Morgunblaðið - 11.03.1980, Blaðsíða 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980
25
Valsmenn slógu Spánverjana
út og fara fyrstir íslenskra liða
í úrslit Evrópukeppninnar
ÍSLENSKUR handknattleikur lifði
sína stærstu stund í Laugardals-
höllinni á sunnudagskvöldið, en
þá slógu Valsmenn spænsku
meistarana Atletico Madrid út úr
Evrópukeppni meistaraliða í
handknattleik. Þetta voru 4-liöa
úrslit, þannig að Valur leikur til
úrslita um Evrópubikarinn við
Grosswaldstadt frá Vestur-Þýska-
landi. Hvernig úrslitaleikurinn fer
síðan skiptir ekki öllu máli, heldur
það fádæma afrek sem Valsmenn
hafa þegar unnið með því að
Hvílík
stemmning
Þokulúðrarnir voru í stans-
lausri notkun á áhorfendapöllun-
um og óhætt er að fullyrða, að
aldrei hafi verið önnur eins
stemmning í Laugardalshöllinni
og ólíklegt að önnur eins verði í
náinni framtíð. Var niðurinn í
lúðrunum slíkur, að það minnti
helst á Reykjavíkurhöfn klukkan
tólf 31. desember og spænski
þjálfarinn sem dansaði um alla
hliðarlínuna gat með engu móti
komið skilaboðum til sinna
manna. Og eftir leikinn var
stanslaus lúðragnýr lengi lengi.
Meira að segja hörðustu Valsarar
táruðust og ekki var annað að sjá
en menn sameinuðust í gleði sinni,
hvaða félagi sem þeir tilheyrðu.
Hilmar þjálfari var „tolleraður",
Valsmenn fóru til klefa síns, en
komu út til að þekkjast fagnaðar-
öskur áhorfendaskarans. Þetta
var ótrúlegt, draumurinn var orð-
inn að veruleika.
Snilldarlegur
fyrri hálfleikur
En hvað svo með leikinn? Mikil
taugaspenna markaði fyrstu
mínúturnar, en eftir að hin fræga
leikbrella Bjarna og Steindórs
hafði gengið upp strax á annarri
mínútu leiksins, voru það Vals-
menn sem náðu að hemja sínar
taugar. Mark þetta, sem var
hreint glæsilegt, var ákaflega
mikilvægt andlega, að skora slíkt
mark kom Val á bragðið. Alonso
jafnaði að vísu fljótlega, en annað
glæsimark frá Steindóri kom Val
yfir á ný. Síðan hrúguðu Þorbirn-
irnir Jensson, sem átti stórleik, og
Guðmundsson niður þremur
mörkum, staðan var orðin 5—1 og
aðeins 11 mínútur liðnar af leikn-
um.
Gunnari Lúðvíkssyni var vikið
af Ieikvelli og dæmdur var ruðn-
ingur á Þorbjörn Jensson. Uria
minnkaði muninn, en Valsmenn
svöruðu með vítakasti Stefáns
Halldórssonar og þriðja marki
Steindórs, 7—2 fyrir Val! Upp úr
þessu fór leikurinn heldur að
jafnast, Spánverjarnir hafa séð
sem von var, að við svo búið mátti
ekki Iengur standa og ekki stætt á
öðru en að minnsta kosti láta
Valsmenn hafa fyrir sigrinum.
Manrig minnkaði muninn, en
Gunnar skoraði áttunda markið á
17. mínútu.
En næstu tvö mörk voru
spænsk, Uria skoraði fyrst eftir
komast þetta langt í keppninni.
Aldrei hefur íslenskt liö komist í
úrslit. Og aldrei í 4-liða úrslit.
Þetta hafa ekki verið nein slorlið
sem Valur hefur slegið út. Að vísu
voru þeir ensku frá Brentwood
engir snillingar, en bæði Drott frá
Svíþjóð og Atletico Madrid eru lið
sem flestir hefðu frekar reiknað
með að væru sterkari en Valur. Og
ekki má gleyma því, að lið þessi
eru atvinnumannalið, Valsmenn
áhugamenn.
Valur — 4Q_________4C
Atletico Madrid IO-IO
langa sóknarlotu og síðan bætti
De Andreas marki við úr hraða-
upphlaupi. Stefán Halldórsson
skoraði glæsilegt mark úr upp-
stökki á 21. mínútu og þrátt fyrir
að Þorbirni Guðmundssyni væri
vikið af leikvelli, bætti Bjarni
Guðmundsson frábæru marki við
úr hraðaupphlaupi, 10—5.
Forsmekkur að
skrýtinni
dómgæslu
Valsmenn voru enn einum færri
er Uria skoraði úr vítakasti og
létu síðan dæma á sig töf. Spán-
verjarnir misstu þó knöttinn,
Gunnar brunaði upp og var kom-
inn í dauðafæri, er spænskur
varnarmaður stytti sér leið yfir
vítateiginn til þess að fara fyrir
skotið. Ekkert dæmt og ekki í
fyrsta skipti sem menn öskruðu
sig hása yfir dómgæslunni. Hún
var þrátt fyrir allt lengst af mjög
frambærileg, þeir Broman og
Webster frá Svíþjóð hafa dæmt
hér áður og eru færir karlar. En
undir lok leiksins væri synd að
segja að um heimadómara væri að
ræða, þvert á móti. Svo rammt
kvað að þessu, að einn af þekktari
handknattleiksdómurum landsins
missti út úr sér: „Þeir ætla að gefa
Spánverjunum leikinn."
Staðan var nú 10—6 og hvort að
fyrrnefnt atvik hafi haft eitthvað
að segja eða ekki skal ekki sagt
um, en úr þessu fór heldur að
halla undan fæti hjá Val. Enn
kom furðuleg dómgæsla er brotið
var gróflega á Steindóri á línunni
og eigi færri en þrír Spánverjar
brotlegir inni í vítateignum. Ekk-
ert dæmt, jú fyrirgefið, aukakast.
Spánverjar misstu De Andreas út
af í tvær mínútur, en Valsmenn
gátu ekki nýtt sér það, ótímabær
skot og annað réð því að fimm
síðustu sóknarlotur liðsins í fyrri
hálfleik fóru fyrir ofan garð og
neðan.
Víti sem gat
skipt sköpum
Á síðustu mínútu fyrri hálfleiks
kom upp atvik sem hæglega hefði
getað orðið vendipunktur í leikn-
um. Staðan 10—6 þegar Valsmenn
fengu vítakast. Stefán kastaði, en
gerði það ekki af yfirvegun, skaut
beint í spriklandi markvörðinn,
knötturinn barst fram á völlinn,
Spánverjar náðu knettinum og
brunuðu einir upp. Steindór náði
þeim þó, braut á knatthafanum,
Atletico fékk víti og Steindór
tveggja mínútna hvíld. Úr víta-
kastinu skoraði Uria af öryggi
eins og öðrum vítaköstum AM í
leiknum. Fáeinar sekúndur til
leiksloka og Þorbjörn Guðmunds-
son reyndi ótímabært og óvandað
skot. Enn var tími fyrir Spánverj-
ana að skjóta, en Óliver Ben. varði
vel. Afdrifaríkt augnablik það.
Stórleikur Óla
Valsmenn hófu síðari hálfleik-
inn einum leikmanni færri,
Steindór var enn ekki búinn að
taka út refsingu sína. Spánverj-
arnir komust í tvö dauðafæri í
fyrstu sókn sinni, en Óli Ben. varði
meistaralega bæði skotin. Var það
forsmekkurinn af því sem kom
síðan frá Óla. Það hefur gengið á
ýmsu hjá honum í vetur, en
hvílíkur tími til þess að detta
niður á stórleikinn. Valsmenn
höfðu sagt það fyrir leikinn, að ef
sigur ætti að vinnast, mættu
markverðirnir ekki bregðast. Og
það gerðu þeir ekki, sérstaklega
Óli Ben. sem kom í markið um
miðjan fyrri hálfleik, er Brynjar
fann sig illa.
Rekistefna
eftir rekistefnu
Þegar hér var komið sögu, hafði
raunar verið viðloðandi allan leik-
inn, varð hvað eftir annað að
stöðva leikinn um tíma vegna
orðaskaks dómaranna og spænsku
liðstjóranna. Feiknarleg átök inni
á vellinum hlupu í blóðið á suður-
landabúunum og mikið var rifist.
Þá var ieikurinn einnig stöðvaður
um stund vegna þess að í mann-
þrönginni höfðu sælgætisumbúð-
irnar hörfað inn á keppnisgólfið.
Þurfti að sópa því burtu áður en
að einhver slasaði sig. En engum
varð hált á poppbréfinu, hins
vegar varð Þorbirni Jenssyni hált
á einum Spánverja sem sló hann
svoleiðis í augað að blæddi úr
augnlokinu og það ekki lítið. Var
hann reifaður og pakkaður inn í
sáraumbúðir, mætti síðan í slag-
inn á ný hálfu verri viðureignar.
Steindór skoraði fyrsta
mark leiksins með tilþrifum.
Jafnræði
um tíma
Staðan var 10—7, Valsmenn
einum færri, en engu að síður
skoraði liðið fyrsta mark hálf-
leiksins, Þorbjörn Jensson með
þrumufleyg. Uria skoraði úr víti
fyrir AM og eftir stangarskot
Þorbjarnar Jenssonar minnkuðu
Spánverjarnir muninn í tvö mörk
þegar Alonso skoraði, 11—9. í
næstu sókn varði spænski mark-
vörðurinn tvívegis laus skot frá
Þorbirni Guðmundssyni. Fór nú
að fara um áhorfendur, enda
virtist sem Valsmenn væru að
missa leikinn úr höndum sér.
Valsmenn skoruðu þó næst, nánar
tiltekið Þorbjörn Guðmundsson,
úr víti sem Bjarni fiskaði. Uria
svaraði úr vítakasti fyrir AM,
staðan 12—10 og 38 mínútur
liðnar af leiknum. Þorbjörn Jens-
son og nafni hans Guðmundsson
skoruðu sitt markið hvor, 14—10,
og aftur vöknuðu áhorfendur til
lífsins. En engu að síður sýndu
Valsmenn ekki sömu ákveðni og í
fyrri hálfleik, leikur liðsins var oft
tilþrifalítill og tilviljanakenndur.
Það var heimamönnum til happs,
að Spánverjarnir voru að tapa sér.
Þá skorti herslumuninn til þess að
jafna leikinn. Milian skoraði,
14—11, en Þorbjörn Guðmundsson
svaraði úr vítakasti.
Enn eygðu Spán-
verjar von
Vonarneisti spratt upp hjá
Spánverjunum er Þorbjörn Jens-
son var rekinn af leikvelli á 13.
mínútu hálfleiksins. Milian skor-
aði, töf var dæmd á Valsmenn í
næstu sókn og Manrig bætti enn
við marki fyrir AM, staðan þá
orðin 15—13. Um miðbik hálf-
leiksins og úr því kom iðulega
fyrir, að hver sóknarlotan fór í
vaskinn af annarri, hjá báðum
liðum. Enn héldu sveiflurnar
áfram, Þorbjörn Jensson skoraði
16. mark Vals og Gunnar
Lúðvíksson skoraði síðan úr
hraðaupphlaupi, 17—13, og 8
Gunnar Lúðviksson brýst inn úr horninu.
Þorbjörn Jensson reynir skot i leiknum.
Ljósm. Emilia.
• Tryllt fagnaðarlæti Vaismanna og áhorfenda i leikslok.
mínútur eftir. Ef taugaspenna
hafði ríkt fyrr í leiknum, þá er
ekki til orð yfir það sem ríkti
þessar síðustu mínútur. Uria skor-
aði 14. mark AM þegar rúmar sjö
mínútur voru eftir og litlu munaði
að AM minnkaði enn muninn er
Spánverjarnir komust inn í send-
ingu Valsmanna, en Óli varði
snilldarlega skot Alonsos.
Þorbjörn
útilokaður
Nokkru áður hafði Þorbjörn
Jensson fengið sína þriðju brott-
vikningu í leiknum og hjálpaði það
Valsmönnum ekki hót. Jón Karls-
son sneri sig í gegn, en var afar
óheppinn, skaut innan á stöngina.
Spánverjarnir fengu knöttinn og
fóru áhorfendur enn á ný að
kveðja úrslitaleikinn. En Óli Ben.
var í stuði og varði glæsilega í
næstu sókn. Síðan voru bæði
Steindór og Puerta reknir af
leikvelli fyrir áflog. Ekkert gerðist
meðan þeir félagarnir voru utan
vallar utan, að sænsku dómararn-
ir fóru að sýna á sér hliðar betur
geymdar í skugganum. T.d. var
brotið á Þorbirni Guðmundssyni
aftan frá í hraðaupphlaupi, í þann
mund sem hann var að fara að
senda knöttinn í netið hjá Spán-
verjunum. Dæmdu þeir Broman
og Webster aðeins aukakast og
veltu menn því þá fyrir sér hvað
þyrfti til þess að fá vítakast. Og
Spánverjinn var ekki einu sinni
aðvaraður, nei nei.
Síðustu
sekúndurnar
eins og ár
Þegar Stefán Gunnarsson skor-
aði 18. mark Vals þegar 1,20 mín.
voru eftir, töldu víst flestir að
sigurinn væri í höfn, en Uria
skoraði fyrir AM næstum áður en
menn gátu deplað auga. Og til þess
að bæta á eigin taugakvalir og
áhorfenda, misstu Valsmenn
knöttinn í hendur Spánverja þeg-
ar þeir þurftu ekki annað en að
halda knettinum í tæpa mínútu.
Spánverjarnir voru því í sókn
síðustu hálfu mínútuna, en fundu
ekki smugur á góðri vörn Vals-
manna. Svo gall flauta dómar-
anna...
Óli Ben. stóð upp úr
Valsmenn áttu eftir atvikum
góðan dag. Spennan í leiknum
kom í veg fyrir alvöru gæði á
handknattleiknum, en í fyrri hálf-
leik létu Valsmenn það þó ekkert á
sig fá og sýndu betri handknatt-
leik en liðið hefúr gert í háa
herrans tíð, hraður ógnandi sókn-
arleikur, vörn eins og fjallgarður,
en markvarslan þó ekki meira en
þokkaleg. Þegar spennan seig í
síðari hálfleik, fjaraði sóknarlip-
urðin út, vörnin hélt sínu striki, en
í staðinn fyrir sóknarleik á heims-
mælikvarða tók nú við markvarsla
á sama mælikvarða, Ólafur Bene-
diktsson var í essinu sínu.
Að öðrum ólöstuðum voru þeir
Óliver og Þorbjörn Jensson bestu
leikmenn Vals, Þorbjörn alltaf
sami hrammurinn í vörninni og
auk þess atkvæðamikill i sókninni.
Þá komu þeir Bjarni, Steindór og
Gunnar Lúðvíksson mjög vel frá
leiknum allir saman, svo og Stefán
fyrirliði Gunnarsson sem er
drjúgur þegar reynsluna vantar.
Stefán Halldórsson gerði góða
hluti þegar hann fékk tækifæri til
þess og Þorbjörn Guðmundsson
var köflóttur í sókninni. Hann
bætti það þó upp með stórgóðum
varnarleik. Síðast en ekki síst á
þjálfarinn Hilmar Björnsson hrós
skilið og meira en það raunar,
árangurinn sem liðið hefur náð
undir hans stjórn er eins og
draumur sem íslendingar eru að
vona að þeir vakni ekki upp við að
sé rangur.
Spænska liðið gott
Spænska liðið hefur marga góða
kosti, en einnig mjög áberandi
galla. Þetta er eitt af toppliðum
Spánar og bendir því allt til þess
að Spánverjar hafi síður en svo
stungið íslendinga af á hand-
knattleikssviðinu, Gallarnir eru
einkum þeir, að markverðir liðsins
eru ekki ýkja sterkir. Þeir vörðu
þó allvel í síðari hálfleik, en það
var ekki síst vegna þess að mörg
skot Valsmanna voru þá ekki til
að hrópa húrra fyrir. Þeir Alonso
og Uria eru geysilega sterkir
handknattleiksmenn og liðið leik-
ur geysilega hraðan handknatt-
leik. Ef Valsmenn hefðu látið tæla
sig út í sama hraða og Spánverj-
arnir vilja leika, hefði saga þeirra
ekki orðið lengri. Spánverjarnir
létu hægagang og stundum sila-
legan leik Vals fara í taugarnar á
sér, þeir flýttu sér síðan allt of
mikið loks þegar þeir fengu knött-
inn í hendurnar og því fór sem fór.
Eftir á að hyggja, er ljóst, að
Valsmenn hefðu ekki fengið háa
einkun ef Atletico Madrid hefði
ekki verið lagt að velli, því að
þrátt fyrir allt er liðið ekki svo
sérstakt, gott Iið þó og ekki sagt til
að rýra sigur Valsmanna í gleði
þeirra.
Mörk Vals: Þorbjörn Jensson 5,
Þorbjörn Guðmundsson 4 (2 víti),
Steindór Gunnarsson 3, Stefári
Halldórsson 2 (1 víti), Gunnar
Lúðvíksson 2, Bjarni Guðmunds-
son og Stefán Gunnarsson 1 mark
hvor.
Mörk AM: Uria 8 (4 víti), Alonso
2, Milian 2, Manrig 2 og De
Andreas 1 mark.
Leikinn dæmdu Broman og
Webster frá Svíþjóð. — gg.