Morgunblaðið - 12.02.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.02.1980, Blaðsíða 1
44 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 35. tbl. 67. árg. ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Hert kverkatak á Afganistan þrátt fyrir „friðarsóknartal“ Washinjrton, 11. febrúar. AP. SOVÉTRÍKIN eru að hefja hina svonefndu „friðarsókn“ sína, sem sagt var frá fyrir helgi að stæði fyrir dyrum og var gefið í skyn, að Sovétmenn myndu reiðubúnir að fækka í herliði sinu i landinu. Hins vegar hefur enn ekkert komið fram, sem sýni að þessi brottflutningur sé hafinn. í fréttum frá Afganistan í kvöld var hermt að þá um morgunin hefðu uppreisnarmenn náð á sitt vald nokkrum bæjum í Badakhs- hanhéraði í norðausturhluta landsins og hefðu sezt um hér- aðshöfuðborgina þar. Hefðu bar- dagar milli þeirra og sovézkra hermanna verið mjög grimmilegir og harðir. í fréttum var líka haft fyrir satt, að uppreisnarmenn hefðu komið höndum yfir töluvert af vopnum og matvælum, sem sovézku hermennirnir hefðu skilið eftir á undanhaldinu. AP fréttastofan sagði og í kvöld að þrátt fyrir hina títtnefndu fyrirhuguðu friðarsókn benti fiest til þess að Sovétmenn hertu enn kverkatakið á Afganistan og ótal ráðgjafar, sovézkir og austur- þýzkir hefðu tekið við störfum í aðskiljanlegum ráðuneytum. Er verk þeirra að „hjálpa okkur að byggja upp fullkomið sósíalískt Únsan upp fyrir 700 dollara VERÐ á gulli hækkaði nokkuð aftur á evrópskum gjaldeyrismörkuðum í dag, og þegar kauphallir lokuðu var verð á únsunni 713.50 dollarar í Zúrich og er það 25 dollurum meira en var s.l. föstudag. í London var verðið 711 dollarar í kvöld. Aftur á móti átti dollarinn víða nokkuð í vök að verjast og lækkaði hann gagnvart öllum helztu gjaldmiðlum öðrum. ríki“ eins og einn embættismanna orðaði það. Sex vestrænum fréttamönnum var snúið frá við komuna til Kabulflugvallar í dag og þeir fáu fréttamenn erlendir sem eftir eru verða fyrir stöðugri áreitni. Þá má geta þess að það þykir tíðindum sæta að forsetinn Karm- al hefur ekki sézt úti fyrir Þjóðar- höllinni í meira en viku. Þar er gríðarlega öflugur sovézkur her- vörður á verði. Ostaðfestar fregnir eru um að heyrzt hafi mikil skot- hríð frá höllinni fyrir nokkrum dögum, en engin nánari skýring verið á því gefin. Eskútinn hækkaður LlsHabon. 11. lcbr. AP. ÁKVEÐIÐ hefur verið að hækka eskútann, portúgalska gjaldmiðilinn um sex prósent gagnvart öðrum gjaldmiðlum, að því er Cavaco e Silva fjármálaráðherra skýrði frá í morgun. Hann sagði í viðtali við sjónvarpið að þessi gjörð væri liður í ráðstöfunum hinnar nýju ríkisstjórnar Sa Carneiro að reyna að sporna gegn verð- bólgu og þetta myndi verða til þess að bæta samkeppnisað- stöðu portúgalskra iðnaðar- vara á erlendum mörkuðum. Þetta myndi einnig ýta undir tiltrú á eskútanum og væri ekki vanþörf á því. Þá greindi Silva einnig frá „matarkörfu" ríkisstjórnarinn- ar, en ákveðið hefur verið að draga verulega úr niðurgreiðsl- um á ýmsum vörum svo sem sykri, mjólk, hrísgrjónum, hveiti og fiski. Hjón skilja líka í Kína — en sjaldan þó Hjónaskilnaðir í Kína eru fátíðir og yfirleitt ekki farið hátt með slíkar fréttir, enda þykir hjónaskilnaður þar mikil skömm báðum aðilum. Nú er fyrir rétti í Peking slíkt mál og mun vera í fyrsta skipti, að vestrænir fréttamenn hafa fengið að fylgjast með málflutningi. Eiginkonan Zhou Huixie, þrítug að aldri, til vinstri á myndinni, sækir um skilnaðinn frá Han Fali, vörubílstjóra, 35 ára, (t.h) eftir fjögurra ára hjónaband. Hún sagði að maður- inn hefði svikið heit um að veita móður hennar fjárhagsaðstoð, hann liggi í drykkju og stundi fjárhættuspil og hafi margsinnis lamið sig. Þær misþyrmingar hafi leitt til þess að hún hafi tvívegis misst fóstur. Han Fali tók ásökunum konunnar rólega fyrir réttinum. Hahn viðurkenndi að hafa stöku sinnum danglað í hana, en það tæki ekki að kalla það barsmiðar. Búizt er við að þeim verði úrskurðaður skilnaður, þrátt fyrir andmæli eiginmannsins, sem kvaðst hafa hug á að þau tækju upp sambúð og slægju striki yfir hið liðna. Iran: Milljónir fögnuðu árs- afmæli byltingarinnar Teheran, ll.íebr. AP. SAMTÍMA því að fimmtíu banda- riskir gíslar höfðu setið 100 daga fangnir i bandariska sendiráðinu i Teheran, fóru um milljón borg- arbúar í fagnaðargöngu til að minnast þess að ár er nú liðið frá þvi að islamska byltingin var fullkomnuð. Bani Sadr, forseti írans ávarpaði þjóðina og lesin var yfirlýsing frá Khomeini ftGAlNS OVIE erkiklerki, sem gat ekki verið viðstaddur, vegna sjúkleika síns. Préttaskýrendum ber saman um að auknar blikur séu á lofti í íran, eftir að Bani Sadr, forseti sagði í viðtali við franska blaðið Le Monde nú um helgina, að stjórn hans krefðist ekki lengur að fyrrv. keisari yrði framseldur, ef viðurkennt yrði að hann og stjórn hans hefðu framið margvíslega glæpi í stjórnartíð sinni og þetta yrði rannsakað af alþjóðlegri nefnd, til þess þegar skipuð. Bani Sadr sagði samkvæmt Le Monde að hugsanlegt væru að gísl- arnir yrðu látnir lausir „á næstu dögum“, en í kvöld var síðan sagt, að rangt hefði verið farið með orð fórsetans. Var þá lögð sérstök áherzla á að vitanlega kæmi ekki til greina að sleppa fólkinu, nema byltingarráðið og Khomeini iegðu blessun sína yfir þessa tillögu. Var haft eftir Bani Sadr í kvöld, að hann hefði lagt hugmyndir sínar fyrir Khomeini og vænti svars innan tveggja daga um hvað Khomeini teldi réttast að gera í málinu. Auk hátíðahaldanna í Teheran var í flestum borgum og bæjum landsins efnt til funda og faghað- arhátíða vegna afmælisins og ber fréttum saman um að j)au hafi hvarvetna verið fjöisótt. I Teheran urðu nokkur slys í þrengslunum, pallur með fjölda manns brotnaði og slösuðust tugir og á aðaltorgi Teher- an tróðust a.m.k þrír til bana. Sovézki útlaginn og andófsmaðurinn Vladimir Bukovsky sést hér ávarpa fjöldafund á Trafalgar torgi i London á sunnudag. Þetta var fyrsti fundur samtaka, sem hafa að markmiði að berjast gegn kúgun i Sovétrikjunum. Gyðingar, Múhammeðstrúarmenn og kristnir menn tóku þátt i þessari göngu og fordæmdu einum rómi innrás Sovétmanna i Afganistan og útlegð visindamannsins Andrei Sakharovs, svo og meðferð á þúsundum andófsmanna i Sovétrikjunum. Hjarta Títós að gefa sig? Belgrad 11. (ebr. AP. í STUTTORÐRI tilkynningu lækna Titos Júgóslaviuforseta, sem var lesin upp i kvöldfrétt- um útvarpsins i Júgóslaviu sagði, að læknismeðferð vegna nýrnakvilla, sem upp hefði komið, reyndist nú erfiðleikum bundin, þar sem truflun hefði gert vart við sig i hjartastarfs- seminni. Bentu likur til að breyta yrði um lyf og meðferð vegna þessa og hefðu viðeigandi ráðstafanir þegar verið gerðar vegna þessa. AP fréttastofan segir að þetta hafi komið löndum Titos illa á óvart, þar sem útlit hafi virzt fyrir, að hann væri allur að braggast, eftir að af honum var tekinn annar fóturinn. Um helg- ina komu síðan í ljós truflanir á nýrna og meltingarstarfssemi hjá Tito, og nú virðist sem Tito hraki enn, er hjarta hans er að byrja að gefa sig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.