Morgunblaðið - 27.10.1979, Síða 16

Morgunblaðið - 27.10.1979, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979 16 Finnbjöm Hjartarson: Horft til nýrrar aldar Haraldur Blöndal: Eilífðarvél Steingríms Hermannssonar Enn kemur í hlut sjálfstæð- ismanna að vera í fararbroddi, þegar standa skal vörð um lýðræð- ið á íslandi og benda þjóðinni á þau sannindi, að frelsi einstakl- inga til athafnalífs sé sá þáttur, sem lyftir þjóðinni á framfara- braut. Þrátt fyrir það, að andstæð öfl hafi verið sterk hér á landi, hefur Sjálfstæðisflokkurinn lyft Grettistaki í þeim efnum að koma á frelsi á íslandi, og hefur tekizt að draga vel inn í flokka andstæð- inganna. Þar er skýrust frjálslyndis- bylgja sú, sem náði til Alþýðu- flokksins í síðustu Alþingiskosn- ingum. Þeirri þróun eigum við Sjálfstæðismenn að fagna. Við þurfum ekki að óttast, og eigum ekki að óttast, þegar gamlir kerf- isflokkar ganga í frelsisátt. Við eigum að fagna öllum, sem taka þátt í jákvæðri uppbyggingu þjóðlífs á íslandi, með málefna- legri baráttu og sjáum vissulega, að Sjálfstæðisflokkurinn er miklu sterkari en atkvæðamagn hans segir til um. Og hvernig má annað vera? Flokkur, sem stendur vörð um það helgasta og bezta, sem gefið hefur verið, kristna siðfræði, sem byggir upp einstaklinga á einstakan hátt. Lætur engan afskiptan. Stendur að og byggir upp heimilislíf. Æti- ast til frelsis í öllum greinum. Veit að mesti jöfnuðurinn fæst aðeins með frelsi allra einstalinga, í bræðralagi siðaðra manna, þar sem maðurinn er ekki í öndvegi, heldur skapari hans. í afmælisgrein, sem Elín Pálmadóttir, blaðamaður skrifar nýlega og ræðir við Ármann Snævar, forseta Hæstaréttar, seg- ir Ármann, að þegar mál hafi verið tekin til dóms, eftir sókn og vörn, þá finni hann til þeirrar ábyrgðar, að enginn sé lengur til yfir honum „nema Guð einn“. Finnbjörn Hjartarson. Hvað þýðir þessi játning fyrir fólkið í landinu? Fyrir kristið fólk? Það veit, að í öndvegi er smiður réttarins, en maðurinn verkfæri, sem veit að fyrir augliti hans eru allir jafnir og honum ber að gæta bróður síns. Dómarinn er einn með Guði og samvizku sinni. Hafa einhverjir aðrir betra fram að færa? Þeir geri þá grein fyrir málinu. Þetta er sú hugsjón og vissa, sem sterk þjóðfélög standa á. Þær þjóðir reyna að koma því að í öllum greinum, í öllum þáttum þjóðlífsins, að þegnarnir hafi slíka samvizku og séu í raun aldrei einir og aldrei eftir. Þess vegna geta sjálfstæðis- menn verið stoltir af, að þeir hafa af fremsta megni, oft við erfiðar aðstæður, byggt upp þjóðfélag á frelsisbraut, þar sem kristin sið- fræði er þráðurinn, sem heldur uppi þjóðfélaginu. Vel mega menn gera sér grein fyrir því hvílíkt ginnungagap væri í íslensku þjóðlífi ef varðstöðu Sjálfstæðismanna nyti ekki við. Enginn getur á móti því mælt, að úr röðum Sjálfstæðismanna hafa valizt menn, sem stóðu fremst í baráttu fyrir frelsi þjóð- arinnar. Og þegar stærsta skerfið var stigið til verzlunar- og at- hafnafrelsis, sem var 1961, voru sjálfstæðismenn í fararbroddi. Nú heita sjálfstæðismenn því, að skrefið verði stigið til fulls ef þeir verða valdir til forystu að aflokn- um kosningum. Á þeim tuttugu árum, sem síðan eru liðin, hefur á Vesturlöndum orðið tæknibylting, sem fáa óraði fyrir. Sú bylting er komin frá þeim þjóðum, sem frjálsastar eru í atvinnuháttum og óhræddar setja skapara mannsins í öndvegi. Við íslendingar skuium ekki láta vilia okkur sýn í þeim efnum. Við skulum horfa til nýrrar aldar með hinar beztu gjafir að leiðar- ljósi. Við skulum ekki forsmá gjafarann, heldur skulu sjálfstæð- ismenn áfram vera varðmenn kristninnar, lýðræðisins og frels- isins. í þjóðfélagi, þar sem menn eru aldrei einir og aldrei efstir, og með því hugarfari nálgist íslenzka þjóðin aldamót. Ef Sjálfstæðisflokkurinn á að eiga möguleika að auka frelsið, mega sjálfstæðismenn í Reykjavík ekki vera svo kappsfullir í próf- kjörsbaráttu, að þeir endurspegli ekki vilja síðasta Landsfundar Sjáifstæðisflokksins og standi þétt með Geir Hallgrímssyni, á þeim tímamótum, sem líkur eru á að séu framundan í stjórnmálum landsins. Skáldjöfurinn Henrik Ibsen lýsir átakanlega í leikriti sínu Villiöndin örlegum þess góða ljósmyndara Hjalmars Ekmann, sem trúði því að gera mætti eilífðarvél. Hugsjónin mikla eitr- aði fjölskyldulíf hans, en þrátt fyrir það tókst honum æ ofan í æ að sannfæra heimilisfólk sitt um að sigurinn væri á næsta leiti og jafnframt hamingja þeirra. Að lokum eyðilagði tálsýn Ekmanns fjölskyldu hans og lagði líf hans í rúst. Reykvíkingar þekkja þetta leikrit vel, — það var sýnt hér fyrir nokkrum misserum. Mér kom þetta snilldarverk í hug, þegar ég las í Morgunblað- inu í morgun, föstudag, að Steingrímur Hermannsson tryði enn á vinstri stjórn, og væri farinn að safna sér efni í nýja eftir kosningar. Það gilda nefni- lega sömu lögmál um vinstri stjórnir og eilífðarvélina hans Hjalmars Ekmanns, — þær vantar aflvakann. Enn sem komið er er nýjasta vinstri stjórn Steingríms Her- mannssonar aðeins tálsýn hans og von, og mín vegna má hann dútla við það að mynda slíka stjórn, — þ.e. svo lengi, sem engin hætta er á því að hún verði bitur veruleiki fyrir íslendinga. En Steingrímur Hermannsson er voldugur maður í þjóðfélaginu, — hann er mikill áróðursmaður Haraldur Blöndal og hver veit nema honum takist, eins og Hjalmar Ekmann, að sannfæra nógu marga einu sinni enn. Sú hætta er fyrir hendi. Þremur sinnum höfum við íslendingar orðið fyrir barðinu á vinstri stjórn. Þremur sinnum lá efnahagslíf landsins í rúst. Er nú mál að þessu leikriti linni. Til þess að svo megi verða, þarf Sjálfstæðisflokkurinn að vinna slíkan sigur í Alþingis- kosningunum 2. og 3. desember, að vinstri stjórn komi ekki til greina. Til þess að svo megi verða þarf flokkurinn stuðning og til- trú almennings í landinu. Richard Björgvinsson bæjarfulltrúi: Vinnum meirihluta í Aðventukosningunum Þriðja vinstristjórnin er fallin og enn einu sinni skilur hún eftir sig glundroða og upplausn í efna- hagslífi landsmanna. Eftir 13 mánaða argaþras gáfust vinstri- flokkarnir upp, enda orðnir hund- leiðir hver á öðrum og hver höndin uppi á móti annarri. Getuleysi þessara flokka til að stjórna landinu hefur enn einu sinni verið afhjúpað. Stefnuleysi þessara flokka kemur í veg fyrir að hægt sé að byggja upp heilbrigt og lífvænlegt þjóðfélag. Sjálfstæðisflokknum er mikill vandi á höndum á þessum tíma- mótum. I Aðventukosningunum sem í hönd fara verður flokkurinn að einbeita sér að því, að kynna kjósendum stefnumörk sín og hverjar leiðir hann hyggst fara til þess að rétta við. Sjálfstæðis- flokknum nægir engan veginn að vinna kosningasigur sem einungis byggist á óvinsældum vinstri- flokkanna. Hann verður að leita sér trausts fylgis en þess sem byggt ®r á stundaróánægju al- mennings. Hann verður að móta skýra og rökfasta stefnu um leiðir út úr ógöngunum í efnahagsmál- um landsmanna, og vinna kosn- ingasigur sinn á eigin verðleikum. Sjálfstæðisflokknum ber skylda til að koma hreint fram og segja þjóðinni hvað hann vill gera í þessum efnum og hvernig hann vill gera það. Hann þarf að marka stefnu viðreisnar í efnahagslífinu, stefnu og framfara og festu. Þjóð- in vill að brotið sé blað í þjóðmál- unum og það blað á Sjálfstæðis- flokkurinn að brjóta. Leita verður nýrra leiða. Það hálfkák og handarbakavinna sem tíðkast hefur við lausn verðbólgu- vandans verður að heyra sögunni til. Breyta þarf mörgum grunnvið- um þjóðfélagsins. í stuttri blaðagrein verða því máli ekki gerð mikil skil, en eitthvað má þó nefna. Umfram allt verður Sjálfstæð- isflokkurinn að hafa kjark og þor til að einbeita sér að forystuhlut- verki sínu í íslenzkum þjóðmálum án þess að eiga það undir sam- starfi við aðra flokka hver stefna hans verður. Sjalfstæðisflokkur- inn verður að ætla sér að vinna algjöran meirihluta á næsta Al- þingi til þess að koma stefnumál- um sínum fram. Sjálfstæðisflokkurinn verður að fylgja út í æsar þeirri yfirlýstu stefnu sinni, að afnema alla nýju skattana og álögurnar sem vinstristjórnin lagði á. Hann verð- ur að vinna að því, að almennar launatekjur verði ekki skattlagð- ar. Gefa verður utánríkisverzlunina frjálsa, leyfa frjáls gjaldeyris- viðskipti og skapa frjálst verðlag í landinu. Snúa verður þróuninni Richard Björgvinsson við með því að lækka neyzluskatta og stöðva sífelldar víxlhækkanir launa og verðlags. Gera verður almenningi grein fyrir því, að verðlækkanir komi í áföngum. Hreinsa verður til í KERFINU sem alla er að sliga, og er orðið slíkt völundarhús, að það er ekki á annarra færi en sérfræðinga að rata um það. Við fjárlagagerð þarf að taka upp allt önnur vinnubrögð en tíðkast hafa. I stað þess að setja tölurnar frá því í fyrra inn í nýtt fjárlagafrumvarp, og þvarga síðan í nokkrar vikur í þinginu um hvern einasta lið, verður að byrja fjárlagagerðina á núlli og ætla hverjum lið það fjármagn sem til ráðstöfunar er hverju sinni. Um- fram allt verðu að gæta ýtrustu hagsýni og sparsemi í ríkisrekstr- inum. Fjölmörg ríkisrekin fyrir- tæki þarf að leggja niður og láta einstaklingsframtakið annast þann rekstur með arðsemissjón- armið í huga. Atvinnuvegunum verður að búa lífvænleg skilyrði og stöðva þá óhóflegu skattpíningu sem nú er að bera þá ofurliði. Nýta verður orkulindir landsins til þess að auka þar með framleiðni og vel- megun allra landsmanna. Allar þessar ráðstafanir miða í þá átt, að Sjálfstæðisflokkurinn beiti sér af alefli að því, að færa fjármagnið til atvinnulífsins og til fólksins sjálfs, lofa fólkinu að ráðstafa sínum tekjum, en ekki einhverjum nefndum og ráðum, hvað þá starfshópum, svo notað sé nýyrði vinstristjórnarinnar yfir einn angann af kerfinu. Sjalfstæðisflokkurinn á hik- laust að vinna að því að fá umboð þjóðarinnar til þess að stjóra einn og koma stefnumálum sínum fram. Hann er reiðubúinn að axla þá ábyrgð og jafnframt reiðu- búinn að hlíta dómi landsmanna um stefnu sína og markmið. Fyrir síðustu kosningar börðust vinstriflokkarnir undir vígorðinu: „Samningana í gildi." Þeir unnu mikinn sigur, en efndirnar urðu engar, eins og landsmenn þekkja alltof vel. Sjálfstæðisflokkurinn verður að vinna að því, að landsmenn hljóti nýja tiltrú á gjaldmiðli sínum. Hann verður að tryggja kaupmátt launa og vinna bug á óðaverðbólg- unni. Hans vígorð í þessum kosn- ingum ætti að ver: „Krónan í gildi.“ Það vígorð fengi hljóm- grunn hjá þjóðinni sem nú horfir upp á öll verðmæti sín brenna upp í óðaverðbólgu. Aðventukosningarnar eiga að verða upphaf birtu og friðar í íslenzkum stjórnmálum og efna- hagsmálum, en það getur aðeins orðið með því að Sjálfstæðisflokk- urinn hljóti þann þingstyrk sem nauðsynlegur er til þess að koma stefnumálum sínum fram af ein- urð og festu. Breytt .símanúmer á afgreiöslu Morgunblaösins 83033

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.