Morgunblaðið - 06.03.1980, Page 46

Morgunblaðið - 06.03.1980, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1980 Bruggarinn vann aftur! David Preston, bruggar- inn enski sem vann tæpar 900 milljónir íslenskra króna i getraunum fyrir rúmri viku, gerði sér Íítið fyrir og vann aftur, aðeins fáeinum krónum minni upp- hæð. Er nú deginum ljósara, að Preston og frú hans þurfa ekki að vinna handtak það sem eftir er ævinnar. Preston, sem er senn á forum til Las Vegas í frí, sótti fyrri vinning sinn til Littlewoods getraunaskrif- stofunnar og var þar ljós- myndaður í bak og fyrir, enda metvinningsupphæð. Að þessu sinni ætlar hann að láta getraunirnar senda sér ávísunina í pósti. Paolo Rossi og fleirum mútað? MEIRI háttar hneykslismál fer nú hamförum um dag- blöð á Ítalíu. Þannig er mál með vexti, að tveir kaup- menn hafa ásakað 27 knattspyrnumenn úr 12 fé- lögum, þar af tvo lands- liðsmenn, um að þiggja mút- ur til þess að greiða fyrir um getraunavinninga fyrir um- fangsmikið glæpafyrirtæki. Kaupmennirnir, sem farnir eru í felur af ótta við að setið sé um líf þeirra, telja sig geta lagt fram sannanir gegn knattspyrnumönnun- um. Dómstólar á ítaliu hafa tilkynnt umræddum leik- mönnum að hagir þeirra verði rannsakaðir niður í kjölinn næstu vikurnar og komi eitthvað fram sem styður ásakanirnar, verði viðkomandi leikmenn dregn- ir fyrir rétt. Landsliðsmennirnir tveir sem í spilinu eru, eru þeir Paolo Rossi hjá Perugia og Bruno Giordani hjá Lazio. Báðir hafa neitað harðlega að þeir séu viðriðnir nokkuð slíkt. Reyndar hafa allir leik- mennirnir 27 neitað sakar- giftum og sumir hafa ákveðið að fara í meiðyrðamál við kaupmennina tvo. Sannist sekt einhvers þessara manna, er viðbúið að sá sami verði dæmdur í ævilangt bann frá knattspyrnu fyrir utan það sem hið opinbera deilir út sem refsingu. Ingibjörg hin sterka Ingibjörg Guðmundsdótt- ir sigraði bæði í kringlu- kasti og kúluvarpi á Burknamóti FH sem haldið var fyrir skömmu. Kastaði hún kringlunni 30 metra og kúlunni 9,10 metra. Anna Haraldsdóttir varð önnur í báðum greinum, kastaði kringlunni 20,81 metra og kúlunni 8,14 metra. Léttur sigur Fram Leikur í 1. deild kvenna í handknattleik fór fram i fyrrakvöld. Fram sigraði þá KR með yfirburðum, 19—9. Guðríður Guðjónsdóttir skoraði mest fyrir Fram að venju, 9 mörk. en þrjár stúlkur sáu um fátæklega markaskorun KR, þær Arna Garðarsdóttir, Hansína Melsteð og Hjördís Sigur- jónsdóttir með 3 mörk hver. Úr fyrri leik Vals og Atletico Madrid. Einum Valsmanni hefur verið hrint illa á gólfið þar sem hann var kominn i gegn. Ekkert var dæmt og lætur Steindór Gunnarsson óánægju sina i ljós, en hann er lengst til hægri á myndinni. Á myndinni má sjá hversu nálægt leikvellinum áhorfendur sátu. Ljósm. Mbl. — þr. Tekst Val að sigra? TEKST Valsmönnum að komast í úrslitaleikinn í Evrópumeistara- keppninni i handknattleik? Þetta er spurning sem brennur á vör- um margra þessa dagana. Síðari ieikur Vals og spænska liðsins Atletico Madrid fer fram á sunnudagskvöldi kl. 19.00. Vals- mönnum nægir að sigra með þriggja marka mun í leiknum skori spænska liðið færri en 21 mark hér, þar sem fleiri skoruð mörk á útivelli gilda sé saman- lögð markatala liðanna jöfn. Spænska liðið er væntanlegt til landsins i kvöld. Lið Vals hefur undirbúið sig af kappi undir leikinn og æfði liðið til dæmis sama kvöld og það kom úr keppnisferðinni frá Spáni. Síðan hefur verið æft af kappi og leiknir æfingaleikir. Ekki er á því nokkur vafi að með góðri hjálp áhorfenda og góðum leik getur Valur náð að velgja Spánverjun- um undir uggum. Forsala aðgöngumiða hefst í dag og er rétt að benda fólki á að tryggja sér miða tímanlega þar sem allt eins má búast við að uppselt verði á leikinn. Aðgöngu- miðar verða seldir í dag á tveimur stöðum í íþróttahúsi Vals að Hlíðarenda og Rakarastofu Aust- ... og Akranes Selfoss, 30:16 Selfyssingar eygðu aldrei neina von gegn Akurnesingum, sem not- uðu tækifærið til þess að hleypa leikþyrstum varamönnum inn á. Gestirnir voru óhressir yfir því að heimamenn dæmdu og það að boði frá HSÍ, ekki að það hefði nein áhrif á úrslit leiksins, heldur fannst þeim þetta kórónan á síendurtekið virðingarleysi við sig í dómaramálunum. Mörk Akraness: Daði Halldórs- son 5, Hallgrímur Rögnvaldsson 1, Haukur Sigurðsson 8, Hlynur Sig- Staðan í 3. deild Akranes 11 8 2 1 Breiðablik 10 8 1 Stjarnan 11 7 2 2 Óðinn 11 5 3 3 Keflavík 10 4 1 5 Grótta 10 3 1 6 Dalvík 10 2 0 8 Selfoss 11 0 0 11 259:313 18 1 262:192 283:217 16 256:247 13 201:199 9 227:251 7 209:257 4 206:329 0 Næstu leikir Keflavík—Grótta í Njarðvík fimmtudagskvöld 6. febr. kl. 20. Dalvík—Stjarnan á Dalvík laugardag kl. 15. Keflavík—Selfoss í Njarðvík á laugardag kl. 16. Grótta—Breiðablik á Seltjarn- arnesi á sunnudag kl. 16. urbæjar, Laugavegi 178. Miða- salan hefst kl. 6.30 og stendur yfir til 22.00. Atletico vill fá Hellgren ÞAÐ vill oft gleymast þegar islenskum félagsliðum gengur vel í keppni við erlend félagslið, að keppt er við atvinnumenn í iþróttum. Lið Atletico Madrid, sem mætir Val á sunnudags- kvöld, er eingöngu skipað leik- mönnum sem gera ekkert annað en að æfa og keppa, góð frammi- staða Vals er þvi enn glæsilegri. Leikmenn Atletico fá um það bil fimm hundruð þúsund króna aukagreiðslu takist þeim að kom- ast i úrslit Evrópukeppninnar. Valsmenn fá hins vegar bara ánægjuna. Nú að undanförnu hefur lið Atletico verið á höttun- um eftir markmanni og hefur hug á að kaupa til liðs við sig Sviann Hellgren sem leikur með Heim, liðinu, sem sló Viking út úr Evrópukeppninni. Hellgren er boðinn tveggja ára samningur og i honum felast miklar peninga- greiðslur. Eins og fram hefur komið tapaði lið Heims fyrir spánska liðinu Calpisa, 40 — 25, á Spáni um siðustu helgi í Evrópu- keppni bikarhafa. Baráttan á milli UBK og Stjörnunnar í siðustu viku fóru fram tveir leikir i 3. deildinni, en þeim þriðja var frestað — þó með hálfgerðum ósköpum. Akranes skaust á toppinn en Stjarnan fylgir fast og þessi tvö félög berjast enn hart við Breiðablik um sigur. Akranes og Stjarnan eiga enn eftir að kljást sin á milli og eiga bæði þyngri þrautir eftir en Breiðablik, svo að likurnar eru Breiðablik i hag. Þá kemur annað sætið til og aukaleikirnir við næstneðsta lið 2. deildar um sæti þar. Stjarnan bakaði óðin, 31:18 Fyrstu 10 mínútur þessa leiks gekk hvorki né rak og virtist báðum liðunum fyrirmunað að leika handknattleik. Þá kom Viðar Símonarson inn á hjá Stjörnunni, og þótt hann væri tekinn úr umferð gjörbreyttist leikur Sjörnumanna svo að gest- irnir fengu við ekkert ráðið. Óð- insmenn í greinilegri afturför voru allan leikinn til enda ráð- villtir og hnoðandi og létu það svo fara í skapið á sér þegar á leið. Stjarnan hlaut þarna auðveldan sigur, staðan var 12:5 í leikhléi og leikurinn endaði 31:18. Mörk Stjörnunnar: Eggert ísdal 13, Gunnar Björnsson 3, Gunnar Sigurgeirsson 1, Hilmar Ragn- arsson 4, Magnús Andrésson 4, Pétur Andrésson 1, Viðar Símon- arson 5. Mörk Óðins: Frosti Sæmunds- son 1, Gunnlaugur Jónsson 4, Jakob Þórarinsson 4, Kristján Hilmarsson 1, Óskar Bjarmars 8. urbjörnsson 2, Jón Hjaltalín Magnússon 1, Kristján Hanni- balsson 5, Þórður Björgvinsson 1, Þórður Elíasson 5, Þorleifur Sig- urðsson 2. Mörk Selfoss: Árni M. Jónsson 2, Ásgrímur Kristófersson 5, Gísli Ágústsson 2, Guðjón Einarsson 2, Ingólfur Sigmundsson 1, Þórarinn Ásgeirsson 4. Leik Keflavíkur og Gróttu frestað Gróttumenn fóru í undarlegt ferðalag suður með sjó á sunnu- daginn. Þeir ætluðu að mæta í leik við Keflavík, en fundu hvergi andstæðingana, þótt leitað væri í öllum íþróttahúsum á Reykjanesi. Það kom svo ekki í ljós fyrr en á mánudag, að einum forystumanna Gróttu hafði láðst að láta boð ganga um frestun leiksins. En nú er ákveðið að Keflavík og Grótta leiki í Njarðvík á fimmtudags- kvöldið kl. 20. • Fimleikafélag Hafnarfjarðar, FH, gaf HSÍ fyrir nokkrum dögum, nýjan og glæsilegan bikar. Ber bikarinn nafnið Hallsteinsbikar, í höfuðið á Hallsteini Hinrikssyni, iþróttafrömuðinum mikla. Verður framvegis keppt um bikar þennan á Islandsmótinu i útihandknattleik. Á meðfylgjandi mynd eru börn Hallsteins, öll kunn úr iþróttalifinu, f.v. Ingvar Hallsteinsson, örn Hallsteinsson, Sylvia Hallsteinsdóttir og Geir Hallsteinsson. Ingvar var á sinum tima landsliðsmaður í frjálsum iþróttum, en hin þrjú eiga öll að baki fjölmarga landsleiki i handknattleik. — Ljósm. GB. Ágúst sigraði stjörnuhlaupið ÁGÚST Þorsteinsson sigraði i þriðja stjörnuhlaupi FH á þess- um vetri. Ágúst tók strax örugga forystu í hlaupinu og eftir 2 kilómetra hafði hann stungið aðra keppendur af. Tími og röð. Karlar: Ágúst Þorsteinss. UMSB 26:17,0 Lúðvik Björgvinss. UBK 27:45,0 Jóhann Sveinss. UBK 27:49,0 Magnús Haraldss. FH 28:23,0 þ Ágúst Gunnarss. UBK 28:26,0 Guðm. Gislas. Á 28:47,0 Leiknir Jónss. Á 29:32,0 Sig. Haraldss. FH 30:16,0 Gunnar Kristjánss. Á 30:37,0 Árni Kristjánss. Á 30:38,0 Jóhann Garðars. Á 33:47,0 Kristinn Hjaltalin Á 35:28,0 Konur: Guðrún Karlsd. UBK 10:09,0 Linda B. Ólafsd. FH 15:48,0 Getrauna- spá M.B.L. 2 Í9 jO C 3 ÖC u O 5 Sunday Mirror Sunday Péople Sunday Express News of the world Sunday Telegraph SAMTALS Coventry — WBA X 1 X 1 X 1 3 3 0 Derby — Stoke í X X 1 1 X 3 3 0 Leeds — Southampton í X 2 X 1 1 3 2 1 Norwich - Brighton X 1 1 X 1 1 4 2 0 Bristol Rov. — Orient X X 1 X 2 X 1 4 1 Burnley — QPR 2 2 2 X X 2 0 2 4 Cambridge — Newcastle 1 X X X X X 1 5 0 Fulham — Chelsea 1 X 2 2 2 X 1 2 3 Oldham — Swansea X 1 1 X 2 X 2 3 1 Preston — Luton X X X 2 1 X 1 4 1 Shrewsbury — Birmingham 1 X X X 2 X 1 4 1 Sunderland — Leicester 1 1 I 1 1 X 5 1 ó

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.