Morgunblaðið - 06.03.1980, Síða 15

Morgunblaðið - 06.03.1980, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1980 15 Nyttmir tmklayaingjar hefur það fólk verið nefnt, sem af góóu hjartalagi en litlu viti veitti braut- argengi útþenslustefnu Hitlers á fjóröa áratugnum og síöan Rússa eftlr styrjöldina, meö þelm hætti aö krefjast afvopnunar vestrænna lýöræöisrfkja, án þess aö geta tryggt hliöstæöa afvopnun and- stæöinganna né haft nokkra mögu- leika til aö flytja boöskap sinn i þeim herbúöum. Ferill nytsamra aakleyaingja, sem einnig kalla sig triöarainna er blóöi drifinn. Þaö var þetta fólk, sem á fjóröa áratug aldarinnar kæföi hverja rödd, sem varaöi viö andvaraleysi og undan- látssemi vtö Hitlers-Þýzkaland. Þaö bar því ekkl Iftlnn skerf af ábyrgö- Inni á Síöari heimsstyrjöldinni. Nytaamir aakleyaingjar og triö- Þeir vilja frið, en valda stríði hliöstæöa viö feril þýzku nazist- anna nema þeir hafa gefiö sér meiri tíma og varast þá skyssu, sem nazistarnir geröu aö relða sveröiö svo hátt tll höggs, að þeir gátu ekki slíöraö þaö aftur og sent á loft friöardúfur milli högga. Kommún- istar hafa notaö friðardúfurnar og sverðiö á víxl og þeir hafa sýnt miklu meiri klókindi í röksemda- færslu fyrir aögeröum sínum. Rök þeirra runnu eins og Ijúffengur drykkur ofan i nytsömu sakleys- ingjana. í „varnarekyni“ sögöust þeir gera vináttusáttmála viö naz- istana, sem þeir hötöu marglýst sem ósættanlegum erkiféndum, „sósíalskt riki veröur aldrei árás- arriki," sögðu þeir en réöust svo í varnarakyni á Finna og unnu þaö níöingsverk aö skjóta Pólverja í Sigurður Öskarsson Sovézki flotinn er nú þegar veruleiki, annar öflugasti floti veraldar, og til hans hefur þegar verið varið gífurlegum fjárhæð- um. Ef sovézkum stjórnvöldum gæfist færi á að efla mjög hernað- arlega getu þessa flota með til- tölulega litlum tilkotnaði, þykir undirrituðum ekki líklegt, að þau mundu láta sér slíkt tækifæri úr greipum ganga. Hin langa saga Sovétríkjanna um stjórnmála- legan og hernaðarlegan yfirgang við grannríki sín bendir ekki til þess, að valdhöfum þar þætti slíkir hagsmunir dýru verði keypt- ir þótt hlutleysi fámenns eyríkis yzt á norðurslóðum yrði fótum troðið í leiðinni. Undirritaður telur ekki vænlega stefnu að lýsa yfir hlutleysi lands- ins með þá „neyðarráðstöfun" í bakhöndinni að biðja um hervernd Bandaríkjanna, ef til styrjaldar drægi. Slík stefna mundi skapa hættulegt hernaðarlegt tómarúm, og vegna hinna miklu hernaðar- legu hagsmuna gæti sú staða komið upp, að á spennutímum yrði kapphlaup um landið, og það yrði vettvangur beinna stórveldaátaka. Slíkt væri nákvæmlega þveröfug niðurstaða við yfirlýstan tilgang herstöðvarandstæðinga, en því miður líklegri útkoma, ef ráðum þeirra væri fylgt. Slík staða kom upp í Norður-Noregi í heimsstyrj- öldinni síðari, er Bretar og Þjóð- verjar börðust um Narvik. Flota- styrkur Sovétmanna nú er þó hlutfallslega miklu meiri en Þjóð- verja þá, og hættan fyrir hlutlaust ísland í nýjum átökum væri til- svarandi meiri. Hér að ofan hafa verið færð nokkur rök fyrir þeirri niðurstöðu, að það sé óraunsætt að vilja gera ísland hlutlaust eða varnarlaust. Meginþættir röksemdafærslunnar voru: 1. Sagan sýnir að einhliða afvopn- un eykur ekki friðarlíkur, held- ur þvert á móti er vísasti vegur til styrjaldar. 2. Á undanförnum 15 árum hafa 18 Sovétríkin byggt öflugan her- skipaflota, sem hefur á að skipa f! kjarnorkukafbátum bæði til árása á skotmörk í landi og á sjó. 3. Flotauppbygging Sovétríkj- anna hefur orðið þrátt fyrir það, að þá reki engin efnahags- leg nauðsyn til, hvorki þjóð- hagslega mikilvæg viðskipti við aðrar álfur né hráefnaflutn- ingar þótt landfræðileg skilyrði séu ekki hagstæð. 4. Hin mikla flotauppbygging Sovétríkjanna er fyrst og fremst hernaðarleg og stjórn- málaleg. Þessi flotaaukning fj verður aðéins skilin sem þáttur í útþenslustefnu. 5. Á stríðstímum hlyti sovézki ,1 flotinn að verða alvarleg ógnun við siglingaleiðir Vesturveld- anna. Vegna legu sinnar yrði ísland í víglínu. 6. Hin hernaðarlega mikilvæga lega landsins í Atlantshafi miðju, ásamt hinni hernaðar- lega óhagstæðu legu sovézkra heimahafna, gæfi sovézkum ráðamönnum sterka ástæðu til að leita eftir flotaaðstöðu hér á landi. 7. Aðeins ótvíræð afstaða íslenzku þjóðarinnar með vestrænni samvinnu og áframhaldandi aðild að NATO, ásamt banda- rískri hervernd er fullnægjandi lausn á öryggismálum landsins. Sögulega og menningarlega á ísland heima í hópi hinna vest- rænu lýðræðisríkja. Örlög þessa lands og þeirrar þjóðar, sem það byggir verða ekki aðskilin frá örlögum þeirra þjóða Norður- Ameríku og Vestur-Evrópu, sem hún hefur löngum haft nánust j|| samskipti við. Undirritaður er þess fullviss, að það samrýmist miklu betur manngildis- og drengskaparhugsjón alls þorra Islendinga að taka skýra og ótví- ræða afstöðu með hinum vestrænu 8 vinaþjóðum okkar og varnabanda- j lagi þeirra, heldur en óraunsæi og 1 hálfvelgja hlutleysisstefnu og varnarleysis, sem aldrei gæti stað- ið af sér hinn minnsta andbyr. jj Slík afstaða meiri hluta lands- manna kom skýrt í ljós í undir- skriftasöfnun Varins lands fyrir fáum árum. Reykjavík, 4. marz 1980 Sigurður H. Friðjónsson A ð bita í skottiö d sér Lengi var Vilmundur Gylfason búinn að snúast í hringi frammi fyrir því vandamáli að skipa prófessor í sögu, en það er fyrst eftir að Ingvar Gíslason er búinn að veita embættið að hann nær að bíta í skottið á sér. Það er þegar hann segir í upphafi viðtals í Mbl. 29.2: „Dómnefnd sú, sem skipuð var, vann vel.“ Dómnefndarálitið sem Vilmundur gefur þennan gæðastimpil er 63 bls. og er þar þó vísað til áður gerðs dómnefndar- álits um mesta verk eins umsækj- anda. Vilmundur hengir enn hatt sinn á 12 blaðsíðna langt sérálit Bjðrns Þorsteinssonar og telur að vegna þess hefði átt að skipa nýja dómnefnd. Það væri gaman ef Vilmundur vildi gera opinberlega grein fyrir þeirri skoðun sinni að með því að skrifa illa rökstuddan viðauka við nefndarálit geti minnihluti nefndar gert starf meirihlutans ógilt. Fyrsta árásin á þetta nefndar- álit var gerð áður en atkvæði voru greidd í heimspekideild, þegar Ingi Sigurðsson og Þór Whitehead lögðu fram skrifleg andmæli. Þessi skriflegu andmæli þeirra beinast eingöngu að meirihluta- álitinu vegna þess að þeim var ljóst að það, sem fundið var að þeim í séráliti Björns Þorsteins- sonar, voru svo ódulbúnar persónulegar skoðanir hans að kennarar deildarinnar gátu óstuddir tekið afstöðu til þess. Eftir að úrslit í atkvæðagreiðslu deildarinnar lágu fyrir hefur mál- ið hins vegar verið flutt á allt öðrum grundvelli. Sérálit Björns Þorsteinssonar hefur verið notað sem átylla til að hnekkja niður- stöðu mikils hluta heimspekideild- ar sem tekin var á fyllilega lögmætan hátt og er óaðfinnanleg miðað við starf þeirrar dómnefnd- ar sem Vilmundur segir að hafi unnið vel. Þess vegna var á sínum tíma engin ástæða til að fara að beiðni Vilmundar að taka málið upp að nýju enda stóð það ekki í valdi heimspekideildar sem hefur ekkert yfir dómnefndum að segja. Vilmundur lætur að því liggja, og á því er hnykkt í fyrirsögn blaðsins, að einhver klíka hafi ráðið afstöðu deildarinnar í mál- inu. Reyndar er á það að líta að á íslenskan mælikvarða er heim- spekideild hreint ekki „lítil há- skóladeild" og það má vera býsna öflug klíka sem getur safnað þar jafnótvíræðum meirihluta og 17 atkvæðum gegn 10(sem dreifðust). Það er auðvitað alltaf vandalítið að vera með getsakir um klíku- skap þegar ákvarðanir eru teknar sem manni líkar ekki við. Ég get líka búið til klíku, mas. margar klíkur. Hugsum okkur að ýmsir aðilar séu óánægðir með niður- stöðu embættisveitingar og vilji fara að beita áhrifum sínum gagnvart veiklunduðum ráðherra. Þar gæti verið um að ræða Vésteinn ólason Nokkur orð í tilefni af viðtali við Vilmund Gylfason fv. ráðherra frændur ráðherrans sem hefðu fengið niðurstöðu, sem var þeim mjög á móti skapi. Þar gæti verið um að ræða skólabræður og nána vini einhvers þess umsækjanda, sem ekki var mælt með. Hugsum okkur bara að einhver umsækj- andi eigi vini sem áhrifamiklir eru hjá öflugum fjölmiðlum eins og t.d. Morgunblaðinu. Hver veit nema sá klíkuskapur gæti orðið honum að einhverju liði? Mér dettur ekki í hug að fara að ræða þetta mál með dylgjum og getsökum eins og Vilmundur og fleiri hafa gert sig seka um. I slíkum leik eru engar reglur því að aldrei er hægt að sanna að menn hafi rangt fyrir sér. Hluti af klíku- eða samsæris- kenningu Vilmundar birtist í því, að hann vill tengja þetta mál við veitingu prófessorsembættis í því sem hann nefnir „gamalíslenska" sögu og að „meirihlutinn" eigi sér kandidat í það embætti, Gunnar Karlsson lektor, sem sé reyndar sérfræðingur í því sem réttast væri að kalla „ungíslenska" sögu samkvæmt fræðiheitakerfi fv. menntamálaráðherra. Sjálfsagt velkist enginn í vafa um það, eftir mína aðild að þessu máli, að ég sé með í þeirri meirihlutaklíku („rússaklíku" svo að notuð séu orð annars merkismanns) sem öllu vill ráða í heimspekideild. Ég get fullvissað Vilmund og lesendur Morgunblaðsins um, að þetta mál hefur ekki mér vitanlega verið rætt af neinni klíku eða hóp. En skiptir það einhverju máli, hvort sú fullyrðing mín er tekin trúan- leg? Auðvitað verður deildin að meta hvern hún telji hæfastan hverju sinni án þess að velta því fyrir sér, hverjir sæki um einhverjar aðrar stöður. Allt annað mundi stríða bæði gegn lögum og reglugerð og almennu velsæmi. Þetta er ég viss um að Vilmundur sér. Ætli sé ekki langbest að bíða og sjá hvað dómnefnd um hitt embættið kem- ur til með að segja? Hitt er annað mál, úr því að þetta er komið til umræðu, að ég skal fúslega játa, að það kæmi mér ekkert á óvart, þótt bæði dómnefnd og heimspeki- deild kæmust að þeirri niðurstöðu að Gunnar Karlsson væri hæfast- ur til embættis í „gamalíslenskri" sögu. Þótt hann hafi skrifað bæk- ur um stjórnmálasögu 19. aldar hefur hann líka birt merkar rit- gerðir um sögu þjóðveldisins og kennt „gamalíslenska“ sögu, enda nýtur sérfræðiþekking hans á þessu sviði þeirrar viðurkenn- ingar, að hann var á sínum tíma fenginn til að skrifa kaflann um atvinnu- og stjórnmálasögu þjóð- veldisins í Sögu íslands, II. bindi (Þjóðhátíðarsögunni). „Þetta mál er auðvitað flókið," segir Vilmundur, og um það er ég honum hjartanlega sammála. Ég held að opinber umræða um svona mál komi að afarlitlu gagni, m.a. vegna þess hve henni hættir til að fara að snúast um aukaatriði eins og það hvort merkilegri séu dokt- orsritgerðir frá Bretlandi eða Svíþjóð. (Kjarni málsins er auð- vitað sá að það sem skiptir máli, eru þær ritgerðir, sem umsækj- andi leggur fram en ekki hvar þær hafa hlotið viðurkenningu). Bæði Vilmundur Gylfason og Svarthöfði Vísis (sem enginn hef- ur hugrekki til að viðurkenna sem sitt afkvæmi) saka Ingvar Gísla- son um hugleysi fyrir að hafa veitt þetta umrædda prófessorsemb- ætti í samræmi við niðurstöðu heimspekideildar. Ég skal ekki leiða neinum getum að því hvort þar hafi meiru ráðið réttsýni Ingvars Gíslasonar og traust á kennurum heimspekideildar, ell- egar hræðsla hans við okkur (og er þó vandséð hvernig við hefðum átt að koma fram hefndum). Hitt sýnist mér engum vafa undirorpið hvor muni hugrakkari, sá ráð- herra sem þorir að taka ákvörðun í umdeildu máli og reita þar með annan aðila þess til reiði, eða sá sem enga ákvörðun þorði að taka. Reykjavík 1. mars 1980 Vésteinn Ólason íslensk rokkópera Höfundar handritsins eru Kristberg Óskarsson og Ari Harðarson, tónlistin er eftir Kjartan Ólafsson en text- arnir við lögin eru eftir Ara Harðarson. Sjö leikarar koma fram í myndinni ásamt fimm manna hljóm- sveit. Myndin verður um 50 mínútna löng og fjallar um baráttu góðs og ills. NOKKRIR nemendur Menntaskólans í Hamra- hlíð hafa að undanförnu unnið að kvikmyndun rokkóperunnar „Himna- hurðin breiða?“ Að sögn aðstandendanna verður myndin væntanlega páska- mynd Regnbogans. Myndin er gerð á vegum Listforms s.f. en þeir Ari, Kristberg og Kjartan fjár- mögnuðu gerð myndarinnar. Jafnframt fengu þeir 500.000 króna styrk frá Menntaskólanum við Hamrahlíð auk þess sem þeir hyggjast sækja um styrk til kvikmyndasjóðs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.