Morgunblaðið - 26.02.1980, Síða 14

Morgunblaðið - 26.02.1980, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980 Hrói Höttur — ungt fólk, sem vill láta gott af sér leiöa: 1. Meðal almennings ríkja hinar sundurleitustu skoðanir um unglingsárin. Sumir tala um þau sem hið mesta vandræða- tímabil; unglingurinn sé alltaf í uppnámi og hegðun hans sé stjórnlítil og óábyrg. Allt sem snertir unglinginn virðist vera vandamál í þeirra augum. Aðrir lýsa unglingsárunum hins vegar sem ákaflega heillandi tímaskeiði, fullu af fyrirheitum, ævintýrum, ferskum hugmyndum og djúp- um tilfinningum. En hvað er að vera ungling- ur? í raunínni er mjög erfitt að skilgreína það hugtak nákvæm- lega, en sumir segja að það sé þegar einstaklingurinn er hvorki bam né fullorðinn. Af þeim sökum eru gerðar ákaflega mismunandi kröfur til unglings- ins. Stundum er hann nógu gamail til þess að gera hlutina, í öðrum tilfellum er hann of ungur. Unglingurinn verður þá oft á tíðum hálfruglaður og veit í rauninni ekkert hver staða hans í þjóðfélaginu er. Eitt er þó alveg víst að athafnaþörf unglingsins er ákaf- lega mikil. Flestir unglingarnir eyða frístundum sínum utan heimilisins í félagsskap vina sinna. En hvar hittast ungl- ingarnir? Það er spurning, sem eflaust er erfitt að svara. Staö- reyndin er nefnílega sú, að hér á höfuðborgarsvæðinu, og ef- laust þótt víöar væri leitað, virðist tilfinnanlega vanta aðstöðu fyrir unglinga til aö sinna áhugamál- um sínum og þá verður gatan oft þeirra eina athvarf. mál Hrói Höttur Hrói Höttur nefnist hópur af ungu fólki, sem vill láta gott af sér leiöa. Markmiöið með starfsemi hópsins er aö vinna á meðal ungs fólks, aðstoða það og virkja til að vinna að sínum eigin áhugamálum og reyna aö skapa því aöstööu til þess, en slík aðstaða er af mjög skornum skammti í Reykjavík. Síðastliðiö föstudagskvöld stóð Hrói Höttur fyrir diskóteki, með skemmtiatriðum í bland, og var það ætlað ungu fólki í Breiðholti, en auðvitan voru allir velkomnir. Er blaðamaður og Ijós- myndari Mbl. nálguðust Seljabraut- ina í Breiðholti umrætt föstudags- kvöld fór ekki á milli mála aö þar var eitthvað að gerast fyrir ungt fólk, því unglingarnir streymdu þangaö í stríðum straumum. í dyrunum hittum við nokkra af meðlimum Hróa Hattar og lék okkur fyrst forvitni á að vita hvers vegna nafnið Hrói Höttur var valiö. „Svarið er einfalt. Á miðöldum starfaði Hrói Höttur meðal þeirra sem enga aðstöðu höfðu til að neyta réttar síns gegn kerfinu á þeim tíma. Nafnið er því táknrænt því að í dag hafa unglingarnir enga aðstöðu til aö vekja athygli kerfisins á sínum málum og viljum við koma þeim til hjálpar." Starfsemi Hróa Hattar hófst fyrir rúmu ári. í byrjun var það aðeins fámennur hópur, sem starfaði meðal unglinganna, en nú hefur hópurinn stækkað nokkuö og fer ört stækk- andi. í dag starfa í Hróa Hetti á milli 50 og 60 manns. Hjá Hróa Hetti er ekki um að ræða skipulagða starfsemi í ákveðnum borgarhverfum, heldur starfar Hrói Höttur alls staðar í borginni og hefur engan fastan samastað. Það liggur ekki Ijóst fyrir ennþá hvort Hrói Höttur fái eitthvert húsnæði til starf- seminnar, en með vaxandi starfsemi er vonast til að einhver bót ráðist á því máli. „Bara gatan og Hallærisplanið“ „Við lítum ekki á unglingana sem vandamál", sögðu viðmælendur okk- ar í Hróa Hetti. „Þetta er miklu frekar vandamál foreldranna. Foreldrarnir skilja ekki þörf unglinganna til aö hittast og vera saman og því síður hið mikla aðstöðuleysi þeirra. Yfir- völd virðast telja að ekkert sé hægt Dansaö af lífi og aál. Aö sögn þeirra Hróa Hattar manna hafa þeir áhuga fyrir því að eiga samstarf við sem flesta aðila í framtíðinni. „Við höfum í hyggju að leita til sem flestra um samvinnu, en það væri vissulega æskilegt að þeir aðilar, sem vilja vinna með okkur leiti líka til okkar og við höfum strax orðið vör við jákvæð viðbrögð frá foreldrum og því er ætlunin að reyna að efla foreldrasamstarfið til muna." Að sögn þeirra Hróa Hattar manna eru unglingarnir mjög jákvæðir í þeirra garð og lögreglan hefur sýnt starfi þeirra mikinn áhuga, því hún þekkir aðstöðuleysi unglinganna ef- laust betur en nokkur annar. Heit súpa á köld- um vetrarkvöldum „Unglingarnir, sem við störfum meö eru flestir frá fjórtán ára aldri upp í rúmlega tvítugt og má því sjá að þetta er nokkuö vítt aldurssviö. Við höfum orðið mikið vör við þaö, hve mikla þörf unglingarnir hafa til þess aö ræða við okkur um hin ýmsu mál, og þá ekki sem einhverja yfirboðara, heldur sem jafningja. Þau finna að við viljum þeim vel, og þegar viö höfum til dæmis gefiö þeim heita súpu niður á Hallærispiani á köldum vetrarkvöldum eiga þau oft erfitt með aö skilja að súpan kostar ekkert. Þeir eru ekki vanir slíkri umhyggju.“ „Hjá okkur er þetta starf hugsjón. Allt starfið er unnið í sjálfboðavinnu Unglingar eru ekki vanda- ef eitthvað er fyrir þá að gera Rafnsson og Erlendur Kristjánsson um starfsemi Hróa Hróa Hattar. að gera fyrir unglingana nema í dýrum og fínum félagsmiðstöðum, en viö höfum sýnt fram á að það er alveg hægt að skapa aöstööu fyrir ungt fólk án mikils fjármagns, ef viljinn er fyrir hendi. Vandamáliö er það, aö í dag nennir enginn að gera neitt fyrir unga fólkið.“ „Krakkarnir eru oft mjög hissa þegar þau komast að því að það er einhver í þessari borg, sem hefur áhuga fyrir að gera eitthvað fyrir þá, án þess aö plokka af þeim peninga. Þau hafa t.d. ekki öll tækifæri til þess að fara í Tónabæ, því það er allt of dýrt. í flestum tilfellum er þá ekki annar staöur til að hittast á en gatan og Hallærisplaniö og í sumum tilfell- um sjoppur. Þegar svoleiðis er í pottinn búið er ekki hægt að búast við miklu." Jákvæð viðbrögð frá foreldrum „Viö vildum helst geta komið því til leiöar að unglingarnir geti fengiö samastaö, þar sem þeir gætu hist og gert það sem þá langar til í samvinnu við eldra fólk. Slík aðstaða þyrfti helst aö vera í sérhverju borgar- hverfi. Að vísu er þessi aöstaöa víða fyrir hendi, en gallinn er bara sá að hún er ekki notuð. Skólar og félags- heimili eru oftast nær lokuð á kvöldin, á meðan unglingarnir safn- ast saman í hópum úti á götu eða í næstu sjoppu.“ og fáum við mikiö gefið af því sem við þurfum að nota, til dæmis hráefni í súpuna eða kakóið eða það sem við erum með hverju sinni. í kvöld fengum við til dæmis húsnæðið lánað án endurgjalds, og skemmti- kraftarnir koma hingað ókeypis.“ í kvöld er Magnús Kjartansson úr Brunaliðinu mættur ásamt nokkrum félögum sínum og ætla þeir að leika nokkur lög fyrir krakkana. Auk þess mun félagi úr Hróa Hetti spila á gítar. Að sögn þeirra Hróa Hattar manna er þó vonast til að þróunin verði sú að unglingarnir geti sjálfir unnið aö því að æfa upp skemmtiatriði og geti á þann hátt sýnt hvað í þeim býr. Unglingarnir eru líka til „Ég er hérna fyrst og fremst til þess að athuga hvort ég geti ekki hitt eitthvað af því fólki, sem ég hitti ekki þegar það kostar 7 þúsund kall að hitta mig. Þó þetta fólk eigi ekki peninga, þá er það líka til“, sagði Magnús Kjartansson Brunaliðs- maður, þegar við tókum hann tali. Magnús hafði þó ekki mikinn tíma til aö ræða við okkur, þar sem hann var í óða önn við að raða upp hljóðfær- um. „Aðstöðuleysi unglinganna í dag er algjört hneyksli,“ hélt Magnús áfram. „Ef ekkert verður gert í þessum málum í náinni framtíö verður Reykjavík örugglega að van- gefnustu borg í heimi." „Förum niður á plan til að hitta krakka“ Agnes Helga Bjarnadóttir og María Margeirsdóttir eru tvær fjör- Agnes Helga Bjarnadóttir og María Margeirsdóttir. Ágúst Elís Gústafsson Helena Þorleifsdóttir J

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.