Morgunblaðið - 27.10.1979, Síða 31
31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979
Afmælis- og
aðalfundur
FEF á mánu-
dagskvöldið
Treflatertur, happ-
/
drætti og Omar
að loknum aðalfundi
AÐALFUNDUR Félags ein-
stæðra (oreldra — sem einnig er
aímælisfundur i tilefni tíu ára
starfs FEF — verður í Átthaga-
sal Hótels Sögu mánudaginn 29.
október kl. 21. Jóhanna Krist-
jónsdóttir, formaður FEF, flytur
skýrslu fráfarandi stjórnar, lagð-
ir verða fram fjölritaðir endur-
skoðaðir reikningar og kjörin ný
stjórn.
Að loknum hefðbundnum aðal-
fundarstörfum verður slegið í grín
og aðalfundargestum boðið upp á
að kaupa happdrættismiða með
veglegum og menningarlegum
vinningum og dregið á staðnum.
Ómar Ragnarsson mun birtast og
hafa uppi gamanmál. Bornar
verða fram nýstárlegar slaufu- og
treflatertur.
í fréttatilkynningu frá FEF eru
gamlir félagar ekki síður hvattir
til að fjölmenna og ýmsum vel-
unnurum FEF, s.s. borgarfulltrú-
um í Reykjavík, hefur verið sent
fundarboð og skal tekið fram að
aðrir velvildaraðilar og styrktar-
fólk félagsins er og velkomið.
Austfird-
ingafélag-
ið í Reykja-
vík 75 ára
AUSTFIRÐINGAFÉLAGIÐ í
Reykjavík er 75 ára um þessar
mundir, og er það elzta átthaga-
félagið í Reykjavik. Verður afmæl-
isins minnst með Austfirðinga-
móti á Hótel Sögu föstudag 2. nóv.
Samkórinn Bjarmi á Seyðisfirði
kemur gagngert til Reykjavikur
til að skemmta á þessu afmælis-
hófi.
Félagið hefur undanfarin ár
styrkt eitthvert ákveðið málefni á
Austurlandi, og að þessu sinni
verður það, sem safnast á Austfirð-
ingamóti, látið renna til sumar-
búða að Eiðum, sem Prestafélag
Austurlands hefur rekið s.l. 11 ár
og eru þær aðallega ætlaðar börn-
um úr kaupstöðum og þéttbýii
eystra, og vill stjórn félagsins
hvetja Austfirðinga til að styrkja
þetta málefni með þátttöku sinni á
Austfirðingamóti 2. nóvember
næstkomandi.
Fyrsti formaður Austfirðingafé-
lagsins og aðalhvatamaður að
stofnum þess var Jón Ólafsson,
ritstjóri. Núverandi stjórn félags-
ins er þannig skipuð:
Guðrún K. Jörgensen, Sigrún
Haraldsdóttir, Brynjólfur Ingólfs-
son, Gunnar Valdimarsson, Berg-
steinn Ólason, Gunnar Guðjónsson,
Eiríkur Lárusson.
Ferming
FRÍKIRKJAN i Reykjavík.
Ferming kl. 2 síðd. Prestur sr.
Kristján Róbertsson.
Stúlkur:
Aðalheiður íris Hjaltadóttir,
Birkihvammi 22, Kópavogi.
1 Dagmar Valdimarsdóttir,
Háaleitisbraut 28.
Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir,
Nesvegi 76.
Drengir:
Gunnar Örn Árnason,
Tunguseli 10.
Magnús Valdimarsson,
Háaleitisbraut 28.
Sigurður Hilmarsson,
Mosgerði 25.
REYKJANESKJÖRDÆMI
fD) PRÓFK JÖRSSEÐIL L
ÞANNIG LÍTUR KJÖRSEÐILLINN UT
ATKVÆÐASEÐILL
í Prófkjöri Sjálfstæöisflokksins
í Reykjaneskjördæmi, 27. og 28. október 1979.
Arndís Björnsdóttir, Sunnuflöt 14, Garðabæ
Bjarni S. Jakobsson, Ásbúð 13, Garðabi
Ellert Eiríksson, Langholti 5, Kefli
♦
Haraldur Gíslason, Sæviðarsui
Helgi Hallvarðsson, Lvoah
\
yk
Kristján E. Haral
Matthías Á.
ÓlafuiiG
/ngheiði 16, Kópavogi
— —---r*
i, Kársnesbraut 45, Kó
Kópavogi
gSjpraut 59, Hafnarfirði
jarflöt 14, Garðabæ
ttir, Vallarbraut 20, Seltjarnarnesi
P^gvinsson, Nýbýlavegi 47, Kópavogi
Þorkelsdóttir, Reykjahlíð, Mosfellssveit
lurgeir Sigurðsson, Miðbraut 29, Seltjarnarnesi
Til þess að atkvæöaseðill sé gildur þarf að kjósa 5 manns,
tölusett í þeirri röð sem óskaö er að þeir skipi sæti á fram-
boöslista.
Ath
Kosning hefst í dag, laugardag kl. 13—19
og á morgun, sunnudag kl. 10—22
Sími yfirkjörstjórnar, kjördagana er 53728
RAÐLEGGING TIL KJÓSENDA í PROFKJÖRINU
Klippiö út meöfylgjandi sýnishorn af kjörseöli og merkiö það eins og þér hyggist fylla út atkvæöaseöilinn.
Hafiö útklippuna með á kjörstað og stuðlið þannig aö greiðari kosningu.
Yfirkjörstjórn Sjálfstæöisflokksins í Reykjaneskjördæmi.