Morgunblaðið - 09.03.1980, Page 7

Morgunblaðið - 09.03.1980, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1980 7 Umsjón: Gísli Jónsson Þórunn Guðmundsdóttir í Reykjavík kemur mér í dálít- inn vanda með orðið kryst- all (kristall). Hún segir. „Krystall þykir mér fallegt orð enda merkir það fallega hluti. Fyrrum var endingin -all látin haldast í öllum tölum og föllum. í nýlegum ritum hefi ég sé síðara 1-ið fellt niður í aukaföllunum. Skilst mér því að það sé talið nefnifalls-1. Væri þá ekki rétt að stíga skrefið til fulls og beygja orðið eins og öll hin sem enda á -ill eða -all, svo sem bagall, kaðall, þist- ill: krystall, um krystal, frá krystli, til krystals; krystlar, um krystla, frá krystlum til krystla? Þetta finnst mér augljóst". Það er nú svo. í orðabókum yfir fornmálið finn ég ekki kristall (krystall). Ég veit ekki hversu orðið er gamalt í íslensku. Starfsmenn Orða- bókar háskólans segja mér að það muni vera tökuorð úr grísku og elsta bókfesta dæmið, sem þeir hafa, er úr Guðbrandsbiblíu (pr. 1584). Þar er orðið kristall og kemur fyrir í nefnifalli. Beyging sést ekki. Næstelsta dæmið, sem orðabókarmenn hafa, er úr Ritum þess íslenska lærdómslistafélags (frá 18. öld, en þar er það kristallur. með tveimur 1-um gegnum alla beyginguna. í Blöndalsbók er notuð nefni- fallsmyndin kristall (kryst- all), en í bók Menningarsjóðs er farið eftir félagsritunum gömlu og haft kristallur. Að öllu þessu athuguðu sýnist mér eðlilegast að fara eftir málvenjunni í fleirtölu: kristallar. ískristallar, segj: um við, ekki ískristlar. í samræmi við það hafna ég þeirri uppástungu, sem fremur mun gerð í gamni en alvöru, að beygja orðið krist- all eins og t.d. kaðall eða þumall. Þá er það sögnin sem samsvarar nafnorðinu ryk- suga. Algengast mun að segja sem svo: ég ætla að ryksuga teppið. Þórunn Guðmundsdóttir vill heldur nota sögnina að ryksoga og færir fram þá réttu athuga- semd að ekki tíðkistaðmynda veikar sagnir af þriðja hljóðskipti sterkra sagna. En myndarlegast þætti mér, eða svipmest, að nota í þessu dæmi samsetningu af sterku beygingunni og ryksjúga. Dæmi: Ég ryksýg í dag, þú ryksaugst í gær. Þórunn Guðmundsdóttir vill með engu móti taka undir með Gísla Magnússyni í Eyhildarholti, að stjaka við orðinu ljósapera. Hún segir: „Ekki vil ég amast við per- um, hvorki til matar né ljósa. Orðið pera fellur vel í málið og byggir engu orði út“. Enn segir hún: „Öðru máli gegnir, þegar ágæt íslensk orð eru látin víkja fyrir erlendum slettum. Ég vil aðeins nefna þá hvim- leiðu sögn að tjakka eða tjekka. Eg veit varla hvort um flátt e eða blendið a er að ræða. Mér skilst, að þetta orð komi í stað ýmissa annarra, 41. þáttur svo sem: að athuga, gá að, fylgjast með, yfirfara og jafnvel fleiri". Ég tek eindregið undir það með Þórunni að reynt verði að rýma þessari óþörfu slettu burt. Veigamesta atriði í bréfi Þórunnar er um áherslu. Eins og ég hefur hún marg- oft heyrt undanfarið hvernig helstu lögmál tungunnar eru brotin í þessu efni, og er þar sýnu meira í húfi, en hvort eitt og eitt tökuorð slæðist inn í málið að óþörfu. Merg- urinn málsins er sá að marg- ir virðast ekki lengur kunna að hafa aðaláherslu á fyrsta atkvæði eða fyrri hluta orðs. Vandamálin heyrum við sagt í stað vandamálin og suð- austan sex í staðinn fyrir suðaustan sex, svo að einföld dæmi séu tekin. Þórunn heyrði jafnvel sagt herflug. vél, þar sem, eins og hún segir, „her og vél hékk mátt- laust á miðstykkinu“. Varla er hægt að brjóta íslensk áherslulögmál freklegar en þetta. Aðaláhersla skal vera á fyrsta atkvæði, og aukin aukaáhersla á þriðja. Þess skal þó gætt í dæminu því arna að um samsett orð er að ræða. Líftaug þjóðernis okkar er tungan og bókmenntirnar sem á henni hafa orðið til. Umfram allt megum við ekki glata þeirri sérstöðu sem felst í áherslulögmálum okk- ar, beygingakerfi, orðaröð, hljómi, stuðlasetningu og því að vera enn sem fyrr son og dóttir. Elsku Rut á Akranesi LEIKKLÚBBUR Fjölbrautaskól- ans á Akranesi hefur að undan- förnu æft amerískan gamanleik „Elsku Rut“ eftir Normann Krasna og verður frumsýning í Fjölbrautaskólanum á Akranesi kl. 20.30 n.k. sunnudagskvöld 9. mars. Leikurinn gerist á styrjaldarár- unum og fjallar um hermenn í leyfi sem hitta pennavinkonur sínar. Leikendur eru 10 en samtals vinna um 20 nemendur að sýning- unni. Leikstjóri er Þorvaldur Þorvaldsson. Þetta er í annað sinn sem leikklúbbur N.F.F.A. stendur að leiksýningu frá stofnun skólans, en í fyrra voru sýndir tveir einþáttungar undir stjórn Jóns Júlíussonar. Leikritið „Elsku Rut“ er í 6 þáttum og tekur sýningin um 2 klst. Önnur sýning er ákveðin þriðju- daginn 11. mars kl. 20.30. Aðgöngumiðar verða seldir í skólanum á sunnudag kl. 4—6 e.h. og við innganginn og er aðgangur áð sjálfsögðu heimill öllum al- menningi meðan húsrúm leyfir. Árfellsskilrúm í stofur og ganga Sýnlng kl. 2—5 sunnudag í Verzluninni Sedrus, Súðarvogi 32. trésmiðja Súöarvogi 28, sími 84630. Aþena Hárgreiðslustofa Leirubakka 36. Sími 72053. „Halló“ Breiðholtsbúar Við bjóðum upp á • Tískuklippingar • Permanent • Lokkalýsingar • Litanir • Næringarkúra • Blástur og fleira Opið mánudaga frá 10—1. Virka daga 9—6. Laugardaga frá 8—2. Reiðskóli fyrir börn á aldrinum 8—14 ára, tekur til starfa 10. marz. Kennari verður Hrönn Jónsdóttir. Lagöir eru til hestar og reiðtygi. Innritun hefst mánudaginn 10. marz í félagsheimili Fáks, sími 33679 kl. 13—18. Hestamannafélagið Fákur. anœstunni Úrvals páskaferðir 1980 24. mars 3 vikur Florida St. Petersburg Verö frá: Uppselt 27. mars 3 vikur Florida Miami Uppselt 28. mars 8 nætur Austurríki skíðaferð Örfá sæti laus 30. mars 3 vikur Kanaríeyjaferö Örfásæti laus 30. mars 7 nætur Mallorca kr. 196.000,- Laus sæti 1. apr. 7 nætur London kr. 205.000,- Nokkur sæti laus 2. apr. 5 nætur Akureyri skíðaferð kr. 47.000,- Nokkur sæti laus 3. apr. 15 nætur Ibiza kr. 275.000.- Nokkur sæti laus 3. apr. 15 nætur Mallorca kr. 275.000,- Laus sæti 3. apr. 5 nætur Kaupmannahöfn kr. 158.100,- Nokkur sæti laus FERÐASKRIFSTOFAN URVAL VIÐ AUSTURVÖLL SÍMI 26900

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.