Morgunblaðið - 26.02.1980, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 26.02.1980, Blaðsíða 48
PLAST ÞAKRENNUR V$T] Sterkar og endlngargóðar Hagstætt verð c®) Nýborg" Q Armúla 23 — Síml 86755 j ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980 Þriggja rækjubáta með sex mönnum saknaö ÓTTAST er um afdrif þrÍKuja rækjubáta, tvcgj?ja frá ísafirði og eins frá Bíldudal. Tvcir skipverjar eru á hvcrjum báti. í gærkvöldi fannst gúmbátur af einum hátanna við Skarð á Snæfjallaströnd og stíuborð fundust við Auðkúlu í Arnarfirði. sem talið er að séu af Bíidudalsbátn- um. Bátarnir, sem saknað er. cru Vísir BA 44,16 tonna eikarbátur frá Bíldudal, Gullfaxi ÍS 594. 19 tonna eikarbátur frá ísafirði, og Eiríkur Finnsson ÍS 26, 17 tonna eikarbátur frá ísafirði. Ekki er hægt að greina frá nöfnum mannanna sex. sem eru á hátunum. að svo stöddu. Rækjubátar réru frá ísafirði í sæmilegu veðri í gærmorgun og fóru bátarnir, sem saknað er frá Isafirði, til veiða í innanverðu Djúpi. Upp úr hádegi var skollið á aftakaveður af suðvestri. Um klukkan 15 voru bátarnir jbeðfcir um að tilkynna sig og þá kom í ljós, að tveggja báfa; Gullfaxa og Eiríks Finnssonar, var saknað. Síðast er vitað um Gulifáxa úti af Arnarnesi á leið til ísarfj,arðar, og um Eirík Finnsson þar 'sefn hann var að hífa innan við Ögurhólma skömmu eftir hádegi, en hafði ekki leitað vars. Þrír línubátar frá ísafirði fóru til aðstoðar og leitar fyrir klukkan 3 í gærdag og björgunarsveitar- menn frá Súðavík, ísafirði, Hnífsdal og Bolungavík voru til- **búni Línubáturinn Guðný fór með átta björgunarsveitarmenn og kom þeim í land á Sandeyri á Snæfjallaströnd við erfiðar að- stæður. Þeir munu ganga strönd- ina í dag og bændur á Snæfjaila- strönd byrjuðu leów< landi þegar Lézt er bíll f auk út af veginum ELDRI maður frá Bíldudal beið bana skömmu eftir hádegi i gær er mjólkurbill fauk út af fjallvegin- um Hálfdán milli Tálknafjarðar og Biidudals. Maðurinn, sem lézt, var farþegi í bilnum, en bifreiðar- stjórinn meiddist aðeins litillega. Björgunarsveit Slysavarnafélags- ins á Bíldudal, Kópur, var kölluð út er slysið varð. Aftakaveður var er þetta gerðist og gátu björgunar- sveitarmenn ekki ekið á slysstað. Var veðurhamurinn svo mikill að þeir þurftu að skríða talsverða vegalengd upp eftir fjallinu. Bíllinn var á leið til Patreksfjarð- ar, en hafði snúið við til Bíldudals aftur þegar veðrið versnaði. Slysið varð í krappri beygju skammt frá Katrínarhorni. síðdegis í gær og menn frá Unaðs- dal fundu í gærkvöldi gúmbát, sem talinn er vera úr Eiríki Finnssyni, við Skarð á Snæfjallaströnd. I dag verður leitað á sjó, landi og úr lofti ef veður leyfir. Fyrrnefndar björgunarsveitir munu hafa að- stöðu í húsi SVFI í Bolungarvík, en í gær tóku auk fyrrnefndra aðila þátt í leitinni starfsmenn Slysa- varnafélagsins í Reykjavík, Land- helgisgæzlu og Ísafjarðarradíós. Upp úr hádegi var farið að óttast um rækjubátinn Vísi frá Bíldudal, Frigg BA var þá inni á Bíldudal og var strax beðinn um að fara og svipast um eftir bátnum. Þá var varðskipi, sem var mið- svæðis úti af Vestfjörðum, snúið við og stefnt í Arnarfjörð. Það hafði áður verið beðið um aðstoð vegna ísafjarðarbátanna, en snúið við þar sem færri skip voru til leitar í Arnarfirði. Vísir hafði verið að hífa fyrir innan Gíslasker þegar síðast frétt- ist, en bátarnir Vísir og Pílot BA 6 höfðu haft samband sín á milli. Varðskipið fór inn fyrir Gíslasker, inn á Dynjandisvog og Borgar- fjörð, en sá ekki neinn bát. Hins vegar fannst ómerktur rækjukassi og lestarborð út af bænum Auð- kúlu. Bændur á Auðkúlu fundu síðan í gærkvöldi grámáluð stíu- borð með rauðum röndum, sem talið var að væru frá Vísi. Björgunarsveitarmenn fara með varðskipi í dag og taka land á Rafnseyri til þess að leita fjörur við norðanverðan Arnarfjörð. Skipverji á Ingólfi Arn- arsyni lézt af slysförum ÞAÐ slys varð þegar togarinn Ingólfur Arnarson var að toga við Vikurál um hádegi i gærdag, að cinn skipverja, sem stóðu á dekk- inu, varð fyrir sjó, sem kom á- skipið, og féll á dekkið og lézt. Sá látni hét Ingimar Halldórsson, Reykvíkingur, 54 ára að aldri. Hann var ógiftur. Togarinn sigldi inn á Patreksfjörð, en gat ekki lagst aö. Lögregla og læknir fóru um borð í Ingólf með vélbátnum Pétri Jónssyni og sóttu líkið. Togarinn hélt síðan á veiðar að nýju, en sjópróf munu fara fram er hann kemur til Reykjavíkur. Allir verkfærir menn kallaðir til hjálpar- starf a á Suðureyri AFTAKAVEÐUR gerði á Suður- eyri við Súgandafjörð i gær og Mannskaðar og stórtjón í ofsaveðri á Vestfjörðum: Gæti orðið vonzkuveður á nýjan leik með kvöldinu — DJÚPIÐ var eins og brimhaf stranda á milli. Svona veður eru sem betur fer afar sjaldgæf á þessum slóðum, sagði Jens Guð- mundsson bóndi og fréttaritari Mbl. á Bæjum á Snæfjallaströnd er hann lýsti ofsaveðrinu sem gekk yfir Vestfirði siðdegis í gær. Mestur varð vindstyrkurinn á Vestf jörðum og miðunum og einn- ig var mjög hvacst á Snæfellsneai. I þessu mannskaðaveðri urðu bátar fyrir áföllum, bílar fuku út af vegum og stórtjón varð víða á húsum. „Það kom lægð sunnan úr hafi í nótt. Hún dýpkaði síðan mjög snögglega í morgun og fór rétt norður með vesturströndinni. Síðan er það suðvestanáttin í kjölfarið sem hefur valdið vand- ræðum víða,“ sagði Trausti Jóns- son, veðurfræðingur á Veðurstofu íslands, í samtali við Mbl. í gærkvöldi. „Það var því fárviðri á Vest- fjörðum framan af degi, en var heldur farið að ganga niður í gærkvöldi, var aðeins 9—10 vind- stig. Fárviðri geisaði hins vegar ennþá úti á miðunum í gærkvöldi. Víða á Vesturlandi var og mjög hvasst, eða 9—10 vindstig í allan gærdag og sömu sögu er að segja af Norðvesturlandi. Veður var hins vegar nokkuð skaplegt í innsveit- um á Norðausturlandi og á svæð- um á Suður- og Suðausturlandi," sagði Trausti ennfremur. Þá kom það fram hjá Trausta, að suðvestanáttin í gær er sú versta í fjöldamörg ár. „Það er útlit fyrir að veðrið gangi niður í nótt, en ný lægð er í uppsiglingu suður í hafi. Dýpki hún eins og þessi forveri hennar verður hér vonzkuveður annað kvöld að nýju, það er þó ekki hægt að fullyrða neitt um það á þessari stundu," sagði Trausti Jónsson. urðu miklar skemmdir i þorpinu. Þakplötur fuku af húsum og rúður brotnuðu í gluggum. Algerlega var simasambandslaust við Suðureyri i gær og því hafa litlar fréttir borizt af skemmdum þar. Síðdegis í gær hafði almanna- varnanefndin á Suðureyri samband við Almannavarnir ríkisins í gegn- um bátatalstöð og tilkynnti nefndin, að hún ætlaði að notfæra sér heimild í Almannavarnalögunum til að kalla alla vinnufæra menn á staðnum til hjálparstarfa. Var þeim ætlað að koma í veg fyrir að ýmislegt lauslegt fyki og vinna við aðstoðar- og hjálparstörf, þar sem þess væri þörf. Hins vegar var ekki óskað aðstoðar Almannavarna ríkisins. í gærkvöldi barst svo tilkynning frá almannavarnanefnd- inni á Suðureyri, þar sem fólki var bent á að hafa samband við lögregl- una ef aðstoðar væri þörf. Sjá nánari fréttir af veðurofsanum á bls. 3 og bls. 29

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.