Morgunblaðið - 23.01.1980, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 1980
25
fclk f
fréttum
... eilífur stormbeljandi...
+ í ÚTLÖNDUM er ekkert skjól, eilífur stormbelj-
andi.— Og þessi kuldalega fjölskylda steðjar hér á
móti norðaustan báli líkt og væri um hávetur austur á
Vopnafirði. — Þessi fjölskylda býr þó ekki þar eystra
heldur suður í Rómaborg. Þar hefur kuldaboli ráðið
ríkjum undanfarið, að því er segir í fréttum.
Fatakaup
hertogans
gagnrýnd
+ HERTOGINN af Kent,
frændi Elizabetar Breta-
drottningar, hefur sætt
ákúrum fyrir það að hafa
keypt sér föt í Hong Kong.
Hafa þingmenn Verka-
mannaflokksins og ýmsir
fleiri sagt hertogann ekki
hafa sýnt þjóðhollustu
með þessu. Honum bæri
að kaupa brezka fram-
leiðslu, og þá ekki sízt
vegna þess að brezk dúka-
framleiðsla ætti í miklum
örðugleikum vegna er-
lendrar samkeppni. Hefur
og verið á það bent, að
hertoginn sé nú varafor-
maður í nefnd eða ráði
sem vinnur að því að efla
útflutning Breta. Hafi
einn þingmanna komizt
þannig að orði að hertog-
inn ætti að hafa efni á því
að kaupa sér föt í Bret-
landi, þar eð lífeyririnn,
er hið opinbera færir hon-
um árlega, sé 60.000 sterl-
ingspund, eða um 54 millj-
ónir króna.
Sparkað eftir 25 ár
+ ÞESSI maður, sem heit-
ir Bert Parks, hefur verið
stjórnandi lokahátíðar-
innar, sem árlega er hald-
in með pomp og pragt
vestur í Bandaríkjunum,
þegar þar fer fram kjör
fegurðardrottningar
Bandaríkjanna. Hefur eitt
stórblaðanna í New York
birt fregn þess efnis, að
Parks þessi hafi verið
rekinn fyrirvaralaust af
formanni apparatsins
mikla, sem er í kringum
þetta fegurðardrottn-
ingarkjör, en það hefur
bækistöðvar í borginni
Atlantic. Hefur brottvikn-
ing Berts þessa verið mik-
ið í fréttum vestra.
Fagnað á heimaslóðum
+ MIKILL fögnuður ríkti í Rhódesíu á dögunum, er annar helsti foringi skæruliða Joshua Nkomo, sneri
heim úr áralangri útiegð í Zambíu. Þangað flúði hann á sínum tíma. Þaðan hefur hann svo stjórnað
skæruhernaðinum í heimalandi sínu, sem á þessu ári mun hljóta nafnið Simbabwe. — Þessi
AP-fréttamynd er tekin við heimkomu Nkomos. í myndatextanum segir að öryggisráðstafanir hafi verið
miklar og hafi Nkomos verið gætt af fjölda öryggisvarða. Hvatvetna hefur mikill mannfjöldi hyllt
foringjann, eins og sjá má á þessari mynd.
Fræðslufundur Hjarta-
og æðaverndarfélagsins:
Ahættuþættir
hjartasjúkdóma
HINN 8. nóvember síðastliðinn
hélt Hjarta- og æðaverndarfélag
Reykjavíkur almennan fræðslu-
fund um heilaáföll og hjartasjúk-
dóma. Prófessor dr. med. Gunnar
Guðmundsson yfirlæknir flutti er-
indi um heilablæðingar og æða-
stíflu í heila en dr. Árni Kristins-
son flutti erindi um hjartasjúk-
dóma. Fundur þessi var haldinn á
Hótel Borg og var mjög vel sóttur
og sýndu fundarmenn mikinn
áhuga á fundarefninu.
Annar fræðslufundur Hjarta- og
æðaverndarfélags Reykjavíkur
verður haldinn næstkomandi
fimmtudag, 24. þ.m. kl. 17.15 á
Hótel Borg (Gyllta sal).
Fundarefnið að þessu sinni verð-
ur: áhættuþættir hjartasjúkdóma.
Pallborðsumræður verða um
fundarefnið. Umræðustjóri verður
Snorri Páll Snorrason yfirlæknir
en aðrir þátttakendur dr. Laufey
Steingrímsdóttir næringarfræð-
ingur og læknarnir Ingólfur S.
Sveinsson og Magnús Karl Péturs-
son.
Þátttakendur flytja fyrst 5—7
mínútna inngangserindi en síðan
ræðast þeir við, svara fyrirspurn-
um fundarmanna og ræða við þá
eftir því sem tilefni gefst til.
Sérstök athygli skal vakin á því
að þetta er almennur fræðslufund-
ur og er öllum heimill aðgangur.
Milton Friedman tekur á móti nóbelsverðlaunum í hagfræði 1976.
Bækur Miltons
Friedmans
Þátturinn um bandaríska hag-
fræðinginn og nóbelsverðlauna-
hafann Milton Friedman, sem
sýndur var mánudaginn 21. jan-
úar í sjónvarpinu, hefur vakið
mikla athygli. Morgunblaðið
spurði Skafta Harðarson, um-
sjónarmann pöntunarþjónustu
Félags frjálshyggjumanna,
hvaða bækur Friedmans væri
hægt að útvega áhugamönnum.
„Alþýðlegasta og kunnasta rit
Friedmans er án efa bókin Capi-
talism and Freedom," sagði
Skafti. „í henni lýsir hann hug-
sjónum sínum. I bókinni The
Great Contraction tekur hann
saman niðurstöður helztu rann-
sókna sinna á heimskreppunni,
en hann telur, að hún hafi fremur
stafað af of miklum ríkisafskipt-
um en af litlum ríkisafskiptum
eins og margir aðrir hafa talið. I
bókinni An Economist’s Protest
er safnað saman nokkrum grein-
um hans úr tímaritinu News-
week, en hann hefur haft áhrif
með þeim. Þessar bækur eru allar
til mjög ódýrar í pappírskiljum.
Nokkrir fyrirlestrar hans hafa
einnig verið gefnir út í bækling-
um. Hann reifar peningamagns-
kenninguna í bæklingnum The
Counter-Revolution in Monetary
Theory, gagnrýnir kenningar
hins umdeilda hagfræðings og
sósíalista Johns Kenneths Gal-
braiths í bæklingnum From Gal-
braith to Economic Freedom og
fer orðum um atvinnuleysi og
verðbólgu í nóbelsræðu sinni í
bæklingnum Inflation and Un-
employment. Allar þessar bækur
og þessa bæklinga getur pöntun-
arþjónusta Félags frjálshyggju-
manna útvegað áhugamönnum, ef
þeir skrifa í pósthólf 1334, 161
Reykjavík."
Ný niðursuðuverksmiðja í Grindavík:
Tíu þúsund dósir
framleiddar á dag
NÝ niðursuðuverksmiðja er að
hefja starfsemi sína i Grindavik
þessa dagana. Heitir verksmiðjan
Lagmetisiðja Grindavikur og er í
eigu Lagmetisiðjunnar i Garði hf.
Að sögn Arnar Erlendssonar
framkvæmdastjóra mun fyrirtækið
fyrst og fremst sjóða niður þorska-
lifur. Þó mun í ætlun þegar fram á
líður að bæta við framleiðslugrein-
um. Búið er að selja framleiðslu
fyrstu fimm mánaða en áætlað er
að dagsframleiðslan verði 10 þús-
und dósir.
Örn sagði að fyrirtækin í
Grindavík væru einhuga um að
afla Lagmetisiðjunni hráefnis svo
lengi sem hún stæði við sinn hluta
samninga.
Lagmetisiðjan í Grindavík er í
eigin húsnæði í svokölluðum
Garðshúsum. Um 12 manns munu
vinna við framleiðsluna og verk-
smiðjustjóri verður Einar Lárus-
son.