Morgunblaðið - 26.02.1980, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980
13
Víðtæk
íslandskynning
í Frakklandi
íslandskynning i Frakklandi 1980: Einar Benediktsson sendiherra i
félagsskap islenskra sýningarstúlkna. Myndin var tekin fyrir opnun
Islandskynningarinnar i Paris. Ljósm. Sv.Sæm.
það tryggja að hinn almenni
kjósandi fái tækifæri til að
hafa áhrif á hver kjörinn verði
forseti, auk þess sem telja
megi nokkurn veginn tryggt
að sá sem standist þolraun
slíkrar kosningabaráttu geti
staðizt þá gífurlegu spennu,
sem bíði hans í Hvíta húsinu.
Þegar hin eiginlega kosn-
ingabarátta hefst 1. september
eru aðeins tveir keppendur
eftir — frambjóðandi
Demókrataflokksins og fram-
bjóðandi Repúblikanaflokk-
sins. Nú færist hiti í leikinn
fyrir alvöru. Frambjóðendur
þeysast um Bandaríkin þver
og endilöng, kyssa börn og
gamalmenni, spranga um í
afkáralegum búningum, og að-
alatriðið er auðvitað að láta
fjölmiðlana birta sem flestar
myndir. Mikilvægasti hluti
kosningabaráttunnar fer þó
fram í sjónvarpi. Stuðnings-
menn frambjóðendanna greiða
gífurlegar fjárhæðir fyrir sýn-
ingar auglýsingakvikmynda í
sjónvarpi. Mesta áherzlu
leggja kosningastjórarnir þó á
að koma frambjóðendunum að
í fréttatíma þeirra stöðva, sem
sjónvarpa um gjörvöll Banda-
ríkin, og eins og að líkum
lætur þarf enga smáræðis
hugkvæmni til að láta fram-
bjóðendur finna stöðugt upp á
einhverju sem gerir þá
„fréttnæma". Hápunktur þess-
arar úrslitakeppni er sjón-
varpseinvígi frambjóðend-
anna, sem fram fer skömmu
fyrir kjördag, en þetta einvígi
er talið geta ráðið úrslitum í
forsetakosningunum. Skýrasta
dæmið um slíkt er kannski
einvígi þeirra John F. Kenne-
dys og Richards Nixons fyrir
kosningarnar 1958. Þær kosn-
ingar voru afar tvísýnar, enda
sigraði Kennedy mjög naum-
lega, en einsýnt var talið að
þar hefði frammistaða hans
og persónutöfrar í sjónvarps-
einvíginu gert herzlumuninn.
Formlega eru það 538 kjör-
menn, sem eru kosnir á ^jálfan
kosningadaginn, 4. nóvember,
og það eru þeir, sem í rauninni
kjósa forsetann. Kjörmenn
skiptast milli fylkja eftir
fólksfjölda þeirra, en allir
kjörmenn hvers fylkis verða
að greiða þeim forsetafram-
bjóðandanum atkvæði sitt í
hinni endanlegu kosningu,
sem hlaut stuðning meirihluta
kjósenda fylkisins á kjördag.
Þetta kerfi á að tryggja að öll
fylki standi jafnt að vígi í
samræmi við íbúafjölda. Kjör-
mannakerfið er þó mjög um-
deilt og þeir, sem telja það til
óþurftar, segja til dæmis, að
þannig kunni að verða kosinn
forseti, sem ekki hafi meiri-
hlutastuðning þjóðarinnar,
eins og raunar gerðist árið
1888, þegar repúblikani var
kjörinn forseti, enda þótt
hann hefði 90 þús. atkvæðum
færra en frambjóðandi demó-
krata, Grover Cleveland. Mjóu
munaði líka árið 1976 þegar
Gerald Ford vantaði aðeins 10
þúsund atkvæði í Ohio og
Hawaii til að fá meirihluta
kjörmannanna og verða þann-
ig endurkjörinn forseti, enda
þótt Jimmy Carter hefði hlotið
1.7 milljón kjósendaatkvæði
umfram hann.
— Á.R. (Heimild:
Dagens nyheter)
Þessa dagana stendur yfir
víðtæk íslandskynning í Frakk-
landi. Að kynningunni standa
Flugjeiðir, Ferðamálaráð, Sendi-
ráð íslands í París, Útflutnings-
miðstöð Iðnaðarins, Álafoss,
Hilda og Samband íslenskra Sam-
vinnufélaga. Ennfremur tekur
Sölustofnun Lagmetis þátt í kynn-
ingunni. íslandskynningin hófst í
Strassburg hinn 12. febrúar, í
París 14. febr. og 18. febrúar í
Lyon. Hér er um alhliða kynningu
að ræða á íslandi sem ferða-
mannalandi og kynntar eru ýmsar
útflutningsvörur svo sem íslenska
lambakjötið, vörur framleiddar úr
ull og mátvæli af ýmsu tagi frá
íslenskum verksmiðjum. Sendiráð
tslands í París hefhr, ásamt aðil-
um hér heima, undirbúið þessar
kynningar og Einar Benediktsson
ambassador opnaði kynningarnar
á hverjum stað. íslenskur matur
er framreiddur á Hotel Concorde
LaFayette í París meðan á kynn-
ingunni stendur og hefur Hilmar
Jónsson veitingastjóri á Hótel
Loftleiðum veg og vanda af þeirri
matargerð ásamt matsveinum
hótelsins. Fjórar íslenskar sýn-
ingarstúlkur starfa að íslands-
kynningunni og sýna íslenskan
fatnað. Þessar sýningar eru á
vegum Útflugningsmiðstöðvar
Iðnaðarins, Hildu h.f. og Álafoss.
í móttöku sem haldin var við
opnun íslandskynningarinnar í
Hótel Concorde LaFayette voru
margir blaðamenn og kaupsýslu-
menn, sem komu til að skoða
íslenska varninginn og bragða á
íslenskum réttum. Þarna var sýnd
íslandsmyndin sem Flugleiðir og
Ferðamálaráð létu gera fyrir
þrem árum síðan, og kynninga-
bæklingar afhentir.
Sem fyrr segir yerður íslands-
kynning opnuð í Lyon 18. febr. og“*
stendur þar í tvo daga. Blöð í
Strassburg skrifuðu um íslands-
kynninguna þar strax daginn eftir
að hún hófst og voru þau skrif
mjög jákvæð. Hluti af íslands-
kynningunni er sýning tveggja
íslenskra málara á Hótel Con-
corde LaFayette, þeirra Valtýs
Péturssonar ok Jónasar Guð-
mundssonar. Þeir sýna vatnslita-
og olíumálverk.
Opnun íslandskynningarinnar í
París þann 14. var miðuð við að
daginn eftir, 15. febrúar, hófst í
París alþjóðleg ferðakaupstefna.
Hún er haldin í stórri sýningar-
höll sem er sambyggð Hotel Con-
corde LaFayette og allmargir þeir
sem koma til að sja sýninguna búa
þar í hótelinu, sem rúmar 2000
gesti. í þessari alþjóðlegu ferða-
kaupstefnu þeirri 5. í röðinni í
París, taka þátt flugfélög, ferða-
skrifstofur og ferðamálaráð hvað-
anæva úr heiminum. ísland er
þarna þátttakandi þar sem Flug-
leiðir hafa sýningarbás. París-
arskrifstofa Flugleiða hefur veg
og vanda af þessari kynningu og
starfsfólk hennar mun veita þar
upplýsingar um ísland, land og
þjóð, svo og ferðamöguleika hér á
landi. Ennfremur eru kynntar
ferðir Flugleiða frá Luxemborg til
Bandaríkjanna og frá Luxemborg
til Bahama.
Að lokinni íslandskynningunni í
Frakklandi verður hún flutt til
London. Þar verða íslenskar vör-
ur, svo og ísland, sem ferða-
mannaland og ferðamöguleikar
með Flugleiðum kynntir á hóteli í
þrjá daga. Undirbúning að þeim
þætti íslandskynningarinnar hef-
ur svæðisstjóri Flugleiða í Eng-
landi, Jóhann Sigurðsson annast.
Islandskynningin í Frakklandi
og Bretlandi er sú önnur í röðinni
í vetur sem Flugleiðir og Ferða-
málaráð ásamt fleiri aðilum, hafa
gengist fyrir. Sú fyrri var í Hong
Kong og stóð í tvær vikur.
^ 0
ferðir
til Miami Beach, Florida
Vikuleqar brottfarir alla
laugardaga fra 03 með 3. maí
FLUCLEIDIR
Nánari upplýsingar: Söluskrifstofur okkar Lækjargötu 2 og Hótel Esju, sími 27800,
farskrárdeild, simi 25100, ferðaskrifstofur og umboðsmenn okkar úti á landi,