Morgunblaðið - 23.01.1980, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 1980
Vilja ná samstöðu
kvennasam taka um
kvenframbjóðanda
Samtök kvenna á framabraut,
sem er nýstofnað félag í
Reykjavík. hafa ákveðið að beita
sér fyrir sameiningu kvenna-
samtaka í landinu til að samein-
ast um kvenframbjóðanda til
kjörs í embætti forseta íslands.
Samtökin hafa kosið sérstaka
forsetakjörsnefnd. sem ætlar að
hafa samband við öll kvenna-
samtökin i landinu í þeim til-
gangi að þau styngi upp á
kvenframbjóðanda.
Forsetakjörsnefndin hefur út-
búið sérstök leiðbeiningarbréf,
sem hún hyggst senda þeim
kvennasamtökum sem þess óska. I
leiðbeiningarbréfinu eru nefndir
tíu kostir, sem nefndin telur að
væntanlegur frambjóðandi eigi að
vera búinn, en þeir eru:
1. að kvenframbjóðandinn sé milli fimmt-
ugs ok sextuKs
2. að hún hafi KÓða þekkingu á landi og
þjóð
3. hafi einhverja tunKumálakunnáttu
4. sé ópúlitísk
5. hafi alúólevct viðmót
6. hafi til aó hera góóa tjáningarhæfni
7. sé þekkt, eða vel kunn
8. sé eðlisgreind
9. sé siðavön, hvað snertir framkomu
opinherlega
10. hún má vera einhleyp
Þessar leiðbeiningar eru þó eng-
in skilyrði að sögn Erlu Guð-
mundsdóttur í Keflavík. Hún
sagði, að markmið samtakanna
með þessari tilraun væri að ýta
burtu landlægum fordómum um
að konur væru almennt óhæfar í
opinberar eða æðri stöður.
íslensk kvennasamtök, sem
áhuga hafa á að tilnefna fram-
bjóðanda eða fá leiðbeiningarbréf
samtakanna, eru beðin að hafa
samband við Ingibjörgu Einars-
dóttur eða Elsu ísfold Arnórsdótt-
ur í Reykjavík og Erlu Guðmunds-
dóttur í Keflavík.
Sinfóníuhljómsveitin:
Fulltrúi
Islands
á fundi
í Nuuk
SEM kunnugt er af fréttum fór Pétur Thorsteinsson sendiherra á
vegum ríkisstjórnarinnar til Grænlands í síðustu viku til fundar við
grænlenzku heimastjórnina. Var þetta fyrsta formlega sambandið
milli landanna eftir að Grænlendingar fengu heimastjórn. Mun
Pétur Thorsteinsson greina frá fundi sínum í Nuuk-Godtháb — á
fundi með blaðamönnum í dag. Þessa mynd tók ljósmyndari frá
helzta blaði Grænlendinga, sem heitir Grönlandsposten, við upphaf
fundar Péturs með grænlensku ráðherrunum. Stjórnarformaður
heimastjórnarinnar, Jonathan Motzfeldt ráðherra, er þriðji maður
frá vinstri (í röndóttu vesti). Við hlið hans er Pétur Thorsteinsson.
Þá grænlenzku ráðherrarnir Lars Emil Johansen, Moses Olsen og
Anders Andreassen. Og iengst til hægri er ráðuneytisstjórinn
Gunnar Martens. Mennirnir tveir lengst til vinstri eru embættis-
menn. Fundurinn fór fram í fundarsal Landsþingsins. (Ljósm.
Grönlandsposten, Louise I. Lybert.)
Síðustu tónleik-
ar fyrra misseris
NÆSTU tónjeikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands og jafn-
framt þeir síðustu á fyrra misseri
starfsársins 1979—1980 verða á
morgun, fimmtudag 24. janúar, í
Háskólabíóí og hefjast kl. 20.30.
Verkefnin á þessum tónleikum
eru Moldau eftir Smetana, píanó-
konsert KV 537 eftir Mozart og
sinfónía nr. 6 eftir Tschaikovsky.
Hljómsveitarstjóri verður Urs
Schneider en einleikari Ursula
Fassbind Ingólfsson.
Urs Schneider er fæddur í Sviss
árið 1939. Hann lauk einleikara-
prófi frá Tónlistarakademíunni í
Zúrich árið 1961 og hóf þá nám í
hljómsveitarstjórn hjá Rafael
Hubelik. Þetta er í fyrsta sinn sem
Urs Schneider stjórnar Sinfóníu-
hljómsveit íslands.
Einleikarinn, Ursula Fassbind
Ingólfsson píanóleikari, er einnig
fædd í Sviss. Hún lauk kennara-
prófi í Tónlistarskólanum í Zúrich
17 ára en 21 árs gömul kom hún
fyrst fram sem einleikari með
hljómsveit og lék þá píanókonsert
K. 467 eftir Mozart. Með Sinfóníu-
hljómsveit íslands lék hún í fyrsta
sinn píanókonsert eftir Mendel-
sohn í árslok 1969. Ursula hefur
síðastliðin 6 ár kennt píanóleik við
Tónlistarskólann í Reykjavík.
■
Ursula Fassbind Ingólfss >n
píanóleikari
Breytingar á vinnu-
tíma krafa Flugleiða
- Samningar fyrirtækisins við um 400 starfsmenn lausir um mánaðamótin
SAMNINGAR um 400 starfs-
manna Flugleiða eru lausir
frá og með næstkomandi mán-
aðamótum, en Flugleiðir
sögðu upp samningunum
nokkru fyrir áramót. í þessum
hópi eru 102 flugmenn í Félagi
íslenzkra atvinnuflugmanna
og Félagi Loftleiðaflugmanna,
171 flugfreyja, 31 flugvél-
stjóri, 80 flugvirkjar og á milli
10 og 20 flugumsjónarmenn.
Flugleiðir hafa sett fram
hugmyndir sínar að nýjum
samningi við flugmenn og eru
breytingar einkum fólgnar í
breyttum vinnutímareglum,
talað er um að breytingar á
starfsaldurslista verði ræddar
á síðari stigum samninga en í
þessum hugmyndum mun ekki
vera reiknað með miklum
Popphljómlistarmönnunum í Cannes vegnar vel:
„Höfum fengið mörg áhuga-
verð samningstilboð44
- sagði umboðsmaður þeirra, Jón Ólafsson í gær
„ÞETTA gengur mjög vel. Við
erum búin að koma fram þrisv-
ar fyrir fullu húsi og undirtekt-
irnar hafa verið mjög góðar,“
sagði Jón Ólafsson, er Mbl.
hafði símasamband við hann í
gær í Cannes í Frakklandi, þar
sem hann er staddur með
Brunaliðinu, HLH-flokknum og
fleiri íslenzkum skemmtikröft-
um úr poppheiminum. Tilgang-
urinn með veru þeirra í Cannes
er að kynna íslenzka skemmti-
krafta fyrir forráðamönnum og
umboðsmönnum útgáfu- og
skemmtiiðnaðarfyrirtækja víðs
vegar að úr heiminum, sem sitja
þar alþjóðlega ráðstefnu í sinni
grein.
„Það eru þegar í bígerð samn-
ingar við nokkur lönd og það er
mikill áhugi alls staðar á okkur.
Við erum mjög bjartsýnir og allt
virðist ætla að ganga okkur í
haginn." — Getur þú nefnt
einhver stór nöfn í því sam-
bandi? „Ég vil nú ekki nefna
neitt að svo stöddu, en mörg
samningstilboðin eru áhugaverð
og má þar tilnefna eitt frá
Kanada."
Jón sagði, að allir væru mjög
ánægðir með förina. Steinar
Berg væri einnig í Cannes og
honum og hans fólki gengi einn-
ig mjög vel. „Þetta er áreiðan-
lega mjög stórt skref í áttina að
því að heimurinn viti að ísland
er til, þó svo enginn nái hér
heimsfrægð á einni nóttu. Við
erum öll við góða heilsu og
biðjum fyrir beztu kveðjur
heim“, sagði Jón í lokin.
Þessi mynd er tekin af hljómlistarmönnunum stuttu áður en þau
héldu utan til Cannes. Ljósm. Mbl. Kristinn
breytingum á launum. Kröfu-
gerð hefur ekki verið sett fram
vegna annarra starfshópa og
engar viðræður hafa farið
fram.
Morgunblaðið ræddi í gær við
þrjá af forsvarsmönnum Flug-
leiða, en þeir vildu ekki tjá sig
efnislega um hugmyndir fyrir-
tækisins að nýjum samningi.
Það væri þó rétt, að Flugleiðir
hefðu sett fram kröfur til
flugmanna eða tillögur um nýj-
an samning, sem efnislega væri
að sumu leyti frábrugðinn þeim
fyrri. Kröfugerð væri ekki frá-
gengin gagnvart öðrum félög-
um en flugmanna og engir
viðræðufundir hefðu verið
ákveðnir.
Einn talsmanna flugmanna
sagði í gær, að flugmenn hefðu
fengið senda stóra bók með
hugmyndum Flugleiða, en um
þær hugmyndir ætti bezt við
orðið „skollaleikur", sem áður
hefði verið notað í kjaradeilum
og þá af vinnuveitendum. Hann
sagði meginbreytingar vera
fólgnar í breyttum vinnutím-
areglum, laun breyttust lítið og
það væri furðulegt að fá senda
slíka kröfu á sama tíma og
aðrir væru að krefjast bættra
kjara. — Okkur hefði þótt nóg
að þurfa að standa í stað, en
fara ekki langt aftur í tímann,
sagði hann.
Seldi í Fleetwood
þÓRUNN Sveinsdóttir VE seldi í
gær 48 lestir í Fleetwood fyrir
tæplega 23 milljónir króna, meðal-
verð 479 krónur á kíló.
Aðalfundur Fulltrúa-
ráðs Sjálfstæðisfé-
laganna í Reykavík
AÐALFUNDUR Fulltrúa-
ráðsins verður haldinn
fimmtudaginn 24. jan. að
Hótel Sögu, Súlnasal, og
hefst kl. 20.30.
A dagskrá fundarins eru
venjuleg aðalfundarstörf
en einnig mun formaður
Sjálfstæðisflokksins, Geir
Hallgrímsson, flytja ræðu
um stjórnmálaviðhorfið og
stjórnarmyndunarviðræð-
urnar.
Fulltrúar eru hvattir til
að fjölmenna á fundinn og
minntir á að taka með sér
Fulltrúaráðsskírteinin. Geir Hallgrímsson