Morgunblaðið - 26.02.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980
3
Stórviðri við sjávarsíðuna
Akureyri:
Skipið dró akkerin
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær-
kvöldi samband við fréttaritara
sina frá Hvammstanga austur
um að Þórshöfn á Langanesi og
spurði frétta af óveðrinu.
Það kom fram í máli fréttarit-
aranna, að víða var mjög hvasst
í gær en ekki var vitað um
slysfarir af völdum veðursins á
þessu svæði.
í Grímsey var ofsarok á tíma-
bili og fór vindurinn í 12 stig.
Enginn Grímseyjarbátur var á
sjó í gær. Vöruflutningaskip lá á
Akureyrarpolli en svo hvasst var
að skipið dró akkerin og varð
skipið að keyra upp í vindinn.
Hólmavík:
Allir bátar
í höfn heil-
ir á húfi
Ilólmavik. 25. frbrúar.
ENGAR skemmdir urðu hér í
óveðrinu í dag svo mér sé
kunnugt um. Rækjubátarnir
voru við veiðar hér í firðinum en
þeir komust allir í höfn heilir á
húfi. Miklar símabilanir hafa
verið hér í dag og erfitt að ná
sambandi við nágrannabyggð-
irnar en ekki hef ég frétt af
neinum skemmdum eða
óhöppum þar.
—Andrés.
TVEIR Vestmannaeyjabátar fengu á sig brotsjó í gær og urðu
talsverðar skemmdir um borð í þeim báðum. Einkum varð
tjón um borð í því gamalfræga aflaskipi Gullborgu og þeir
Friðrik Benónýsson skipstjóri og Benóný Benónýsson stýri-
maður slösuðust báðir lítils háttar.
Gullborgin var að vitja um
net 4 mílur vestur af Surti er
hnútur kom á skipið og skellti
bátnum á hliðina. Fjórir skip-
verjar voru í brúnni og fóru
allir á kaf í sjó. Sjór komst í
tæki, sjálfsstýringin, radar og
ljós á brú skemmdust, mikið
af uppstillingum á dekki fór
fyrir borð og flest lauslegt,
sem þar var. Enginn sjór
komst í vélarrúm og rétti
skipið sig fljótlega.
Bjarnareyin var um 18 míl-
ur suðaustur af Hjörleifs-
höfða á landleið með um 30
tonn, en skipverjar höfðu orð-
ið að snúa frá síðustu tross-
unni vegna veðurs, er hnútur
kom á bakborðshlið skipsins
framanverða. Rúður brotn-
uðu, sjór fór í tæki og annað
tjón varð um borð, en engin
meiðsli. Bæði skipin náðu
áfallalaust til Eyja eftir
þetta.
Steingrímur Sigurðsson
skipstjóri á Bjarnarey lenti
einnig í baráttu við illviðri
fyrir rúmri viku er vindhraði'
komst upp í 100 hnúta. Þá
varð Suðurey VE stjórnlaus
skammt frá Surtsey er net
fóru í skrúfuna og kom Bjarn-
arey þá til aðstoðar, en Bjarn-
arey var 2 sólarhringa á leið
til Eyja, svo hrikalegt var
veðrið.
frá
bryggju
OFSAROK var á Skagaströnd
um hádegisbilið i gær, 10—12
vindstig, en þar urðu engar
skemmdir. að sögn Birgis Árna-
sonar.
Þrír rækjubátar voru á sjó en
þeir gátu lítið aðhafst vegna
veðurs. Fóru þeir inn til
Hvammstanga. Bátar slitnuðu
frá bryggju á Skagaströnd en
heimamönnum tókst að afstýra
tjóni.
Stykkishólmur:
Óttast netatjón
Stykkishólmi, 25. febrúar.
OFSAVEÐUR hefur gengið yfir
hér í dag en sem betur fer hafa
engin óhöpp orðið svo mér sé
kunnugt um. Engin kennsla
var i Barnaskólanum eftir há-
degi.
Engir bátar hafa komist á sjó
síðan á föstudag en þá lögðu
bátarnir net sín. Eru flestir
bátar með net í sjó og óttast
menn að tjón hafi orðið á þeim í
óveðrinu.
Símasamband hefur verið í
molum vegna bilana. Er unnið
að viðgerð. -íréttaritari.
Ljósiti. RAX.
Skipverji á Helgu RE bendir á hlerana, sem voru negldir fyrir gluggana eftir að brotsjórinn hafði
brotið rúðurnar. Sjór gekk yfir siglingatækin og gerði þau óvirk. Myndin var tekin í gærkvöldi.
HELGA RE, sem er 208 tonna
stálbátur. fékk á sig brotsjó
síðdegis í gær, þegar skipið
var statt undan Garðskaga.
Versta veður var á þessum
slóðum.
Hurð í brú brotnaði og einnig
tveir gluggar i brúnni og öll
siglingatæki fóru úr lagi nema
kompás. Varðskip kom Helgu til
aðstoðar og fylgdi skipinu inn
fyrir Garðskaga í var. Kom
Helga til Reykjavíkur í gær-
kvöldi.
Gullborg VE 38.
2 Eyjabátar
í erfiðleikum
Saxhamar SH á siglingu.
Saxhamar fékk á
sig brotsjó — Skip-
stjórinn slasaðist
Það var um þrjúleytið í gær að
hjálparbeiðni kom frá bátnum.
Nærstödd fiskiskip fóru til að
aðstoða Saxhamar og sömuleiðis
fór varðskip áleiðis til bátsins ef
draga þyrfti hann til lands. Ofsa-
veður var á þeim slóðum, þar sem
Saxhamar fékk á sig brotsjó.
Seinna var aðstoð varðskipsins
afþökkuð því tekist hafði að koma
tækjum í lag. Náði Saxhamar
heilu og höldnu til heimahafnar í
fylgd annarra báta, sem voru á
heimleið um líkt leyti, en það
voru bátarnir Brimnes, Rifsnes
og Tjaldur.
VÉLBÁTURINN Saxhamar frá
Rifi, 125 tonna stálbátur, fékk á
sig brotsjó siðdegis i gær.
Skemmdir urðu á brúnni, stjórn-
tæki fóru úr sambandi og stýrið
skemmdist. Skipstjórinn, Sævar
Friðþjófsson, mun hafa slasast
þegar hnúturinn reið yfir bátinn
og var talið að hann hefði
fótbrotnað. Vegna þess að sima-
sambandsiaust var við Rif var
ekki hægt að fá nánari fregnir
af meiðslum Sævars en hann var
fluttur i hcilsugæzlustöðina á
ölafsvik til aðgerðar.
Hornafjarðarós
ófær í veðrinu
Höfn. Ilornafirói. 25. fehrúar.
FJÓRIR Ilornafjarðarbátar
komust ekki hingað inn i dag og
leituðu tveir þeirra vars austan
við Stokksnes og tveir austan við
Ingólfshöfða. Sterk suðvestanátt
hefur verið hér síðasta sólar-
hring og af þcim sökum hefur
ósinn verið ófær í dag. en þessi
Skagaströnd:
Bátar
slitnuðu
átt er yfirleitt versta áttin fyrir
innsiglinguna um ósinn.
Samkvæmt upplýsingum veður-
athugunarstöðvarinnar hér á
Höfn mældist mesti vindur hér
9—10 vindstig þrátt fyrir að verst
revndist að mæla vindhraða í
suðvestanátt vegna staðhátta, og
mælist hann yfirleitt minni en
hann er. Starfsmenn á dýpkun-
arskipinu Háki hættu störfum
óvenju snemma í dag að sögn
Sigurjóns Sigurðssonar yfirverk-
stjóra. Var það vegna þess, að þeir
þorðu ekki að lengja í dælurörum
af ótta við að allt færi úr skorðum
og dælulagnirnar gætu orðið fyrir
tjóni í veðurhamnum.
— Einar
Helga RE f ékk á sig brotsjó