Morgunblaðið - 26.02.1980, Síða 31

Morgunblaðið - 26.02.1980, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980 31 Úrslit í tveimur fyrstu umferðunum: 1. umferð, laugardag: Browne — Sosonko Vr.'k 2. umferð, sunnudag: Margeir — Helmers 1:0 Margeir — Helgi 0:1 Haukur — Miles biðskák Jón L. — Vasjukov Vasjukov — Guðmundur biðskák Schussler — Torre xk\'k Torre — Jón L. Byrne — Kupreicik 0:1 Browne — Byrne 1:0 Guðmundur — Haukur 0:1 Sosonko — Helgi 1:0 Miles — Helmers 1:0 Kupreicik — Schussler ÞRIÐJA umferð Reykjavíkur- skákmótslns verður tefld i dag að Hótel Loítleiðum og hefst hún klukkan 17. í dag tefla saman: SchUssler — Browne. Jón L. Árnason — Kupeichik, Guðmundur Sigur- jónsson — Torre. Miles — Vasjukov, Margeir Pétursson — Haukur Angantýsson. Helgi ól- afsson — Helmers, Byrne — Sosonko. ,V //a Walter Browne einbeittur á svip- inn. Ilann ætlar sér greinilega að halda þræðinum frá Wijk aan Zee, þar sem hann bar sigur úr býtum. Elóa^ Nafn 0 4. 5 7. 9 ja n JL JL 14. Vinn. 2540 [ 1. W. Browne (Bandar.) 1 '4 2530 2. R. Byme (Bandar.) 0 P 0 2420 3. H. Schússler (Svíþjóö) m '4 '4 2435 4. Jón L. Árnason ■ '4 '4 2475 5. Guómundur Sigurjónsson m 0 2545 6. A. Miles (England) 1 2425 7. Margeir Pétursson m 0 1 2445 8. Helgi Ólafsson 1 ■ 0 2405 9. K. Helmers (Noregur) 0 m 2425 fO. Haukur Angantýsson 1 ■ 2545 11. E. Vasjukov (Sovétr.) !4 m 2520 12. E. Torre (Filippseyjeu’) 14 ■ 2535 13. V. Kupreilshik (Sovétr.) 2545 14. G. Sosonko (Hollandi) Vi 1 □ >_■ . i Sovétmaðurinn Kupreicik er nýtt nafn á Reykjavíkurskákmóti. Ilann heíur vakið at- hygli fyrir glæfralega taflmennsku. Áhorfendur mættu vera fleiri Reykjavíkurskákmótið fór vel af stað. Fjörugar skákir voru í báðum umferðunum og áhorfendur vel með á nótunum. Aðeins eitt skyggði á, áhorfendur voru færri en búist hafði verið við og það olli forráðamönnum mótsins áhyggjum. Mótshald sem þetta stendur og fellur með aðsókn- inni og ef skákáhugamenn taka ekki við sér og mæta kann svo að fara að fjárhagsútkom^n verði svo slæm að óvist verðium hvort fleiri Reykjavíkurmót verði haldin. Eðlilega veltu menn því fyrir sér á mótsstað um helgina hverjar væru ástæðurnar fyrir þessu. Töldu flestir líklegt að fjarvera Friðriks Ólafssonar forseta FIDE væri helsta ástæðan fyrir minni aðsókn en hann hefur verið með á öllum Reykjavíkurskákmótum frá upphafi og heillað áhorfendur með sínum skemmtilega skákstíl. En þótt hann geti nú ekki verið með vegna starfa sinna fyrir FIDE er engin ástæða fyrir skákáhuga- menn að sitja heima, því að þetta mót býður upp á margt skemmti- legt fyrir áhorfendur. Strax í 1. umferðinni gerðist óvæntur atburður. Haukur Ang- antýsson lagði stórmeistarann Guðmund Sigurjónsson að velli. Jón L. Árnason stóð sig mjög vel gegn stórmeistaranum Vasjukov og frammistaða hans yljaði áhorfendum. í 2. umferðinni komu ungu mennirnir enn á óvart, Margeir, hreinlega „pakkaði" Helmers saman og Haukur tefldi eins og herforingi gegn Miles. Jón L. Árnason gerði jafntefli við stórmeistarann Torre en Helgi tapaði slysalega fyrir Sosonko eftir að hafa teflt mjög vel framan af. Þá var allt annar bragur á Guðmundi en fyrri daginn og skák hans við Vasjukov var skemmti- leg. Browne var í miklu stuði og vann landa sinn Byrne sannfær- andi. Áhorfendur fylgdust með af áhuga, bæði í sjálfum skáksalnum, á göngunum þar sem stöðurnar eru sýndar á sjónvarpsskermum og loks í ráðstefnusalnum, þar sem skákirnar eru skýrðar og menn reyna að geta sér til um líklegt framhald skákanna. Það fylgir skákmótum sérstakt and- rúmsloft hlaðið spennu og eftir- væntingu og fólk verður ekki svikið af því að eyða dagstund á spennandi skákmóti. Og enda þótt Friðrik Ólafsson vanti nú eru margir skemmtilegir skákmenn meðal keppenda en fróðlegast verður að fylgjast með því hvernig ungu skákmennirnir okkar spjara sig á þessu móti. -SS. cxd5 — exd5, (Á þetta framhald hefur verið varpað nýju ljósi að undanförnu, en mun algengari leikur er hér þó enn 6. — Rxd5.) 7. Be2 (Framvinda skákarinnar svarare.t.v. bezt þeirri spurningu hvers vegna ungverski byrjanasérfræðingurinn og stórmeistarinn Ribli lék hér tvívegis 7. Bb5 í einvígi sínu við Adorjan í haust.) — Be7, 8. 0-0 — 0-0, 9. dxc5 - Bxc5, 10. b3 - a6, 11. Bb2 — Dd6, (Vogun vinnur, vogun tapar. Svartur býður upp á peð sem hvítur hefði áreiðanlega svarað bezt með því að þiggja: 12. Ra4 - Ba7, 13. Bxf6 - Dxf6, 14. Dxd5 — Bf5 og svartur hefur óvisst spil fyrir peðið.) 12. Hcl — Ba7,13. Hel? (Hvítur hefði hér betur leikið 13. Ra4 - Re4, 14. Rd4 - Re5, 15. Rf3 og svartur á ekkert betra framhald en að þráleika. Gallinn á hinum gerða leik er að hvítur veikir f2-reitinn, svo sem síðar á eftir að reynast honum dýrkeypt.) — He8, 14. Rbl (Hvítur hefur ekki tekist að komast niður á haldgóða áætlun, enda e.t.v. ekki lengur um slíkt að ræða.) - Re4, 15. Rbd2 - Dh6! (Kjarninn í áætlun svarts. Nú renn- ur skyndilega upp fyrir hvítum ljós: 16. Rfl er hægt að svara með 16. — Rxf2! 17. Kxf2 - Hxe3! Hann er því knúinn til þess að losa svart við staka peðið.) 16. Rxe4 — dxe4, 17. Rd2 Eftir 17. Rd4 - Hd8! hafa hlutverkin heldur betur snúist við, því að það blasir við hvítum að fá stakt peð á d4. 17. Re5? kom vitanlega ekki til greina vegna 17. — Bb8.) - Bf5, 18. Bc3 - Hac8, 19. Dc2? (Skárra var 19. Bg4, en hug- mynd hvíts var að gefa svörtum kost á framhaldinu 19. Dc2 — Rb4, 20. Db2 - Rd3, 21. Bxd3 - exd3, 22. Bd4. Svartur getur hins vegar not- fært sér leppun biskupsins á mun áhrifaríkari hátt:) - Rd4!, 20. exd4 (Eftir 20. Db2 - Rxe2+, 21. Hxe2 - Dg5, 22. Rfl — h5, hefur svartur öfluga sókn.) — Bxd4, 21. Bc4? (Eina von hvíts var að leika 21. Db2 — e3,22. Re4! en það er þó auðvitað engin furða að Helmers missti að þessu bráð- skemmtilega framhaldi þar sem hann átti aðeins fimm mínútur eftir. Svartur verður þá peði yfir eftir eftirfarandi leikjaröð: 22. — Hxc3!, 23. Hxc3 - exf3+, 24. Rxf2 - Df6,25. Hecl - Bc2!, 26. Hfl - Bg6! o.s.frv.) - Bxf2+!, 22. Khl - Bxel, 23. Hxel — b5, og ef hvítur víkur biskupnum eitthvað annað undan leikur svartur b5 — b4 og vinnur mann. Helgi Ólafsson tefldi byrjunina í skák sinni við hollenska stórmeist- arann Sosonko einstaklega vel, vann peð og virtist stefna hraðbyri til sigurs. En Helgi hafði eytt miklum tíma og í tímahraki voru honum illa mislagðar hendur. Hvitt: Sosonko (Hollandi) Svart: Helgi ólafsson Enski leikurinn I. d4 - e6, 2. g3 - c5, 3. RÍ3 - cxd4, 4. Rxd4 - d5, 5. Bg2 - Rf6, 6. c4 — e5, 7. Rb3 (Algengara er hér 7. Rf3, svo sem ' Sosonko lék t.d. sjálfur í skák við Miles árið 1977.) — d4, 8. e3 (Betra er hér að leika 8. 0-0 með þeirri hugmynd að svara 8. — a5!? með 9. f4! — a4,10. fxe5 — axb3, II. exf6 — Hxa2, 12. Hxa2 — bxa2, 13. Da4+ og hvítur stendur betur.) — a5!, 9. exd4 — a4, 10. Rc5 — exd4, 11. De2+ — De7, Valdar b-peðið óbeint. Ef 12. Rxb7 — Ha7 og riddarinn s sér ekki undankomu auðið.) 12. Re4 — Rxe4, 13. Bxe4? (Hvítur hefði hér betur sætt sig við að leika 13. Dxe4 með u.þ.b. jafnri stöðu, því eins og kemur fram í næstu leikjum hefur enginn efni á að vanmeta Helga Ólafsson.) — Ha6!, 14. Bd5 (Hvítur var hér svo hætt kominn að þetta var eina úrræði hans í stöðunni.) — Be6, 15. Ra3 - Bxd5, 16. cxd5 - Ha5!, 17. Bf4 - Dxe2+, 18. Kxe2 - Bxa3,19. bxa3 — Ra6 (Hvíta d-peðinu verður ekki lengur bjargað. Ef 16. d6 þá g5 og síðan Hd5.) 20. Kd3 — Hxd5, 21. Hhel+ - Kd7, 22. He5 - Kc6, 23. Hcl - Rc5, 24. Kc4 — b5?? (Hroðalegur fingurbrjótur í tímahraki. Ef svartur hefði leikið 24. — Hhd8 hefði hann áreiðanlega uppskorið réttlát laun erfiðis síns, því hann hefur einfaldlega sælu peði meira. Sorglegur endir á góðri skák af hálfu Helga.) 25. Kb4 - Hxe5, 26. Bxe5 — Kd5, 27. Hxc5+ — Ke4, 28. Bxg7 — Hd8, 29. Bh6 og svartur féll á tíma. Það vakti nokkra athygli áhorfenda að staðan hjá þeim Jóni L. Árnasyni og Torre var samloka fram í fjórtánda leik. Torre, sem hafði hvítt fann engan snöggan blett á Jóni, sem beið rólegur átekta. Um tíma voru jafnvel margir á þeirri skoðun að Torre hefði teygt sig fulllangt og Jón væri að ná undirtök- unum. Eftir 25. leik svarts, Jóns, Hc8-c4 kom upp þessi staða: Svo sem sjá má verður hvítur að hafa sig allan við að halda jafnvæg- inu: 26þ Rd4 — Hxal, 27. Hxal — Db6, 28. Hdl - Da7, 29. h3 - Da4, 30. Hbl Svartur hefur nú yfirráð yfir báðum opnu línunum á borðinu. Það kom því mörgum áhorfendum á óvart að Jón skyldi þvinga fram jafntefli. 30. — Da7, 31. Hdl — Da4, 32. Hbl — Da7. Jafntefli. Þeir Kupreitschik og Schussler tefldu athyglisverða skák. Svíinn beitti hinni svonefndu Rússnesku vörn, sem einnig hefur verið kennd við Petrov, en sú byrjun þykir vænleg ef svartur hyggst tefla til jafnteflis. Skákáhugamönnum skal ráðlagt að fylgjast vel með skákum Kupreitschiks, þar er alltaf eitthvað að gerast og það má jafnvel setja það fram sem reglu um skákir hans að þegar hann fórnar ekki einhverju sjálfur, hirðir hann lið, þar sem flestir aðrir myndu láta kyrrt liggja. Hið síðarnefiida varð einmitt uppi á teningnum í skák þeirra Schösslers, en allir vita hvernig fór fyrir vesalings Byrne er hann tefldi við Rússann í fyrstu umferð. Svart: Schilssler (Svlþjóð) Hvltt: Kupreitschik (Sovétríkj.) 13. Bxb7 - Hb8, 14. Bb5 - c5 (Svartur opnar leið fyrir drottningu sína ut á vígvöllinn. Fáum leist nú satt að segja á hvítu stöðuna, enda verður hvítur að leggjast í nauðvörn og veikja poeðastöðuna á drottn- ingarvæng.) 15. b3 — Da5, 16. Kb2 — c4, 17. Bg5! (Jafnvel meistarar í flækjum verða stundum að láta sér lynda að létta á stöðunni með uppskiptum.) — Bxg5, 18. Dxg5 — cxb3,19. cxb3 — Rc4+ (Fagurfræði- lega séð ákaflega skemmtilegur leik- ur. Riddarinn skákar í skjóli þess að bæði kóngur og drottning hvíts eru í hættu.) 20.Kbl. Jafntefli, því að þráskák blasir við eftir 20. — Ra3+. Eftir 20. - Dxc3, 21. Bxc4 - Dxc4, 22. Dd5 nær hvítur hins vegar betra endatafli. Landarnir Browne og Byrne bár- ust á banaspjótum á sunnudaginn og hafði sá fyrrnefndi betur. Browne tefldi stíft upp á sókn, tókst að opna línuna. Ekki var að sökum að spyrja, skyndilega stóðu öll spjót á Byrne: Svart: Byrne (Bandaríkjunum) Hvitt: Browne (Bandaríkjunum) 33. — Hee7 gengur nú ekki vgna 34. f6 og 33. — g6 yrði einfaldlega svarað með 34. fxg6 — Rxg6, 35. Hxg6! o.s.frv. Svartur gafst því upp á að valda g7 reitinn og reyndi: 33. — Dxf5, 34. Rxg7. Öryggið situr ávallt í fyrirrúmi hjá Browne. Nokkrar deilur risu upp á meðal áhorfenda um hvor vinningsleiðin væri betri, sú er Browne fór eða 34. Hxg7 — Rg6, 35. Rg3 sem vinnur einnig skiptamun. — Df2, 35. Rf5 — Dxg2, 36. H3xg2 - Rg6, 37. Rd6 og svartur gafst upp, því hann verður óbættum skiptamun undir. Guðmundar Sigurjónssonar beið það erfiða hlutverk á sunnudaginn að mæta Vasjukov með svörtu. Guðmundur, sem beitti Schevening- en afbrigðinu í Silikeyjarvörn var fyrst um sinn í vörn, en tókst síðan að rétta úr kútnum, svo vel að á tímabili voru vinningshorfur hans mjög góðar. í tímaþröng gætti Guð- mundur þess hins vegar ekki að bíða átekta eftir því að skákin færi í bið, fórnaði peði og virðist staðan nú alljafnteflisleg, en biðstaðan er þannig: Svart: Guðmundur Sigurjónsson Hvitt: Vasjukov (Sovétrikjunum)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.