Morgunblaðið - 26.02.1980, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980
Veður
víða um heim
Akureyri 5 skýjaó
Amsterdam 10 skýjað
Aþena 5 mistur
Barcelona 14 þokumóða
Berlín 3 léttakýjaó
BrUssel 12 úrkoma
Chicago 3 akýjaó
Feneyjar 11 þokumóóa
Frankfurt 11 heióakírt
Genf 7 mistur
Helsínki -2 skýjaö
Jerúsalem 9 akýjaö
Jóhannesarb. 23 heiðskirt
Kaupmannahöfn -1 skýjaó
Laa Palmas 19 hólfskýjaó
Lissabon 19 heiðskírt
London 8 skýjaó
Loa Angelea 26 skýjaó
Madrid 16 skýjaó
Malaga 18 lóttskýjaó
Mallorca 16 úrkoma
Miami 28 skýjaó
Moakva -4 snjókoma
New York 10 skýjað
Oaió -2 léttakýjað
Paría 7 skýjað
Reykjavík 3 þrumuveóur
Rio de Janeiro 35 heióakirt
Rómaborg 13 heióakírt
Stokkhólmur 0 skýjaó
Tel Aviv 15 skýjað
Tókýó 12 heióskirt
Vancouver 14 heióskírt
Vínarborg 4 heióskírt
Nyerere sakar
Breta um svik
KOSNINGAHATTUR — Frú Maggie Muzorewa setur nýjan kosninga-
hatt á mann sinn, Abel Muzorewa biskup. Skorað er á kjósendur að
kjósa flokk Muzorewa, UANC. Hvitir og svartir lífverðir eru við öllu
búnir.
Hermenn í hjálparstarfi
Dar Es Salaam, 25. febrúar. AP.
JULIUS Nyerere Tanzaníuforseti
sakaði i dag Breta um að hafa á
prjónunum áform um að falsa
úrslit rhódesisku kosninganna og
ginna samveldislöndin, Afríkuríki
og skæruliðaleiðtoga Föðurlands-
fylkingarinnar til að halda að
kosningarnar fari heiðarlega fram
í samræmi við friðarsamninginn
sem var gerður i London.
Nyerere hefur aldrei áður veitzt
eins harkalega og reiðilega að Bret-
um. Hann sagði fréttamönnum að
Bretar lygju, að þeir væru gersam-
lega óheiðarlegir og algerlega svikul-
ir. „Þeir vænta þess að Föðurlands-
fylkingin standi við ákvæði sam-
komulagsins, en gera það ekki sjálf-
ir,“ sagði hann.
„Ef Bretar misbeita valdi sínu,
höldum við áfram bardögum," sagði
Nyerere.
Jafnframt sagði skæruliðaleiðtog-
inn Robert Mugabe, sem almennt er
talið að fái flest þingsæti í kosning-
unum að flokkur hans, ZANU (PF)
mundi bjóða skæruliðaleiðtoganum
Joshua Nkomo að mynda sam-
steypustjórn.
París, 25. febráar. AP.
UM 30 grímuklæddir menn gerðu
leifturárás á aðalskrifstofu sov-
ézka flugfélagsins Aeroflot rétt við
nefið á lögregluverði i gær og unnu
mikið tjón.
Árásarmennirnir voru ungir
menn með klúta fyrir andlitinu.
Árásin var vel skipulögð og stóð
innan við tvær mínútur. Einn
Hann varaði hvíta minnihlutann
við því að gera byltingu til þess að
kollvarpa nýrri ríkisstjórn.
Sprengja sprakk í skrifstofum
blaðs sem fylgir skæruliðum að
málum í gærmorgun og að minnsta
kosti tveir menn biðu bana.
Leiðtogar fimm ríkja sem liggja
að Rhódesíu, svokallaðra fram-
línuríkja, koma saman til fundar í
Dar Es Salaam á morgun, einum
degi áður en kosningarnar í Rhó-
desíu hefjast til að ræða ráðstafanir
sem verður að gera ef í ljós kemur að
kosningarnar verða ekki frjálsar og
heiðarlegar að sögn útvarpsins í
Tanzaníu.
Kalifornía:
New York, 25. febrúar — AP.
HERMENN vinna nú að því að
hreinsa frá fallstokka, sem ekki
hafa verið notaðir i yfir hálfa öld,
við Elsinorvatn i Kaliforniu.
lögreglumaður var á verði og hafði
ekki talstöð.
Árásarmennirnir brutu rúður í
sýningarglugga Aeroflots, eyðilögðu
húsgögn og tölvutæki, máluðu staf-
ina Com á glugga, fleygðu eld-
sprengjum á brakið og hlupu á
brott. Slökkvilið kæfði eldinn áður
en hann breiddist út.
Vatn flæddi yfir alla bakka og
eyðilagði vatnsflaumurinn yfir
70 heimili. Embættismenn sögðu,
að ef ekki tækist að draga úr
flóðinu væri Elsinorþorp, en
Enginn hefur verið handtekinn og
enginn lýst sig ábyrgan. Starfs-
maður Áeroflots, Yuri Solomov,
kannaði skemmdirnar og gagnrýndi
Parísar-lögregluna fyrir að hafa
ekki öflugri vörð við skrifstofuna.
„Dregið hefur verið úr lögreglu-
vernd með undarlegum hætti und-
anfarna viku,“ sagði hann án þess
að útskýra orð sín nánar.
íbúar þess eru um 6 þúsund, i
hættu. Vatnið hækkaði um hálfan
þriðja sentimetra á klukkustund.
Þorpið er um 100 kílómetra
suðaustur af Los Angeles.
Tjón í óveðrunum, sem gengið
hafa yfir vesturfylki Bandaríkj-
anna síðustu níu daga, er metið á
yfir 500 milljón dollara. Mexi-
könsk stjórnvöld tilkynntu í dag,
að níu manns hefðu beðið bana í
flóðunum og 20 þúsund manns
hefðu misst heimili sín. Rign-
ingarnar hafa valdið miklum sam-
göngutruflunum. Að minnsta
kosti 36 manns hafa farist í
flóðunum. Síðustu níu daga hefur
úrkoma í Los Angeles mælst 32
sentimetrar. Veðurfræðingar
spáðu að stytta mundi upp á
morgun, þriðjudag.
Arás á Aeroflot í París
Prófkjör í New Hampshire í dag:
Margir kallaðir
en fáir útvaldir
Frá Önnu Bjarnadóttur, fróttaritara
Mbl. i Bandarikjunum. — 25. febrúar.
Fyrstu forkosningarnar í
Bandaríkjunum fara fram á
morgun, þrtðjudag. Þær geta
reynst afdrifarikar og það er
ekki hlaupið að þvi að verða
forseti Bandaríkjanna. Á næstu
þremur mánuðum verða for-
kosningar haldnar í hverju
ríkinu á fætur öðru og fulltrúar
valdir á þing stjórnmálaflokk-
anna tveggja, demókrataflokks-
ins og repúblikanaflokksins.
Þeir Jimmy Carter, Jerry
Brown og Edward Kennedy
bítast um útnefningu Demó-
krataflokksins, en tíu að
minnsta kosti hafa lýst áhuga á
að hljóta útnefningu repúblik-
ana. Þeim Georg Bush, Ronald
Reagan, Howard Baker, John
Connolly og John Anderson
hefur gegnið bezt til þessa. Enn
er langur tími til stefnu og alls
óvíst hver verður útnefndur
frambjóðandi repúblikana en
hins vegar virðist Jimmy Cart-
er, núverandi forseti, hafa alla
möguleika á að hljóta útnefn-
ingu demókrata.
Fyrsta prófkjörið fer frám í
New Hampshire en í kjölfarið
verða prófkjör í Massachusetts
og Vermont. Kosningarnar í
New Hampshire hafa ávallt vak-
ið mikla athygli en síðan 1952
hefur enginn verið kjörinn for-
seti Bandaríkjanna, sem hefur
beðið lægri hlut í forkosningum
þar. Þó er íangt frá því, að New
Hampshire sé þverskurður af
þjóðlífi Bandaríkjanna.
Athyglin beinist að
fyrstu prófkjörunum
Það er hverjum frambjóðanda,
sem virkilega hyggur á að kom-
ast í forsetaembættið, mikilvægt
að hljóta góða kosningu í New
Hampshire. Ástæðan er að at-
hyglin beinist mjög að kosning-
um í fylkinu og sigurvegarinn
kemst á forsíður allra helstu
blaða í Bandaríkjunum. Lítill
hluti fulltrúanna á flokksþing-
unum kemur frá ríkjunum, sem
ríða á vaðið með forkosningar. í
byrjun er mikilvægast að sýna
fram á meðbyr og nú, sem í
síðustu forsetakosningum er
prófkjörinu í New Hampshire
sýndur mikill áhugi.
Þó ber ekki að draga úr gildi
kosninganna í Iowa, sem haldn-
ar voru í janúar. Þar veljast
fulltrúar ekki á þing eftir niður-
stöðum kosninganna, en hins
vegar þykja niðurstöðurnar gefa
vísbendingu um vinsældir fram-
bjóðenda.
Carter fyrst veitt atíiygli
eftir sigurinn í Iowa 1976
Jimmy Carter var fyrst veitt
athygli eftir sigur sinn í kosn-
Edward Jimmy
Kennedy Carter
ingum í Iowa árið 1976, og
raunar má segja hið sama um
George Bush, repúblikana. Hann
notar svo til alveg sömu fram-
boðstækni og Carter gerði í
síðustu kosningum, og reyndist
honum svo heilladrjúg. Báðir
eyddu þeir miklur tíma og kröft-
um í Iowa og unnu prófkosn-
ingarnar. Þeir komust báðir til
baráttunnar svo til óþekktir en
sem sigurvegarar komust þeir á
forsíður dagblaðanna og í kvöld-
fréttir sjónvarpsstöðvanna. Þar
liggur lykillinn að velgengni í
stjórnmálum Bandaríkjanna.
Prófkjörið í New Hampshire
er fyrst og fremst prófsteinn á
skipulag kosningabaráttu fram-
bjóðendanna og persónulegt
fylgi þeirra. Segja má með sanni,
að þau mál sem frambjóðendur
setja á oddinn séu ekki eins
mikilvæg. í New Hampshire
koma fram misbrestir á skipu-
lagi baráttunnar og í ljósi þeirra
er hægt að gera breytingar. Þá
er einnig mikilvægt að hljóta
góða útkomu í New Hampshire í
ljósi þess, að eftir úrslitin þar þá
láta menn fé renna til kosn-
ingasjóða þeirra, sem líklegir
Jerry Georae
Brown 1 Bu«h
eru til að ná kjöri í Hvíta húsið.
Samkvæmt kosningareglum
eiga prófkjör ékki að hefjast fyrr
en fyrsta sunnudag í marz. New
Hampshire fékk undanþágu frá
þeirri reglu, svo að staða þess í
kosningabaráttunni breyttist
ekki. Sem fyrsta ríkið til að
halda forkosningar fær New
Hampshire geysilega auglýsingu
og milljónir dollara í tekjur.
Frambjóðendur eyða ótrúlegum
upphæðum í að auglýsa sjálfa
sig og skari fréttamanna fylgist
með hverju fótspori þeirra í
ríkinu í langan tíma fyrir kjör-
dag og ekki dregur það úr
tekjum.
íbúar New Hampshire
íhaldssamir
En New Hampshire er fjarri
því að vera algildur mælikvarði
á skoðanir bandarísku þjóðar-
innar. Ríkið er lítið og yfir 99%
íbúanna eru hvítir. Það er eitt af
fáum ríkjum Bandaríkjanna sem
hefur hvorki tekju- né söluskatt
og eina ríkið í Nýja Englandi,
sem hefur notið hagvaxtar og
fjölgunar undanfarin ár.
The Union leader, sem er
afskaplega íhaldssamt blað og
að margra dómi afar óábyrgt er
eina dagblaðið, sem hefur út-
breiðslu yfir allt ríkið. íbúar
New Hampshire eru íhaldssamir
og hafa verið það um langan
aldur. Frjálslyndir repúblikanar
eiga þó yfirleitt meira fylgi að
fagna en íhaldssamir en hins
vegar gengur íhaldssömum
deókrötum yfirleitt betur en
frjálslyndum.
John Ronald
Connolly Reagan
Bush vinsælastur
í skoÖanakönnunum
Því er spáð að úrslit kosn-
inganna á morgun eigi eftir að
skýra línurnar milli frambjóð-
enda og að þegar þau liggi fyrir
muni einhverjir frambjóðenda
draga sig til baka. Skoðanakann-
anir benda til þess að Bush hljóti
flest atkvæði repúblikana en að
Ronald Reagan fylgi honum fast
eftir. Síðan komi Howard Baker
og þá þeir John Connolly og John
Anderson. Howard Baker leggur
mikla áherzlu á að baráttan
standi milli sín, Bush og Reagan
en Connolly leggur áherzlu á að
standa sig vel í Suðurríkjunum.
Anderson er þeirra frjálslynd-
astur og hefur fengið góðan
hljómgrunn meðal mennta-
manna.
Carter hefur yfirburða-
forustu á Kennedy
Skoðanakannanir hafa gefið
vísbendingu um, að Jimmy Cart-
er njóti mun meira fylgis en
Edward Kennedy og að Brown
eigi nánast enga möguleika.
Carter vann þá báða næsta
auðveldlega í Iowa en Kennedy
dró verulega á hann í prófkosn-
ingunum í Maine fyrr í þessum
mánuði. Ástandið í utanríkis-
málum hefur mjög styrkt stöðu
Jimmy Carters og í raun lagt
grunn að góðu gengi hans hingað
til því hann hefur haft yfirburði
yfir mótframbjóðendur sína.
Fólk virðist hafa gleymt verð-
bólgu og atvinnuleysi, að
minnsta kosti um stundarsakir,
og þetta hefur gert Kennedy
erfitt fyrir. Góð úrslit í New
Hampshire eru Kennedy ákaf-
lega mikilvæg og yrðu grunnur
að betra gengi í storu ríkjunum,
en prófkjör hefjast í þeim um
miðjan marz. Þar nýtur Kenne-
dy stuðnings ýmissa minnihluta-
hópa og verkalýðsfélaga sem
láta sig efnahagsástandið miklu
skipta.