Morgunblaðið - 27.10.1979, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979
17
Tónlist að Kjarvalsstöðum
Kammermúsikklúbburinn
stóð fyrir tónleikahaldi að
Kjarvalsstöðum og fluttu Guðný
Guðmundsdóttir, Einar Jóhann-
esson og Philip Jenkins tónlist
eftir Vanhal, Brahms, Ives,
Schumann og Katsjatúrían.
Vanhall eða Wanhall eins og
nafn hans er stundum ritað, var
virtur kennari og tónskáld og
samdi mikið af sinfónium og alls
konar kammertónlist og eru
sónötur hans að því leyti sér-
kennilegar að hann gerir ráð
fyrir að þaer megi leika (og
jafnvel syngja) á ýmsar gerðir
hljóðfæra. Einhvern veginn var
samsetningin klarinett, fiðla og
píanó ekki sannfærandi fyrir
þessa tónlist Vanhalls (1739-
1813) og flutningurinn ekki í
samræmi við stíl og tíma tón-
skáldsins.
Annað verkefnið á tónleikun-
um var klarinettusónatan op.
120, nr. 1, eftir Brahms. Þetta
dýrðarinnar verk var glæsilega
flutt af Einari Jóhannessyni.
Það sem á vantaði var vöntun í
blæbrigðum á píanóinu. Leikur
Philip Jenkins er nákvæmur og
skýr, en það vantar öll stílbrigði
í leik hans. Brahms er róm-
antískt tónskáld og mótun blæ-
Tónllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
brigða er ekki síður nauðsynlegt
að útfæra en nákvæmni í leik og
samspili. Sterkur og hvass
hljómur gefur ekki sama
Brahms og þungur og mjúkur
hljómur. Allt um það, Einar
Jóhannesson lék verkið feikna-
lega vel og naut góðs af öruggu
samspili Jenkins.
Largo eftir Ives var bæði vel
og illa spilað og vantaði víða þá
litun í tónblæ er nauðsynlega
þarf í þessu verki.
Fjórða verkið var fiðlusónat-
an, op. 105, nr. 1, eftir Schu-
mann. Leikur Guðnýjar var of
mislitur og þar sem mest bar á
ástríðuþrungnum sterkum tóni,
en fínlegri blæbrigði voru eitt-
hvað er ekki skipti máli. Þetta
misræmi er þó nokkurt mál,
vegna þess að Guðný er frábær
fiðluleikari.
Túlkun er vandamál, sem ekki
verður yfirstigið með lærdómi,
hún er lifun, listamennskan
sjálf, ofin úr margþættum til-
finningum, er birtast í skáldlegri
sýn flytjandans og hrífur hlust-
andann án þess að hann geti
rönd við reist. Tríó eftir Kalsja-
túrían var síðast á efnisskránni.
Það er svo, með mikið af tónlist
sovéskra tónsmiða, að hún er að
því leyti til svipuð tónlist er
samin var á þeim tímum er
tónskáld voru fjölskylduþjónar,
að hún er í eðli sínu þjónustu-
list, glæsilega tilreidd, mikið
spilverk en lítill skáldskapur og
aldrei farið yfir þau mörk er
gætu valdið óánægju „fjölskyld-
unnar". Þannig fór flutningur-
inn mjög vel fram, mikið spil-
verk, og mjög vel af hendi leyst
en skildi ekki neitt eftir nema að
vera góð skemmtun.
abba og ^eö
m
ðmn111
Samstarfsnefnd um viku gegn vímuefnum.
Feröir frá Keflavík.
Feröir úr Hafnarfiröi og Garöabæ, 1. ferö úr Hafnarfiröi kl. 12.30
meö Landleiöum á Vfe tíma fresti kl. 15.30.
Feröir: frá Kópavogi meö strætisvögnum Kópavogs,
aukaferöir á vegum S.V.R.
tækifæri
fyrir
börn
Stórkostleg skemmtun
í sýningarhöllinni Ársalir
— Bíldshöfða í dag kl. 13.30-18.00
BIO OG DISKOTEK ALLAN TIMANN
Skemmtiatriöi.t.d.
• Tóti trúöur, • Baldur Brjánsson, • Jassballettskóli Báru, • Hljómsveit
Birgis Gunnlaugssonar, • Dansskóli Heiöars Ástvaldssonar, • Finnbogi
og Guögeir, • Páll Jóhannesson, • 5 fræknar, • Hornaflokkur
Kópavogs, og margt fleira.
ALLIR SKEMMTIKRAFTAR GEFA SÍNA VINNU.