Morgunblaðið - 27.10.1979, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARr VGUR 27. OKTÓBER 1979
47
kl. 14
Komið og sjáið þá
beztu í íslenskum
körfuknattleik. KKÍ
Uppskeruhátíð
íslandsmeistara
NÚ ÞEGAR skammdegið sígur
að og haustið er komið i öllu sínu
veldi, og vetur konungur er
skammt undan halda knatt-
spyrnufélög víða um land upp-
skeruhátíðir sínar. Leikmönnum
eru þá gjarnan afhent verðlaun
fyrir góða frammistöðu og árang-
ur sumarsins i hinum ýmsu
flokkum er rifjaður upp.
Nú fyrir skömmu fór fram mikil
uppskeruhátíð hjá íslandsmeist-
urum ÍBV í meistaraflokki. Mynd-
irnar hér til hliðar eru frá ljós-
myndara Mbl. í Vestmannaeyjum,
Sigurgeir Jónassyni, en þær eru
frá uppskeruhátíð þeirra Eyja-
manna. Þar var mikið fjölmenni
og glatt á hjalla. Á efstu myndinni
má sjá nokkra af leikmönnum
meistaraflokks og eiginkonur
þeirra í kringum glæsilegt veislu-
borðið, á miðmyndinni er Islands-
bikarinn en hann var uppistaðan í
skreytingunni á veisluborðinu og á
neðstu myndinni er þjálfari ÍBV,
Viktor Helgason, ásamt eiginkonu
sinni.
Það er athyglisvert að síðastlið-
ið sumar voru það íslenskir þjálf-
arar sem unnu stærstu sigrana
með liðum sínum. Viktor gerði
ÍBV að íslandsmeisturum, Hólm-
bert Friðjónsson Fram að bikar-
meisturum og Jón Hermannsson
þjálfaði lið UBK sem vann 2.
deildina. Það er því greinilega
ekki allt fengið með því að ráða
erlenda þjálfara.
Evropuslagur KR
á þriðjudaginn
ÞEGAR KR mætir franska meist-
araliðinu Caen í Evrópukeppni
meistaraliða á þriðjudaginn, ger-
ist það í fyrsta skiptið hér á
landi, að islenskt lið stillir upp
tveimur bandariskum blökku-
mönnum.
Það eru að sjáifsögðu þeir
Dakarsta Webster og Marwin
Jackson sem um ræðir, cn leikir
KR og Caen verða einu leikirnir
sem þeir félagar leika báðir með
KR. Webster er sagður vera á
förum til Borgarness, en Jackson
mun leika með KR í úrvalsdeild-
inni í vetur.
Það hefur áður gerst, að tveir
bandarískir leikmenn hafi leikið
Evrópuleiki með islensku liði,
Dirk Dunbar og John Johnson
léku t.d. með ÍS gegn Barcelona á
síðasta keppnistímabili. Leikur
KR og Caen hefst klukkan 20.30
á þriðjudagskvöldið.
Landsleikur i
körfuknattleik
Rossi ekki alls i höllinni i dag
staðar jafn vinsæll
Paolo Rossi, miðherjinn snjalli
i ítalska knattspyrnulandsliðinu,
er ekki vinsæll i Napólí. Félagið
bauð nefnilega stórupphæð í
Rossi síðastliðið sumar, þegar
kappinn var á förum frá félagi
sinu Lanerossi Vicenza. Rossi
hafði ekki áhuga á að fara til
Napólí, fór frekar til Perugia.
Napólí og Perugia léku í Napólí
um helgina og áhangendur Napólí
biðu spenntir eftir leiknum til
þess að geta haft Rossi að skot
spæni tilfinninga sinna. Baulai
var á Rossi í hvert skipti seir
hann snerti knöttinn, fjöldi áhorf-
enda bar skilti með klám- og
fúkyrðum um kappann og þannig
mætti lengi telja. Þarna voru að
sjálfsögðu einnig staddir áhang-
endur Perugia og innan tíðai
logaði allt í slagsmálum. Harð-
snúið löggulið vopnað táragasi og
kylfum stillti til friðar innar;
tíðar, en leikurinn tafðist nokkuð
Flugvél sveimaði yfir vellinum og
dró langan borða á eftir sér. Á
hann var letrað: „Þú ert ekki nógu
góður fyrir Napólí". Voðalega geta
menn orðið sárir.
Þá má til gamans geta þess að
leikur Napólí og Perugia fór fram
á föstudag í stað laugardags. Það
var vegna þess að Páll páfi ætlaði
að heimsækja Napólí á laugardeg-
inum. Fulltrúi bróðurkærleika og
heimsfriðar! Sá hlær best sem
síðast hlær, Rossi skoraði markið
sem tryggði Perugia annað stigið í
leiknum og Perugia hefur ekki
tapað deildarleik á Ítalíu í heilt
ár.
ÍSLENDINGAR leika annan landsleik sinn gegn írum í Laugardals-
höllinni í dag og hefst leikurinn klukkan 14.00. íslendingar og írar
hafa löngum eldað grátt silfur saman í körfu og hefur gengið á ýmsu.
Víst er, að við ekkert ofurefli er að etja og því von á jöfnum og vonandi
spennandi leik þar sem íslenskur sigur er ekkert fjarstæðukendur
möguleiki.
A morgun leika íslendingar og írar siðan þriðja leikinn og fer hann
fram í Borgarnesi. Er það í fyrsta skipti sem svo mikilvægur leikur
fer þar fram.
Landsleikur í körfuknattleik
Arsþing
FSÍ
Arsþing Fimleikasam-
bands lslands verður laug-
ardaginn 10. nóvember n.k. i
Lindarbæ. Lindargötu 9,
Reykjavik.
Þetta er 12. ársþing F.S.Í.
og hefst kl. 13.30. Þess er
vænst, að þingið verði fjöl-
mennt og sækja það bæði
fuiltrúar félaga og gestir.
Stjórn Fimleikasambands
íslands.
Jan Möller
knattspyrnu-
maður Sví-
þjóðar 1979
Jan Möller, markvörður
Malmö FF, var fyrir
skömmu kosinn lcikmaður
ársins i Sviþjóð. Er hann
fyrsti markvörðurinn sem
hlýtur þá tign. síðan Ronnie
Hellström var kosinn fyrir
þremur árum. Möller hefur
leikið nokkra landsleiki
fyrir Svíþjóð. en hefur yfir-
leitt verið í skugga Hell-
ström, sem er einn fremsti
markvörður heims.
Víkingur
í DAG, laugardag klukkan
14 hefur stuðningsmanna-
klúbbur handknattleiks-
deildar Vikings vetrarstarf
sitt með fundi i félagsheimii-
inu við Hæðargarð. Þar
verður rætt um starfið fram-
undan og nýbakaðir Reykja-
vikurmeistarar Víkings
koma á fundinn. Ýmislegt
fleira mun bera á góma.
Félagar eru hvattir til að
mæta vel og stundvislega.
Borðtennismót
UMFK
BORÐTENNISMÓT UMFK
fer fram sunnudaginn 28.
okt. i Gerpluhúsinu í Kópa-
vogi. Mótið hefst kl. 10.30.
Allar upplýsingar um mótið
er hægt að fá í sima 74925.
Paolo Rossi.
Island
írland
íLaugardalshöll í dag
Víkingar
Hiö árlega vetrarkaffi veröur í
skálanum á sunnudag kl. 4.
Verðlaunaafhending.
Skíðadeild Víkings.