Morgunblaðið - 26.02.1980, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980
47
Uppsagnir hjá
British Leyland
London. 2">. íebrúar. AI*.
LEYLAND-bílaverksmiðjurnar hófu í dajf að sejíja upp starfsmönnum
samkvæmt áætlun um að minnka miklar bir»;ðir af óseldum eða nær
fulljterðum bílum fyrirtækisins.
Hlutur fyrirtækisins í markaðnum minnkaði i 15“3r í síðasta mánuði og
það hefur hafið mikla herferð tii að hvetja fólk að kaupa brezka
framleiðslu en ekki erlenda bila.
Fyrirtækið se«ir. að 21.000 aí 150.000 starfsmönnum þess verði sagt upp
fram í marzlok. þesar vonir standa til að hlutur þess í markaðnum verði
aftur 20%. en vinnutími hluta þessara starfsmanna verður stvttur.
í síðustu viku komst British Le.v-
land hjá verkfalli þeftar 17.000
starfsmenn Longbridne-verksmiðj-
unnar neituðu að legsya niður vinnu
til stuðniníts trúnaðarmanni sem var
rekinn. Starfsmenn fyrirtækisins
hafa þegar samþykkt áætlun um
varanlegan niðurskurð sem leiðir til
þess að 25.000 missa atvinnuna síðar
í ár.
Félagið telur að um 80.000 bifreið-
ar þess af fjerðunum Marina, Maxi,
Dolomite, Princess oj; Rover séu
óseldar eða nánast fulljíerðar. Þetta
eru birgðir til 16 vikna, en 10 vikna
birgðir eru taldar eðlilegar.
Jafnframt hófu 3.000 starfsmenn
tveggja af stærstu stálfyrirtækjum
Breta í einkaeign aftur vinnu í dag.
Þeir samþykktu um helgina að
hætta þátttöku í stálverkfallinu þótt
fast væri lagt að þeim að halda
áfram.
Þetta er talið meiriháttar áfall
fyrir verkfallsmenn sem eru aðal-
lega starfsmenn ríkisfyrirtækisins
British Steel. Vaxandi óánægju gæt-
ir með verkfallið hjá 15.000 starfs-
mönnum óháðra stálfélaga. Ekkert
bendir enn til þess, að verkfallinu,
sem hefur staðið í 54 daga, verði
aflýst.
Verkalýðssambandið TUC hefur
boðað eins dags allsherjarverkfall
14. maí til þess að mótmæla stefnu
Margaret Thateher forsætisráð-
herra og stjórnar hennar.
Frú Thatcher hóf í dag baráttu
fyrir því að sameina flokk sinn og
kannski þjóðina og sat fyrir svörum
í sjónvarpi um stefnu sína. Ihalds-
flokkurinn hóf mikla áróðurs-
spjaldaherferð og fól starfsmönnum
sínum að fylkja saman stuðnings-
mönnum flokksins.
Nýi erkibiskupinn af Kantaraborg, Robert Runcie, sver embættiseið sinn í St. Paulsdómkirkjunni í London
i gær. Runcie er 102. erkibiskupinn i röðinni. Hann er 58 ára gamall. Er hann gegndi herþjónustu i brezka
hernum, stjórnaði hann skriðdreka. simamynd - ap.
Varaforseti Afgana
lézt eftir skotbaraaga
Sendiherra Egypta i ísrael, Saad Murtada (t.v.), og sendiherra ísraels i
Egyptalandi, Ben-Elissar (lengst til hægri), hittust fyrir tilviljun á Ben
Gurion-flugvelli i Tel Aviv á sunnudag er báðir voru á leið til að taka við
hinum nýju embættum. Stmamynd - AP.
Sendiherra ísraels gagn-
rýndur fyrir harðlínustefnu
Kairó, 25. febrúar. AP.
SENDIHERRA ísraels í Kairó var
í dag harðlega gagnrýndur í eg-
ypsku timariti fyrir harðlínu-
stefnu i landnámsmálum ísraels-
búa á vesturbakka Jórdanár.
Sendiherrann, Ben Elissar, á að
afhenda Anwar Sadat, forseta Eg-
yptalands, trúnaðarbréf sitt á
morgun. Ben Elissar gagnrýndi
Bandaríkjamenn og Egypta harð-
lega í síðustu viku fyrir það sem
hann kallaði afskipti af ísraelskum
innanlandsmálum.
Ben Elissar kom til Kairó í gær
og einmitt þá lauk viðræðum að-
stoðarvarnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, David McGiffert, við
Kamal Hassan, varnarmálaráð-
herra Egypta, um hergagnasölu
Bandaríkjamanna til ísraels.
Nýju-Delhi, 25. febrúar. AP.
SOVÉZKIR hermenn lokuðu helm-
ingi Kabul um helgina til að vernda
sovézka sendiráðið og rússneskt
ibúðasvæði eftir samfelldar götu-
óeirðir samkvæmt fréttum sem bár-
ust til Nýju-Delhi á sunnudag.
Afganskar heimildir í Nýju-Delhi
herma, að Sultan AIi Kishtmand
varaforseti — hafi særzt í skotbar-
daga 7. febrúar og látizt eftir
misheppnaða læknismeðferð í
Moskvu.
Stjórnin í Kabul hefur ekki
staðfest lát Kishtmand sem var
talinn eindreginn stuðningsmaður
Babrak Karmals forseta, en af-
gönsk blöð sögðu frá þvi á sinum
tima, að hann hefði farið til Sov-
étrikjanna vegna sjúkdóms sem var
ekki nafngreindur.
Vestur-evrópskir diplómatar í
Kabul heyrðu skothríðina og sögðu
að talið væri að Kishtmand hefði
verið skotinn í höfuðið í Alþýðuhús-
inu, aðsetri ríkisstjórnarinnar. Af-
gönsku heimildirnar í Delhi herma
að yngri bróðir Karmals forseta og
fulltrúi í miðstjórn flokksins, Ma-
hmud Baryalay, hefðu einnig særzt
banvænu sári.
Fréttir um helgina hermdu að
hundruð hefðu beðið bana og þús-
undir særzt í óeirðunum sem hófust
á fimmtudag. Sovézku hermennirnir
skiptu Kabul í tvennt með því að
Sonur Stalíns lézt í
þýzkum fangabúðum
l.ondon. 25. fcbrúar. AP.
BREZKA blaðið Sunday Timrs birti í gær frásögn sjónarvotts af dauða sonar Stalíns. Jakov. í þýskum
fangabúðum í heimsstyrjöldinni.
Blaðið hafði viðtal við fyrrverandi brezkan liðþjálfa. Thomas Cushing, sem var með syni einraíðisherrans í
fangabúðunum í Sachsenhausen skammt frá Berlín og kveðst hafa séð hann deyja þar 14. apríl 1943.
Jakov var sagður eftirlætisbarn
Stalíns. Hann var lautinant í
Rauða hernum, en gafst upp í
Smolensk 1941 og óhlýðnaðist þar
með skipun föður síns um að
berjast til síðasta manns. Aðeins
helmingur þeirra 200.000 sovézku
fanga, sem voru í Sachsenhausen,
héldu lífi, en Jakov var hafður í
sérstökum skála ásamt öðrum
föngum, sem Þjóðverjar töldu að
þeir gætu notað fyrir peð í samn-
ingum.
Jakov var í herbergi með Vasili
Kokorin, frænda Molotovs þáver-
andi utanríkisráðherra. Cushing
var einn á lífi fjögurra brezkra
fanga sem voru í öðru herbergi í
sama kofa.
Sunday Times hafði upp á Cush-
ing í County Cork á írlandi. Hann
minntist þess að Bretarnir hefðu
sakað Rússana um að reyna að
koma sér í mjúkinn hjá vörðunum,
en Rússarnir sökuðu Bretana um
hugleysi. Hinn örlagaríka dag 1943
sökuðu Bretarnir Rússana um að
óhreinka salerni.
Cushing segist hafa setið við
glugga og séð hvernig Jakov virtist
ganga berserksgang þegar honum
hafði verið meinað að ræða við
yfirmann fangabúðanna sem hann
ætlaði að kvarta við. „Síðan hljóp
hann beint á gaddavírinn. Þá kom
ge.vsistór blossi og kveikt var á
öllum leitarljósum. Ég vissi að það
var úti um hann.“
Sunday Times hafði upp á Cush-
ing eftir athugun á nýbirtum
brezkum stjórnarskjölum þar sem
meðal annars er að finna skýrslu
eftir SS-liðsforingjann Konrad
Harfich sem var á verði við
gaddavírsgirðinguna. Harfich seg-
ir að Jakov hafi þrifið í raf-
magnsvírana og hrópað og beðið
sig að skjóta hann. Harfich skaut
hann til bana með einni kúlu í
höfuðið.
Blaðið kemst að þeirri niður-
stöðu að „áflog fanganna, sem
fylgdu í kjölfar stöðugra þrætu-
mála, rifrildis og ásakana, hafi að
lokum bugað anda manns, sem var
andlega þjakaður fyrir vegna þess
að tilfinningar hans um hollustu
sína, uppruna sinn og framtíð voru
í uppnámi.“
Nefnd Breta og Bandaríkja-
manna, sem rannsakaði þýzk
skjalasöfn í Berlín í júlí 1945
komst að hinu sanna í málinu að
sögn blaðsins. En brezka og banda-
ríska utanríkisráðuneytið ákváðu
að halda þessu leyndu fyrir Stalín,
því að „það hefði verið óviðfelldið
að beina athyglinni að rifrildi því
sem var milli Breta og Rússa áður
en sonur hans lézt“ eins og brezkur
embættismaður, Michael Vyvyan,
komst að orði.
loka brúnum yfir Kabul-fljót sem
rennur gegnum höfuðborgina. Þar
með eykst öryggi sovézka sendiráðs-
ins, nýtízku húsasamstæðu þar sem
margir Rússar búa, virkisins Bala
Hissar sem er hernaðarlega mikil-
vægt og gamla markaðshverfisins.
Samkvæmt einni fréttinni frá
Kabul lýsti stjórn Kartnals forseta
yfir sérstökum hátíðisdegi á laugar-
dag. Talið er að það hafi verið gert
til að breiða yfir fjarvistir margra
ríkisstarfsmanna á þriðja degi alls-
herjarverkfallsins.
Uppreisnarmenn í Pakistan sögðu,
að skæruliðar hefðu fellt 150 af-
ganska hermenn og skemmt fimm
skriðdreka í nýlegum átökum í
austurfylkinu Nagahar, en 12 hefðu
fallið í liði uppreisnarmanna. Einnig
Syfjuðum
vísað á dyr
Readinic. 36. febrúar. AP.
ÞEIR sem sofa i bókasöfnum I
Berkshire i Englandi verður
framvegis vísað á dyr.
Að vísu fá þeir eina viðvörun
en komi aftur fyrir að þeir
sofni verða þeir reknir út auk
þess sem þeir fá 20 punda sekt.
Astæðan fyrir þessum óvenju-
legu aðgerðum, er, að mikið
hefur verið kvartað undan
fólki, sem sefur á bókasöfnum
og hrýtur í þokkabót!
var sagt að þrír skriðdrekar hefðu
verið eyðilagðir í Paktia-héraði.
Pakistanskur embættismaður
sagði að 24 afganskir liðsforingjar
og tveir fyrrverandi þingmenn hefðu
flúið land. Foringi þeirra er sagður
Ahmad Jan Masood hershöfðingi.
Diplómatar í Islamabad segja að
lík Kishtmands varaforseta hafi
verið flutt til Kabul frá Moskvu á
fimmtudag, en ekki er hægt að
staðfesta fréttina. Samkvæmt einni
frétt var Bariyarai einnig fluttur til
Moskvu. Sagt er samkvæmt þessari
frétt að Bariyarai sé einnig látinn og
að lík hans hafi verið flutt til Kabul
á fimmtudag ásamt líki Kishtmands.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um var Kishtmand skotinn þegar
deila kom upp um hugmyndir um að
breyta rauðum fána Afganistans
sem múhameðstrúarmenn eru mjög
andvígir. Karmal og stuðningsmenn
hans voru andvígir rauða fánanum
þegar hann var tekinn upp skömmu
eftir byltinguna 1978 sem kom
fyrstu Rússahollu stjórninni af
þremur til valda.
Kishtmand var þá skipulagsráð-
herra, en leynilögreglan handtók
hann í ágúst 1978 þegar Parcham-
armurinn var hreinsaður. Hann var
látinn laus eftir byltinguna um
jólahátíðina. Sumir telja að atburð-
urinn 7. febrúar hafi staðið í sam-
bandi við deilur milli Parcham- og
Khalq-armsins.
Götur Kabul voru auðar í gær á
fjórða degi verkfallsins og flestar
verzlanir voru lokaðar samkvæmt
erlendum fréttum, en Tass-frétta-
stofan hélt hinu gagnstæða fram.
Þetta gerðist 26. feb.
1979 — Bandarískir ráðherrar
segja Bandaríkin reiðubúin að
beita hervaldi til að tryggja olíu-
flutninga frá Miðausturlöndum.
1976 — Herforingjar og stjórn-
málaleiðtogar í Portúgal semja um
endalok herforingjastjórnar og
endurreisn lýðræðis.
1962 — Suður-víetnamskir flug-
menn gera loftárás á höll Ngo
Dinh Diem forseta.
1952 — Winston Churehill til-
kynnir að Bretar hafi smíðað
kjarnorkusprengju.
1936 — Koki Hirota ste.vpt i
herbyltingu í Japan.
1921 — Rússar undirrita samn-
inga við Persa.
1909 — T.vrkir viðurkenna innlim-
un Bosníu í Austurríki.
1871 — Bráðabirgðafriður Frakka
og Þjóðverja í Versölum.
1848 — Lýst yfir stofnun Annars
franska lýðveldisins.
1832 — Nikutás I Rússakeisari
afnemur stjórnarskrá Póllands.
1828 — Dom Miguel verður ríkis-
stjóri í Portúgal.
1815 — Napoleon fiýr frá Elbu.
1623 — Fjöldamorð Hollendinga á
enskum kaupmönnum í Amboyna
(Indónesiu).
1531 — Tugir þúsunda fórust í
jarðskjálfta í Lissabon.
1266 — Orrustan um Benevento, d.
Manfred Sikileyjarkonungur.
493 — Uppgjöf Ravenna fyrir
Austur-Gotum.
Afmæli. — Victor Hugo, franskur
rithöfundur (1802—1885) = „Buff-
alo Bill“ (William F. Cody), banda-
rískur frumherji (1846—1917) =
Jaekie Gleason, bandarískur gam-
anleikari (1916—) = Honore Daum-
ier, franskur listmálari (1808—
1879).
Andlát. — 1154 Roger II Sikileyj-
arkonungur = 1723 Sir Christopher
Wren, arkitekt.
Innlent — 1944 Sambandsslit við
Dani samþykkt á Alþingi = 1872
Póstþjónustu breytt í nútímaátt =
1930 „Stóra bomban“: Grein Jónas-
ar frá Hriflu í „Tímanum“ um
heimsókn Helga Tómassonar =
1974 Allsherjarverkfalli lýkur =
1858 f. Björn Kristjánsson ráð-
herra = 1930 f. Sverrir Hermanns-
son alþm.
Orð dagsins. — Lýðræði: Þú mátt
segja hvað sem þér sýnist, en
verður að gera það sem þér er sagt
— Gerald Barry, enskur ritstjóri
(1898-1968).