Morgunblaðið - 09.03.1980, Síða 21

Morgunblaðið - 09.03.1980, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1980 21 Leikarar í Veiðiferð — aftari röð frá vinstri: Hallur Helgason, Þórhallur Sigurðsson, Sigurð- ur Skúlason, Sigurður Karlsson, Sigurður Jó- hannesson, Pétur Einarsson og Arni Ibsen. í fremri röð frá vinstri: Klemenz Jónsson, Guðmundur Kristinn Klemenzson, Kristín Björgvinsdóttir, Sigríður Þorvaldsdóttir, Yrsa Björt Löve og Pétur Sveinsson. Þeir Halli og Laddi fara með hlutverk Eyjapeyja í Veiðiferð. „Ég hafði ákaflega gaman af að leika í Veiðiferð. Þegar maður leikur í kvikmynd þá er um að gera að vera sem eðlilegastur í því umhverfi sem maður er. Ég var því nokkuð frjáls og veiddi í vatninu. Það var algjör tilviljun að ég tók að mér hiutverk veiði- mannsins. Upphaflega átti Róbert Klemenz Jónsson ásamt syni sinum, Guðmundi Kristni, en hann fer með eitt stærsta hlutverkið i Veiðiferð, og eiginkonu, Guðrúnu Guðmundsdóttur. Veiðimaður með hatt „Jú, ég lék árið 1947 í kvikmynd á námsárum mínum í Bretlandi en sú mynd kom aldrei hingað upp, fór með lítið hlutverk. Svo lék ég i gamla daga í Niðursetningi Lofts Guðmundssonar, en sú myndataka fór fram upp itKjós. Fyrir utan smáhlutverk í Sjötíu og níu af stöðinni. Svo hef ég komið fram í sjónvarpi." Hefur mikið breyst frá því þú stóðst fyrir framan myndavél Lofts heitins? Klemenz Jónsson leikur veiðimann í Veiðiferð „Mitt hlutverk í Veiðiferð er ekki stórt — ég leik kall með hatt, — veiðimann með hatt,“ sagði Klemenz Jónsson leikari í spjalli við blaðamann Mbl. Klemenz er ekki hinn eini úr fjölskyldunni, sem leikur í Veiðiferð því sonur hans, Guðmundur Kristinn, leikur eitt stærsta hlutverkið í mynd- inni. „Krakkarnir eru í aðalhlut- verkum í myndinni og eftir að hafa séð forsýningu myndarinnar þá finnst mér þau standa sig mjög vel.“ Hvernig er að standa fyrir framan suðandi kvikmyndavél- arnar? Arnfinnsson að leika veiðimann- inn en hann gat ekki komið því við. Ég hljóp því í skarðið í sumarfríi mínu og ég bjó ásamt fjölskyldu minni i tjaldi austur á Þingvöllum á meðan upptökur stóðu yfir.“ Nú hefur þú leikið áður í kvikmyndum, er ekki svo? „Já, mikil ósköp, eins og gefur að skilja. Tæknin er nú miklu meiri. Aðstæður voru allar mjög frumstæðar þegar Loftur var að vinna sitt brautryðjendastarf.“ Á leið til stjarn- anna í Hollywood Spjallað við Þórhall Sigurðsson -Ladda „Við bræðurnir erum í hlut- verki Eyjapeyja, sem koma upp á meginlandið til að hitta stelp- ur, sem ég hef skrifast á við. Eg á víst að vera æðislegur töffari en hins vegar er Halli ávallt ákaflega þreyttur og lítt til stórræða. Við lendum í margs konar uppátækjum," sagði Þór- hallur Sigurðsson — sem allir Islendingar þekkja undir nafn- inu Laddi. „Ég hef aldrei áður leikið í kvikmynd en hins vegar oft komið fram í sjónvarpi og þetta er í sjálfu sér líkt. Maður er því orðinn vanur að standa fyrir framan myndavélarnar." Og þú hyggur auðvita á frek- ari frama í heimi kvikmynd- anna. „Já, þetta er það sem mig hefur alltaf dreymt um og þessi mynd opnar leiðin til stjarnanna í Hollywood," sagði Laddi og hló — eins og hann einn kann og allir íslendingar þekkja.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.