Morgunblaðið - 27.10.1979, Síða 33
33
ekki nóg gert í framkvæmdum, sem
byggðust á erlendum lántökum.
Forsætisráðherra hafði í hönd-
um handrit af þjóðhagsáætlun.
Aður en það handrit var tekið til
prentunar var alls staðar strikað
út úr handritinu orðið „ríkis-
stjórn"; fyrst á titilsíðu áætlunar-
innar, þar sem átti að standa
„Skýrsla ríkisstjórnarinnar um
þjóðhagsáætlun 1980“ — þar var
orðið „ríkisstjórnarinnar" strikað
út — og slíkt hið sama var gert alls
staðar í skýrslunni þar sem þetta
orð kom fyrir. Hvers vegna? Vegna
þess að ríkisstjórnin var ekki
sammála um neitt það, sem fram
kom í þessari skýrslu og hún gat
því ekki skoðast sem framlag
ríkisstjórnarinnar.
Þannig stóðu málin við upphaf
þings. Samkvæmt lögum átti ríkis-
stjórnin að leggja fjárlagafrum-
varp fyrir þingið, sem var að koma
saman innan fárra daga. Ríkis-
stjórnin hafði ekkert fjárlaga-
frumvarp fram að ieggja. Sam-
kvæmt lögum átti fjárlagafrum-
varpið að fylgja lánsfjáráætlun.
Ríkisstjórnin hafði enga lánsfjár-
áætlun fram að leggja. Samkvæmt
lögum átti ríkisstjórnin að leggja
fyrir þingið þjóðhagsáætlun fyrir
árið 1980, sem byggja átti á
stefnumörkun ríkisstjórnarinnar
um efnahagsmál. Rikisstjórnin
hafði enga slika áætlun fram að
leggja. Og samkvæmt lögum bar
forsætisráðherra skylda til þess að
koma í útvarpi fram fyrir þjóðina
nokkrum dögum eftir þingsetningu
og flytja þjóðinni stefnuræðu ríkis-
stjórnarinnar um stefnu sem ekki
var til. Ekki heidur þetta verkefni
hefði verið hægt að vinna.
A einu ári hafði dýrtíðin aukist
úr 38% í 55%. Við slíkar aðstæður
ætlaði ríkisstjórnin að koma fram
tómhent fyrir þing og þjóð. Þau
vinnubrögð hefðu leitt til þess,
samkvæmt dýrkeyptri reynslu s.l.
árs, að með vordögum hefði verð-
bólgan í landinu ekki lengur verið
55% heldur 65%, þá hefði ekki
verið búið að leggja á 19 nýja
skatta, heldur 29 o.s.írv., o.s.frv.
Þetta var okkur Alþýðuflokks-
mönnum ljóst og þegar við sáum að
reynslan hafði ekki getað kennt
mönnum neitt, þá glötuðum við
y^ninni; þá töldum við rétt að
hætta.
Heiðarleg
vinnubrögð
Það hefur oft áður gerst, að
stjórnmálamenn í ríkisstjórn hafa
staðið frammi fyrir því, að þeim
hefur verið ljóst að þeir myndu
ekki ná neinum árangri í þeim
málum sem þjóðin ætlaðist til að
þeir leystu. Hingað til hafa menn
við slíkar aðstæður tekið þá
ákvörðun að halda samt áfram að
sitja, þó þeim væri ljóst, að þeir
gætu Íítið gott látið af sér leiða.
Hvers vegna? Vegna þess að völdin
freista. Vegna þess að það er
freistandi að sitja í valdastólunum,
þó svo menn viti að þeir geti þar
ekki gert þjóðinni neitt gagn.
Þessari afstöðu vísuðu þingmenn
Alþýðuflokksins á bug. Þeim
fannst óheiðarlegt og ódrengilegt
að halda áfram að sitja í skjóli
freistingar valdsins, vitandi að
árangur af störfum yrði enginn eða
jafnvel minni en enginn. Okkur
fannst slík framkoma ekki aðeins
óheiðarleg og ódrengileg gagnvart
kjósendum, sem stutt höfðu stefnu
okkar í síðustu kosningum og falið
okkur að berjast fyrir framkvæmd
hennar. Okkur fannst slík fram-
koma ekki síður svik við okkur
sjálfa.
Þessari afstöðu okkar, svo og
öðrum ágreiningsatriðum stjórnar-
starfsins, viljum við nú áfrýja til
kjósenda. í kosningunum biðjum
við þá að fella dóm, bæði um þessa
afstöðu okkar svo og um það, hvort
eigi að ráða í framtíðinni sú stefna
sem Alþýðuflokkurinn hefur barist
fyrir, en ekki fengið framgengt, eða
sú afstaða hinna stjórnmálaflokk-
anna, sem gert hefur áratuginn
milli 1970 og 1980 að áratug
óðaverðbólgunnar á íslandi sökum
þess að þessir flokkar hafa ekki
aðeins gefist upp í baráttunni við
dýrtíðina, heldur jafnframt sýnt
það óhreinlyndi að sitja eins lengi
og sætt er í valdastólum, aðeins til
þess að halda áhrifum og aðstöðu,
þótt þeim hafi verið það ljóst að
áframhaldandi seta þar yrði eng-
um til góðs.
„ MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979
Sjötugur — Ingjaldur
r
Isaksson bifreiðastjóri
Sjötugur er í dag Ingjaldur
ísaksson bifreiðarstjóri frá Fífu-
hvammi, nú til heimilis að Alfa-
brekku 11, Kópavogi. Hann hefur
lengi verið í fremstu röð í frjáls-
um félagssamtökum ökumanna og
þeirra, sem berjast vilja fyrir
bættri umferðarmenningu. Veit ég
engan mann, sem meira blöskrar
ósæmilegt framferði ökufanta,
enda manna kunnugastur öllum
tilbrigðum umferðarinnar.
Ingjaldur er fæddur í Hafnar-
firði 27. okt. 1909, en foreldrar
hans, hjónin ísak Bjarnason, sem
m.a. var fyrsti formaður „Hlífar" í
Hafnarfirði, og Þórunn Kristjáns-
dóttir frá Hliðsnesi í Garðahreppi
hinum forna — bjuggu þá að
Nesjavöllum í Grafningi, en fluttu
skömmu síðar að Óseyri í Hafnar-
firði og að lokum að Fífuhvammi í
Kópavogi 1919. Þar ólst Ingjaldur
upp og átti heima til skamms
tíma.
Ingjaldur státar af því að vera
elzti íbúi Kópavogs. Þegar hans
fólk flutti þangað voru þar aðeins
12 íbúar; heimilisfólk býlanna
Kópavogs og Digraness — 6 á
hvoru. Nú eru íbúar kaupstaðarins
14 þús. Þannig má Ingjaldur muna
tvenna tímana.
Það átti fyrir afmælisbarninu
að liggja að hafa margháttuð
afskipti af uppbyggingu Kópa-
vogs. Hann varð þegar einn af
fyrstu hreppsnefndarmönnunum í
hinum nýja hreppi 1948, og varð
náinn samstarfsmaður landnem-
anna alkunnu, Marbakkahjónanna
Huldu Jakobsdóttur og Finnboga
Rúts Valdimarssonar, sem hann
lýkur á miklu lofsorði. Minnist
Ingjaldur með glampa í augum
fyrstu og mestu frumbýlingsár-
anna, þegar mörgum varð oft heitt
í hamsi, ekki sízt á borgarafund-
unum frægu, þar sem loft var
stundum lævi blandið. Það mun
hafa átt vel við hann á þeim tíma
að berjast í þeirri orrahríð.
Síðan þá hefur Ingjaldur allt til
þessa starfað í mörgum nefndum
Kópavogskaupstaðar. Ég nefni að-
eins umferðarnefnd, enda ásamt
Finnboga Rúti upphafsmaður að
strætisvagnarekstri bæjarins.
Meira að segja hefur hann setið í
skólanefnd og fræðsluráði Kópa-
vogs, þótt sjálfur hafi hann aldrei
í barnaskóla gengið, hvað þá
meira, en lærði lestur o.fl. hjá
Margréti Guðmundsdóttur
Hjaltasonar, alþýðufræðarans
sérstæða og varð fyrir menning-
aráhrifum frá henni, en hans
gagnlegasti skóli hefir verið
lífsreynslan.
Þrátt fyrir þessi o.fl. opinber
störf Ingjalds, er þess þó ógetið,
sem hann er þekktastur fyrir, en
það er barátta og forysta varðandi
áhugamál hans og ævistarf. Hann
er meðal elztu og reyndustu bif-
reiðastjóra landsins — á 50 ára
afmæli sem slíkur 12. nóv. n.k.
Ungur að árum gerðist Ingjald-
ur aðalhvatamaður og meðstofn-
andi stéttarfélags bifreiðastjóra,
Hreyfils — og litlu síðar, árið
1943, samvinnufélags atvinnubif-
reiðastjóra með sama nafni;
ásamt Bergsteini Guðjónssyni. I
stjórn þess sat hann samfellt í 26
ár, og stjórnarformaður allan
tímann að undanteknu fyrsta ár-
inu, eða í fullan aldarfjórðung, til
ársins 1969. Hlýtur það að hafa oft
verið Ingjaldi erfiður tími og stóll
hans enginn friðarstóll, því oft var
hávaða- og róstusamt á þessum
árum í röðum bílstjóranna, sem
voru mikið samansafn hinna ólík-
ustu manna í svo til nýrri atvinnu-
grein. Þaðan hefur Ingjaldur
margs að minnast, en til marks
um ótvíræða forystu Ingjalds og
viðurkenningu á störfum hans,
var hann gerður að fyrsta heiðurs-
félaga Hreyfils á 25 ára afmæli
félagsins.
Ingjaldur hefur um dagana tek-
ið ástfóstri við „þarfasta þjóninn"
bæði í framtíð og nútíð; hesta-'
maður og bíla af lífi og sál, og j
viljað gengi þeirra mönnum til
gagns og gleði; verið horskur
riddari beggja.
Að lokum minnist ég þess, sem
undirrituðum er raunar efst í
huga á þessum tímamótum í ævi
Ingjalds, en það er þátttaka hans
og forysta í starfsemi Klúbbanna
Öruggur akstur frá upphafi og allt
til þessa dags. Strax 1965 varð
hann formaður klúbbsins í Kópa-
vogi og var síðast kosinn og
endurkosinn s.l. þriðjudag, í 15.
sinn. Eru þeir nú aðeins tveir,'
klúbbformennirnir, sem gegnt
hafa þessu trúnaðarstarfi. Hinn er
formaður 1. klúbbsins, sem stofn-
aður var, Guðmundur Sveinsson
netagerðarmeistari á ísafirði. í
stjórn landssamtaka klúbbanna
hefur Ingjaldur einnig setið frá
upphafi og verið fulltrúi þeirra í
Umferðarráði mörg síðustu árin,
er enn, og lætur þar sem annars
staðar mjög til sín taka.
Framanritað er aðeins ófull-
kominn rammi utanum störf Ingj-
alds á vegum klúbbanna, og segir
lítið um það, sem skiptir mestu
máli, en það er hvernig þau störf
hafa verið rækt. Þeim sem til
þekkja, hlýtur að vera minnis-
stæðast, hver eldhugi og ákafa-
maður Ingjaldur er. Má e.t.v.
segja, að fyrir geti komið, að hann
( sjáist lítt fyrir í hita augnabliks-
ins, þegar „hnútur fljúga um borð"
og hann í essinu sínu sem glóandi
baráttumaður á málþingum. Er þá
sannarlega betra að hafa hann
með sér en móti — og hvort
tveggja hefi ég sjálfur reynt, því
þótt við séum samherjar, erum við
engan veginn neinir halelújabræð-
ur. Mörgum fundinum og sam-
komunni hefur Ingjaldur „kveikt
í“ til framdráttar áhugamálum
sínum og klúbbanna — og þökk sé
honum fyrir það! Nóg er jafnan af
moðsuðunni og hálfvelgjunni!
Árið 1934 kvæntist Ingjaldur
ágætri konu sinni, Henríettu
Niclasen frá V&g, Suðurey í Fær-
eyjum. Þeim hefur orðið 3ja
myndarbarna auðið, og eru þau í
aldursröð þessi: Þórunn, núver-
andi form. Kvenfélags Garðabæj-
ar, gift Ragnari Magnússyni
heildsala; Brynhildur, ritari í
landbúnaðarráðuneytinu, en gegn-
di áður hliðstæðri stöðu í 22 ár hjá
Búnaðarfélagi íslands; Magnús,
vinnuvélaforstjóri, kvæntur_ Birg-
ittu Guðlaugsdóttur frá Siglufirði.
Þótt veikindi, og þau alvarleg,
hafi miskunnarlaust herjað á vin
nfiinn Ingjald síðustu mánuðina og
neytt hann á sjúkrahús hvað eftir
annað, gæti enginn ennþá séð af
fasi hans, máli eða útliti, að þar
fari sjötugur maður, svo spengi-
legur og lifandi er hann. Ég óska
honum þess að verða beinn í baki
andlega og líkamlega til hinztu
stundar, svo um hann megi að
lokum viðhafa eftirminnileg orð
skáldsins:
„Bognar aldrei. brotnar i
bylnum stóra seina«t.“
En vonandi verður langt þangað
til!
Baldvin Þ. Kristjánsson.
Frá lögreglunni:
Vitni vantar að ákeyrslum
RANNSÓKNARDEILD lögreglunnar i
Reykjavik hefur beðið Morgunblaðlð að
augiýsa eftir vitnum að eftirtöldum
ákeyrslum i borginni. Ef einhver telur
sig geta veitt upplýsingar, sem kunna að
ieiða til þess að þau mál upplýsist sem
hér verða nefnd á eftir, er hann beðinn
að hafa samband við lögregluna sem
allra fyrst i sima 21100.
Laugardaginn 29. sept. 1979, var ekið á
bifreiðina R-5349, sem er Volkswagen fólks-
bifr. dökkgraen að lit á blfreiðastæði við
Eskihlið 8A. I skemmdlnni sem er á vinstri
hlið. vinstra afturaurbretti og vinstri hurð
er Ijósbrán málnlng. Sást til ferðar bifr. á
fyrrgreindum stað á mllli kl. 01.30 til 02.00
um nóttina.
Miðvikudaginn 3. október var ekið á
bifreiðina R-19194. sem er Range Rover. grá
að lít á bifreiðastæði við Rauðarárstig 16.
Skemmdir á bifreiðinni eru á vinstra fram-
aurbretti og framhöggvara. Talið að tjón-
valdur sé Ford Comet. Ijósblá með svartan
vlnyitopp. og ökumaður hafi verið kona.
Laugardajrinn 6. október var tilkynnt um
að ekið hefði verið á btfr. R-56004. sem er
Mercedes Benz blá að lit á blfrelðastæði við
Kleppsspitalann. Bifreiðin var skilin eftir
þann 5.10. og komið að henni 6.10. og þá var
skemmdin. Skemmd á bifreiðinni er á grilli.
framhöggvara og Ijóskerl.
Mánudaginn 8. október s.l. var ekið á
bifreiðina R-8380. sem er Mereedes Benz
hvitur, þar sem bifreiðin var á stæði við
Kirkjutorg. Var bifreiðin 1 þriðja stæði frá
Templarasundi. Skemmd á hægri framhurð 1
40 cm hæð. Skemmdin kom á bifr. á bilinu
frá kl. 17.00 til kl. 17.45.
Þriðjudaginn 9. október s.l. var ekið á
bifreiðina R-2954 sem er Austin Allegro.
græn að lit á bifreiðastæði vestan við
Landspitalann. Átti þetta sér stað á heim-
sóknartima milli kl. 15.00 til 16.00. Skemmd
á bifreiðinni er á afturhöggvara og kistu-
loki. I skemmdinni er svart eins og eftir
höggvaragúmmi.
Fimmtudaginn 11. október var tilkynnt að
ekið hefði verið á bifreiðina R-26289, sem er
Fíat 127 á bifr.stæði við Vesturgötu 3. Varð
frá kl. 12.20 til kl. 17.15 þann 10.10. Skemmd
á vinstri framhurð og afturhurð sömu
megin. Tjón i ca. 55 cm hæð frá jörðu og
trúlega eftir höggvara á bifr.
ViÖ erum flutt
í 50 ár höfum við haft aðsetur fyrir
verslun, verkstæði og skrifstofur
á Skólavörðustíg og Bergstaða-
stræti. Á þessum tímamótum
flytjum við í nýtt og rúmgott hús-
næði að Borgartúni 20. Þar gefst
viðskiptavinum okkar kostur á að
skoða úrval þeirra vara sem við
bjóðum, svo sem PFAFF sauma-
vélar, BRAUN rakvélar, CANDY
þvottavélar, STARMIX hrærivéi-
ar, PASSAP prjónavélar og
SENNHEISER heymartól og
hljóðnema. Varahluta- og við-
gerðaþjónustan hefur einnig feng-
ið bætta aðstöðu og bílastæð-
in eru næg.
i Borgartún 20