Morgunblaðið - 26.02.1980, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 26.02.1980, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980 47 Uppsagnir hjá British Leyland London. 2">. íebrúar. AI*. LEYLAND-bílaverksmiðjurnar hófu í dajf að sejíja upp starfsmönnum samkvæmt áætlun um að minnka miklar bir»;ðir af óseldum eða nær fulljterðum bílum fyrirtækisins. Hlutur fyrirtækisins í markaðnum minnkaði i 15“3r í síðasta mánuði og það hefur hafið mikla herferð tii að hvetja fólk að kaupa brezka framleiðslu en ekki erlenda bila. Fyrirtækið se«ir. að 21.000 aí 150.000 starfsmönnum þess verði sagt upp fram í marzlok. þesar vonir standa til að hlutur þess í markaðnum verði aftur 20%. en vinnutími hluta þessara starfsmanna verður stvttur. í síðustu viku komst British Le.v- land hjá verkfalli þeftar 17.000 starfsmenn Longbridne-verksmiðj- unnar neituðu að legsya niður vinnu til stuðniníts trúnaðarmanni sem var rekinn. Starfsmenn fyrirtækisins hafa þegar samþykkt áætlun um varanlegan niðurskurð sem leiðir til þess að 25.000 missa atvinnuna síðar í ár. Félagið telur að um 80.000 bifreið- ar þess af fjerðunum Marina, Maxi, Dolomite, Princess oj; Rover séu óseldar eða nánast fulljíerðar. Þetta eru birgðir til 16 vikna, en 10 vikna birgðir eru taldar eðlilegar. Jafnframt hófu 3.000 starfsmenn tveggja af stærstu stálfyrirtækjum Breta í einkaeign aftur vinnu í dag. Þeir samþykktu um helgina að hætta þátttöku í stálverkfallinu þótt fast væri lagt að þeim að halda áfram. Þetta er talið meiriháttar áfall fyrir verkfallsmenn sem eru aðal- lega starfsmenn ríkisfyrirtækisins British Steel. Vaxandi óánægju gæt- ir með verkfallið hjá 15.000 starfs- mönnum óháðra stálfélaga. Ekkert bendir enn til þess, að verkfallinu, sem hefur staðið í 54 daga, verði aflýst. Verkalýðssambandið TUC hefur boðað eins dags allsherjarverkfall 14. maí til þess að mótmæla stefnu Margaret Thateher forsætisráð- herra og stjórnar hennar. Frú Thatcher hóf í dag baráttu fyrir því að sameina flokk sinn og kannski þjóðina og sat fyrir svörum í sjónvarpi um stefnu sína. Ihalds- flokkurinn hóf mikla áróðurs- spjaldaherferð og fól starfsmönnum sínum að fylkja saman stuðnings- mönnum flokksins. Nýi erkibiskupinn af Kantaraborg, Robert Runcie, sver embættiseið sinn í St. Paulsdómkirkjunni í London i gær. Runcie er 102. erkibiskupinn i röðinni. Hann er 58 ára gamall. Er hann gegndi herþjónustu i brezka hernum, stjórnaði hann skriðdreka. simamynd - ap. Varaforseti Afgana lézt eftir skotbaraaga Sendiherra Egypta i ísrael, Saad Murtada (t.v.), og sendiherra ísraels i Egyptalandi, Ben-Elissar (lengst til hægri), hittust fyrir tilviljun á Ben Gurion-flugvelli i Tel Aviv á sunnudag er báðir voru á leið til að taka við hinum nýju embættum. Stmamynd - AP. Sendiherra ísraels gagn- rýndur fyrir harðlínustefnu Kairó, 25. febrúar. AP. SENDIHERRA ísraels í Kairó var í dag harðlega gagnrýndur í eg- ypsku timariti fyrir harðlínu- stefnu i landnámsmálum ísraels- búa á vesturbakka Jórdanár. Sendiherrann, Ben Elissar, á að afhenda Anwar Sadat, forseta Eg- yptalands, trúnaðarbréf sitt á morgun. Ben Elissar gagnrýndi Bandaríkjamenn og Egypta harð- lega í síðustu viku fyrir það sem hann kallaði afskipti af ísraelskum innanlandsmálum. Ben Elissar kom til Kairó í gær og einmitt þá lauk viðræðum að- stoðarvarnarmálaráðherra Banda- ríkjanna, David McGiffert, við Kamal Hassan, varnarmálaráð- herra Egypta, um hergagnasölu Bandaríkjamanna til ísraels. Nýju-Delhi, 25. febrúar. AP. SOVÉZKIR hermenn lokuðu helm- ingi Kabul um helgina til að vernda sovézka sendiráðið og rússneskt ibúðasvæði eftir samfelldar götu- óeirðir samkvæmt fréttum sem bár- ust til Nýju-Delhi á sunnudag. Afganskar heimildir í Nýju-Delhi herma, að Sultan AIi Kishtmand varaforseti — hafi særzt í skotbar- daga 7. febrúar og látizt eftir misheppnaða læknismeðferð í Moskvu. Stjórnin í Kabul hefur ekki staðfest lát Kishtmand sem var talinn eindreginn stuðningsmaður Babrak Karmals forseta, en af- gönsk blöð sögðu frá þvi á sinum tima, að hann hefði farið til Sov- étrikjanna vegna sjúkdóms sem var ekki nafngreindur. Vestur-evrópskir diplómatar í Kabul heyrðu skothríðina og sögðu að talið væri að Kishtmand hefði verið skotinn í höfuðið í Alþýðuhús- inu, aðsetri ríkisstjórnarinnar. Af- gönsku heimildirnar í Delhi herma að yngri bróðir Karmals forseta og fulltrúi í miðstjórn flokksins, Ma- hmud Baryalay, hefðu einnig særzt banvænu sári. Fréttir um helgina hermdu að hundruð hefðu beðið bana og þús- undir særzt í óeirðunum sem hófust á fimmtudag. Sovézku hermennirnir skiptu Kabul í tvennt með því að Sonur Stalíns lézt í þýzkum fangabúðum l.ondon. 25. fcbrúar. AP. BREZKA blaðið Sunday Timrs birti í gær frásögn sjónarvotts af dauða sonar Stalíns. Jakov. í þýskum fangabúðum í heimsstyrjöldinni. Blaðið hafði viðtal við fyrrverandi brezkan liðþjálfa. Thomas Cushing, sem var með syni einraíðisherrans í fangabúðunum í Sachsenhausen skammt frá Berlín og kveðst hafa séð hann deyja þar 14. apríl 1943. Jakov var sagður eftirlætisbarn Stalíns. Hann var lautinant í Rauða hernum, en gafst upp í Smolensk 1941 og óhlýðnaðist þar með skipun föður síns um að berjast til síðasta manns. Aðeins helmingur þeirra 200.000 sovézku fanga, sem voru í Sachsenhausen, héldu lífi, en Jakov var hafður í sérstökum skála ásamt öðrum föngum, sem Þjóðverjar töldu að þeir gætu notað fyrir peð í samn- ingum. Jakov var í herbergi með Vasili Kokorin, frænda Molotovs þáver- andi utanríkisráðherra. Cushing var einn á lífi fjögurra brezkra fanga sem voru í öðru herbergi í sama kofa. Sunday Times hafði upp á Cush- ing í County Cork á írlandi. Hann minntist þess að Bretarnir hefðu sakað Rússana um að reyna að koma sér í mjúkinn hjá vörðunum, en Rússarnir sökuðu Bretana um hugleysi. Hinn örlagaríka dag 1943 sökuðu Bretarnir Rússana um að óhreinka salerni. Cushing segist hafa setið við glugga og séð hvernig Jakov virtist ganga berserksgang þegar honum hafði verið meinað að ræða við yfirmann fangabúðanna sem hann ætlaði að kvarta við. „Síðan hljóp hann beint á gaddavírinn. Þá kom ge.vsistór blossi og kveikt var á öllum leitarljósum. Ég vissi að það var úti um hann.“ Sunday Times hafði upp á Cush- ing eftir athugun á nýbirtum brezkum stjórnarskjölum þar sem meðal annars er að finna skýrslu eftir SS-liðsforingjann Konrad Harfich sem var á verði við gaddavírsgirðinguna. Harfich seg- ir að Jakov hafi þrifið í raf- magnsvírana og hrópað og beðið sig að skjóta hann. Harfich skaut hann til bana með einni kúlu í höfuðið. Blaðið kemst að þeirri niður- stöðu að „áflog fanganna, sem fylgdu í kjölfar stöðugra þrætu- mála, rifrildis og ásakana, hafi að lokum bugað anda manns, sem var andlega þjakaður fyrir vegna þess að tilfinningar hans um hollustu sína, uppruna sinn og framtíð voru í uppnámi.“ Nefnd Breta og Bandaríkja- manna, sem rannsakaði þýzk skjalasöfn í Berlín í júlí 1945 komst að hinu sanna í málinu að sögn blaðsins. En brezka og banda- ríska utanríkisráðuneytið ákváðu að halda þessu leyndu fyrir Stalín, því að „það hefði verið óviðfelldið að beina athyglinni að rifrildi því sem var milli Breta og Rússa áður en sonur hans lézt“ eins og brezkur embættismaður, Michael Vyvyan, komst að orði. loka brúnum yfir Kabul-fljót sem rennur gegnum höfuðborgina. Þar með eykst öryggi sovézka sendiráðs- ins, nýtízku húsasamstæðu þar sem margir Rússar búa, virkisins Bala Hissar sem er hernaðarlega mikil- vægt og gamla markaðshverfisins. Samkvæmt einni fréttinni frá Kabul lýsti stjórn Kartnals forseta yfir sérstökum hátíðisdegi á laugar- dag. Talið er að það hafi verið gert til að breiða yfir fjarvistir margra ríkisstarfsmanna á þriðja degi alls- herjarverkfallsins. Uppreisnarmenn í Pakistan sögðu, að skæruliðar hefðu fellt 150 af- ganska hermenn og skemmt fimm skriðdreka í nýlegum átökum í austurfylkinu Nagahar, en 12 hefðu fallið í liði uppreisnarmanna. Einnig Syfjuðum vísað á dyr Readinic. 36. febrúar. AP. ÞEIR sem sofa i bókasöfnum I Berkshire i Englandi verður framvegis vísað á dyr. Að vísu fá þeir eina viðvörun en komi aftur fyrir að þeir sofni verða þeir reknir út auk þess sem þeir fá 20 punda sekt. Astæðan fyrir þessum óvenju- legu aðgerðum, er, að mikið hefur verið kvartað undan fólki, sem sefur á bókasöfnum og hrýtur í þokkabót! var sagt að þrír skriðdrekar hefðu verið eyðilagðir í Paktia-héraði. Pakistanskur embættismaður sagði að 24 afganskir liðsforingjar og tveir fyrrverandi þingmenn hefðu flúið land. Foringi þeirra er sagður Ahmad Jan Masood hershöfðingi. Diplómatar í Islamabad segja að lík Kishtmands varaforseta hafi verið flutt til Kabul frá Moskvu á fimmtudag, en ekki er hægt að staðfesta fréttina. Samkvæmt einni frétt var Bariyarai einnig fluttur til Moskvu. Sagt er samkvæmt þessari frétt að Bariyarai sé einnig látinn og að lík hans hafi verið flutt til Kabul á fimmtudag ásamt líki Kishtmands. Samkvæmt áreiðanlegum heimild- um var Kishtmand skotinn þegar deila kom upp um hugmyndir um að breyta rauðum fána Afganistans sem múhameðstrúarmenn eru mjög andvígir. Karmal og stuðningsmenn hans voru andvígir rauða fánanum þegar hann var tekinn upp skömmu eftir byltinguna 1978 sem kom fyrstu Rússahollu stjórninni af þremur til valda. Kishtmand var þá skipulagsráð- herra, en leynilögreglan handtók hann í ágúst 1978 þegar Parcham- armurinn var hreinsaður. Hann var látinn laus eftir byltinguna um jólahátíðina. Sumir telja að atburð- urinn 7. febrúar hafi staðið í sam- bandi við deilur milli Parcham- og Khalq-armsins. Götur Kabul voru auðar í gær á fjórða degi verkfallsins og flestar verzlanir voru lokaðar samkvæmt erlendum fréttum, en Tass-frétta- stofan hélt hinu gagnstæða fram. Þetta gerðist 26. feb. 1979 — Bandarískir ráðherrar segja Bandaríkin reiðubúin að beita hervaldi til að tryggja olíu- flutninga frá Miðausturlöndum. 1976 — Herforingjar og stjórn- málaleiðtogar í Portúgal semja um endalok herforingjastjórnar og endurreisn lýðræðis. 1962 — Suður-víetnamskir flug- menn gera loftárás á höll Ngo Dinh Diem forseta. 1952 — Winston Churehill til- kynnir að Bretar hafi smíðað kjarnorkusprengju. 1936 — Koki Hirota ste.vpt i herbyltingu í Japan. 1921 — Rússar undirrita samn- inga við Persa. 1909 — T.vrkir viðurkenna innlim- un Bosníu í Austurríki. 1871 — Bráðabirgðafriður Frakka og Þjóðverja í Versölum. 1848 — Lýst yfir stofnun Annars franska lýðveldisins. 1832 — Nikutás I Rússakeisari afnemur stjórnarskrá Póllands. 1828 — Dom Miguel verður ríkis- stjóri í Portúgal. 1815 — Napoleon fiýr frá Elbu. 1623 — Fjöldamorð Hollendinga á enskum kaupmönnum í Amboyna (Indónesiu). 1531 — Tugir þúsunda fórust í jarðskjálfta í Lissabon. 1266 — Orrustan um Benevento, d. Manfred Sikileyjarkonungur. 493 — Uppgjöf Ravenna fyrir Austur-Gotum. Afmæli. — Victor Hugo, franskur rithöfundur (1802—1885) = „Buff- alo Bill“ (William F. Cody), banda- rískur frumherji (1846—1917) = Jaekie Gleason, bandarískur gam- anleikari (1916—) = Honore Daum- ier, franskur listmálari (1808— 1879). Andlát. — 1154 Roger II Sikileyj- arkonungur = 1723 Sir Christopher Wren, arkitekt. Innlent — 1944 Sambandsslit við Dani samþykkt á Alþingi = 1872 Póstþjónustu breytt í nútímaátt = 1930 „Stóra bomban“: Grein Jónas- ar frá Hriflu í „Tímanum“ um heimsókn Helga Tómassonar = 1974 Allsherjarverkfalli lýkur = 1858 f. Björn Kristjánsson ráð- herra = 1930 f. Sverrir Hermanns- son alþm. Orð dagsins. — Lýðræði: Þú mátt segja hvað sem þér sýnist, en verður að gera það sem þér er sagt — Gerald Barry, enskur ritstjóri (1898-1968).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.