Morgunblaðið - 06.03.1980, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 06.03.1980, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTÚDAGUR 6. MARZ 1980 Völundur — óðinn kynna nýja endurbætta fiskflokkunarvél: Hafa framleitt 36 fiskflokkunar- vélar auk annars raf eindabúnaðar MIKILL (>k vaxandi áhusi er hér á landi á ýmis konar raíeindabúnaði til ha^ræðiniíar í fiskiðnaði, enda virðast menn vera nokkuð sammála um að framleiðni vinnslustöðv- anna getur ekki aukist teljandi úr þessu nema til komi hraðvirkari og ör- ugKari vinnsluaðferðir, það er að betri nýting fáist úr hráefninu. Eitt þeirra fyrirtækja sem framleitt hafa ýmis konar rafeinda- búnað ok hagræðibúnað fyrir fiskvinnsluna er Völ- undur-óðinn samsteypan í Vestmannaeyjum. Mbl. ræddi fyrir skömmu við Ilalldór Axelsson, sem hef- ur hannað flestar þær huR- myndir sem fyrirtækin hafa síðan framleitt og nægir í því efni að benda á fiskflokkunarvélar fyrir- tækisins sem náð hafa vinsældum hér á landi. „Það má segja að þetta hafi byrjað fyrir um tveimur árum þegar samstarf tókst með Völ- undi, sem er vélsmiðja, og hefur verið starfandi um langan aldur og svo Oðni um hönnun á fisk- flokkunarvélinni. Völundur sér sem sagt um alla grófari járn- smíðavinnu og við hjá Óðni um rafeindabúnaðinn. Við höfum á þessum tveimur árum framleitt 36 fiskflokkun- arvélar, sem hafa farið víða um landið, má segja í flest stærstu húsin. Við höfum allan þennan tíma verið að vinna að endurbót- um á henni og um þessar mundir er ný og endurbætt vél að líta dagsins ljós. Hún er fullkomnari að allri gerð og mun nákvæmari en þær eldri. Það má í raun segja að við séum búnir að slíta barnsskónum í þessari fllrauna- framleiðslu okkar. Þá má ekki gleyma því að um fjórðungur framleiðslunnar fer erlendis, mest til Færeyja, en líka til Bretlands og Bandaríkjanna. Við tókum til að mynda þátt í mikilli sjávarútvegssýningu í Seattle í Bandaríkjunum síðasta haust og ég má segja að vélin hafi fengið mjög jákvæðar viðtökur. Hún hefur síðan verið á stöðugu flakki um Bandaríkin, þannig að ég á von á því að úr fari að rætast með pantanir þaðan. Við ætlum og á næstunni að halda sérstakar stórar kynningar á vélinni, ann- ars vegar í Bandaríkjunum og hins vegar í Kanada. Þær fiskflokkunarvélar sem við framleiðum eru örtölvustýrðar með teljara fyrir hvern flokk og síðan með skóflulaga lokum fyrir faltfiskinn. Ennfremur bjóðum við endurbættan rafeindabúnað í eldri gerðir flokkunarvéla. Nú afgreiðslutími á svona vél er um einn mánuður og hún kostar á bilinu 4,3—5,0 milljónir, 3ja og . 4ra flokka", sagði Halldór. Þið framleiðið ýmislcgt ann- að. er ekki svo? — „Jú, allt frá því að framleiðslan á fiskflokk- unarvélunum var komin af stað fórum við að hugsa okkur til hreyfings með annars konar framleiðslu og í dag bjóðum við t.d. ýmis konar vogir, rafeinda- pökkunarvogir, prentara, nýt- ingarvaktir og rafeindabónustelj- i ara svo eitthvað sé nefnt. Við - en framleiðsla og notkun rafeinda- búnaðar fer nú stöðugt vaxandi hér á landi, enda ein forsenda auk- innar framleiðni fiskvinnslunnar framleiðum rafeindaupphengju- vog, þar sem botninn er opnaður með tveimur lofttjökkum. Hún er ennfremur búin skráningu og tengingu við prentara og tölvu. Þessi vog er mjög hentug til vigtunar inn á vélar. Þá framleiðum við rafeinda- pökkunarvog til vigtunar í pakkningastærðir tengda prent- ara og tölvu. Þessar vogir okkar eru vatnsþéttar og smíðaðar úr ryðfríu stáli og eru fáanlegar sem sjálfstæðar einingar og tengdar prentara eða tölvu og er verðið samkvæmt tilboði hverju sinni. Þá framleiðum við prentara, sem eru tengdir vogum eða tölv- um. Þeir prenta niðurstöður vigt- anna og eða nýtingarhlutfall á strimil eða venjulegan pappír samkvæmt þörfum í hverju til- felli. Við framleiðum og svokall- aða El-vakt, eða nýtingarvakt. Það er nokkurs konar tölvukerfi til nýtingareftirlits með stækk- unarmöguleikum fyrir t.d. bón- uskerfi og fleira. Nýtingarvakt reiknar stöðugt út nýtingarhlut- fall í hverri vinnslurás og sýnir það á skermrita og eða prentara. Síðan má kannski nefna El-telj- arana, en það er rafeindabónus- teljari með fjórum rásum, sem nýtast sem teljararásir og klukk- ur“, sagði Halldór ennfremur. Þá kom það fram hjá Halldóri að fyrirtækin hafa að undanförnu verið að koma öllum þessum tækjum fyrir í Fiskiðjunni í Vestmannaeyjum og ætti hún að Fiskflokkunarvél Völundar-óðins uppsett i tsbirninum i Reykjavík. verða fullbúin um miðjan næsta mánuð. Sá aðili sem hefur tekið að sér sölu á framleiðslu Völundar- Óðins er Ólafur Gíslason & Co hf. — Mbl. ræddi við Friðþór Kr. Eydal sölumann og spurði hann m.a. hvers vegna fyrirtæki í Reykjavík sæi um sölu á fram- leiðslu fyrirtækja í Vestmanna- eyjum. — „Þetta er gert fyrst og fremst í hagræðingarskyni. Þeir sem standa í framleiðslunni hafa hreinlega ekki tíma til þess að standa í sölunni. Þá er fyrirhugað að hafa alla sölu og þjónustu á einni hendi, þ.e. hér i Reykjavik. Þá má og segja að það sé ekki óeðlilegt að við tökum að okkur sölu á framleiðslu sem þessari, þar sem fyrirtækið hefur selt ýmis konar tæki til fiskvinnsl- unnar í tæp 50 ár og má þar nefna Avery vigtar, sem eru í nær hverri einustu fiskvinnslu- stöð á landinu", sagði Friðþór. Saudi-Arabar þrýsta nú á Bandaríkjamenn Hóta olíuframleiðsluminnkun, ef Bandarikjamenn fái ísraels- menn ekki til að samþykkja sjálfstætt riki Palestinuaraba Það hefur verið haft eftir nánum samstarfsmönnum Zbigniew Brzezinski öryggisfulltrúa Carters forseta Bandaríkjanna, að þegar Brzezinski var í Saudi-Arabíu í byrjun mánaðarins hafi þarlendir ráðamenn lagt mjög hart að Bandaríkjamönnum að falla frá ýmsum ákvæðum Camp Davidsamkomulagsins milli Egypta og Israels- manna, auk þess sem pressað var á Bandaríkjamenn að beita hrifum sínum á ísraelsmenn, þannig að þeir myndu viðurkenna sjálfstætt ríki Palestínuaraba í tengslum við Jórdaníu. Ef Bandaríkjamenn ekki samþykktu þessar kröfur Saudi-Araba var því hótað á móti að Saudi-Arabar myndu minnka olíuframleiðslu sína um 2 milljónur tunna á dag, myndi sú minnkun koma til framkvæmda í maí n.k. Saudi-Arabar framleiða í dag um 9,5 milljónir tunna á dag og það myndi hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir hin vestrænu iðnríki ef af þessar framleiðslu- minnkun yrði. Bandaríkjamenn hafa átt í nokkrum deilum við Saudi-Araba að undanförnu og m.a. neituðu þeir að senda orku- fulltrúa forsetans til Saudi- Arabíu fyrir skömmu, sögðu það óþarfi þar sem Brzezinski yrði þar innan tíðar. Saudi-Arabar munu hafa kunnað þessu mjög illa og hafa í hyggju að veita Bandaríkja- mönnum einhverja ráðningu. Málið er og ekki eins einfalt og það lítur út varðandi framleiðslu- magn Saudi-Araba, því sam- kvæmt þeim heimildum, sem tald- ar eru áreiðanlegar, hefur fram- leiðsla þeirra á undanförpum mánuðum verið í kringum 10,5 milljónir tunna þrátt fyrir að þeir hafi sagst framleiða aðeins 9,5 milljónir. Þetta kann að vera skýringin á þeim mikla óróleika sem ríkt hefur á olíumarkaðinum að undanförnu, og því verðfalli sem orðið hefur á Rotterdam- markaði að undanförnu. Það eru og fleiri heldur en Saudi-Arabar sem framleitt hafa meira heldur en opinberar tölur segja til um, til að mynda hafa írakar framleitt um 3,7 milljónir tunna á dag, þrátt fyrir að opin- berar tölur segi magnið aðeins vera 3,3 milljónir tunna á dag. Búist er við að framleiðsla íraka muni verða aukin í 4 milljón tunnur án þess að það verði gert opinbert. Mikið um að vera hjá St jórnunarf élagir u Mikið líí hefur vcrið í starfi Stjórnunarféla jsins að undanförnu. Á fimmtudag lauk einkaritaranámsk 'iði, se keypt hafði verið frá sænsku fyrirtæki. en það sóttu einkaritarar með mikla reynslu. en hún var skilyrði fy r þátttöku. Þórður Sverrisson framkvæmdastjóri félag sagði í samtali við Mhl. að námskeiðið hefði te dst nu. ágætum. en íélagið hafi vcrið frekar ragt að fara út í ið kaupa hingað svona námskeið kostnaðarins vegna. Þá fór stór hópur félaga í heimsókn til Landsbanka Islands, þar sem stjórnendur bankans skýrðu hvernig stjórnkerfi hans væri háttað. Að sögn Landsbanka- manna er það nokkur nýlunda að hópar komi þangað í heimsókn. Þórður Sverrisson sagði að í næsta mánuði myndi félagið gang- ast fyrir svokölluðum „stressnám- skeiðum" fyrir stjórnendur fyrir- tækja, en þau hafa verið haldin nokkrum sinnum og gefist ein- staklega vel. Dr. Pétur Guðjóns- son mun leiðbeina á báoum nám- skeiðunum, en hann er forstöðu- maður stofnunar í Bardaríkjun- um, sem sérhæfir sig í streytu. Fyrra námskeiðið verðar haldið 10.—11. marz og hið síöara 12.— 13. marz. Þá mun félagið efna til nf skeiðs fyrir starfsmanr astj' • marz, nánar tiltekið 17,—18. n.k. Leiðbeinandi á þessu skeiði verður Bandaríkjamæ nafni Soul Gellerman, seni ci þekktur ráðgjafi á þessu sviði. Það var fríður hópur elnkaritara sem sótti einkaritaranámskeið ÍP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.