Morgunblaðið - 09.03.1980, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.03.1980, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1980 Góður matur Geymsla hreingerningaref na — ein helzta orsök slysa á heimilum er eitranir í greinargerö landlæknis um slysatíðni á heimilum, sem birt var í Mbl. á föstudag í tengslum við könnun Junior Chamber á öryggi barna á heimilum, sem fram fer nú um helgina í sam- vinnu við landlækni, segir m.a. að ein helzta orsök slysa á heimilum séu eitranir. í því sambandi má hér geta þess, að þvottalegir og önnur hreingerningarefni, sem mörg innihalda efni, sem varla geta talist holl og eru sum beinlín- is hættuleg mönnum, eru oft geymd í eldhússkápum niðri við gólf og því auðvelt fyrir börn að ná til þeirra. Það er ástæða til þess fyrir fólk, þar sem börn eru í heimili, að geyma slík efni ekki síður en meðul á stað þar sem börn ná ekki til þeirra. Erlendis hefur víða verið tekin upp sú regl" að hafa að minnsta kosti einn læsanlegan skáp í eldhúsi af varúðarástæðum. Slíka reglu eða reglu um skápa, sem eru þar sem að börn ná ekki til, t.d. fyrir ofan ísskápa, ættu eldhúsinnréttinga- framleiðendur hér á landi að taka upp, því aldrei verður það ofbrýnt fyrir foreldrum að gæta að sér í þessu efni. Sætur er sjaldfeng- inn matur — tvær íslenzkar verðlaunauppskriftir úr norrænu mat- reiðslukeppninni Eins og fram hefur komið í Mbl. tóku matreiðslumeistararnir Gísli Thoroddsen, Haukur Her- mannsson og Kristján Daníelsson þátt í norrænni matreiðslukeppni á vegum Klúbbs matreiðslumeist- ara á íslandi í Bella Center í Kaupmannahöfn um miðjan febrúarmánuð sl. í þessari keppni voru Islendingarnir í öðru sæti á eftir Finnum, en Danir, sem frægir eru fyrir matreiðsluhæfi- leika sína, urðu að láta sér nægja þriðja sætið og bronzverðlaun. Island hlaut sérstök verðlaun fyrir skemmtilegar skreytingar og hugmyndaríkar uppsetningar á köldum réttum á föt. Daglegu lífi lék forvitni á að vita hvernig matreiðslumeistar- arnir hefðu matreitt sína verð- launarétti og fékk uppskriftir af sítrónumarineruðum lambahrygg með madeirasósu og djúpsteiktum skötusel með rjómasoðnu spínati. En af köldum réttum framreiddu íslendingarnir steikta og fléttaða villigæs, fylltan lambahrygg, smálúðuflök í hlaupi með hörpu- DAGLEGT LlF Vorið — Sumarið í Daglegu lífi hefur verið vikið að tízkulitunum í vor og sumar samkvæmt uppskriftum franskra tízkuhönnuða. Bæði pilssíddin og jakkasíddin verður styttri í ár en hefur verið. Yves St. Laurent er hönnuður þessa klæðnaðar, dragtin er hvít, blússan svört og hvit og sokkarnir svartir. Jakkinn er bolerojakki og pilsið í stíl við lagið á jakkanum. Þessi dragt er frá Balmain, — bæði jakkinn og piisið styttri frá því sem verið hefur. æ I öa B m 1 1 Um stríð og frið I Daglegu lífi hefur áður verið sagt frá undirskriftaherferð kvenna á Norðurlöndunum fyrir heimsfriði og tryggri framtíð uppvaxandi kynslóðar. Þær konur sem fyrir undirskriftunum standa gera sér vonir um að 5 milljónir kvenna hafi skrifað undir áskorunina um að valdabarátta stórveldanna og ögranir við heimsfriðinn verði stöðvaðar, dregið verði úr herbúnaðar- kapphlaupi stórveldanna og því fjármagni sem eytt hefur verið til vopnaframleiðslu verði beint til framleiðslu á matvælum, fyrir 15. maí n.k. Þá verða listarnir sendir Sameinuðu þjóðunum, Moskvu, höfðuðstöðvum NATO og Varsjárbandalag- inu. Dea Trier Mörch teiknaði þessa mynd af móður og barni og hefur hún verið tileinkuð undirskriftasöfnuninni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.