Morgunblaðið - 06.03.1980, Page 47

Morgunblaðið - 06.03.1980, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1980 47 Sigurkarfa Vals kom á síðustu sekúndunni VALUR sigraði UMFN með 105 stigum, gegn 103 í Njarðvík i gærkvöldi í bikarkeppni KKÍ. Leikurinn var mjög vei leikinn allan tímann. Mikill hraði og hittni góð. Kristján Ágústsson var hetja Vals, hann skoraði sigurkörfuna langt utan af velli, boltinn small ofan i körfuna um leið og flautan gall. Var það í fyrsta og eina sinn sem Valur var yfir i leiknum. Það skipti sköpum fyrir UMFN að missa Ted Bee út af á fimmtándu mínútu leiksins er staðan var 96 — 89 fyrir Njarð- vík. Var það ákaflega hæpinn dómur að veita Ted fimmtu vill- una svo ekki sé tekið sterkara til orða. Eftir það átti lið UMFN i vök að verjast. Valsmenn minnkuðu forskot Njarðvíkinga og þegar 32 sek. voru til leiksloka jöfnuðu þeir 103—103, mikill darraðardans var stiginn lokasekúndurnar, og þegar þrjár sekúndur voru eftir stökk Guð- steinn Ingimarsson upp en um leið var greinilega brotið á honum og skotið geigaði. Dómararnir dæmdu ekkert og Valsmenn náðu knettinum, brunuðu upp, boltinn sendur til Kristjáns Ágústssonar sem skoraði með skoti langt utan af velli og fögnuður Valsmanna var mikill. Njarðvíkingar sátu því eftir með sárt ennið nokkuð óverð- skuldað, því að lengst af voru þeir betra liðið á vellinum og höfðu frumkvæðið í leiknum. Fyrri hálf- leikur var mjög jafn en Njarðvík fyrri til að skora. Á 10. mínútu var staðan 33—30 og í leikhléi 55—53. Njarðvíkingar byrjuðu síðari hálf- leikinn af miklum krafti og kom- ust í 61—55, en Valsmenn jöfnuðu 65—65, aftur sigu Njarðvíkingar fram úr og á áttundu mínútu skildu 9 stig, 79—70. Á 14. mínútu stóð 92—83. Það verður að segja Valsmönnum til hróss að þótt þeir hafi átt undir högg að sœkja gegn UMFN lögðu þeir aldrei árar í bát. Tim Dwyer var snjall, skoraði 46 stig, og var þó allan síðari hálfleik með fjórar villur. Þórir Magnússon, Ríkharður Ilrafnkelsson, Torfi Magnússon og Kristján Ágústsson voru allir mjög góðir. Lið Njarðvíkur var mjög óheppið að tapa leiknum því að lengst af voru þeir betri.en lukkan lék ekki við þá. Það var mjög vafasamur dómur að vikja Ted Bee af leikvelli, þá var greinilega brotið á Guð- steini á lokasekúndunni er hann reyndi skot. Ted Bee, Gunnar Þorvarðarson og Guðsteinn Ingimarsson báru af í liði UMFN og Jónas að vanda sterkur í fráköstum. Þeir Hörður Túliníus og Jón Otti dæmdu erfiðan leik vel, Stig Vals: Dwyer 46, Þórir 18, Torfi 12, Kristján 11, Ríkharður 10, Gústaf 4 og Sigurður 3. Stig UMFN: Ted Bee 32, Guðsteinn 29, Gunnar 22, Júlíus 8, Jónas og Valur 6 hvor. H.Halls. Evrópukeppni meistaraliða: Forest tapaði EVRÓPUMEISTARAR Nottingham Forest eru nú í stórhættu að falla út úr Evrópukeppninni, eftir að hafa tapað á heimavelli fyrir austur-þýska liðinu Dinamó Berlin. Forest, sem tapaði fyrir Bolton í ensku deildarkeppninni á laugardaginn, hefur verið óútreiknan- legt lið lengst af i vetur og i gærkvöldi gekk dæmið ekki upp hjá leikmönnum liðsins. Forest sótti allan tímann mun meira, en vörn þýska liðsins var sterk. í siðari hálfleik átti þýska liðið nokkrar skyndisóknir og úr einni slikri skoraði Hans Júrgen Riediger sigurmarkið i leiknum. Annars urðu úrslit i meistarakeppninni í gærkvöldi sem hér segir: Hamb. SV - Hadjuk Split 1-0 Nott.Forest — Dinamó B. 0—1 Strassbourg — Ajax 0—0 Celtic — Real Madrid 2—0 Celtic vann athyglisverðan sigur á spænsku meisturunum. Bæði voru mörkin skoruð í síðari hálfleik, eftir frekar tíðindalít- inn fyrri hálfleik. George McCluskey skoraði fyrra markið á 52. mínútu eftir að markvörður Real hafði misst frá sér knöttinn eftir skot Allan Sneddons. Síðan skoraði John Doyle glæsilegt mark eftir fyrirgjöf Sneddons á 75. mínútu. Möguleikar Celtic hljóta að teljast góðir eftir þessi úrslit. HSV átti í miklum erfiðleikum með sterka Jugóslavana frá Split. Þýska liðið mætti með tvo tapleiki í röð á bakinu úr deildarkeppninni og sýndi ekki góða knattspyrnu. Eina markið skoraði Caspar Memering á 45. mínútu, klaufamark mikið, skot hans breytti stefnu mörgum sinnum á leiðinni í netið. Kargus markvörður HSV bjargaði glæsilega tvívegis í síðari hálf- leik og hélt lífi í möguleikum HSV. Ajax stendur með pálmann í höndunum eftir markalaust jafntefli úti gegn Strassbourg. Heimaliðið sótti án afláts, en það var hollenska liðið sem átti engu að síður hættulegustu fær- in, tvö dauðafæri hjá Jensen og La Ling, en bæði fóru forgörð- um. UEFA-keppnin: Þrjú þýsk lið í 4-lioa úrslit? Borussia Mönchengladbach St.Etienne — Mönch. bach 1—4 vann athyglisverðan sigur, 4— Kaiserslautern — Bayern 1—0 1, á útivelli gegn franska liðinu Frankf. - Zbroj. Brno 4 — 1 St. Etienne. Nielsen (2), Nickel Nachtweih, Lorant, Nickel og og Lienen skorðuð fyrir BMG í Karger skoruðu mörk Frank- fyrri hálfleik, Mjchel Platini furt, Horni svaraði fyrir Brno. svaraði fyrir Etienne. Urslit Axel Brummer skorað sigur- leikja í UEFA-bikarnum urðu mark Kaiserslautern gegn þessi: Bayern. • Það skipti sköpum fyrir UMFN að missa Ted Bee út af með fimm villur i síðari hálfleiknum. Ljósm. Emilia. Evrópukeppni bikarhafa:_ Stórsigur Arsenal Þorsteini Ólafssyni og félögum hans hjá sænska liðinu IK Gauta- borg gekk ekki allt í haginn er þeir mættu Arsenai á Highbury í 8-liða úrslitum Evrópukeppni bikarhafa í gærkvöldi. Er skemmst frá að segja, að Sviarnir og íslendingurinn áttu aldrei möguleika og eftir 5—1 sigur, verður að telja næsta víst, að Arsenal fari i undanúrslitin. Al- an Sunderland skoraði tvívegis og í leikhléi stóð 3—1. Price Young og Brady skoruðu hér mörk Arsenal, en Nilson svaraði fyrir sænska liðið. Úrslit leikja í 8-liða úrslitum Evrópukeppni bikarhafa urðu: Arsenal—Gautaborg 5—1 Barcelona—Valencia 0—1 Dinamó Moskva—Nantes 0—2 NK Rijeka—Juventus 0—0 95.000 trylltir áhorfendur baul- uðu og bauluðu er Barcelona beið ósigur fyrir Valencia á Nou Camp leikvanginum í Barcelona. Leik- menn Barcelona gátu með engu móti brotið á bak aftur sterkan varnarmúr Valencia, en framherj- ar síðarnefnda liðsins voru hins vegar stórhættulegir í skyndi- sóknum. Eina mark leiksins skor- aði Pablo á 51. mínútu. Síðari leikurinn verður afar erfiður fyrir Barcelona, Skagabanana. Franska liðið Nantes vann mjög athyglisverðan sigur á útivelli gegn sovéska liðinu Dinamó Moskvu. Fyrri hálfleikurinn var markalaus, en heimaliðið sótti þá mun meira. Frakkarnir tóku öll völd á vellinum í sínar hendur í síðari hálfleik og þá skorðuðu þeir Tusseau (57. mín.) og Eric Pecout (86. mín.). Stendur franska liðið nú mjög vel að vígi. Það gerir einnig Juventus, sem náði markalausu jafntefli gegn sterku liði Rijeka frá Júgóslavíu. Juventus stendur með pálmann í höndunum með heimaleikinn eft- ir. Ingólfur $etti tvö glæsileg Islandsmet UNGUR og bráðefnilegur sund- maður frá Akranesi, Ingi Þór Jónsson, setti tvö glæsileg íslandsmet og jafnaði það þriðja á sundmóti Ármanns í fyrra- kvöld. Ingi Þór byrjaði á því að setja nýtt íslandsmet í 100 metra flugsundi, synti vegalengdina á 1:01,6 mín. og bætti þar með 12 ára gamalt met Guðmundar Gislasonar sem var 1:01,6 mín. Skömmu síðar jafnaði hann svo íslandsmetið í 100 metra skrið- sundi, synti á 54,9 sek., og loks bætti hann metið i 100 metra baksundi, synti á 1:03,9 min. Besta afrekið á sundmótinu vann Sonja Hreiðarsdóttir, Ægi, synti hún 200 metra bringusund á 2:48.0 mín. Gaf afrekið 732 stig. Ingólfur Gissurarson frá Akranesi sýndi eins og félagi hans Ingi Þór að þar er mikið efni á ferðinni. Ingólfur sigraði í 200 metra bringusundi á 2.35,6 mín. og í 400 metra fjórsundi á 4:59.4 mín. Óvænt úrslit urðu svo í 100 m flugsundi kvenna en þar sigraði Anna Gunnarsdóttir, Ægi, fékk tímann 1:12,3 mín. 11 réttir gáfu stór- vinning í 27. leikviku kom fram 1 röð með alla leiki rétta, en einn leikur féll út (var leik- inn föstudag). Þetta er f fyrsta skipti á þessu ári, að 1 vinningur er óskiptur. 2 vinningur var líka dágóður, þar sem aðeins átta raðir komu fram með 10 rétta og kemur í hlut hvers kr. 125.800.- Fylkir mætir Ármanni í kvöld Einn leikur fer í kvöld fram i 2. deild íslandsmótsins í handknattleik. Eru það Ármann og Fylkir sem eig- ast við í Laugardalshöllinni og hefst leikurinn klukkan 18.50. Fylkir hefur næstum tryggt sér sæti í 1. deild að ári og hefur verið áberandi jafnbesta lið deildarinnar í vetur. Engu að síður sigraði Ármann í fyrri leik liðanna, lék einn sinn besta leik á vetrinum. Meistaramót í frjálsum íþróttum MEISTARAMÓT íslands í frjálsum íþróttum fyrir 15 til 18 ára unglinga verður haidið um næstu helgi. Það hefst i Baldurshaga á iaug- ardaginn klukkan 14.00 og vcrður síðan framhaldið á Sclfossi á sama tíma á sunnudaginn. Þátttökutil- kynningar skulu berast til skrifstofu FRÍ eða til hér- aðssamhandsins Skarphéð- ins sem allra fyrst. A-stigs námskeið KSÍ á Akranesi TÆKNINEFND KSÍ gengst fyrir A-stigs námskeiði i þjálfun á Akranesi um helg- ina. Samhliða því verður kynnt miniknattspyrna og knattþrautir KSÍ íyrir iþróttakennara og unglinga- þjálfara. Merkilega, er skortur á þátttakendum og er því möguleiki að KSi verði að aflýsa námskeiðinu vegna þessa. Þeir sem áhuga hafa á sliku námskeiði ættu að snúa sér til KSI.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.