Morgunblaðið - 09.03.1980, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1980
29
hansa flýgur á tvisvar sinnum
dýrara fargjaldi og ég þarf ekki að
sjá bíó á leiðinni.
Við höfum tekið börnin okkar
með og þetta hefur því sparað
okkur mikla peninga.
Þetta hefur alltaf gengið vel
nema í eitt skipti þegar hreyfill
bilaði, en ég flýg ennþá eins og þú
sérð. Mér líkar þjónustan vel og
maturinn er góður. Því miður hef
ég ekki gist Island ennþá en við
hugsum okkur að gera það við
tækifæri. Venjulega kaupi ég hins
vegar íslenzkar vörur í verzlun-
inni á Keflavíkurflugvelli og ég
veit um fólk sem fer beinlínis með
Icélandair til þess að geta verzlað
þar.“
„Frétti af
Icelandair hjá
vinum mínum“
„Mér er verr við að gefa upp
nafn mitt en það er sjálfsagt að
svara spurningum," sagði ung
kona sem var á leið til Þýzkalands
með tvö ungabörn sín. „Ég frétti
af Icelandair hjá nokkrum vinum
mínum í Bandaríkjunum og þetta
er fyrsta flugið mitt með félaginu.
Þjónustan er mjög góð og ég er
ánægð með það hvað vel er látið
fara um börnin. Þau fá sérstök
sæti þannig að þetta er allt mjög
þægilegt og ánægjulegt. Þegar við
töluðum við ferðaskrifstofu um
flug yfir hafið kvaðst ég fremur
vilja fara með litlu flugfélagi en
stóru þar sem mikil örtröð kynni
að vera og ég er mjög ánægð með
niðurstöðuna í alla staði."
„Síðan hefur
Icelandair verið
mitt flugfélag44
Iria Meloni er frá Ítalíu, en býr
í Florida. „Nú er ég að fara til
Ítalíu í eitt ár. Ég hef búið í
Bandaríkjunum með manni mín-
um í 20 ár. Síðustu daga var ég í
Texas hjá syni mínum sem er
háskólaprófessor og þaðan tók ég
flugvél til Cicagó til þess að ná
Icelandair. Ég er nefnilega að fara
til eiginmanns míns á Italíu. Við
fórum saman þangað á síðasta ári,
en hann vildi ekki fara aftur til
Bandaríkjanna í húsið okkar, en
ég varð að fara í vinnuna. Nú ætla
ég að vera eitt ár á Ítalíu og ég
vona að hann komi síðan með mér
aftur. Ég hef verið svolítið upp-
trekkt út af þessu en ég vona að
það lagist.
Þetta er í þriðja skiptið sem ég
ferðast með Icelandair. Mér líkar
vel við flugfélagið, verðið sem það
býður er svo hagstætt. Frá Lux-
emburg tek ég síðan lest til
Florenz. Ég kynntist Flugleiðum
þegar ég spurði ferðaskrifstofu á
sínum tíma um hagstæða fcrð og
síðan hefur Icelandair verið mitt
flugfélag. Ég hef heyrt marga tala
um félagið og þeir þekkja það á
ferðaskrifstofunum í Florida."
„Stefni að því
að heim-
sækja Island“
Connie Haberzeth frá Berlín var
að koma úr heimsókn til Banda-
ríkjanna, en þangað ætlar hún
aftur næsta haust til þess að
vinna.
„Þetta er fyrsta ferðin mín til
Bandaríkjanna og ég valdi Ice-
landair vegna þess að vinir mínir í
Bandaríkjunum bentu mér á fé-
lagið og svo var verðið mjög
hagstætt. Einnig hentaði það mér
vel að fara frá Luxemburg. Ég
vissi lítið um þetta flugfélag áður,
en mér líkar þjónustan vel.
Sumir vinir mínir hafa gist
ísland og þeim líkaði stórvel. Ég
stefni að því að heimsækja þetta
forvitnilega land síðar.“
Attræður að
leita
sér að stelpu
Mathias Steindl frá Austurríki
var líklega elzti maður um borð,
80 ára. „Ég hef búið í Bandaríkj-
unum í 25 ár, en nú er ég að leita
mér að stelpu og ég veit um eina
heima í Austurríki. Ég fann hana
þar í fyrra þegar ég kom í
heimsókn, hún er rúmlega 60 ára
gömul og það er ungt fyrir mig.
Hún sagði mér fyrir skömmu að
koma og vera hjá sér. Nú, ég reyni,
kannski gengur það, kannski ekki.
Allavega get ég dvalið lengur í
Austurríki ef ég flýg með Iceland-
air og íslenzka flugið er það
ódýrasta. Áður flaug ég alltaf með
Lufthansa, en þetta er í fyrsta
skiptið með þessu félagi og þjón-
ustan er góð og flugfreyjurnar
fallegar svo þetta er allt í þessu
fína lagi.“
„Verðið
hagstætt44
John Ang er frá Indónesíu, en
hefur búið í Heidelberg i Þýzka-
landi síðan 1973. „Ég var að
heimsækja foreldra mína í Banda-
ríkjunum, ég geri það á hverju ári
og hef ávallt flogið með Icelandair
síðan 1974. Þjónusta félagsins er
góð og verðið hagstætt. Stundum
hef ég lent í seinkun á vetrum, en
slíkt getur alltaf komið upp, sér-
staklega á vetrum. Það var eldri
bróðir minn sem benti mér á þetta
flugfélag. „Það er vingjarnlegt
fólk og gott félag," sagði hann og
ég er honum sammála. Foreldrar
mínir og systkini fljúga alltaf með
þessu félagi."
„Þjónustan er mjög góð og mér
finnst áberandi hvað flugfreyj-
urnar ykkar eru heimilislegar þótt
þær hafi norræna reisn.
Ég þarf að lifa ódýrt og þess
vegna er hagstætt fyrir mig að
fljúga með Icelandair, því ég fæ
jafnhliða góða þjónustu. Ég
kynntist Loftleiðum fyrst í blöð-
um fyrir mörgum árum. Þegar ég
var 16 ára fékk ég áhuga á sögu og
Skandinavíu og sérstaklega á
víkingarómantíkinni. Síðan fór ég
að grufla í fornnorrænu og kynnt-
ist þá nútíma íslenzku. Þannig
tengist þetta allt saman. Ég lagði
reyndar sérstaklega stund á
sænsku og Dagens Nyheter er eitt
af uppáhaldsblöðum mínum. Ég
held að Morgunblaðið sé nokkuð
líkt því, mér virðist það vera mjög
gott blað og með ótrúlega mikið af
erlendum fréttum. Mér fannst
Slagsíðan merkileg í Morgunblað-
inu með öllu spjallinu um tónlist
úr ýmsum áttum. Morgunblaðið er
stórborgarfréttablað.
„Icelandair
hefur
gott orð á sér“
John Ukisasiki frá Minnesota
var á leið til Evrópu til þess að
ferðast um suðurhluta þeirrar
álfu, Spán, Ítalíu og Grikkland.
„Ég ætla að vera á ferðinni í
nokkra mánuði, en ég hef ekki
komið til Evrópu síðan 1965. Þetta
er í annað skiptið sem ég flýg með
Icelandair eða Loftleiðum, en í
fyrra skiptið höfðu þeir ekki
þotur. Það er mjög hagkvæmt að
fljúga með Icelandair og hefur
reynzt mér vel. Ég treysti Iceland-
air og það hefur gott orð á sér og
svo er það staðsett nógu norðar-
lega til þess að verða ekki fyrir
barðinu á flugræningjum.
Ég heyrði fyrst um þetta ís-
m
00
t—*'
ji.tmmr
w
Joy Dempsey
Tveir ur hópi yngstu farþeg- John Ang.
anna.
Larry Palmquist.
John Ukisasíki
m
lenzka flugfélag hjá stúdentum
árið 1964. Þeir höfðu ferðast með
félaginu til Evrópu og mín kynni
af því kemur heim og saman við
þeirra, góð þjónusta, góð reynsla.
Ég hef mikinn áhuga á því að
stoppa á íslandi i bakaleiðinni því
ísland er forvitnilegt land og það
vekur furðu mína að landið sjálft
skuli ekki vera meira kynnt.“
„Hef heyrt látið
mikið af íslands-
heimsóknum“
Frank Untermyer býr í Cicagó,
en var á leið til Frankfurt vegna
hljóðfærasölu, en fyrirtæki hans
framleiðir og selur hina rómuðu
Hamer-rafmagnsgítara.
„Ég hef flogið fimm sinnum
með Icelandair á einu ári og ég
flýg með þessu flugfélagi af því að
þjónustan er ódýr og góð og
lendingarstaðirnir eru vel stað-
settir. Við seljum Hamer-gítara
víða í Evrópu og einnig á Islandi.
Ég ætla að stoppa á íslandi í
einhverri ferðinni, því ég hef
heyrt látið mikið af slíkum
íslandsheimsóknum. Ég á það
ábyggilega eftir því við leggjum
aukna áherzlu á viðskipti í Evrópu
en meðal kunnra hljómsveita sem
leika á Hamer eru Jethro Tull og
Who.“
„Fer beinlínis
um Islands
til að verzla“
Joy Dempsey frá Indiana var á
leið til Þýzkalands að hitta son
sinn sem býr þar. „Við fórum fyrst
með Icelandair fyrir 5 árum og
síðan höfum við farið 5 sinnum.
Núna verðum við í Evrópu í
nokkrar vikur en ’78 t.d. vorum við
í 9 mánuði. Við fljúgum með
Icelandair vegna verðsins. Luft-