Morgunblaðið - 11.03.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980
Friðrik Ólafsson forseti FIDE:
Þetta er efnd á loforði við
þá sem tefla í einvígjunum
„ÞESSI ákvörðun mín er nú bara
efnd á loforði við þá, sem taka
þátt í áskorendaeinvígjunum, en
á fundi, sem haldinn var eftir að
dregið var í einvígin, báðu þeir
mig að sjá til þess, að ef hrein
úrslit réðust ekki í 14 skákum, þá
yrði skákum f jölgað þar til úrslit
fengjust, en ekki farið eftir þeim
reglum, sem samþykktar voru á
FIDE-þinginu 1977,“ sagði Frið-
rik ólafsson forseti FIDE, en
hann hefur tilkynnt að hann
muni ekki láta breyta reglunum
frá 1977, heldur verði einviígin
framlengd um tvær skákir í senn,
þar til úrslit fást.
Reglurnar frá 1977 kveða á um
10 skákir og síðan tvisvar sinnum
tvær skákir, ef úrslit fást ekki
fyrr. Fáist þau ekki að loknum 14
skákum skyldi sigurvegari ein-
vígisins vera sá, sem fleiri skákir
hefur unnið með svörtu. Ef það
gerði ekki upp á milli keppenda,
þá skyldi sá sigurvegari, sem
síðast í einvíginu jafnaði metin.
Og ef það dygði ekki til, þ.e.a.s. að
allar skákirnar hefðu endað með
jafntefli, þafskyldi hlutkesti ráða.
Skipuleggjendur einvígis Korc-
hnois og Petrosjans, sem nú er
hafið í Austurríki, hafa mótmælt
þessari ákvörðun Friðriks. „Ég hef
nú bara fengið mótmæli, en hins
vegar séð í fréttum að þeir fari
fram á tryggingu frá FIDE fyrir
hverja umferð, sem yrði fram yfir
14 skákir," sagði Friðrik. Spurn-
ingu Mbl. um það, hverju FIDE
myndi svara slíkri kröfu, svaraði
Friðrik: „Ég held ég láti hana eiga .
sig í lengstu lög“. Og hann bætti
við, að ekki væri nema eitt dæmi
þess að framlengja hefði þurft
áskorendaeinvígi, en það var ein-
vígi Horts og Spasskys í
Reykjavík.
Friðrik sagði að á fundinum,
sem hann átti með keppendum í
Hrun síldar-
stef na og
breytingar
á umhverfis-
þáttum
í dag þriðjudaginn 11. mars
heldur Jakob Jakobsson fiski-
fræðingur erindi á vegum
Liffræðifélags íslands, sem hann
nefnir „Hrun sildarstofna og
breytingar á umhverfisþáttum“.
Eins og kunnugt er hrundu
flestallir síldarstofnar í Norður-
Atlantshafi fyrir um það bil
áratug og er ofveiði oftast einni
kennt um. í þessu erindi mun
Jakob hins vegar fjalla um hvern
þátt breytingar á umhverfisþátt-
um kynnu að hafa haft í þessu
sambandi, einkum hér við land.
Að venju verður fyrirlesturinn
haldinn í stofu 158 í húsi verk-
fræði- og raunvísindadeildar,
Hjarðarhaga 2—4, og hefst kl.
20.30. Öllum er heimill aðgangur.
áskorendaeinvígjunum, hefðu þeir
allir verið viðstaddir, nema Korc-
hnoi og Húbner, en fulltrúi Korc-
hnois mætti á fundinum. „Þeir
báðu mig þá að sjá til þess, að
þessar reglur, sem nú átti í fyrsta
skipti að beita, kæmu ekki til
framkvæmda og lofaði ég því, þar
sem þeir voru allir á einu máli,“
sagði Friðrik.„Ég kom svo skila-
boðum um þetta til Húbners og
hef ekki heyrt nein mótmæli frá
honum."
Friðrik sagði. að hann tæki
þessa ákvörðun í krafti þess valds,
sem forseti FIDE hefur á milli
þinga, en þessa ákvörðun þarf
hann að leggja fyrir þing FIDE í
haust.
Næsta áskorendaeinvígi, milli
Adorjans og Húbners hefst í
V-Þýzkalandi 14. marz. n.k. og 23.
marz setjast þeir Tal og Poluga-
evsky að tafli í Sovétríkjunum, en
því einvígi var frestað vegna
veikinda Tals. Og 29. marz hefst
svo einvígi Portisch og Spasskys í
Mexíkó.
Friðrik ólafsson óskar sigurvegara Reykjavíkurskákmótsins, Sovét-
manninum Viktor Kupreitscbik, til hamingju með sigurinn og
stórmeistaraáranirurinn i lokahófi mótsins i gær. T.iósm Mhl: ÓI. M.
fslendingar
úti að aka 9
Já, margir hverjir, þaö fer ekkert feröinni sjáifir - sumir fara um ®
á milli mála - þó eru þeir mörg lönd - aörir fara hægar yfir
sérstaklega úti aö aka á sumrin - og halda sig lengst þar sem
þá skipta þeir þúsundum
Ástæöan? »
,, * ^
Jú ástæöan er einföld, hún ersú
aö afsláttarfargjöld okkar gera
öllum kleift aö komast utan í
skemmtilegast er.
Þaö þarf engan aö undra þótt
margir séu úti aö aka á sumrin -
á eigin bílum eöa leigöum bílum.
Kynntu þér afsláttarfargjöld
sumarleyfi til þess aö sjá sig um, okkar - þau gætu komiö þér
kynnast frægum stööum - og
gista heimsborgir.
Þeirsem þannig feröast ráöa
þægilega á óvart-og oröiö til
þess aö þú yröir líka úti aö aka í
sumar.
FLUGLEIDIR
luossujqíggw