Morgunblaðið - 26.02.1980, Page 1

Morgunblaðið - 26.02.1980, Page 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTAKÁLFI 47. tbl. 67. árg. ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Stiórnin í Kabúl valdalaus: Rússar ráða öllum málum í Afganistan Fallbyssuþyrla sovézka hersins á sveimi yfir Kabúl, höfuðborg Af- ganistans. Herlög voru sett i landinu á föstu- dag og hafa miklir bar- dagar geisað i borginni og víðar um helgina. Myndina tók frétta- maður japanska blaðs- ins Yomiuri Shimbun. Stmamynd — AP. Kabul. WashinKtiin. Bonn. 25. Ichrúar. AP. STJÓRNIN í Kabúl virðist nú vera altrjörloKa valdalaus eítir þau miklu I átök »k verkföll sem veriö hafa i landinu siðustu daga. Opinberir starfsmenn virtu að vcttutfi skipanir um að snúa til vinnu og var starfsemi opinberra stofnana þvi lömuð. Þá voru búðir iokaðar fimmta datfinn í röð. Hodding Carter. talsmaður handaríska utanrikisráðuneytisins, sagði i datt. að opinberir starfsmenn i Kabúl hefðu flestir snúið til vinnu sinnar, en verzlanir væru þó lokaðar. Stanttast þær fullyrðintfar á við frásagnir vitna oií erlendra fréttamanna í Kabúl. Carter satíði. að bardagar væru enn víða í borginni »K að likur bentu til að enn fleiri hefðu fallið í bardöttum siðustu datta en skýrt hefur vcrið frá. Heimildir hermdu. að yfir 300 óbreyttir bortfarar hefðu fallið í bardöttunum ok að auki marttir sovézkir otc afttanskir hermenn. Skýrðu fréttamenn svo frá. að kyrrt hefði verið að mestu í borttinni í dag, en öflugur vörður sovézkra ott afttanskra hermanna ott vopnaðar deildar féiatta í Khalqflokknum væru á hverju strái i borttinni. Sovézkir hermenn á t-55 og t-66 skriðdrekum stæðu vörð á flugvellin- um i Kabúl, við helztu brýr yfir Kabúlána og við götur sem liggja að sovézka sendiráðinu og skrifstofum ráðuneyta og höfuðstöðvum Khalq- flokksins. Afganskir hermenn í bryn- vörðum vögnum gættu helztu vega- móta í borginni og margir brynvagn- ar ækju um götur og væri stórum vélbyssum miðað á gangandi vegfar- endur. Þá reistu vopnaðar sveitir félaga í Khalqflokknum vegatálma, leituðu vopna á heimilum fólks og tækju marga til fanga. Rússar stjórna öllu Áreiðanlegar heimildir hermdu, að yfirmaður sovézka hersins í Kabúl væri í raun og veru hæstráðandi í landinu, og að stjórn landsins, sem Sovétmenn styddu dyggilega, hefði í raun ekki hemil á herskáu deildinni í Khalqflokknum. Yfirmaður sovézka hersins fékk æðstu völd í sínar hendur þegar herlög voru sett í landinu á föstudag, en stjórn sovézka og afganska hersins var fyrir skömmu sett undir einn hatt vegna aukinna ofbeldisverka og vaxandi andstöðu við veru sovézka hersins í Afganistan. Hafa Sovétmenn þá stjórn allra mála i Afganistan á sinni hendi. Karmal fer huldu höfði Babrak Karmal forseti, sem komst til valda við byltingu Sovétmanna 27. desember síðastliðinn, hefur ekki sézt opinberlega í þrjár vikur. Óstað- Veik staða Kennedys Concord, New Hampshire, 25. febrúar. AP. EDWARD M. Kennedy öld- ungadeildarmaður nýtur að- eins fylgis 30 af hundraði demókrata í New Hampshire miðað við 55 af hundraði, fylgis Carters forseta, sam- kvæmt skoðanakönnun blaðs- ins Boston Globe, sem birt var í dag. New Hampshire er sagt vera eitt helzta vígi Kennedys, og tapi hann fyrir Carter í for- kosningunum er allt eins búist við að hann dragi sig í hlé úr keppninni um útnefningu Demókrataflokksins við for- setakosningarnar í haust. Kennedy hefur viðurkennt op- inberlega að hann standi höll- um fæti í fylkinu. Sjá nánar frétt á bls. 12 og 46. festar fregnir herma að hann hafi leitað skjóls í sovézka sendiráðinu, en þess gætir öflugur hervörður. Stjórnvöld í Bonn lýstu yfir því, að ekkert væri hæft í fréttum um að Carter Bandaríkjaforseti hefði beðið Willy Brandt fyrrum kanslara um að hafa milligöngu í deilu vestrænna ríkja og kommúnistaríkja A-Evrópu vegna Afganistanmálsins. Flokkur Brandts tilkynnti hins vegar, að kanslarinn fyrrverandi væri reiðu- búinn að taka að sér milligöngu. Josip Vrhovec utanríkisráðherra Júgóslavíu sagði fréttamönnum í Nýju-Delhi í dag, aö fyrsta skrefið til lausnar deilunni um Áfganistan væri að Sovétmenn hyrfu þaðan með heri sína. Hann sagði að indversk og júgóslavnesk stjórnvöld væru andvíg íhlutun erlendra ríkja í mál sjálf- stæðra ríkja, og að það væri skoðun þeirra að hlutlaus ríki væru fórnar- lömbin í baráttu stórveldanna. Afganskur diplómat skýrði frá því í dag, að varaforseti Afganistans, sem sagður var hafa dáið í sjúkra- húsi í Moskvu eftir skotbardaga í höll alþýðunnar í Kabúl 7. nóvember, væri í Moskvu þar sem hann væri óðum að jafna sig eftir meðferð við magasári. Diplómatinn sagði, að varaforsetinn, Sultan Ali Kisht- mand, hefði verið lagður inn á sjúkrahús í Moskvu 7. febrúar síðastliðinn, en sömu heimildir og skýrðu frá láti hans sögðu, að þann dag hefði Mahmud Baryalay, bróðir Karmals forseta, fallið i skotbardaga í aðsetri stjórnarinnar í Kabúl. Verkfall bílstjóra Frá fréttaritara Morgunblaðsins i Ósló i g*r. VEGNA verkfalls bifreiðastjóra almenningsvagna i eigu einka- fyrirtækja urðu yfir 100.000 manns á Óslóarsvæðinu að koma sér með öðrum hætti til vinnu i gær. — Laure. Bylting í Surinam B-29 sprengjuflugvél til Keflavíkur í dag? Limestone, Maine, 25. febrúar. AP. SÍÐASTA B-29 sprengjuflugvél- in í eigu bandariska flughersins hefur kvatt Bandarikin fyrir fullt og allt og hélt áleiðis til London i dag með millilending- um á Grænlandi og íslandi. Gert hafði verið ráð fyrir, að vélinni yrði flogið i dag, mánudag. i einum áfanga frá Gander á Nýfundnalandi til Keflavikur- flugvallar, en vegna veðurs var aðeins flogið til Syðri-Straum- fjarðar. B-29 vélin er sömu gerðar og vélin sem varpað var úr kjarn- orkusprengjum á Nagasaki og Hiróshima í seinni heimsstyrj- öldinni. Þessi vél, sem nefnist „It’s Hawg Wild,“ var ekki i notkun í seinni heimsstyrjöld- inni, en var hins vegar mikið notuð í Kóreustríðinu. Vélin er á leið á safn í London. Ferðin hefur sóst heldur seint til þessa vegna bilanna en lagt var upp frá Tucson í Arizona í byrjun janúar. B-29 sprengjuflugvél. Eina „eftirlifandi" vél þessarar tegundar er væntanleg til Keflavikurflugvallar í dag. Vélin er i eigu bandariska flughersins, en hefur verið lánuð til Bretlands, þar sem henni verður komið fyrir á safni. Paramaribo, Haag, 25. febrúar AP. BYLTING var gerð í Sur- inam í dag er undirfor- ingjar úr her landsins náðu á sitt vald höfuð- stöðvum lögreglu landsins og ýmsum öðrum opinber- um byggingum eftir átta klukkustunda bardaga, þar sem a.m.k. sex manns féllu. Látið var til skarar skríða um miðja nótt og voru þá höfuð- stöðvar lögreglunnar að hálfu eyðilagðar í sprengjuárás. Rofið var allt fjarskiptasamband við umheiminn, en í tilkynningu uppreisnarmanna, sem send var út á fjarrita, sagði að lýðræði yrði haft í heiðri í landinu og hagsmunir íbúa ávallt bornir fyrir brjósti í aðgerðum nýju valdhafanna. Ekki heyrðist frá Henck Arr- on forsætisráðherra né ráðherr- um hans og er ekki vitað hvar þeir voru niðurkomnir. Herinn hafði náð yfirhöndinni er á leið daginn og var allt með kyrrum kjörum í landinu. Lögreglan veitti uppreisnarmönnum nokkra mótspyrnu, en var yfir- buguð. Kunnugir sögðu að bylt- ingin ætti rætur að rekja til óánægju hersins með laun og aðbúnað hermanna. Óbreytt ástand Belgrad, 25. febrúar. AP. LÆKNAR Títós forseta skýrðu frá því, að líðan forsetans væri óbreytt og væri hann enn með lungnabólgu. Þá væru nýru forset- ans enn óstarfhæf og hann af þeim sökum hafður í sérstakri nýrnavél.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.