Morgunblaðið - 27.10.1979, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979
Þetta gerðist
1978 — Anwar Sadat og Men-
achem Begin veitt friðarverð-
laun Nóbels.
1973 — Gæzlulið SÞ kemur til
Kaíró að koma á vopnahléi.
1867 — Aldargömullandamæra-
deila Bandaríkjanna og Mexíkó
leyst.
1966 — SÞ binda endi á umboðs-
stjórn Suður-Afríku í Suðvest-
ur-Afríku.
1951 — Egyptar rifta banda-
lagssamningi við Breta frá 1936
og samningi frá 1899 um Súdan.
1930 — Lundúna-flotasáttmál-
inn staðfestur.
1922 — íbúar Suður-Rhódesíu
hafna sameiningu við Suður-
Afríku.
1920 — Aðalstöðvar Þjóða-
bandalagsins fluttar frá London
til Genfar.
1918 — Þjóðverjar samþykkja
„Fjórtán punkta“ Wilsons for-
seta.
1914 — Þjóðverjar hörfa frá
Póllandi.
1912 — Umsátrið um Adrían-
ópel hefst.
1871 — Bretar innlima dem-
antasvæðin við Kimberley.
1870 — Uppgjöf Frakka í Metz.
1867 — Herganga Garibaldis til
Rómar hefst.
1807 — Spánverjar og Portúgal-
ar ákveða að taka Portúgal.
1806 — Frakkar taka Berlín.
1789 — Tilraun Frakka til
innrásar í írlandi út um þúfur.
— Bandaríski sjóherinn
stofnaður.
1676 — Zurawna-friður Tyrkja
og Pólverja.
1651 — Bretar taka Limerick.
1523 — Herferð Englendinga í
Frakklandi út um þúfur.
Afmæli. August von Gneisenau,
prússneskur hermaður
(1760—1831)-Nicolai Paganini,
ítalskur fiðlusnillingur
(1782—1840)-Theodore Roose-
velt, bandarískur forseti
(1858-1919).
Andlát. Mikael Servetus, guð-
fræðingur, brenndur á báli, 1553.
Innlent. Halldóri Laxness veitt
bókmenntaverðlaun Nobels 1955
— d. Hallgrímur Pétursson 1674
— Upptökudagur Guðmundar
góða 1315 — d. Þórður próf.
Jónsson í Hítardal 1670 — síra
Jón Halldórsson í Hítardal 1736
— Alþingiskosningar (leiða til
stofnunar íhaldsflokks) 1923 —
Flóðbylgja veldur tjóni norðan-
lands 1934 — Snjóflóð á Flateyri
(þrír fórust) 1934 — f. Emil
Jónsson ráðherra 1902.
Orð dagsins. Það sem við sjáum
fer fyrst og fremst eftir því hvað
það er sem við leitum að — John
Lubbock, enskur stjörnufræð-
ingur (1803-1865).
Sprengdi
S-Afríka
kjamorku-
sprengju?
Washington. New York,
26. október. AP. Reuter.
LÍKLEGT er talið að öryKKÍsráð
Sameinuðu þjóðanna verði bratt
kallað saman til fundar til að fjalla
um íréttir þess efnis, að Suður-
Afríka hafi í septemher sprenst litla
kjarnorkusprennju í andrúmsloft-
inu. Allsherjarþint' samtakanna fól
Kurt Waldheim framkvæmdastjóra
S.þ. í dag að kanna þetta mál til
hlítar ok Kefa þiniíinu skýrslu svo
fljótt sem verða má.
Háttsettir embættismenn í banda-
rísku varnar- og utanríkisráðuneyt-
unum sögðu í dag, að engin vissa væri
fyrir því, að Suður-Afríka bæri
ábyrgð á þessari sprengingu, en hún
var mjög væg og mældist aðeins á
hárfínum mælitækjum. Segja emb-
ættismennirnir, að sprengjan hafi
getað sprungið hvar sem er á mjög
stóru svæði á Indlands- og Suður-
Atlantshafi á bilinu milli Suður-
Afríku og Suðurskautslandsins og
ekki hægt að rekja með vissu hver
hafi sprengt hana.
Talsmenn Suður-Afríkustjórnar
hafa algerlega vísað því á bug, að
Suður-Afríka beri nokkra ábyrgð á
þessari sprengingu. Yfirmaður kjarn-
orkumálastofnunarinnar í landinu
sagði fréttir þessa efnis hreina fjar-
stæðu og Pik Botha utanríkisráð-
herra sagðist ekkert um þetta mál
vita.
Veður
víöa um heim
Akureyri 8 elskýjaó
Amsterdam 14 skýjaó
Aþena 13 rigning
Barcelona 15 skýjaó
Berlín 5 bjart
BrUssal 13 bjart
Chicago 7 skýjaó
Denpasar, Bali 31 skýjaó
Feneyjar 10 skýjaó
Frankfurt 11 bjart
Genf 13 þoka
Helainki 5 skýjaó
Hong Kong 27 bjart
Jerúsalem 23 skýjaó
Jóh.borg 29 bjart
Kaupmannahöfr i 8 bjart
Lissabon 19 rigning
London 14 rigning
Los Angeles 24 skýjaó
Madrid 18 rigning
Majorka 18 alskýjaó
Malaga 18 skýjaó
Miami 30 bjart
Moskva -2 skýjað
Nýja Delhi 31 skýjaó
New York 14 skýjaó
Osló 4 bjart
París 15 rígning
Reykjavík 6 rigning
Rómaborg 17 bjart
San Francisco 19 bjart
Stokkhólmur 8 skýjaó
Sydney 21 bjart
Tel Aviv 26 skýjaó
Tókíó 22 skýjaó
Vancouver 14 skýjaó
Vínarborg 6 bjart
Sýna ryateppi og skart-
gripi í Norræna húsinu
í DAG. laugardag. verður opnuð
í Norræna húsinu sýning á
finnskum ryateppum og skart-
gripum. Verða sýnd 20 teppi og
12 silfursmiðir sýna verk sín.
Ryavefnaður hefur þekkst alls
staðar í Skandinavíu allt frá
steirtöld, en á síðari tímum hefur
ekki alls staðar verið lögð jafn-
mikil rækt við hann, segir í frétt
frá Norræna húsinu og ennfremur
að um hálfrar aldar skeið hafi
Finnland haft forystu um gerð
ryateppa, gerðar hafi verið til-
raunir með ný efni og nýja liti.
Segir einnig að Finnar hafi unnið
sér sess á sviði nútíma myndlistar
með ryateppum sínum. Þá hafi
þeir einnig verið framarlega í
flokki gull- og silfursmiða, finnsk-
ir skartgripir hafi unnið sér nafn
á alþjóðamarkaði og séu nú mik-
ilvæg útflutningsvara fyrir Finna.
Hreyfimyndir
í skúlptúr
— á fyrstu einkasýningu Sverris Ólafssonar
Sverrir Ólafsson hjá einu af
verkum sinum á sýningunni.
Formunum má snúa að viid og
fá út ýmis tilbrigði. Ljósm. Mbl.
RAX.
SVERRIR ólafsson mynd-
höggvari opnar i dag laugar-
dag. höggmyndasýningu i
FÍM-salnum. Laugarnesvegi
112. Þetta er fyrsta einkasýn-
ing Sverris. Hann hefur áður
haídið nokkrar samsýningar,
bæði i Reykjavik og úti á
landsbyggðinni.
Sverrir stundaði nám við
handíðadeild Kennaraskólans og
síðar við Myndlista- og handíða-
skólann. Hann fór að því námi
loknu nokkrar kynnis- og náms-
ferðir til Bandaríkjanna og
Evrópu.
Á sýningunni eru 20 verk, flest
unnin í stál. Við hittum Sverri
að máli, þar sem hann var að
leggja síðustu hönd á uppsetn-
ingu sýningarinnar. Hann sagði
flestar myndir sínar vera svo-
nefndar hreyfimyndir. „Flest
viðfangsefni mín sæki ég í veðr-
áttuna og náttúrufyrirbæri.
Þetta eru verk, sem ég útbý með
löngum stöngum og læt bera
uppi formin. Það má segja að
verkin séu ný tegund af skúlptúr
og tilraun til að ná fram meiri
breidd í þessari tegund högg-
myndalistar."
Sýningin verður opnuð í dag
kl. 14.00 og stendur fram til 11.
nóv. n.k. Hún er opin daglega frá
kl. 14.00 til 22.00.
Kirkjan minnist ár-
tíðar sr. Hallgríms
Á MORGUN, sunnudag. verður
svonefndur Hallgrímsdagur i
kirkjum landsins og verður
minnst ártíðar Ilallgríms Pét-
urssonar við guðsþjónustur.
Kirkjuþing 1978 samþykkti
ályktun um Hallgrimsminningu
og hljóðar hún þannig:
Kirkjuþing ályktar að séra
Hallgríms Péturssonar verði ár-
lega minnst með guðsþjónustum á
dánardegi hans 27. október eða
sem næst þeim degi. Tilgangur
Hallgrímsdagsins er sá að glæða
með þjóðinni áhuga á verkum séra
Hallgríms. Verði mönnum þá gef-
inn kostur á að leggja fram
einhvern skerf til þeirra fram-
kvæmda er heiðra minningu hans.
Biskup íslands hefur óskað eftir
því að síðasti sunnudagur í októ-
ber ár hvert verði Hallgrímsdagur
og í bréfi sínu til sóknarpresta í ár
segir hann m.a.:
„I lútherskum kirkjum er 31.
október helgaður siðbótinni. Vel
fer það saman að minnast í senn
hinnar lúthersku siðbótar, til-
gangs hennar, gildis og ávaxta og
þess dýrmæta arfs, sem sr. Hall-
grímur lét oss eftir. Enginn
íslenskur maður er slíkur fulltrúi
hins besta í lútherskum arfi sem
hann.
Eg leyfi mér að vænta þess að
prestar landsins bendi á niður-
lagsorðin í ályktun Kirkjuþings og
leiti eftir stuðningi góðra manna
við að ljúka smíði Hallgríms-
kirkju í Reykjavík."
I frétt frá Biskupsstofu segir að
margt verði til hátíðabrigða í
kirkjum landsins á Hallgrímsdegi,
ekki síst þeim kirkjum er beri
nafn skáldsins. Efnir Hallgríms-
söfnuður til Hallgrímsmessu á
dánardegi hans 27. október kl. 2.
Predikar biskup hr. Sigurbjörn
Einarsson og sóknarprestar þjóna
fyrir altari. Sigrún Gestsdóttir,
Halldór Vilhelmsson, Manuela
Wiesler og Lovísa Fjeldsted flytja
kantötuna Friður sé með þér eftir
Bach. Þá flytur borgarstjórinn
Egill Skúli Ingibergsson ávarp í
messulok og boðið verður til
kirkjukaffis.
í Hallgrímskirkju í Saurbæ
verður hátíðamessa kl. 2 á sunnu-
dag í því formi sem sr. Hallgrímur
mun hafa sungið sjálfur á þeim
stað og eru það að þessu sinni
gestir frá Selfossi er annast munu
guðsþjónustuna. Sr. Sigurður
Pálsson vígslubiskup predikar,
kirkjukór Selfoss syngur undir
stjórn Glúms Gylfasonar og sr.
Sigurður Sigurðarson þjónar fyrir
altari ásamt sóknarpresti sr. Jóni
E.Einarssyni.
Ulla Arvinge við eitt verka sinna. Ljósm.: Emiiia
Sænsk listakona sýnir
í Gallerí Kirkjumunir
Kaffidagur
hjá Fríkirkjunni
Hafnarfirði
Hjá Frikirkjusöfnuðinum i Hafn-
arfirði verður ýmislegt á döfinni
á morgun, sunnudag, þegar
minnst er ártíðar sr. Hallgrims
Péturssonar. Barnastund og
guðsþjónusta verða helguð minn-
ingu hans og Kvenfélagið býður
til kirkjukaffis i góðtemplara-
húsinu.
Barnastarfið hófst fyrir nokkru
og er á sunnudagsmorgna kl. 10:30
í umsjá Kvenfélagsins í samvinnu
við safnaðarprest. Notað er
fræðsluefni frá Æskulýðsstarfi
Þjóðkirkjunnar, „Sunnudagspóst-
urinn“ og fá börnin með sér heim
blað með söngvum, leikjum og
sögum sem þau safna síðan í
sérstaka möppu.
Við guðsþjónustu á sunnudag
munu nemendur Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar flytja tónlist og má
safnaðarfólk eiga von á gestum
skólans mánaðarlega á næstunni,
segir í frétt frá söfnuðinum. Þá
verður kl. 3:30 árlegur kaffidagur í
Góðtemplarahúsinu að lokinni
messu. Söfnuðurinn hefur nýlega
tryggt sér aðgang að húsnæði
Framsóknarfélaganna og fer þar
nú fram fermingarundirbúningur,
minni fundir og væntanlega
kirkjukaffi eftir guðsþjónustur og
gefur þetta húsnæði aukna mögu-
leika í safnaðarstarfinu segir í
fréttinni.
SÆNSKA listakonan Ulla
Arvinge opnar málverka-
sýningu í Gallerí Kirkju-
munir, Kirkjustræti 10,
Reykjavík í dag, laugardag-
inn 27. október kl. 15. Á
sýningunni eru 38 olíumál-
verk. Ulla er fædd í Váster-
aas í Svíþjóð árið 1926. Hún
hefur tekið þátt í sýningum
víðs vegar í Svíþjóð auk
samsýninga m.a. í Þýska-
landi og Frakklandi.
Sýningin í Gallerí
Kirkjumunir verður opin
fram til loka nóvember frá
kl. 13 til 18 alla daga
vikunnar.