Morgunblaðið - 27.10.1979, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 27.10.1979, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979 23 Ragnhildur Helgadóttir: Prófkjör sjálfstæðismanna til ákvörðunar framboðslista til þings fer fram nú um helgina í Reykjavík. Inn á við fer þar fram kosning milli manna, en út á við markar prófkjörið fyrri áfanga í afdrifaríkri sameiginlegri kosn- ingabaráttu næstu fimm vikna. I prófkjörinu leggur Sjálfstæð- isflokkurinn valdið í hendur hins breiða fjölda, sem flokkinn styður. Það er í samræmi við lýðræðis- hugsjón Sjálfstæðisflokksins, að reglurnar um prófkjör hans leggja meira vald í hendur kjósenda en gert er í prófkjörum annarra inn þarf á alefli sínu að halda í viðureigninni við hinn hrikalega vanda, sem vinstri menn hafa komið upp. Fleiri og fleiri gera sér nú ljósa þá ógnvekjandi staðreynd, að sam- fara algjörri upplausn í efna- hagsmálum hafa armar sósíalism- ans teygt sig um æ fleiri svið þjóðlífsins og læst greipum sínum þar sem sízt skyldi. í menningar- og menntamálum hefur fjöldi kommúnista misnotað aðstöðu sína og grandaleysi annarra svo að með ólíkindum er. Gagnrýni þola þeir ekki. Einstaklingamir ákveða flokka. Kjósandinn ákveður hverj- ir prófkjörsframbjóðenda verði á þinglista flokksins hér í Reykjavík og í hvaða röð með því að setja tölustafi framan við þau átta nöfn, sem hann kýs á atkvæða- seðlinum. Þar með verður ákveð- inn drjúgur hluti af baráttusveit flokksins á þingi næsta kjörtíma- bil. Prófkjörið er öllum stuðnings- mönnum Sjálfstæðisflokksins op- ið. Það verður því ekki um of undirstrikuð nauðsyn þess, að allir einlægir sjálfstæðismenn, sem því geta við komið, komi á kjörstaðina og greiði atkvæði í prófkjörinu. Sjálfstæðisflokkur- í nágrannalöndum okkar rísa æ fleiri gegn þessum ófögnuði og sýna þess merki svo um munar í almennum kosningum. Nú seinast í Danmörku, þar sem kommúnist- ar hrökkluðust af þingi. Unga fólkið og aðrir kjósendur streyma til frjálshyggjuflokkanna í ná- grannalöndum okkar. Æ fleiri sjá, að sósíalisminn er úreltur. Nýjustu hörmungarfregn- ir um afleiðingar af framkvæmd hans í sinni ýtrustu mynd bárust frá Tékkóslóvakíu nú í vikunni er upp höfðu verið kveðnir dómarnir yfir baráttumönnum mannrétt- inda, en dómarnir fela i sér enn eitt brot kommúnistaríkja á mannréttindaákvæðum Helsinki- sáttmálans. Allt fyrir þetta má eins búast við að íslenzkir boðber- ar stefnunnar, sem svo reynist í framkvæmd, haldi áfram að boða vísdóm sinn rétt eins og þeir hafi bundið fyrir bæði augu. Og flokk- ur þeirra hafði á síðasta kjör- tímabili lykilstöðu í íslenzkum stjórnmálum, þriðjung ríkis- stjórnarinnar og 23,3% þingsæta. Island á betra skilið. Látum því prófkjör sjálfstæðismanna nú um helgina verða markvissa byrjun á breytingum til góðs í íslenzku þjóðlífi. Það gerum við með mikilli þátttöku einlægra sjálfstæðis- manna. Kristján Ottósson, form. Félags blikksmióa: HINN 17. okt. s.l. var haldin á Hótel Esju ráðstefna um stöðu blikksmíðagreinarinnar í bygg- ingariðnaðinum. Ráðstefnan var á vegum Félags blikksmiða og Fé- lags blikksmiðjueigenda. Ráðstefnan var fjölsótt. Þarna voru samankomnir m.a. verkfræð- ingar og tæknifræðingar er vinna í byggingariðnaði, ásamt nokkrum starfsmönnum frá byggingardeild borgarverkfræðings og frá bygg- er varða loftræsti- og hitakerfi. Þar þarf að verða mikil breyting á, ef við eigum að verða sjálfum okkur samkvæmir. Þá sagði Gunnar að hann von- aðist eftir góðri samvinnu við blikksmíðameistara, sem myndi leiða til góðs og tryggja húsbyggj- endum betri verkframkvæmd. Síðan kynnti Asmundur Jó- hannsson tæknifræðingur reglu- gerð um brunavarnir og bruna- Hugarfarsbreyt- íng nauðsynleg til að efla iðnaðinn ingarfulltrúa Reykjavikurborgar, auk manna í blikksmíðaiðninni. Gunnar Sigurðsson byggingar- fulltrúi rakti sögu byggingarlaga, er tóku gildi um síðustu áramót og í framhaldi af því fjallaði hann ítarlega um þá þætti nýútkominn- ar byggingarreglugerðar, er sér- staklega varða blikksmíði. Mikla athygli vöktu umræður um þau atriði er fjölluðu úm ábyrgð iðnmeistara og samskipti þeirra í millum. Þá má geta þess að Gunnar kom sérstaklega inná að krafist yrði af hönnuðum sérteikninga, er varða verkframkvæmd og frágang verka. En hingað til hefur engin kvöð verið um slíkt, hvað varðar blikksmíðina. Rétt er að geta þess að byggingardeild borgarverk- fræðings hefur sett fram ákveðnar kvaðir um bættan frágang verka mál, sem tók gildi 16. ágúst 1978. Reglugerðin er sniðin eftir danskri reglugerð frá jan. 1977. Einnig fjallaði Ásmundur um skiptingu húsa í brunahólf og brunasamstæðu og flokkun efna eftir brunaþoli, þá gat hann þess, að hér á landi væri ekki til neinn aðili er hefði með höndum bruna- þolsprófanir fyrir húshluta t.d. brunavarnahurðir og brunalokur. Þar af leiðandi verður þessi þáttur handahófskenndur í byggingum. Rafn Jensson verkfræðingur fjallaði um brunalokur og saman- burð á ákvæðum brunamálareglu- gerða ýmissa landa, t.d. sænskra og þýskra, en í þeim eru mismun- andi kröfur eftir gerð húsa og hlutverki þeirra. Þá skýrði Rafn muninn á ákvæðum varðandi reyklokur og brunalokur sam- kvæmt þýsku reglugerðinni. Ráðstefnan var hin fróðlegasta og lofar góðu um samstarf þeirra aðila er hlut eiga að máli. Hún sannaði gildi sitt ef miðað er við þær umræður, sem fram fóru og kallar á áframhaldandi þekk- ingarmiðlun á milli aðila er vinna við sömu verkframkvæmdir. Áberandi er hve mikið sam- bandsleysi virðist vera milli hönn- uða þ.e. arkitekta og verkfræðinga í byggingariðnaðinum, í alltof mörgum tilfellum er yfirborðs- kennt útlit látið sitja í fyrirrúmi, í stað hagkvæmni og notagildi húsa og tilheyrandi tækjabúnaðar, sem leiðir af sér óhagkvæmari rekstur bygginga. Ef íslenzkur iðnaður á að geta keppt við eriendan iðnað á þessu sviði, verður að eiga sér stað hugarfarsbreyting til að auka samvinnu manna í millum. Prófkjör Alþýðuflokksins um helgina PRÓFKJÖR verða í sex kjör- dæmum hjá Alþýðuflokknum nú um helgina, í Reykjavík, Reykja- nesi, Suðurlandi, Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra, Vestfjörðum og Vesturlandi. Reykjavík I Reykjavík verður aðeins kos- ið um fyrsta sætið á listanum milli þeirra Benedikts Gröndals og dr. Braga Jósepssonar, en sjálfkjörið er í 2., 3. og 4. sæti, Vilmundur Gylfason, Jóhanna Sigurðardóttir og Jón Baldvin Hannibalsson. Kjörstaðir verða tveir: í Iðnó fyrir alla íbúa Reykjavíkur vest- an Lönguhlíðar og Nóatúns og í Sigtúni fyrir alla íbúa Reykja- víkur austan Lönguhlíðar og Nóatúns. I dag verður kosið frá 13.00-18.00 og frá 10.00-19.00 á morgun. — Kosningarétt hafa allir sem eru 18 ára og eldri og ekki eru flokksbundnir í öðrum flokkum. Kjósendur verða að hafa lögheimili i Reykjavík. Reykjanes í Reykjanesi verður kosið um fimm efstu sæti listans. Fram- bjóðendur eru: Ásthildur Ólafs- dóttir sem gefur kost á sér í 4. og 5. sætið; Guðrún Helga Jónsdótt- ir sem gefur kost á sér í 3., 4. og 5. sæti; Gunnlaugur Stefánsson sem gefur kost á sér í 2. og 3. sætið; Karl Steinar Guðnason sem gefur kost á sér í 2. sætið; Ólafur Björnsson sem gefur kost á sér til 1. til 5. sætis; Kjartan Jóhannsson sem gefur kost á sér í 1. sætið og Örn Eiðsson sem gefur kost á sér í 2. til 5. sætis. Kjörstaðir verða: Mosfellsveit í Brúarlandi, Seltjarnarnesi að Melabraut 67. í Kópavogi að Hamraborg 1. I Hafnarfirði í Alþýðuhúsinu. í Vogum, Vatns: leysuströnd í Glaðheimum. I Njarðvík í Stapa. í Keflavík í Tjarnarlundi. I Garði í Dag- heimilinu. I Sandgerði í Slysa- varnafélagshúsinu og í Kvenfé- lagshúsinu í Grindavík. Kosið verður frá klukkan 14.00—19.00 í dag og 10.00—19.00 á morgun og ber hverjum að kjósa frambjóð- endur í fimm sæti. Sömu reglur gilda um atkvæðisrétt og í Reykjavík. Suðurland í Suðurlandi verður aðeins kosið um 2. sæti listans milli þeirra Ágústs Einarssonar og Guðlaugs Tryggva Karlssonar, en Magnús H. Magnússon er sjálfkjörinn í fyrsta sætið. Kjörstaðir verða: í Vest- mannaeyjum að Strandvegi 61. Á Selfossi að Eyrarvegi 15. í Hveragerði að Laufskógum 17. í Þorlákshöfn að Klébergi 5. Á Eyrarbakka í Plastiðjunni. Á Stokkseyri að Eyrarvegi 18. Á Hvolsvelli á símstöðinni. Kosið er í dag frá klukkan 10.00—20.00 og gilda sömu regl- ur um kosningarétt og í Reykjavík. Norðurland eystra í Norðurlandi eystra verður kosið um þrjú efstu sæti listans og hafa sex framboð borist: I fyrsta sætið Árni Gunnarsson, Bragi Sigurjónsson og Jón Ár- mann Héðinsson. í annað sætið Jón Ármann Héðinsson og Jón Helgason. í þriðja sætið Bárður Halldórsson og Sigurbjörn Gunnarsson. Kjörstaðir verða: Á Akureyri að Laxagötu 5. Á Dalvík í Jónínubúð. Á Grenivík í barna- skólanum. Á Húsavík í félags- heimilinu. I Hrísey á skrifstofu verkalýðsfélagsins og á Ólafs- firði í Verkalýðshúsinu. Á Akur- eyri og Dalvík er kosið á ntorgun frá 14.00—19.00. Á Dalvík og Húsavík verður kosið frá 13.00—19.00, á Grenivík frá 14.00—17.00 og Hrísey frá 13.00—16.00 og loks á Ólafsfirði frá 14.00—18.00. Sömu reglur gilda um kosningarétt og í Reykjavík. Norðurland vestra í Norðurlandi vestra verður aðeins kosið um efsta sæti list- ans milli þeirra Finns Torfa Stefánssonar og Jóns Sæmundar Sigurjónssonar. Kosningastaðir verða: Á Siglufirði í Borgarkaffi og verð- ur kosið á laugardag og sunnu- dag frá 14.00—18.00. A Skaga- strönd verður kosið í Bókabúð Björgvins Brynjólfssonar í dag frá 13.00—19.00. Á Hofsósi verð- ur kosið í Höfðaborg í dag og á morgun frá klukkan 14.00— 17.00. Á Blönduósi verðúr kosið hjá Unnari Agnarssyni og á Hvammstanga hjá Jakobi Bjarnasyni. Sömu reglur gilda um kosningarétt og í Reykjavík. Vestíirðir Á Vestfjörðum verður kosið um tvö efstu sæti listans og hafa borist þrjú framboð. í 1. sæti bjóða þeir Sighvatur Björgvins- son og Karvel Pálmason sig fram og í 2. sætið þeir Karvel Pálmason og Bjarni Pálsson. Kosningastaðir verða: Á ísa- firði í skátaheimilinu á morgun frá 10.00—18.00. Á Bolungarvík í Verkalýðshúsinu frá 10.00— 18.00 á morgun. Á Patreksfirði í barnaskólanum frá 10.00—18.00 á morgun. Á Þingeyri að Brekkugötu 24 frá 14.00—18.00 á morgun. Á Tálknafirði í barna- skólanum frá klukkan 13.00— 17.00 í dag. Á Bíldudal í félags- heimilinu frá 13.00—17.00 í dag. Á Súðavík í kaffistofu Hrað- frystihússins frá 14.00—17.00 á morgun og á Suðureyri í félags- heimilinu frá klukkan 13.00— 18.00 á morgun. Sömu reglur gilda um kosningarétt og í Reykjavík. Vesturland Á Vesturlandi er Eiður Guðnason sjálfkjörinn í fyrsta sætið en kosið verður um annað sætið milli þeirra Guðmundar Vésteinssonar og Guðmundar Más Kristóferssonar. Kjörstaðir verða: Á Akranesi í Röst frá klukkan 14.00—18.00 í dag og á morgun. I Borgarnesi í Staðarhóli frá 10.00—12.00 og 13.00—17.00 á morgun. í Búðar- dal hjá Vigfúsi Baldvinssyni frá 13.00—19.00 í dag. í Stykkis- hólmi í Verkalýöshúsinu frá 13.00—19.00 í dag. í Grundar- firði í Fossahlíð 2 frá kl. 15,00— 18.00 í dag og á morgun. í Ólafsvík að Brúarholti 2 frá 18.00—22.00 í dag og á morgun. Á Hellissandi hjá Sigríði Mark- úsdóttur frá 14.00—18.00 í dag og frá 14.00—17.00 á morgun. Sömu reglur gilda um kosn- ingarétt og í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.