Morgunblaðið - 27.10.1979, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 27.10.1979, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979 Berglind Pétursdóttir: Iþróttafólk getur líka orðið drykkjusjúklingar Ávana- og fíknilyf og efni eru einu nafni nefnd vímugjafar og skoðanir manna á hversu alvar- leg neysla þessara efna sé orðin er misjöfn. Þeir sem kynnst hafa þessum málum vel, t.d. aðstand- endur vímugjafaneytanda, taka ákveðna afstöðu gagnvart þeim, en margir eru þeir sem hugsa lítið um þessi mál og kemur alls ekki í hug, að þeir gætu orðið næstir. Samfélagið eyðir miklu fé og vinnu til hjálpar alkóhólistum og öðrum eiturlyfjaneytendum, en heilsutjón þeirra verður ekki bætt með fé. Hverjum og einum er hollt að eiga áhugamál til að hverfa að í tómstundum. íþróttir eru líkamlega og félagslega upp- byggjandi og allir íþróttamenn fagna þegar þeir ná árangri, ekki síst í samskiptum við aðrar þjóðir, því að það er góð kynning fyrir landið okkar. Óviðeigandi er að fagna ár- angri íþróttamanna með áfengi, því að öll neysla vímuefna dreg- ur úr möguleikum til að ná tilskildum árangri. Hvers vegna þá að vera að leggja á sig allar þessar æfingar, ef brjóta á niður allt sem byggt hefur verið upp? íþróttamaður, sem ætlar að ná umtalsverðum árangri, verður að kunna að velja og hafna, ekki bara tóbaki og áfengi heldur einnig að velja rétt mataræði ög ætla sér nægan svefn. Iþróttir krefjast mikils út- haldsþols og reykingar torvelda t.d. að lungu, hjarta og blóð fái nægilega mikið súrefni við erf- iða þjálfum og hefur því reyk- ingamaðurinn minni afkasta- getu en ella. Neysla áfengis skerðir þá eiginleika sem eru mikilvægir fyrir íþróttamenn, svo sem samvinnu tauga og vöðva, einbeitingahæfni, við- bragðsflýti og snerpu. Það er ekki bara þegar alkóhól er í blóðinu heldur með áframhald- andi drykkju þá dvína þessir eiginleikar smaít og smátt og er það einstaklingsbundið og fer eftir því hversu oft er drukkið og hve mikið í einu. Iþróttamanni er bönnuð öll neysla hvetjandi lyfja og er eftirlit í mótum mjög strangt og refsiákvæði eftir því. Talið er að sum lönd austantjalds, sem iðka fimleika, noti lyf sem heftir líkamlegan þroska fimleika- stúlkna til að þær nái meiri árangri. Fimleikar krefjast mik- illar hæfni en hversu miklu á að fórna af eðlilegum líkamsþroska einstaklings til að ná árangri á heimsmælikvarða hefur verið mikið rætt, því að hugsjón áhugamennskunnar er að bæta og.fegra það sem einstaklingum er eðlilegt. Það virðist sem neysla íþrótta- manna á tóbaki og áfengi sé meiri þegar um hópíþróttir er að ræða heldur en einstaklings- íþróttir, svo sem fimleika þar sem hún þekkist varla. Tíðni atvinnusjúkdóma eykst með aukinni tæknivæðingu. Kyrr- setufólki og þeim sem vinna einhæf störf er nauðsynleg líkamleg hreyfing. íþróttir eru ekki bara fyrir þá sem keppa að ákveðnum árangri, heldur fyrir alla yngri sem eldri, en neysla vímugjafa er óæskileg hvorn hópinn sem um er að ræða. En til að fylgja strangri þjálf- un þarf sterkan vilja og mikla sjálfstjórn, og því fráleitt að brjóta niður það sem þjálfunin hefur byggt upp með notkun vímugjafa. Ein lítil hugleiðing... Við stöllurnar höfum látið það frá okkur fara að við hvorki reyktum né drykkjum. Það er sennilega ástæðan fyrir því að þessi grein birtist hér og nú. í starfi okkar sem söngkonur höfum við haft gott tækifæri til að kynnast skemmtanaháttum íslendinga. Stór hluti gesta á skemmtistöðum virðist vera undir áhrifum einhverra vímuefna og því miður margir svo ótæpilega að þeir eru til vandræða og setja leiðinlegan svip á samkomurnar. Ekki þarf nema einn slíkan til að eyði- leggja ánægju fyrir stórum hópi gesta. Framkoma þeirra ein- kennist af tillitsleysi, bæöi gagn- vart öðrum gestum og starfs- fólki. Hljómsveitin fær oft á tíðum ekki frið til að sinna sínum störfum fyrir ágangi of drukkinna gesta. Þetta finnst okkur einn af ókostum þessa starfs, því að lítið stoðar að ætla að tala um fyrir slíku fólki. Að sjálfsögðu getum við ekki krafist þess að gestirnir séu „bláedrú", en hins vegar er það skoðun okkar að þeir eigi heimtingu á að hljómsveitin standi sig í sínu starfi. Það er því eðlilegt að við höldum okkur frá notkun vímuefna. Við höfum að vísu heyrt af okkur drykkjusögur, allgrófar, úr starfinu og haft mikið gaman af misskilningnum. Vitanlega er öllum í sjálfsvald sett hvort þeir nota vímuefni en þeir sem það gera ættu að hafa hugfast að þeir eru ekki einir í heiminum. Vitanlega er öllum í sjálfsvald sett hvort þeir nota vímuefni en þeir sem það gera ættu að hafa hugfast að þeir eru ekki einir í heiminum. Kostir þess að vera án vímuefna eru augljósir. Tökum sem dæmi áhrif á heilsuna, fjölskyldulífið og efnahaginn. Við ætlum ekki að fara nánar út í þá sálma en gjörið svo vel að fletta upp greinum sem birst hafa í vikunni um þetta efni. Erna Gunnarsdóttir Erna Þórarinsdóttir Eva Albertsdóttir. AUGLYSINGASTOFA SAMBANDSINS 4 nýjar pijónauppskríftír Komnar eru út fjórar nýjar uppskriftir úr hespulopa, plötulopa og golfgarni. Spyrjið um prjónauppskriftirnar i næstu garnbúð. UllarverksmiÓjan Gefjun Akureyri 35 í .til . Islands * ferma skipin sem hér segir: ANTWERP: Skógafoss 1. nóv. Urriöafoss 7. nóv. Reykjafoss 15. nóv. Skógafoss 22. nóv. Urriöafoss 27. nóv. Reykjafoss 6. des. ROTTERDAM: Skógafoss 31. okt. Urriöafoss 6. nóv. Reykjafoss 14. nóv. Skógafoss 21. nóv. Urriöafoss 28. nóv. Reykjafoss 5. des. FELIXSTOWE: Mánafoss 29. okt. Dettifoss 5. nóv. Mánafoss 12. nóv. Dettifoss 19. nóv. Mánafoss 26. nóv. Dettifoss 3. des. HAMBORG: Mánafoss 1. nóv. Dettifoss 8. nóv. Mánafoss 15. nóv. Dettifoss 22. nóv. Mánafoss 29. nóv. Dettifoss 6. des. PORTSMOUTH: Selfoss 5. nóv. Bakkafoss 16. nóv. Brúarfoss 28. nóv. Hofsjökull 30. nóv. Bakkafoss 6. des. HELSINGBORG: Háifoss 30. okt. Laxfoss 7. nóv. Háifoss 13. nóv. Laxfoss 20. nóv. Háifoss 27. nóv. Laxfoss 4. des. KAUPMANNAHÖFN: Háifoss 31. okt. Laxfoss 7. nóv. Háifoss 14. nóv. Laxfoss 21. nóv. Háifoss 28. nóv. Laxfoss 5. des. GAUTABORG Tungufoss 31. okt. Álafoss 7. nóv. Úöafoss 14. nóv. Tungufoss 21. nóv. Álafoss 28. nóv. MOSS: Tungufoss 1. nóv. Álafoss 9. nóv. Úöafoss 16. nóv. Tungufoss 23. nóv. Álafoss 30. nóv. BERGEN: Tungufoss 3. nóv. Úöafoss 12. nóv. Álafoss 26. nóv. KRISTIANSAND: Álafoss 6. nóv. Tungufoss 20. nóv. Úöafoss 4. des. GDYNIA: Múlafoss 9- nóv. írafoss 18. nóv. VALKOM: Múlafoss 5. nóv írafoss 14. nóv. RIGA: írafoss 27. okt. Múlafoss 7. nóv. írafoss 16. nóv. WESTON POINT: Kljáfoss 7. nóv. Kljáfoss 21. nóv. Kljáfoss 5. des. sími 27100 Frá REYKJAVIK: á mánudogumtil AKUREYRAR ÍSAFJARÐAR á mióvikudögum til VESTMANNAEYJA EIMSKIP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.