Morgunblaðið - 26.02.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980
19
Likan af hinu nýja Safnahúsi Borgfirðinga i Borgarnesi.
(Jrslit í samkeppni um safnahús Borgfirðinga:
„Byggingin þótti falla vel
að hæðinni og endurspegla á
sannfærandi hátt starfsemina“
Hvanneyri, 25. febrúar.
í GÆR var opnuð sýning í
Borgarnesi á 20 tillögum, sem
komu fram i samkeppni um
gerð nýs safnahúss fyrir Borg-
arf jarðarhérað. Mun þetta vera
i fyrsta sinn sem slik sam-
keppni fer fram hér í Borgar-
firði, þ.e. af aðilum innan hér-
aðs.
Forsögu þessarar samkeppni
má reyndar rekja til áranna um
1950 þegar Haukur Jörundsson,
þá kennari á Hvanneyri, var
formaður Ungmennasambands
Borgarfjarðar og fékk Ragnar
Ásgeirsson ráðunaut Búnaðar-
félags íslands til ráðuneytis.
Niðurstaða könnunar varð sú að
byggja skála í fornum stíl að
Varmalandi. Af því varð þó
aldrei. Ingimundur Ásgeirsson
bóndi á Hæli í Flókadal mun
manna mest hafa unnið að því að
koma safninu á einn stað og 1969
var flutt í eigið húsnæði í
Borgarnesi.
Héraðsbókasafn, byggðasafn
og skjalasafn Borgarfjarðar
hafa verið undir sama þaki síðan
1969, en síðan hafa bætzt við
Listasafn og Náttúrugripasafn.
Núverandi húsnæði safna-
hússins er um 300 fermetrar og
er alltof lítið. Þetta húsnæðis-
leysi hefur því verið þessum
stofnunum til mikils trafala og
var því ákveðið að efna til
samkeppni með arkitektum til
að fá fram hugmyndir um fram-
tíðarhúsnæði fyrir stofnanirnar.
í forsendum dómnefndar seg-
ir, að fyrirhugað safnahús skuli
vera aðlaðandi bygging, sem
falli eðlilega inn í fagurt um-
hverfi sitt og sýni að hér sé um
að ræða aðalmenningarstofnun
staðarins.
í samkeppnina bárust eins og
áður sagði 20 tillögur og var
dómnefndin sammála um að
árangur af keppninni hefði verið
mjög góður. Hún var sammála
um að veita tillögu númer 9
fyrstu verðlaun, krónur 1.8
milljónir. Höfundar hennar eru
arkitektarnir Ingimundur
Sveinsson og Gylfi Guðjónsson
og aðstoðarmenn þeirra við
hönnunina voru Egill Guð-
mundsson arkitekt, Jón Stef-
ánsson verkfræðingur og Guðný
Jónasdóttir bókavörður.
Önnur verðlaun, 1.1 milljón
króna, hlaut tillaga númer 6, en
höfundur hennar er Dagný Hall-
dórsdóttir arkitekt, og þriðju
verðlaun, hlaut tillaga númer 10.
Höfundur hennar er Benjamín
Magnússon arkitekt.
Dómnefndina skipuðu þeir
Bjarni Backmann, safnvörður,
formaður nefndarinnar, Óli Jón
Gunnarsson oddviti, Sigurður
Thoroddsen arkitekt, Halldór
Guðmundsson arkitekt og Ölafur
Jensson framkvæmdastjóri.
Dómnefndin mælir eindregið
með því, að þeim Ingimundi og
Gylfa verði falin áframhaldandi
hönnun og framkvæmd verksins,
en nánar segir svo í niðurstöðum
nefndarinnar um tillögu þeirra:
Byggingin þótti falla sérlega
vel að hæðinni og endurspegla á
sannfærandi hátt starfsemi
safnanna fimm. Lögun hússins
myndi auk þess opna vel útsýni
að íþróttavellinum frá Borgar-
braut og inn á þjónustusvæðið
við landtöku Borgarfjarðar-
brúar.
Tillaga höfundar að jarðvegs-
fyllingu að húsinu, er gerð á
sannfærandi hátt og hefur hon-
um með því tekist að fella húsið
vel að landslaginu, jafnframt því
sem hann veitir skjól umhverfis
útisvæðið. Jarðvegsfyllingin
dregur auk þess úr hæð hússins
að Borgarbraut.
Tillagan uppfyllir mjög vel
óskir og kröfur dómnefndar um
fyrirkomulag innanhúss, for-
stofurýmið tengist vel útigarði,
auk þess sem fyrirkomulag safn-
anna gengur vel og eðlilega upp.
Dómnefnd telur að bygging
þessi muni verða Borgfirðingum
til mikils sóma og mælir ein-
dregið með því að höfundi henn-
ar verði falið verkið til útfærslu.
— óíeigur.
Tveggja daga aðalfundur
Bandalags kvenna í Rvík
Á SUNNUDAG hófst á Kjarvals-
stöðum aðalfundur Bandalags
kvenna í Reykjavík. Voru þá
mættir 93 fulltrúar frá 31 félagi
bandalagsins og um 30 varafull-
trúar. Fundurinn hófst með
helgistund í Háteigskirkju kl. 9
um morguninn. Fyrir fundinum
lágu fjölmargar tillögur frá hin-
um ýmsu málefnanefndum
bandalagsins og skýrslur fasta-
nefnda og voru þær ræddar.
Formaður bandalagsins, Unnur
S. Ágústsdóttir, flutti skýrslu um
starfsemina á sl. ári, sem var mjög
blómleg. Haldnar voru ráðstefnur
og fundir og fylgt eftir ályktunum
síðasta aðalfundar. M.a. gekkst
bandalagið fyrif stórri ráðstefnu
13. okt., „Varnir gegn vímugjöfum".
Og nú stendur yfir á Kjarvals-
stöðum mikil listiðnaðarsýning
íslenzkra kvenna, sem fundargestir
skoðuðu í hádegisverðarhléi.
Síðdegis var fundi fram haldið. Og
stóð einnig allan mánudaginn.
Úr stjórn áttu að ganga tvær
konur sem ekki gáfu kost á sér til
endurkjörs, þær Halldóra Eggerts-
dóttir og Guðrún S. Jónsdóttir.
Stjórnina skipa nú: Unnur S.
Ágústsdóttir, formaður, Svanlaug
A. Árnadóttir, varaformaður, Sig-
ríður Ingimarsdóttir, ritari, Mar-
grét Þórðardóttir og Vigdís Einars-
dóttir. Varamenn eru Ragna Berg-
mann Guðmundsdóttir, Sigríður
Jónsdóttir og Sigrún Einarsdóttir.
Fjöldi ályktana var afgreiddur á
fundinum, sem síðar verður sagt
frá.
Frá aðalfundi Bandalags kvenna í Reykjavík á Kjarvalsstöðum um
helgina.
Deilur í borgarstofnunum:
Flugvöllur eða
ekki flugvöllur
— Bullaugnavatnsból eða ekki
NÝLEGA lagði borgarskipu-
lagsstofnunin fram í skipulags-
nefnd og borgarráði greinargerð
og tillögu um að skoða hvort ekki
mætti leggja niður Reykjavíkur-
flugvöll og flytja á nýjan stað í
Kapelluhrauni eða jafnvel til
Keflavíkur. Með því yrði hægt að
koma á flugvallarsvæðinu fyrir
10 þúsund manna ibúðarbyggð
með tilsvarandi vegalengdar-
styttingu í umferðinni.
Eftir það lagði sama stofnun
fram í skipulagsnefnd athug'á-
semd um staðfestingu aðalskipu-
lags borgarinnar, sem samþykkt
var í borgarstjórn 1977. Og gaf
borgarverkfræðingur umsögn um
þær athugasemdir. En þar var
einnig komið inn á flugvallarmálið.
Borgarverkfræðingur telur í
sinni umsögn að flugvöllur sé
Reykjavíkurborg það mikils virði
að ekki eigi að stefna að því að
leggja hann niður. Hann sé jafn-
nauðsynleg forsenda fyrir því að
Reykjavík geti gegnt sínu hlut-
verki sem höfuðborg eins og
Reykjavíkurhöfn að sínu leyti.
Sævar efstur
hjá Taflfélag-
inu hans Nóa
FYRSTA hluta af þremur er lokið
í „hálftíma-móti“ Taflfélagsins
hans Nóa. Efstur er Sævar
Bjarnason með 3 vinn. í 2.-3.
sæti eru Elvar Guðmundsson og
Torfi Stefánsson með 2,5 vinn. I
x4.—7. sæti eru þeir Óttar Hauks-
son. Júlíus Friðjónsson, Björn
Ilalldórsson og Ilrólfur Hjalta-
son með 2 vinn.
Meðalstig keppenda, sem eru 14
talsins, eru 2100. Tefldar verða 9
umferðir eftir Monrad, og er teflt
í Valsheimilinu v/Hlíðarenda á
þrlðjudögum kl. 20.
Bullaugnavatnsból
lagt niður?
Aðalskipulagið hefur síðan ver-
ið í umræðu í skipulagsnefnd og
búið að taka til umræðu alla þætti
þess utan tvo. Annað er Reykja-
víkurflugvöllur, hvort hann eigi að
vera eða fara. Og hitt eru vatns-
verndarsvæðin og vatnsbólin.
í athugasemdum borgarskipu-
lags er talið að ástæða kunni að
vera til þess að endurskoða mörk
vatnsverndarsvæðisins og leggja
niður vatnsbólin í Bullaugum. Með
því yrði hægt að taka undir byggð
norðurströnd Rauðavatns og
svæðið þaðan að golfvellinum ofan
við Grafarholt. En þar er líka
skoðanamunur við borgarverk-
fræðing, sem telur hæpið að borg-
in megi missa þetta 200 sekúndu-
lítra vantsþól í Bullaugum.
Miðstjórnarkjör Alþýðubandalagsins:
Benedikt Davíðsson
og Jón Kjartansson
atkvæðahæstir
BENEDIKT Davíðsson, Kópavogi,
fékk flest atkvæði í miðstjórn-
arkjöri á flokksráðsfundi Alþýðu-
bandajagsins um helgina, eða 131.
Jón Kjartansson, Vestmannaeyj-
um, fékk 130 atkvæði, Guðrún
Hallgrímsdóttir, Reykjavík, 127,
Guðmundur J. Guðmundsson,
Reykjavík, 122 og Ásmundur Stef-
ánsson, Reykjavík, 121 atkvæði.
Fram komu 123 atkvæðaseðlar, en
16 þeirra reyndust ógildir.
Áðrir, sem kosningu hlutu í
miðstjórn, eru Adda Bára Sigfús-
dóttir, Reykjavík, 117 akvæði,
Guðjón Jónsson, Reykjavík, 117,
Helgi Guðmundsson, Akureyri,
117, Ingólfur Ingólfsson,
Reykjavík, 114, Vilborg Harðar-
dóttir, Reykjavík, 114, Þorlákur
Kristinsson, Reykjavík, 113, Arth-
úr Morthens, Reykjavík, 112, Guð-
rún Ágústsdóttir, Reykjavík, 112,
Margrét Óskarsdóttir, ísafirði,
112, Svava Jakobsdóttir, Reykja-
vík, 112, Árni Bergmann, Reykja-
vík, 111, Bjarni Þórarinsson, Ár-
nessýslu, 111, Margrét Guðnadótt-
ir, Reykjavík, 111, María Krist-
jánsdóttir, Húsavík, 111,
Hólmfríður Guðmundsdóttir, Ak-
ureyri, 110, Guðmundur Þ. Jóns-
son, Reykjavík, 108, Jóhannes
Helgason, Árnessýslu, 106, Njörð-
ur P. Njarðvík, Seltjarnarnesi,
106, Snorri Jónsson, Reykjavík,
106, Sigurður Blöndal, Hafnar-
firði, 105, Svandís Skúladóttir,
Kópavogi, 105, Ásmundur Ás-
mundsson, Kópavogi, 104, Ester
Jónsdóttir, Reykjavík, 101, Grétar
Þorsteinsson, Reykjavík, 101,
Hjalti Kristgeirsson, Reykjavík,
100, Birna Bjarnadóttir, Garðabæ,
99, Elsa Kristjánsdóttir, Sand-
gerði, 99, Guðmundur J. Alberts-
son, Hellu, 99, Jóhann Geirdal,
Keflavík, 99, Alma Vestmann,
Keflavík, 98, Þorsteinn Þorsteins-
son, Höfn, 98, Jón Elíasson, Bol-
ungarvík, 96 og Sveinn Jónsson,
Egilsstöðum, 87.
Sjálfkjörnir sem aðalmenn
urðu:
Guðmundur M. Jónsson, Akra-
nesi, Ríkharð Brynjólfsson,
Hvanney, Jón Torfason, V-Hún.,
Sturla Þórðarson, Blönduósi.
Einnig eru stjórnarmenn Al-
þýðubandalagsins og ráðherrar
sjálfkjörnir í miðstjórnina, Lúðvík
Jósepsson, Kjartan Ólafsson, Guð-
rún Helgadóttir, Tryggvi Þór Að-
alsteinsson, Hjörleifur Gutt-
ormsson, Ragnar Arnalds og
Svavar Gestsson.
Varamenn voru kjörnir með
eftirfarandi atkvæðatölum í þess-
ari röð, (dregið hefur verið um röð
þar sem atkv. voru jöfn):
1. Einar Ögmundsson, Reykja-
vík, 92, 2. Steingrínur Sigfússon,
N-Þing., 92. 3. Karl Sigurbergsson,
Keflavík, 90, 4. Arnmundur Back-
man, Reykjaík, 89, 5. Lúðvík
Geirsson, Hafnarfirði, 89, 6. Gils
Guðmundsson, Reykjavík, 88, 7.
Úlfar Þormóðsson, Reykjvík, 88, 8.
Snorri Styrkársson, Reykjavík, 86,
9. Loftur Guttormsson, Reykjavík,
86, 10. Sigurjón Pétursson,
Reykjavík, 86, 11. Kristófer Svav-
arsson, Mosfellssveit, 85, 12. Atli
Árnason, Egilsstöðum, 81, 13.
Bragi Guðbrandsson, Reykjavík,
81, 14. Guðmundur F. Magnúss.,
Þingeyri, 80 og 15. Benedikt
Kristjánsson, Reykjavík 79.
Af þeim, sem áður sátu í
miðstjórn, voru átta ekki kjör-
gengir núna vegna reglunnar um
hámark þriggja kjörtímabila setu
í einu. Þau voru Eðvarð Sigurðs-
son, Ólafur Ragnar Grímsson,
Baldur Óskarsson, Bjarnfríður
Leósdóttir, Geir Gunnarsson,
Kristín Ólafsdóttir, Ólafur R. Ein-
arsson og Sigurður Magnússon.
Meðal þeirra, sem áður sátu í
miðstjórn, en náðu nú ekki kjöri í
hana, eru Arnmundur Backman,
Einar Karl Haraldsson, Einar
Ögmundsson, Haraldur Stein-
þórsson, Karl Sigurbergsson, Þór
Vigfússon og Þröstur Ólafsson.
Þeir Arnmundur, Einar Ög-
mundsson og Karl voru kjörnir
varamenn.