Morgunblaðið - 26.02.1980, Page 27

Morgunblaðið - 26.02.1980, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980 27 • Þessir tveir heiðursmenn, Guðmundur Þórarinsson, frjálsíþrótta- þjálfari ÍR-inga, (t.v.) og Guðmundur Harðarson sundþjálfari Ægis hlutu viðurkenningu fyrir mikið og gott starf innan íþróttahreyf- ingarinnar. Fram fékk íiæsta styrkinn í fyrri viku veitti íþróttaráð Reykjavíkur í fyrsta sinn styrki og viðurkenningar úr svokölluð- um styrktarsjóði ÍBR. Á síðast- liðnu ári hafði sjóður um fjórar milljónir króna til úthlutunar, en tekjur sjóðsins er viss prósent af auglýsingastarfsemi sem rekin er á íþróttavöllum borgarinnar. Eiríkur Tómasson formaður ráðsins hafði orð fyrir ráðinu og að úthlutunin væri vandasamt verk, en vonandi gæti hún farið fram árlega hér eftir. Það er mjög vel til fundið hjá íþróttaráði Reykjavíkur að veita slikar viðurkenningar og styrki til þeirra íþróttafélaga sem skara fram úr í hinum ýmsu iþrótta- greinum. Að þessu sinni voru eftirtöld- um félögum veittir peningastyrk- ir úr styrktarsjóðnum: Kr. 1. Knattspyrnufélagið Fram, v/ mfl. kv. í h.kn. 1.000.000 2. Knattspyrnufélagið Víkingur, v/ mfl. k. í h.kn. 500.000 • Enn ein viðurkenningin til handa Valbirni Þorlákssyni KR. Hann var kjörinn iþróttamaður Reykjavíkur árið 1979. Og var hann vel að henni komin. 3. Knattspyrnufélagið Valur, v/ mfl. k. í h.kn. 500.000 4. Knattspyrnufélag Reykjavíkur, v/ mfl.karla í k.kn. 500.000 5. Knattspyrnufélag Reykjavíkur, v/ Hreins H. 500.000 6. Glímufélagið Ármann, v/ Steinunnar Sæmundsd. ofl. skíðaf. 400.000 7. Glímufélagið Ármann, vegna Guðmundar Sigurðss., lyftingamanns 250.000 8. íþróttafélag Reykjavíkur, v/V fl. karla í knsp. 250.000 Verðlaunagrip hlaut Valbjörn Þorláksson fyrir glæsilegan íþróttaferil og frábæran árangur á HM-öldunga sl. ár. Verðlaunagrip fyrir iðkun al- mennings íþrótta hlutu: Frú Guðrún Laxdal fyrir iðkun sunds, Eysteinn Jónsson fv. ráð- herra fyrir iðkun skíða, Jónas Kristjánsson ritstjóri fyrir skokk, Lárus Blöndal Guðmundsson fyrir iðkun sunds. Verðlaunagripi fyrir langt og árangursríkt þjálfarastarf hlutu: Guðmundur Þórarinsson og Guðmundur Harðarson. þ.r. Stefnir í einvígi Vals og UMFN NJARÐVÍKINGAR gerðu á sunnudagskvöld endanlega út um vonir ÍR-inga um sigur í úrvals- deildinni í körfuknattleik. Leik liðanna, sem tram fór i Haga- skóla, lyktaði með tveggja stiga sigri Njarðvíkinga, 87—85, en staðan i hálfleik var 57—44, Njarðvíkingum í vil. Stefnir nú allt í einvígi Njarðvíkinga og Valsmanna um sigurinn í úrvals- deildinni. Lokatölur þessa leiks gefa raun- ar afar litla hugmynd um gang hans. Ef frá eru taldar fyrstu mínútur leiksins, höfðu Njarðvík- ingar talsverða yfirburði í leikn- um, eða allt þar til um þrjár mínútur voru til leiksloka. Fyrri hálfleik þessa leiks léku Njarðvík- ingar skínandi vel; í vörninni börðust þeir af miklum krafti og hittu prýðilega í sókninni, og réðu ÍR-ingar lítið við þá. Um miðjan hálfleikinn var staðan orðin 25— 17, Njarðvíkingum í hag og for- skot þeirra jókst, þegar leið nær lokum hálfleiksins, en staðan í hálfleik var, eins og áður segir 57—44 þeim í vil. ÍR-ingar skoruðu fyrstu 4 stig síðari hálfleiksins og bjuggust menn nú við að leikurinn myndi jafnast enn frekar. En sú varð ekki raunin, því Njarðvíkingar gáfu sig hvergi og höfðu um miðjan hálfleikinn náð um 20 stiga forystu. Var þá farið að hvíla máttarstólpana, en ÍR-ingar gengu á lagið og söxuðu á forskot- ið. Þegar um þrjár mínútur voru til leiksloka var staðan 85—81 fyrir UMFN. Sigmar Karlsson skoraði þá fyrir ÍR, en Guðsteinn svaraði strax fyrir Njarðvíkinga. Jón Jörundsson skoraðu úr tveim vítum fyrir IR, en í næstu sókn misstu Njarðvíkingar boltann og ff" 87:85 Kristinn Jörundsson reyndi körfu- skot á síðustu sekúndu leiksins og munaði minnstu að það rataði rétta leið í körfuna. Njarðvíkurliðið leikur skínandi körfubolta þessa dagana. Þjálfari þeirra, Ted Bee leikur nú eins og hann best gerir, en hann hefur átt fremur misjafna leiki í vetur. Guðsteinn Ingimarsson og Gunn- ar Þorvarðarson léku skínandi vel að þessu sinni og sömuleiðis Júlíus Valgeirsson, sem var mjög góður í fyrri hálfleik. Njarðvíkurliðíð er svo sannarlega lið framtíðarinnar, liðið er næstum alfarið skipað ungum leikmönnum og mörgum hverjum bráðefnilegum. Mark Christensen var bestur ÍR-inga að þessu sinni, en engu að síður hefur maður á tilfinning- unni, að hann eigi að geta nýst liðinu mun betur. Kristinn Jör- undsson og Jón bróðir hans voru báðir góðir. Jón mætti þó gjarnan láta af eilífu nöldri sínu við dómara, en það á raunar við um allt ÍR-liðið. Stigin fyrir ÍR: Mark Christen- sen 31, Kristinn Jörundsson 19, Jón Jörundsson 15, Stefán Krist- jánsson 7, Sigmar Karlsson 6, Kolbeinn Kristinsson 5, Jón Indr- iðason 2. Stigin fyrir UMFN: Ted Bee 26, Guðsteinn Ingimarsson og Gunn- ar Þorvarðarson 18 hvor, Júlíus Valgeirsson 15, Jónas Jóhannes- son 6, Jón V. Matthíasson og Valur Ingimundarson 2 hvor. Ágætir dómarar voru Jón Otti Ólafsson og Gísli Gíslason. GI Elnkunnag jttfln V....... ............... ‘ „___ ÍR: Guðmundur Guðmundsson 1, Jón Indriðason 1, Jón Jörundsson 3, Kolbeinn Kristinsson 2, Kristinn Jörundsson 3, Sigmar Karlsson 2, Sigurður Bjarnason 1, Stefán Kristjánsson 2. UMFN: Brynjar Sigmundsson 1, Guðsteinn Ingimarsson 3, Gunnar Þorvarðarson 3, Jónas Jóhannesson 2, Jón V. Matthiasson 2, Július Valgeirsson 3, Smári Traustason 1, Valur Ingimundarson 1. • Formaður Fram Hilmar Guðlaugsson tekur við 1.000.000 kr. styrk frá iþróttaráði Reykjavikur, vegna góðrar frammistöðu meistaraflokks kvenna i handknattleik. Það er Eiríkur Tómasson formaður ráðsins sem afhendir styrkinn. Til hægri við Hilmar eru Oddný Sigsteinsdóttir fyrirliði Mfl. kvenna, Birgir Lúðviksson formaður handknattleiksdeildarinnar og Guðjón Jónsson þjálfari stúlknanna sem hafa náð svo góðum árangri. Liðið mun hafa sigrað i 13 kappmótum siðustu ár. sagði óskar í samtali við Mbl. í gær. „Það var þó óhagstætt að kasta kringlu, þar sem vindurinn var í bakið, en það dregur frekar úr.“ Friðrik Þór óskarsson, sem stundar nám við sama skóla og óskar á við smá meiðsli að striða og keppti ekki á þessu móti. Það verður annars nóg að gera hjá þeim félögum á næstunni, því mót verða um svo til hverja helgi fram á sumar. — ágás. ÓSKAR Jakobsson frjálsíþrótta- maður úr ÍR náði ágætis árangri á sinu fyrsta frjálsiþróttamóti utanhúss. Varpaði Óskar kúlu 19,23 metra á frjálsiþróttamóti í Austin í Texas, en hann stundar háskólanám þar. og kringlunni 57,50 metra. Óskar sigraði í báðum greinum á mótinu. Bezti árangur óskars i kúluvarpi er 19,26 metrar og ljóst að hann á eftir að bæta verulega þann árangur. „Þetta er þolanleg byrjun,“ Maradonna maður ársins DIEGO Maradonna, argentinski landsliðsmaðurinn snjalli i knattspyrnu, var kjörinn maður ársins i Suður Ameriku með verulegum yfirburðum. Annar í röðinni var Victor Pecci, tenn- isstjarna frá Paraguay og þriðji var Teofilo Stevenson, hnefaleik- arinn frá Kúbu. Athygli vekur, j að þrir efstu menn eru allir ■ iþróttamenn. Góð byr jun hjá Oskari

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.