyttur þá
er svifflugiö allra meina bót, segir
Njörður Snæhólm aö lokum.
ÆVENTÝRI Á DÝRAFIRÐINUM
„Bátarnir voru eins
og skreytt jólatré”
ÞEIR sem reynt hafa, segja það
stórskemmtilegt œvintýri að
fara á smokkfiskveiðar — og
arðbært ef vel gengur. í haust
ííekk smokkfiskurinn inn á firði
fyrir vestan, en það hefur ekki
gerzt í ein 12 ár. í nýjasta
tölublaði Sjávarfrétta skrifar
Sigurjón Valdimarsson
skemmtilega grein um þessa
„hitasótt“ undir fyrirsögninni
„Og þá má einu gilda hvar
gusan lendir“. Við grípum niður
í greinina og birtum orðrétt
nokkrar setningar úr þessu
„ævintýri í Dýrafirðinum“.
„Æðisgengin leit að smokk-
fiskkrókum var hafin og það var
mesta furða hvað mikið fannst.
Svo aum bátsskel var vart finn-
anleg að henni væri ekki hrint á
flot og hún mönnuð. Sumir bát-
anna voru svo lekir að hafa varð
ílát undir aflann meðferðis og
halda í land, þegar þau voru
fyllt... Og þeir sem ekki komust
á bát fóru út á eyraroddann og
kveiktu þar bál eða lýstu á sjóinn
með bílljósum til að ginna
smokkinn á land og tóku hann
berum höndum í fjörunni... Það
þykir vænlegt til árangurs að
hafa mikið af ljósum hangandi
utan á bátnum á smokkfiskveið-
um og sumir bátarnir á Dýrafirð-
inum voru til að sjá eins og
skreytt jólatré.
... En þegar menn lenda í
UMSJÓN: ÁGÚST I. JÓNSSON
(Ljósm. Sjávarfréttir).
Finni — greinilega ánægður meö
afraksturinn.
brjáluðum fiski gilda snör hand-
tök við að hrista af króknum og
koma honum í sjó aftur og þá má
einu gilda hvar gusan lendir,
enda eru sumir hörðustu veiði-
mennirnir æði svartir í framan
þegar þeir koma að landi að
morgni... Sumir höfðu með sér
konuna og það gat komið fyrir að
skjóta þurfti konu eða krakka á
land einhvern tíma næturinnar,
en það gerði ekkert til því
sjaldnast var meira en tíu eða
fimmtán mínútna keyrsla að
bryggjunni...
Er gaman að þessu? Já, sagði
Jónas sveitarstjóri, þetta gefur
laxinum ekkert eftir. Já, sagði
Geiri Magg og andlitið ljómaði,
það er skolli gaman að þessu. Já,
sagði Dóri á Dýrhól, það er
djöfull gaman að þessu ...“
Helga Lína lang-
sokkurá Skaganum
I LOK september byrjuðu á Akra-
nesi æfingar Skagaleikflokksins á
leikritinu um hana Línu litlu lang-
sokk, en leikstjóri er Vestmann-
eyingurinn Sigurgeir Scheving.
Helga Braga Jónsdóttir leikur Línu
og er meðfylgjandi mynd af henni í
hlutverkinu. Hún sagði í viðtali við
blaðið Umbrot á Akranesi að hún
væri dálítið taugaóstyrk fyrir
frumsýninguna og sagðist kvíða
mest fyrir einsöngsatriðunum. Við
skulum vona að allt gangi vel hjá
Helgu Línu.
íleiðinni... íldðinni
Gaman, gaman
TÍZKUKÓNGAR Parísarborgar boðuðu nýlega vor- og sumar-
tízkuna 1980. í boðskap þeirra kom fram, að vænta má
stuttpilsanna á nýjan leik og var það þó vonum seinna. Um svipað
leyti ákváðu Flugleiðir að láta hanna nýjan flugfreyjubúning, sem
tekinn verður í notkun næsta vor.
„...varla kemba
hœrur”
Þessi vísa fannst meðal nokk-
urra annarra í hlaðvarpanum á
dögunum:
„Eitt sinn átti Eykon hrút,
og úrvals gærur.
Við mörðugrís nú myndar skærur,
mun sá varla kemba hærur.“
HLAÐVARPINN
Nóg af slgsum
í GREINARGERÐ frá Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands er
sagt frá starfsemi deildarirmar. Meðal annars er sagt frá rekstri
sjúkrabíla deildarinnar, en þar segir svo m.a.: „Nýting bílanna
hefur verið góð, útköll fleiri en 10 þúsund á ári eða að meðaltali
27—28 á sólarhring." Greinilegt að forystumenn deildarinnar eru
mjög ánægðir.
Allrahanda.................
• Pétur Sveinbjarnarson keypti
sem kunnugt er Húsið á Eyrar-
bakka og hefur unnið mikið starf
við að gera upp þetta sögufræga
hús. Hann hefur nú skipt um
lögheimili og nýja heimilisfangið
er: Pétur Sveinbjarnarson, Hús-
inu, Götunni, Eyrarbakka...
• Mörgum þykir vel við hæfi að
Haraldur Ólafsson bætist í þing-
flokk Framsóknarflokksins. Ekki
sé vanþörf á mannfræðingi í þeim
hópi og almennt á Alþingi...
• Fæðingardagur Jóhannesar
heitins Kjarvals var 15. október,
en þann dag fyrir allnokkrum
árum kom í heiminn stúlkubarn,
sem gefið var nafnið Sjöfn (Sig-
urbjörnsdóttir). Sú er nú formað-
ur stjórnar staða þeirra, sem
kenndir eru við meistara
Kjarval... • Síðustu árin hefur
það verið hulið flestum hvað
Ólafur Jóhannesson ætlaðist
Benedikt Bónaparte
fyrir hverju sinni. Þannig var
þessu farið varðandi framboðs-
mál véfréttarinnar nú á dögunum
og var jafnvel veðbanki starfandi,
þar sem menn spáðu mjög í hver
yrði næsti leikur framsóknar-
höfðingjans úr Fljótun-
um ... • Þrír fyrrverandi þing-
menn Alþýðuflokksins bjóða sig
fram í prófkjöri á Norðurlandi
eystra. Sjálfsagt verður mikil
þátttaka í prófkjörinu þar um
sveitir og rifjar það upp söguna
frá síðustu kosningum. Þá
greindi Dagur á Akureyri frá því
að 32 hefðu tekið þátt i prófkjöri
krata í Mývatnssveit, en þar
væru hins vegar ekki bókfærðir
nema fjórir kratar. Eðlilega var
fyrirsögn Dags svohljóðandi: „32
af 4 krötum tóku þátt í prófkjör-
inu“ ... • Benedikt Gröndal ótt-
ast ekkert meira þessa dagana en
doktorinn Braga Jósefsson og
sagt er að margir vilji nú gera
bragarbót á forystu Alþýðu-
flokksins. Mynd sú er fylgir hér
með var fyrir nokkru tekin innan
veggja Stjórnarráðsins og sýnir
hvernig forsætisráðherrann
gengur þar um ganga í Napól-
eonsstíl... • Þegar Elín Pálma-
dóttir sá alla hákarlana, sem við
er að glíma í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins um helgina, varð
henni að orði: „Ég segi bara eins
og hornsílið: Hér syndum vér
fiskarnir."
Sjöfn fyrir mörgum érum.