Morgunblaðið - 06.03.1980, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.03.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1980 25 Þing Norðurlandaráðs Full aðild Fær- eyinga og Græn- lendinga rædd ÞING Norðurlandaráðs mun i dag fjalla um þau mál, sem laganefnd ráðsins leggur fyrir þingið. Þá mun m.a. koma til umræðu full aðild Færeyinga og Grænlendinga að Norðurlandaráði en það mál hefur verið í brennidepli eins og mönnum er kunnugt og f jallaði laganefndin m.a. um það mál á fundi^ sínum í gærmorgun. Fulltrúi íslands í laganefndinni er Halldór Ásgrímsson og var hann kjörinn varafor- maður nefndarinnar, en formaður hennar er K.B. Andersen, fyrrver- andi utanrikisráðherra Dana. Morgunblaðið ræddi í gær við Halldór Ásgrímsson um þetrta mál. Halldór sagði að laganefndin hefði komið saman á fundi í Stokkhólmi 29. janúar sl. og var þar fjallað um tillögu frá Erlendi Paturssyni lögþingsmanni í Færeyjum og fleirum um sjálfstæða aðild Fær- eyinga að Norðurlandaráði. Sam- þykkti meirihluti nefndarinnar að aðhafast ekkert vegna tillögunnar. Síðan hefði það gerst 7. febrúar, mörgum á óvart, að fram kom tillaga Ankers Jörgensens og dönsku stjórnarinnar um að at- hugað yrði með hvaða hætti Græn- lendingar og Færeyingar gætu fengið sjálfstæða aðild að Norður- landaráði. um ef Færeyingar og Grænlend- ingar eiga að fá fulla aðild. Málið er líka flókið vegna þess að ef það hlýtur samþykki kann það að þýða verulega fjölgun fulltrúa í ráðinu því hinar þjóðirnar vilja kannski fjölga sínum fulltrúum til sam- ræmis. Loks er málið flókið vegna þess að Álandseyingar og jafnvel Samar kunna að fylgja í kjölfarið og óska eftir fullri aðild, sagði Halldór Ásgrímsson. — Ég vil að það komi skýrt fram, sagði Halldór, að íslenzka nefndin styður óskir Færeyinga um fulla aðild en málið er mun flóknara en menn virðast almennt gera sér grein fyrir. SVlINN Michel Ostlund fékk fyrstu verðlaun i samkeppni Norrænu félaganna um gerð merkis i tilefni Norræna málaársins og er verðlaunaféð 15 þúsund sænskar krónur, eða um 1,3 milljónir íslenzkra króna. Alls barst 341 tillaga. Reidar Carlson, formaður Sambands norrænu félaganna, sést hér afhenda Östlund verðlaunin. Á bak við þá sjást nokkrar af tillögunum, sem bárust. Verðlauna- merkið er fellt inn í myndina. Ljósmynd Mbl. Emilía. Halldór kvað það mikilvægt at- riði í málinu, að sjálfstæð aðild þessara þjóða hefði verið könnuð mjög rækilega og væri lítið meira hægt að kanna í þeim efnum. Því kæmi þessi tillaga mörgum á óvart. Hins vegar væri nauðsyn- legt að fram kæmi hvað Danir vildu sjálfir í þessu máli en það hefði því miður ekki komið fram. Það yrði t.d. að koma fram hvernig Danir vildu að aðild þjóðanna yrði háttað, hve marga fulltrúa þær ættu að hafa og hver yrði staða þeirra og ennfremur hvort þeir væru tilbúnir til að samþykkja þá fjölgun þingfulltrúa í Norður- landaráði sem yrði samfara fullri aðild þjóðanna. Á fundinum í gær ákvað laga- nefndin að taka tillöguna frá Erlendi Paturssyni aftur til með- ferðar og einnig tillögu dönsku stjórnarinnar og sagði Halldór að því virtist ljóst, að málið yrði ekki afgreitt á þessu þingi og að framundan væri enn frekari vinna. Kvað Halldór það hugsanlegt að sérstakri nefnd yrði falin af- greiðsla málsins milli þinga. — Þetta mál er flókið því að samningurinn um Norðurlandaráð er byggður á samkomulagi 5 sjálf- stæðra þjóða og það þarf að gera grundvallarbreytingu á samningn- Samstarfs- ráðherrar SAMSTARFSRÁÐHERRAR Norð- urlandanna hafa haldið þrjá fundi á meðan þing Norðurlandaráðs hefur staðið yfir hér í Reykjavík. Friðjón Þórðarson dómsmálaráð- herra gegnir þessu starfi fyrir íslands hönd og er það nýbreytni, þvi hingað til hafa forsætisráð- herrar íslands jafnframt verið samstarfsráðherrar. Friðjón Þórðarson sagði í stuttu samtali við Morgunblaðið í gær að aðalmál fundanna hér hefðu verið orkumálin en þau voru sérstaklega rædd á þriðjudaginn á sameigin- legum fundi forsætis-, samstarfs-, iðnaðar- og orkumálaráðherranna. Voru orkumálin sérstaklega tekin fyrir að beiðni Ankers Jörgensens, forsætisráðherra Dana. Samstarfsráðherrar Norðurlanda hittast 6—7 sinnum á ári og verður næsti fundur þeirra í Stokkhólmi í lok þessa mánaðar. Friðjón Þórðarson dómsmálaráð- herra sagði að lokum að störf þings Norðurlandaráðs hefðu að hans mati gengið vel og hagur Islands af þessu samstarfi væri ótvíræður. Spamaður Norðurlandaráðs virðist aðallega bitna á menningarmálastarfseminni MENNINGARMÁLAFJÁRLÖG Norðurlandaráðs fyrir árið 1981 hafa verið ákveðin og verður þá varið 85,6 milljónum danskra króna til menningarmálastarfsemi á Norðurlöndunum eða sem svarar 6300 milljónum íslenzkra króna á núgildandi gengi. Menningarmálin voru á dagskrá þings Norðurlandaráðs í gær og tók Árni Gunnarsson alþingismaður þátt í þeim umræðum. en hann er formaður menningarmálanefndarinnar. Morgunblaðið ræddi við Árna um menningarmálastarfsemina. Árni Gunnarsson sagði að ráðherrar Norðurlandanna ákvæðu fjárlög menningarmála fyrir hvert ár. Menningarmála- skrifstofan í Kaupmannahöfn ákvarðaði síðan hvert fjármagn- ið færi í samræmi við umsóknir en þær voru á síðasta ári um 700 en um 200 aðilum var veittur fjárstuðningur. Samkvæmt upplýsingum Árna Gunnarssonar er skiptingin í menningarfjárlögunum sú að Danir greiða 23,7% eða 1,5 milljarð króna og er það 10,3% hækkun frá síðasta ári. íslend- ingar greiða 0,9% eða um 55 milljónir króna og er hækkunin 33,5% frá síðasta ári. Norðmenn greiða 18% eða 1,3 milljarða og er hækkunin 6,3% frá síðasta ári. Svíar greiða 41,4% eða 3 milljarða króna og er hækkunin 0,03%. Sagði Árni Gunnarsson að út úr þessum tölum mætti lesa verðbólguþróun í viðkom- andi löndum en framlag hverrar þjóðar er reiknuð frá ári til árs í samræmi við verðbólgustig í hverju landi. Kvað Arni þá fjárupphæð mjög athyglisverða sem Norðurlöndin legðu fram til menningarmála en það væri um hálft prómill af heildarfjárveit- ingum Norðurlandaþjóðanna á sama tíma og þau hefðu það að markmiði að leggja fram 1% af þjóðartekjum til vanþróaðra landa. — Þetta þing hefur fært okk- ur heim sannindin um það, sagði Árni Gunnarsson, að Norður- landaþjóðirnar búa nú við til- tölulega þröngan fjárhag og orkukreppan hefur sett mjög svip sinn á umræður þingsins. Þar hafa allir áhuga á því að þær leiti sameiginlega að nýjum orkulindum, ekki síst vegna þess að þær þurfa að mæta sífellt harðnandi samkeppni við stóru iðnaðarþjóðirnar. Það er því sífellt verið að krefjast meira fjármagns til sameiginlegra rannsókna á sviði orkumála á kostnað annara þátta. Árni Gunnarsson sagði að sparnaður Norðurlandaráðs virtist aðallega bitna á menning- armálastarfseminni. Nefndi hann dæmi sem snerta íslend- inga, en það eru jarðfræðiferðir til Islands og rithöfundanám- skeið, sem íslendingar hafa sótt til Biskopsarnö. Þessar ferðir og námskeið hafa verið haldin ár- lega til þessa en verða framvegis haldin annað hvert ár. Þá kvaðst Árni bera íþróttasamskipti Norðurlanda sérstaklega fyrir brjósti og sagði að sumir vildu meina að íþróttaferðir heyrðu ekki undir menningarsamstarf. Það væri mesti misskilningur og fleiri þátttakendur væru í þeim þætti menningarsamskipta Norðurlandaþjóðanna en nokkr- um öðrum. Á þessu ári verður varið 300 þúsund dönskum krón- um til þess að styðja íþróttasam- skipti Norðurlandaþjóða og þá aðallega íþróttasamskipti við jaðarlöndin svokölluðu, Ísland, Grænland, Færeyjar og Norð- ur-Noreg. Kvaðst Árni hafa lagt á það mikla áherslu á fundinum hér í Reykjavík að íþróttasam- skiptin væru t mikilli hættu vegna óheyrilegra fargjalda til annarra Norðurlanda. Sagði Árni að málflutningur hans hefði fengið góðar undirtektir, enda biði þetta upp á að íslend- ingar myndu beina samskiptum sínum á sviði íþrótta í auknum mæli til engilsaxneskra landa. Sagði Árni að margir fulltrúa, sem nú sitja Norðurlandaþing og eru einlægir íslandsvinir, hefðu einmitt haft það á orði að þeir óttuðust að íslendingar drægjust smám saman meira og meira inn í hinn engilsaxneska heim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.